Morgunblaðið - 09.04.2002, Page 37
eftir sem áður hefur bilið milli ung-
menna og yfirvalda ekki verið brúað
með viðurkenndum og skiplögðum
hætti.
Stórt skref var reyndar stigið í
janúar þegar Reykjavíkurráð ung-
menna var stofnað að frumkvæði
ÍTR og er áfangi í vinnu ungmenn-
aráða hverfanna sem hófu störf síð-
asta haust. Í Reykjavíkurráðinu
eiga sæti fjórtán unglingar á aldr-
inum 12-16 ára sem tilnefndir eru úr
hverfaráðum ungmenna. Markmiðið
er að skapa vettvang og leiðir til
þess að gera þeim sem yngri eru en
18 ára kleift að koma skoðunum sín-
um á framfæri við viðeigandi aðila.
Unglingarnir hafa fundað reglulega
síðan í haust og fengið þjálfun í lýð-
ræðislegum vinnubrögðum og segja
má að starfið sé lífsleikni í reynd.
Það er líka gleðilegt frá því að segja
að stelpur hafa verið meirihluti þátt-
takenda og er vonandi að starfið
skili okkur öflugum stjórnmálakon-
um og -körlum í framtíðinni.
Viðeigandi aðilar eru hvattir til að
stuðla að auknu unglingalýðræði
þar sem tillit er tekið til sjónarmiða
þeirra sem erfa landið. Með því væri
ekki einungis verið að uppfylla
ákvæði barnasáttmálans heldur ver-
ið að virkja þá orku sem ungmenni
ráða yfir og viðurkenna þau sem
virka þátttakendur í samfélaginu.
Höfundur er jafnréttisráðgjafi ÍTR.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. APRÍL 2002 37
HINN 13. desem-
ber 2001 gaf sam-
gönguráðuneytið út
skýrsluna Samgöngu-
áætlun 2003–2014, til-
laga stýrihóps. Talna-
efni í skýrslunni olli
mörgum furðu og
áhyggjum og leiddi
hún til nokkurra
blaðaskrifa í byrjun
febrúar sl.
Í skýrslunni er gert
ráð fyrir að hlutur
höfuborgarsvæðisins
af vegafé til nýfram-
kvæmda á fyrsta fjög-
urra ára tímabili áætl-
unarinnar verði 28,5% og haldist
svipað frá 2007–2014.
Í opnu bréfi undirritaðs til ráð-
herrans í DV. 4. febrúar sl. var
beðið um skýringar á vafasömu
talnaefni um akstur á höfuðborg-
arsvæðinu og utan þess, sem lagt
er til grundvallar í skýrslunni
(Samgönguáætlun 2003–2014 ...).
Engar skýringar hafa borist.
Leitað var til Vegagerðar rík-
isins um skýringar á talnagrunn-
inum en án árangurs. Hjá Vega-
gerðinni fengust ekki heldur svör
við því hverjar væru 20–50 arðsöm-
ustu framkvæmdir í vegagerð á
næstu árum. Því var borið við að
stofnunin væri hætt að taka saman
slíka lista!
Í opnu bréfi til borgarfulltrúa og
þingmanna Reykjavíkur í Morgun-
blaðinu 19. mars sl. eru þessir
fulltrúar brýndir til að tryggja
réttláta skiptingu vegafjár og gera
þannig skyldu sína gagnvart kjós-
endum í Reykjavík. Þar segir m.a.:
„Á næstu dögum og vikum verð-
ur tekin til afgreiðslu á Alþingi
samgönguáætlun til næstu 12 ára,
unnin á vegum samgönguráðuneyt-
is. Þar er m.a. gert ráð fyrir því að
hlutur höfuðborgarsvæðisins í
heildarfjárveitingum til nýfram-
kvæmda verði aðeins 28,5% að
meðaltali fyrstu 4 ár-
in.
Þegar litið er til
þess, að á árunum frá
og með 1995 til og
með 2001 var þetta
hlutfall á bilinu 21–
29%, má segja að fjár-
veitingar til höfuð-
borgarsvæðisins
hjakki í sama fari.
Þetta ástand er með
öllu óviðunandi fyrir
íbúa þessa svæðis,
sem eru 62% allra Ís-
lendinga.
Þeir sem nota veg-
ina, greiða viðhald
þeirra og uppbygg-
ingu í gegnum þungaskatt og bens-
íngjald og því ætti hlutur höfuð-
borgarsvæðisins að vera a.m.k.
62% af heildarfjárveitingum. Þess
má geta að árleg fjárveiting til
svæðisins skv. samgönguáætluninni
fyrstu 4 árin er fyrirhuguð 1,7
milljarðar en væri 3,7 milljarðar að
teknu eðlilegu tilliti til fólksfjölda.“
Ekki hefur orðið vart við við-
brögð neins af 19 fulltrúum á Al-
þingi né 15 fulltrúum í borgar-
stjórn. Ráðherrann bregst hins
vegar við skrifum Egils Helgason-
ar um þetta mál með bréfi í Morg-
unblaðinu þriðjudaginn 2. apríl sl.
Þar lætur hann líta svo út að
skýrslan góða frá 13. desember
2001 sé ekki til. Ráðherrann vill
greinilega ekki láta taka sig alvar-
lega og verður samstundis orðið við
því af hálfu undirritaðs.
Örn
Sigurðsson
Samgöngumál
Ekki hefur orðið
vart við viðbrögð neins
af 19 fulltrúum á
Alþingi, segir Örn Sig-
urðsson, né 15 fulltrú-
um í borgarstjórn.
Höfundur er arkitekt og einn af
talsmönnum stofnhóps Höfuðborg-
arsamtakanna.
Nokkur orð vegna skrifa
Sturlu Böðvarssonar
samgönguráðherra
ÞEGAR þess var
farið á leit við mig að
ég leiddi lista sjálf-
stæðismanna í Reykja-
nesbæ, fannst mér ým-
islegt annað geta verið
framar á forgangslist-
anum hvað verkefna-
val varðar. Þegar ég
kynnti mér möguleika
Reykjanesbæjar til
framtíðar og það sem
þegar hefur verið gert,
breyttist skoðun mín.
Ég setti Reykjanesbæ
langfremst á forgangs-
listann.
Þeir möguleikar
sem ég sé í þessu nýja sveitarfélagi
mínu og fjölskyldu minnar tengjast
fallegum og hentugum landsvæðum
til íbúa- og atvinnubyggðar.
Þeir tengjast einnig besta aðbún-
aði í grunnskólum sem ég hef
kynnst á Íslandi. Mikill metnaður
hefur verið lagður í einsetningu
grunnskóla sem lauk fyrir tveimur
árum. Heitur matur býðst öllum
nemendum í hádegi, tónlistar-
menntun fyrir yngstu aldurshópana
er boðin inni í grunnskólunum,
íþróttahús og gervigrasvellir eru við
hvern skóla og verkgreinastofur eru
vel búnar.
Möguleikarnir varða mikil tæki-
færi í atvinnumálum tengdum virkj-
un orku á þessu mikla jarðhita-
svæði, ákjósanlegum hafnarskil-
yrðum m.a. í Helguvík
og staðsetningu við al-
þjóðaflugvöll sem veit-
ir m.a. góð tækifæri í
ferskfiskútflutningi og
ferðaþjónustu á svæð-
inu.
Ég legg áherslu á að
við verðum áfram stál-
beitt í atvinnumálum
en mýktin verður á
réttum stöðum.
Markmið okkar
frambjóðenda á D-lista
sjálfstæðismanna er að
byggja hér afar fjöl-
skylduvænt samfélag.
Við setjum manngildið
í öndvegi. Áhersla á
forvarnir og fræðslu mun skipa rík-
an sess í vinnu okkar. Af sama
metnaði og aðbúnaður hefur verið
gerður sá besti í grunnskólunum,
munum við einbeita okkur með for-
eldrum og starfsfólki skólanna að
bættu innra starfi þeirra. Við mun-
um tryggja að strax á næsta ári
verði engir biðlistar á leikskólum og
heilsdagsvist bjóðist öllum 2–5 ára
börnum.
Við teljum mjög brýnt að há-
skóladeildir festi rætur í Reykja-
nesbæ en fyrsti vísir að háskóla-
námi er kominn með með fjarnámi
Háskólans á Akureyri við Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum. Fjöl-
brautaskóli Suðurnesja skilar hæf-
um nemendum út í samfélagið bæði
í iðngreinum og bóknámi og sí-
menntun hefur verið byggð upp af
mikilli fagmennsku.
Sú staðreynd að frá Reykjanestá
að Hengli eru helstu svæði landsins
til virkjunar jarðhita gefur sterkar
vísbendingar um að háskóladeildir
tengdar tækni og vísindum eigi að
byggja rannsóknarstarfsemi sína á
slíkum stað. Þennan þátt vantar nú
inn í samfélagið. Að því munum við
vinna.
Öflugt íþrótta- og tómstunda-
starf, góð heilbrigðisþjónusta og
stuðningur við Fjölskyldu- og fé-
lagsþjónustu Reykjanesbæjar eru
einnig mikilvægir vegir að settu
marki.
Hér hefur fátt eitt verið nefnt af
því sem mun gera það að verkum að
víðar verður horft til Reykjanes-
bæjar sem fyrirmyndarsveitar-
félags. Hvar sem við búum eigum
við væntanlega þann draum að
sveitarfélag okkar sé fyrirmyndar-
sveitarfélag að búa í. Reykjanesbær
hefur þar ótvírætt mikla kosti, sem
hann ýmist hefur nýtt eða hefur tök
á að nýta, sé rétt staðið að uppbygg-
ingu til framtíðar.
Ég er svo heppinn að leiða mjög
hæfan hóp frambjóðenda, karla og
kvenna, með fjölþætta reynslu.
Þessi hópur á það sameiginlegt að
vera þekktur fyrir að færa orð í
efndir. Sem leiðtogi á lista sjálf-
stæðismanna fyrir næstu bæjar-
stjórnarkosningar í Reykjanesbæ
mun ég sjá til þess að þær metn-
aðarfullu áætlanir sem við setjum
nú fram verði efndar á næstu fjór-
um árum, fáum við til þess stuðning.
Áherslur
Reykja-
nesbæjar
Árni
Sigfússon
Höfundur er leiðtogi D-lista
sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ,
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
25. maí nk.
Stjórnmál
Ég er svo heppinn að
leiða mjög hæfan hóp
frambjóðenda, karla og
kvenna, með fjölþætta
reynslu, segir Árni Sig-
fússon. Þessi hópur á
það sameiginlegt að
vera þekktur fyrir að
færa orð í efndir.
Símar: 515 1735 og 515 1731
Bréfasími: 515 1739
Farsími: 898 1720
Netfang: oskar@xd.is
Utankjörfundaratkvæ›agrei›sla vegna
sveitarstjórnarkosninganna 25. maí nk. er hafin.
Kosi› er hjá s‡slumönnum og hreppstjórum um land allt.
Í Reykjavík er kosi› í Skógarhlí› 6 virka daga kl. 9.30 – 15.30.
Utankjörsta›askrifstofan veitir allar uppl‡singar
og a›sto› vi› kosningu utan kjörfundar.
Utankjörsta›askrifstofa
Sjálfstæ›isflokksins
Sjálfstæ›isfólk!
Láti› okkur vita um stu›ningsmenn
sem ekki ver›a heima á kjördag,
t.d. námsfólk erlendis.
Valhöll, Háaleitisbraut 1, 3. hæ›, 105 Reykjavík
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Lítil heildverslun með hárskraut, töskur og ýmsar gjafavörur.
Mörg mjög góð sambönd.
2. Ein stærsta innrömmun í borginni. Mikil listaverkasala. Spennandi
fyrirtæki sem getur gefið góðar tekjur fyrir duglegt fólk.
3. Kaffi- og matstaður sem er opinn frá kl. 7 til 18. Lokað á sunnu-
dögum. Tekur 50 manns í sæti.
4. Sjúkraþjálfunarstöð, ein sú elsta og þekktasta í borginni. Mikið
af tækjum. Mikil viðskipti. Góð staðsetning.
5. Gistiheimili og veitingahús á Snæfellsnesi, mjög huggulegt og
gott. Snæfellsnesið er fullt af túristum á sumrin.
6. Framleiðslufyrirtæki sem framleiðir úr trefjaplasti. Mikið af mót-
um. Selja allt sjálfir.
7. Söluturn í Hafnarfirði sem er í eigin húsnæði sem einnig er til
sölu. Góð velta. Einstaklega snyrtilegur staður. Selur allt sem
slíkir staðir eiga að selja.
8. Glæsileg húsgagnaverslun í borginni. Flytur allt inn sjálf. Er með
mjög góð sambönd við margar verksmiðjur í viðkomandi landi.
Selst mjög ódýrt af sérstökum ástæðum.
9. Snyrtivörubúð í verslunarmiðstöð með naglaásetningu, förðun
og námskeið.
Erum með úrval fyrirtækja á skrá hjá okkur
á hverjum tíma.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
OLIVE LEAF
EXTRACT
Apótekin
FRÍHÖFNIN
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
M
ik
lu
ó
d
ýr
a
ra
FRÁ
Talið gott fyir hálsbólgu
kvef og flensu með
gæðaöryggi
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar
Geisladiskahulstur
aðeins 500 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is