Vísir


Vísir - 19.06.1980, Qupperneq 1

Vísir - 19.06.1980, Qupperneq 1
Yiirvinnugreiðsitir aðstoðarráðherra jafnháar og mánaðarlaunin? Aðstoðarmenn ráðherra fá greidd deildarstjóra- laun, sem greidd eru samkvæmt launaflokki BHM nr. 113 og eru á bilinu frá 561.084 til 651.361, sam- kvæmt upplýsingum Þorsteins Geirssonar hjá fjár- málaráðuneytinu. Þeir fá jafnframt allt að 90 tima yfirvinnu á mánuði. „Það er ekki til neinn samn- ingur um þetta, og engin ákvörðun frá fjármálaráðuneyt- inu, en ég get ekki svarað fyrir öll ráðuneyti” sagði Þorsteinn Geirsson, skrifstofustjóri i fjár- málaráðuneytinu. Samkvæmt upplýsingum aðstoðarmanns fjármálaráð- herra, Þrastar Ólafssonar, er yfirvinna til hans greidd sam- kvæmt framlögðum reikningi, og væri hún mjög misjöfn. Aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra, Armundur Backmann hafði enn ekki kynnt sér yfir- vinnugreiðslur, þar sem hann hóf störf 1. júni s.l. Bogi Þórðarson, aðstoðar- maður sjávarútvegsráðherra, sagðist fá greidda 90 tima yfir- vinnu ómælda. ,,Ég held það sé nokkuð öruggt, að ég sé látinn vinna þessa 90 tima, þvi að þetta er 24 tima við- bragðsstaða á sólarhring”, sagði Bogi. Eirikur Tómasson, fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráð- herra, tjáði Visi, að 90 timarnir hefðu verið nokkurs konar þak — og greiðslur þar upp að hefðu verið mjög misjafnar eftir mán- uðum. —A.S. Laust eftir hádegi i gær lenti þyrla frá Varnarliöinu á Reykjavikurflugvelli með ungan mann úr Garðabæ, sem slasaðist mikið, er hann ók á brúarstólpa við bæinn Fjörð á Múlanesi i A-Barðastrandasýslu f gærmorgun. Maðurinn gekkst undir aðgerð i gær og liggur nú á gjörgæsludeild Borgarspitalans. —Sv.G. — Visismynd: Þ.G. Siglfírðíngar eignast stórt listaverkasafn Það er ekki á hverjum degi, sem byggðarlögum eru gefin meiriháttar listaverkasöfn, virt á milljónatugi. Þetta gerðist þó á Siglufirði i byrjun vikunnar, er hjónin Arn- grimur Ingimundarson, kaup- maður i Reykjavik og kona hans Bergþóra Jóelsdóttir afhentu Siglufjarðarbæ málverkasafn sitt, sem i eru um 120 verk eftir milli 60-70 listamenn. Hjónin segjast með þessu vilja launa Siglfirðingum vinsemd og hlýhug sem þeir sýndu foreldrum Arngrims á erfiðum timum á uppvaxtarárum hansá Siglufirði. N'ánar segir frá þessu á blað- siðu 9 i Visi i dag. Fjöldi Siglfirðinga var viðstaddur afhendingarathöfnina I ráðhúsi bæjarins, þar sem málverkunum hefur verið komið fyrir. Vfsismynd: Kristján Möller. Pavarottí kemur með einkaðotu um hádegisbilið Luciano Pavarotti, frægastur tenórsöngvari heims, kemur til Reykjavikur um hádegisbiliö. Lendir vél hans á Reykjavikurflugvelli um.þ.b. tiu minútum fyrir eitt. 1 kvöld klukkan 20.30 hefjast svo i Laugardalshöllinni tón- leikar þar sem Pavarotti syngur með Sinfóniuhljóm- sveit Islands undir stjórn Kurt Herberts Adler. Að þeim loknum flýgur söngvarinn frægi fljótlega aftur til sins heima. —IJ. 65 ár frá pvi konur lengu kosningarétt I dag eru 65 ár frá þvi aö konur fengu kosningarétt. Ekki gekk það þó fljótt fyrir sig þvi 1915 máttu aðeins konur 40 ára og eldri kjósa. Reglan var sú að frá árinu 1915 teldist aldur niður um eitt ár þar til 25 ára aldurstak- marki var náö, — hinu sama og hjá karlmönnum. 1920 var þessi regla afnumin og konur fengu kosningarétt á við karla. —A.S. Enn eítt banaslysið Enn eitt banaslysið varð I umferðinni i fyrrinótt, er ung- ur maður, Gunnar Valgeirs- son, beið bana, þegar bifreið sem hann var farþegi I, fór út af veginum rétt fyrir utan Hvammstanga. Slysiö varð með þeim hætti, að amerisk fólksbifreið, sem Gunnar var i ásamt fjórum öðrum, valt út af veginum með þeim afleiðingum, aö Gunnar beið samstundis bana, aö þvi að talið er. Aörir i bif- reiöinni voru fluttir á sjúkra- húsiö á Hvammstanga, en meiðsli þeirra reyndust ekki vera alvarleg. Gunnar Valgeirsson var 25 ára gamall til heimilis að Ásbrekku á Hvammstanga. _________________-Sv.G. Sumargei- raunin Dregið hefur veriö i Sumar- getraun Visis sem birtist 3. júní. Vinningshafar: 1. Brynjar Sörensen, Kringlu- mýri 9, Akureyri. Vinningur: H.D. 430 kr. 58.800. 2. Helga Jónatansdóttir, Hjallalundi 17r. Akureyri. Vinningur: H.D. 430. kr. 58.800. 3. Elisabet Gestsdóttir, Tjarn- arlundi 15d. Akureyri. Vinn- ingur. H.D. 414 kr. 35.580. Vinningar eru frá Pfaff, Borgartúni 20.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.