Vísir - 20.06.1980, Blaðsíða 19
VÍSIR
Föstudagur 20. júni 1980
The ciash:
Fulltrúar nýbyigj-
unnar í Höllinni
á laugarúagskvölú
„I mai 1976 hóf trymbillaus
hljómsveit æfingar i litlum
skúrræfli nærri Shepherds Bush
Green i Lundúnaborg. Paul
Simononvar bassaleikarinn og
hann haföi aðeins leikið i sex
vikur. Hann var úr skugga-
hverfi Brixton, foreldrar hans
höfðu slitið samvistum og hann
hafði einkum búið með föður
sinum þar til hann fékk inni i
listaskóla. Þá hafði vinur sagt
sem svo „Hvers vegna gerist þú
ekki liðsmaður i hljómsveit
minni? Náunginn sem þessi orð
mælti var Mick Jones, aðal-
gitarleikarinn, einnig frá
Brixton. Faðir Micks var leigu-
bilstjóri og Mick ólst upp hjá
foreldrum sinum unz þau skildu
er hann var átta ára gamall.
Móðir hans hélt til Bandarikj-
anna og faðir hans yfirgaf
heimilið svo það varð hlutskipti
Micks að alast upp hjá ömmu
sinni. Er Clash var sett á lagg-
irnar skaut honum öðru hvoru
upp i listaskólanum i Hammer-
smith. Þessir tveir kaumpánar
fóru þess á leit við Joe
Strummer að hann gerðist
söngvarinn. Um þetta leyti söng
Joe með kráarhljómsveit, sem
hann hafði stofnað til þess að
drepa timann og borga leiguna.
Við tilboðið hætti hann umsvifa-
laust i hljómsveitinni og gerðist
liðsmaður fyrirmyndarhljóm-
sveitarinnar Clash. Keith
Levine, gitarleikari var einnig
stofnandi hljómsveitarinnar, en
hann yfirgaf hljómsveitina
brátt með þeim orðum að hann
þyrfti að sinna áriðandi við-
skiptaerindum i Lundúnaborg
norðanverðri.
t ágúst 76 var þessi hljómsveit
að lappa upp á niðurnitt vöruhús
i Camden Town. Þegar verkinu
lauk hófst rokkið. Terry
Chimes, trymbill, var ráðinn og
á hverjum degi nötraði vöru-
skemman af miskunnarlausum
æfingum. Um þetta leyti var
hvergi hægt að fá að leika. Til
dæmis, sá kunni Marquee
klúbbur, sem átti að vera
heimili rokksins, sagði við
Clash: „Okkur þykir fyrir
þessu, félagar. Ekkert pönk-
rokk inn fyrir okkar dyr”. Svo
hljómleikar voru skipulagðir af
þáverandiumboðsmanni Bernie
Rhodes. Dag einn á sérlega
ógeðfelldum hljómleikum þegar
flöskum og dósum rigndi yfir
eins og úrhelli væri, sagði Terry
Chimes upp eftir að hafa séð
vinflösku fljúga á „hig-hattið”
sitt og brotna þar i þúsund mola.
Og jæja. Trymbilslaus hljóm-
sveiterekkigóð hljómsveit. Svo
hvert siðdegi voru trommuleik-
arar teknir til reynslu i Camden
Town. 206 reyndu sig, og 205
féllu. Nicky „Topper” Headon
yfir spilaði alla hina og vann
þessa eftirsóttu stöðu. Um þetta
leyti, án þess að hljómsveitin
hefði tekið eftir þvi, hafði hún
vakið umtalsverða athygli úti i
hinum stóra heimi”.
Þannig hefst saga hljóm-
sveitarinnar Clash, i búningi
tveggja liðsmanna hennar,
þeir'ra Joe Strummers og Mick
Jones, sem festu söguna niður á
blað. Clash leikur sem kunnugt
er á hljómleikum i Laugardals-
höll á snærum Listahátiðar á
laugardagskvöld.
Clash er óumdeilanlega ein
kunnasta og virtasta nýbylgju-
rokkhljómsveit Breta um
þessar mundir og þvi mikill
fengur fyrir alla rokkunnendur
að fá tækifæri til að hlýða á hana
á hljómleikum. Þess má geta að
bandariska poppritið Creem
gekkst fyrir kosningu meðal les-
enda sinna og hafnaði Clash þar
i fjórða sæti yfir bestu hljóm-
leikahljómsveitir heims.
Clash hefur sent frá sér þrjár
breiðskifur auk fjölda tveggja
laga plata. Fyrsta stóra platan
kom út 1977 og hét einfaldlega
„The Clash”. Ári siðar kom
platan „Give ’Em Enough
Rope” og snemma á þessu ári
kom tvöföld plata frá Clash,
„London Calling” að nafni, sem
hlotið hefur mjög góða dóma.
New York Times sagði m.a. i
umsögn sinni um plötuna að hún
væri fyrsta meiriháttar rokk-
plata þessa nýja áratugar. Og
gagnrýnandi Down Beat
skrifaði: „Þetta er, einfaldlega,
besta rokkplata siðan meistara-
stykki RollingStones, „Exile On
Main St.” kom út snemma á sið-
asta áratug”.
Við biðum laugardagsins.
— Gsal
23
29. JÚNÍ
Pétur J.
Thorsteinsson
Aðalskrifstofa stuðningsfólks
Péturs J. Thorsteinssonar í
Reykjavik er á
Vesturgötu 17, símar:
28170-28518
Utankjörstaðaskrifstofa símar
28171 - 29873
Allar upplýsingar um forsetakosningarnar.
Skráning sjálfboðaliða.
Tekið á móti framlögum í kosningasjóð.
Nú fy/kir fó/kið sér um
Pétur Thorsteinsson.
Stuðningsfólk Péturs.
ÞAÐ ER VORN I
REGNFA TNAÐINUM
FRÁ
iHAX