Vísir - 26.07.1980, Qupperneq 17
vtsm
Laugardagur 26. júll 1980
vtsm
Laugardagur 26. júll 1980
99Að sjáífsögðu
Gisla Halldórsson þarf víst ekki aö kynna meö
itarlegri lýsingu. Hann er maöur verkanna og
hefur leitt íþróttahreyfinguna á islandi til þess
aö vera stærstu fjöldahreyfingu í landinu.
Þekktastur er Gísli fyrir störf sín bæöi í Iþrótta-
bandalagi Reykjavíkur, þar sem hann var for-
maður frá 1949—62 og iþróttasambandi islands
en hann var kjörinn forseti þess 1962. Þá var
Gísli 25 ár í stjórn KR og starfar enn f húsnefnd
félagsins. Borgarstjórnartíö Gísla er ekki siöur
minnisverö.
Embætti forseta I.S.i. gegndi Gísli til 28. júnf
síöast liðins, er hann dró sig í hlé úr stjórn sam-
bandsins. Enn er hann formaður Olympiunefnd-
arinnar, svo sannarlega er af nægu aö taka
þegar ræða skal um störf hans.
Snemma beygðist KR
krókur
„Tveggja ára gamall fluttist ég
til Reykjavikur, og þá út 1 Austur-
kot vi6 Kaplaskjólsveg. Þetta var
áriö 1916. Svo a6 sjálfsögöu ólst ég
upp á svæöi KR og þvi var sjdlfsagt
a6 vi6 bræöumir færum I Iþróttirn-
ar. Þrir bræöur mlnir þeir Þorgeir,
Björn og Siguröur voru framarlega
I iþróttunum, allir hjá KR. Ein
systir min var einnig mikiö. Sjálfur
byrjaöi ég aö spila meö 3. flokki i
knattspyrnu og spilaöi meö öllum
flokkum upp úr. 1934 uröum viö ts-
landsmeistarar. KR stóö sig vel I
knattspyrnu i þá daga og mér sýn-
ist þeir vera aö rétta úr kútnum
núna,” segir GIsli og brosir kank-
vls .
„Annars var ég talsvert I fim-
leikum á þessum tima. Þaö þótti
eiginlega sjálfsagt aö knattspyrnu-
menn iökuöu fimleika aö vetrar-
lagi, allt fram undir striö. Einnig
var ég I skiöaiþróttinni og stóö I þvl
meö fleiri félögum aö koma skiöa-
deildinni á laggirnar og uppi I
Skálafelli byggöum viö fyrsta
skíöaskálann. Mér er þaö enn
minnisstætt þegar viö þurftum aö
bera allt efni I skálann 5 kilómetra
vegalengd”.
Svo heldur þú til náms I bygg-
ingalist?
„Já um haustiö 1935 sigidi ég út
til Hafnar og var þar á fimmta ár I
námi. Viö vorum þarna 5 saman Is-
lendingarnir I byggingalist”
Haföiröu tök á aö komast heim á
sumrin?
„Ég sá mér ekki fært aö koma
heim þrjú sumur. Þaö var erfitt aö
stunda nám og sú fyrirgreiösla sem
ég fékk var 200 krónur frá islenska
rikinu, þetta var mér veitt á þeim
árum”, segir GIsli og hlær viö.
„Meö því aö lifa spart gat maöur
lifaö á svona 300 krónum islenskum
á mánuöi”.
Hvaö meö aöstoö aö heiman?
„Ég var einn af ellefu systkinum
er ég aíinn upp
á KR svæðinu”
en til þess aö þetta væri hægt uröu
foreldrar og venslamenn aö hjálpa
þar sem sumarkaupiö dugöi stutt.
Annars komst ég ekki þeim þessi
þrjú sumur vegna þess aö ekki var
hægt aö fá yfirfærslur á þvl fé er
maöur aflaöi. Venslamenn sem
vildu hjálpa mér gátu heldur ekki
gert þaö vegna þessa. Eina sem
ekki mátti neita um voru fagbækur,
svo þá skýringu varö aö nota til
þess aö geta lifaö”.
Og svo er þaö KR þegar þú kem-
ur heim?
„Já, já — nokkru áöur en ég fór
út var ég byrjaöur aö starfa aö fé-
lagsmálum I KR. Þá var búiö aö
kaupa Báruna og ég vann jstrax
mikiö I húsnefndinni. Þegar ég kom
heim, lá þvl beint viö aö vinna aö
félagsmálunum.
Breski herinn tók KR húsiö 1940,
félagiö missti afnot af þvl og var á
miklum hrakhólum meö starfsemi.
Sex árum slöar var húsiö selt og viö
hófum aö leita aö framtiöarhús-
næöi. Þá vildi svo til aö nokkrir KR-
ingar höföu keypt land I Kapla-
skjóli og gáfu þeir félaginu þaö.
1 upphafi var mikiö deilt um
hvort iþróttahús og vellir ættu aö
vera á sama staö. Þótti mörgum
rangt aö byggja iþróttahúsiö vestur
I Kaplaskjóli svo langt frá miöbæn-
um aö fáir myndu sækja æingar
þangaö. Á endanum varö þaö ofaná
aö byggja knattspyrnuvelli,
Iþróttahús og sundlaug á svæöinu
en Vesturbæjarlaugin leysti félgiö
undan þvl aö þurfa aö hugsa um
sundlaug.
Framkvæmdir á Kaplaskjóls-
svæöinu hófust svo 1946 og hefur I
raun veriö haldiö linnulaust áfram
þar til i dag aö veriö er aö ljúka viö
aö fullgera svæöiö. Þar voru fyrstu
grasvellirnir á Islandi fullgeröir
áriö 1951.
,,Nei — þetta gengur ekki"
Þeir voru mikiö vantrúaöir á
geröum minum búfræöingar er ég
sáöi I þennan fyrsta grasvöll en
grasfræ er tlfallt meira á sllka velli
en venjulegar sáöflatir. Búfræöing-
ar sem sáu til min, hristu aöeins
höfuöiö ogsögöu „nei, þetta gengur
ekki” — en þeir áttuöu sig ekki á
þvl aö viö vildum fá völlinn tilbúinn
á 3 mánuöum og grasiö er ekki
þarna til aö vaxa heldur skapa
þétta rót”.
Hvenær hefur þú starfaö fyrir
fleiri félög en KR?
„1944 var Iþróttabandalag
Reykjavikur stofnaö og ég var kos-
inn I stjórn bandalagsins. Þar var
ég svo gjaldkeri til ’49 en slöan for-
maöur þess til 1962. íþróttabanda-
lagiö er i raun stofnaö til þess aö
hafa forgöngu um öll sameiginleg
iþróttamál félaganna hér I Reykja-
vlk. Þá voru starfandi 17 félög þar
af tvö skotfélög og tvö skylminga-
félög.
Var aldrei um átök aö ræöa I
bandalaginu?
„Litiö var nú um þaö, en eitt
fyrsta verkefni sem bandalagiö
gekk I var aö kaupa iþróttahús
byggt af Amerlska hernum, I gegn-
um sölunefnd setuliöseigna eins og
hún hét þá. Þá uröu nokkur átök
milli bandalagsins og Armanns,
KR og IR, en þessi þrjú félög vildu
iþróttaskálann aö Hálogalandi fyr-
ir sig og einoka notin. Þá var veru-
leg vöntun á húsnæöi og ég taldi
réttara aö öll félögin heföu not af
húsinu. Gr varö aö tþróttabanda-
lagiö keypti þetta meö stuöningi
Reykjavlkurborgar og Iþrótta-
nefndar Rlkisins, sem hjálpuöu til
meö fyrstu útborgun.
Annars held ég aö þegar fram
liöu stundir hafi allir oröiö ánægöir
meö niöurstööuna þó félögin þrjú
hafi ekki alveg veriö sátt viö þetta I
fyrstu. Ef til vill var þaö vegna
þess aö húsiö var svo dýrt I viöhaldi
aö félögin sjálf heföu aldrei staöiö
undir þvi.
„Þegar sölunefndin veröur
lögð niður..."
„Þaö geröist mjög ánægjulegt
atvik einmitt þegar erfiöleikarnir
viö aö borga af húsinu voru sem
mestir. Þá gengum viö Gunnar
Þorsteinsson, þáverandi formaöur
IBR á fund ólafs Thors forsætis-
ráöherra og óskuöum eftir þvl viö
hann aö fá eftirgefna eina afborgun
af húsinu. Þetta mun llklega hafa
veriö á miöju ári 1946.
Ólafur svaraöi okkur og sagöi:
„þvi miöur get ég ekki gert neitt á
stundinni fyrir ykkur, þiö veröiö aö
þrauka eitthvaö fram yfir áramót-
in 1947, þvi þá veröur sölunefndin
lögö niöur og ég skal þá hjálpa ykk-
ur”.
En hún lifir vlst enn”, segir GIsli
og hlær. — „Viö héldum áfram aö
þrauka og gátum lokiö viöskiptum
viö sölunefndina á þolanlegan
hátt”.
Einu sinni fór einn úr sölunefnd-
inni inn eftir til þess ab sjá hversu
vel húsiö væri nýtt.
Þegar hann sá aöeins tvo
badmintonleikara á vellinum, sem
rúmaöi ekki nema einn völl þá of-
bauö honum óráösian og sagöi aö
þaö væri eölilegt aö svona menn
gætu ekki staöiö I skilum”.
Höllin og sambandið.
Þaö var öllum ljóst aö Háloga-
• land var bara bráöabirgöahúsnæöi,
svo byggja varö nýtt hús en þaö var
jafn framt ljóst aö sllkt yröi ofviöa
bandalaginu einu sér.
Þaö varö þvi úr aö Sýningarsam-
tök atvinnuveganna, Reykjavlkur-
borg og Bandalag æskulýösfélaga
gengu meö ÍBR I þaö aö byggja
Iþróttahöllina I Laugardal og mér
er óhætt aö segja aö bygging þessa
húss var ein mesta lyftistöng fyrir
handknattleikinn hér I Reykjavlk”.
Hvaö hefur þú teiknaö af þessum
mannvirkjum I Laugardalnum?
„Ég teiknaöi Höllina ásamt
Skarphéöni Jóhannssyni og ég hef
einnig teiknaö aöalvöllinn. Sund-
laugina teiknaöi Einar Sveinsson.
Nú er auövitaö erfitt aö draga
fram þætti úr löngu og gifturiku
starfi, en hvaöa þættir eru þér helst
minnistæöastir úr starfi þinu sem
formaöur tþróttasambands ts-
lands?
„Jú, þaö er erfitt aö stikla á stóru
úr 18 ára formannsstarfi minu
svona I skyndi en ef byrjaö er á
réttum enda þá haföi Iþróttasam-
bandiö aösetur aö Grundarstig 2 I
þröngu og litlu húsnæöi. Eitt af þvl
fyrsta sem ég beitti mér fyrir, var
aö auka aöstööu sambandsins svo
unnt væri aö sameina hreyfinguna.
1S1 og IBR byggöu svo saman I
Laugardalnum Iþróttamiöstöö þar
sem samböndin höföu samastaö.
Nú er þetta oröin miöstöö þjónustu
fyrir öll sérsamböndin, sem þá
voru aöeins sjö en eru nú oröin
sautján.
Þá var erindrekstur aukinn
mjög. Markmiöiö var aö stofna
sérsambönd fyrir hverja einstaka
grein og þaö hefur sýnt sig aö öll
þessi sambönd hafa unnib mikib
starf fyrir iþróttirnar. Samböndin
uröu til þess aö drlfa upp ýmsa
þætti sem voru á niöurleiö eins og
til dæmis fimleikar en þeirri
iþróttagrein var aftur komiö upp.
„Virkum iökendum iþrótta hefur
fjölgaö mjög. 1962 voru þeir 16.200
en eru nú um 73000 auk þeirra 8000
leiötoga og Iþróttakennara sem
ekki eru taldir I þessum hópi”.
Almenningseign
Er ekki mest óhersla lögö á
keppnisiþróttir hjá sambandinu?
„Nei, starfiö er alveg oröiö tví-
þætt. Sambandiö er aö visu stofnab
I kringum keppnisiþróttirnar en nú
hafa einnig komiö inn greinar sem
almenningur getur tekiö þátt I án
þess aö bein keppni sé, til dæmis
skiöalþróttirnar og sundiö sem ég
tel vera oröin almenningseign. Ég
tel aö þaö komi aö þvl ab félög inn-
an fyrirtækja veröi tekin inn og
sambandiö skipuleggi innbyröis
keppnir og starfsemi án þess aö
slikir aöilar fari aö senda menn I
keppnisgreinar sambandsins. Þaö
er þegar kominn visir aö þessu hjá
okkur, KSt hefur hjálpaö viö aö
skipuleggja knattspyrnukeppnir
milli fyrirtækja.
Eitt af þvl sem ég held aö hljóti
aö koma og er íiauösynlegt aö gera,
ST at koma upp tþróttasambandi
skóla. Þótt Iþróttastarfsemi sé vel
skipulögö I skólum, þá þyrfti aö
vera hægt aö skipuleggja innbyröis
keppnir um alltland og koma þessu
I framkvæmd. Þaö er mikill áhugi
fyrir þessu en þvl miöur hefur þetta
enn ekki tekist.
„Kom mér spánskt fyrir
sjónir"
GIsli var varamaöur I borgar-
stjórn frá 1954—'58. Þá hlaut hann
fast sæti og starfaöi 1 borgarstjórn
til ársins 1974. Slöasta kjörtlmabil
sitt var GIsli forseti borgarstjórn-
ar.
Viö spuröum Glsla um helstu
þætti er honum voru hugleiknir I
borgarstjórn.
„Þaö eru helst tvö mál sem ég lét
mig sérstaklega varba, húsnæöis-
mál og Iþróttamál. Eitt stærsta
máliö varöandi húsnæöi borgarbúa
var þegar útrýmt var öllum her-
bröggum. 1954 var búiö I 544 her-
skálum eöa samtals um 2200
manns. Fyrir þetta fólk þurfti aö
byggja nýjar Ibúöir og Reykjavlk-
urborg geröi áætlun um aö útrýma
þeim og tókst aö gera þaö á 8 ára
timabili. Oft lentum viö I deilum
viö minnihlutann út af húsnæöis-
málum þegar herskálarnir voru á
dagskrá. Guömundur Vigfússon
var þá lengst af forsvarsmaöur
minnihlutans og þótti honum seint
ganga meö útrýmingu á herskálan-
um. Hann deildi oft hart um þetta
og taldi þab smán aö ekki væri búiö
aö útrýma öllum herskálunum fyr-
ir löngu.
Þess vegna kom mér þaö spánskt
fyrir sjónir, fyrir nokkrum árum,
þegar stóö I Þjóöviljanum aö nú
ætti aö fara aö rlfa slöasta herskál-
ann en þaö mætti aldrei gerast,
þetta væri sögulegur þáttur I borg-
arllfinu sem yröi aö varöveita”.
Atvinna og áhugamál
— Nú hefur stundum veriö sagt
aö atvinna og áhugamál hafi biand-
ast saman hjá þér og þú hafir þvl
teiknaö mikiö af Iþróttamannvirkj-
um um landiö”.
„Ég tel aö þaö sé útaf fyrir sig
ekkert óeölilegt aö ég hafi teiknaö
nokkuö af Iþróttamannvirkjum,
vegna þess aö ég hef sérhæft mig
viö byggingar Iþróttamannvirkja I
minu námi. Mér er ekki kunnugt
um aö nokkur annar islenskur arki-
tekt hafi kynnt sér sérstaklega
uppbyggingu grasvalla eöa hlaupa-
brauta og þegar fyrsti grasvöllur-
inn var tekinn I notkun haföi ég sáö
I hann sjálfur vegna þess aö enginn
kunni þar til verka og meöal ann-
ars þess vegna leitaöi iþróttafull-
trúi Rlkisins til mín til þess aö
teikna og skipuleggja ýmsa
Iþróttavelli um landiö. A margan
hátt hefur þetta veriö ókeypis þjón-
usta héöan af teiknistofunni, frem-
ur en launuö vinna.
Ég hef teiknaö 8 Iþróttahús en
þaö hafa margir aörir arkitektar
teiknaö iþróttahús viösvegar um
landiö. Ég hef enga séraöstööu haft
um hönnun Iþróttamannvirkja
viösvegar um landiö, þar sem
hverjum og einum er I sjálfsvald
sett hvert hann leitar til þess aö
hanna sllk mannvirki.
„Ekki eftir mér haft"
Þaö hefur vlst ekki fariö framhjá
neinum aö þú ert i forsvari fyrir
oly mplunefndina ”.
„Já, undanfariö hef ég starfaö
mikiö viö undirbúning þátttöku
okkar I hinum umdeildu Olympiu-
leikum I Moskvu.
Þrátt fyrir allt þaö moldviöri
sem þyrlaö hefur veriö upp um
leikana, þá hefur veriö mikil
ánægja ab starfa meb nefndinni og
iþróttamönnum ab undirbúningi
feröarinnar. Mikill einhugur hefur
rlkt I rööum Iþróttahreyfingarinn-
ar, aö tryggja þátttöku íslands og
leggja þar meö lóö okkar á vogar-
skálina til aö tryggja framtlö leik-
anna.
ólympiuleikarnir eru stærsta
Iþróttamót æskunnar, sem viö
megum ekki leggja I rúst. Frá
striöslokum 1945, hefur stööugt
veriö barist einhvers staöar I heim-
inum. lþróttamenn vilja gera sitt
ýtrasta til þess aö sætta hin strlö-
andi öfl, en ekki vera I fararbroddi
til aö sundra heiminum I tvær and-
stæöar striöandi fylkingar.
Og þá sem hrópa hæst aö okkur
nú, vil ég minna á, aö eftir fjögur ár
eiga leikarnir aö fara fram I
Bandarlkjunum, en ef þeir heföu
lagst af nú, þyrfti ekki aö gera þvl
skóna aö þeir yrbu endurteknir þá.
— Nú lést þú hafa eftir þér I
Morgunblaöinu aö meira þyrfti til
en innrás i eitt land til þess aö
hætta viö þátttöku I Olympiuleik-
unum?
„Þetta er ekki eftir mér haft þvl
þetta var spurning blaöamannsins.
Ég svaraöi spurningunni meö því
aö benda blaöamanni á, aö allt frá
strlöslokum heföu verib háö striö
einhversstaöar I heiminum, marg-
ar innrásir geröar og enginn rætt
um aö leggja leikana niöur af þess-
ari ástæöu. Vissulega harma allir
innrásina og telja aö sé ekki heim-
inum samboöiö I dag”.
Teluröu aö Olympiuandinn hafi
ekki bebib afhroö viö þær ógnir sem
ýmis aöildarriki hafa sýnt hvert
ööru?
„Þaö má segja aö leikarnir hafi
sett niöur hugsjónalega séö eins og
nú er ástatt I heiminum en viö skul-
um muna ab viö sérhverja leika á
undanförnum áratugum, hafa ver-
iö verulegir pólitlskir erfiöleikar.
Viö hörmum aö pólitik er stööugt
blandaö inn I Olympiuhátlöina. Þar
hafa einræöisrlkin gengiö á undan
þar til nú, aö útlit er fyrir aö þvi
miöur séu lýöræöisrlkin engu
betri”.
„Þjónar litlum tilgangi"
— Samkvæmt fréttum frá
Moskvu heyrist aö Olympiusvæöiö
sé nánast viggirt og aidrei hafi ver-
iö strangari öryggisráöstafanir
geröar viö einstakiinga. Þá hefur
einnig veriö sagt aö almenningi f
Sovétrikjunum sé haldiö frá nánum
samskiptum viö Iþróttamenn og
feröamenn. Er þá ekki tilgangur-
inn meö leikunum harla Iltill?
„Ef þessar fréttir eru réttar, þá
er þaö mjög miöur, þvi eitt af þvl
sem er nauösynlegt er þaö aö bæöi
Iþróttamenn og gestir sem koma á
leikana, fái aö kynnast þjóöinni
sem mest á meöan á þeim stendur.
Og ef þaö er tilfelliö aö landsmönn-
um sé stlaö frá gestum, má segja
aö þaö þjóni litlum tilgangi ab hafa
leikana á sllkum staö. Hitt vil ég
minna á, aö eftir árásirnar á
iþróttamenn I Munchen ’72, voru
óvenju strangar varúöarráöstafan-
ir á meöan á leikum stóö, leitaö var
ab vopnum og sprengjum á mönn-
um.
„Ákveðið aö stunda meira
iþróttir"
Nú, — ég held áfram störfum á
teiknistofunni hér I Armúlanum og
get einbeitt mér betur viö þaö, en
jafn framt hef ég ákvebib aö stunda
sjálfur meira Iþróttirnar. Þaö er
einn höfuögallinn á forystumönn-
um Iþróttahreyfingarinnar aö þeir
vinna svo mikiö, aö þeir hafa sjálfir
ekki tlma til þess ab vera I iþrótt-
unum, eins og þeir skyldu.
Sundiö hefur veriö mln
uppáhalds Iþróttagrein I 30 ár og ég
hef fariö svo til á hverjum degi I
Vesturbæjarlaugina siban hún var
opnuö 1961.
Nú, svo var þaö á siöasta ári ab
ég tók upp á þvl aö fara aö iöka svo-
litiö golf og hef fullan hug á þvi ab
fara aö stunda þab meira á næst-
unni. Ég hef undanfariö veriö I fé-
lagsmóti Nesklúbbsins og gekk
bara sæmilega”, segir þessi kempa
sem hvergi lætur deigan slga þótt
komin sé vel á sjötugsaldurinn. Ef
til vill er þaö sundiö, eöa golfiö? En
liklegast er þaö andinn.
—AS
...má segja aö þaö þjóni litlum tilgangi aö hafa leikana á slikum staö”
„Eina sem ekki mátti neita um voru fagbækur”
Viötal: Árni
Sigfússon
blaöamaöur
Myndir: Gunn-
ar V. Andrésson