Vísir - 28.08.1980, Page 7
7
VÍSIR
Fimmtudagur
28. ágúst 1980
Marteinn Geirsson hefur skoraO jöfnunarmark Fram, mark, sem getur haft úrslitaáhrif i islandsmótinu I knattspyrnu.
Nú sluppu Framarar
naumlega fyrlr born
- voru heppnir að ná jafntefll gegn jainiði" FH í Laugardalnum I gærkvðidl
„Þetta var hrikalega lélegt hjá
okkur. Viö náöum aldrei upp
neinni stemmningu fyrir leikinn,
ogþað virtist sem menn héldu að
þeir þyrftu bara að fara inn á
völlinn. Þeir væru öruggir með
tvö stig”.
Þetta sagði landsliösbak-
vörðurinn Trausti Haraldsson í
Fram eftir 1:1 jafnteflisleik
Fram og FH i 1. deild á Laugar-
dalsvelli I gærkvöldi. Þar töpuðu
Framarar afar dýrmætu stigi i
baráttunni um Islandsmeistara-
titilinn, en FH-ingar náðu að
sama skapi i dýrmætt stig, hvort
sem það nægir þeim til að bjarga
stöðu sinni eða ekki I sambandi
við fallið.
Staðreyndin I sambandi við
þennan leik er sú, að Framarar
voru heppnir að ná öðru stiginu.
Þeir voru lengst af slakari aðil-
inn, og FH-ingar, sem hafa nú
hafið lokabaráttu sina fyrir til-
veru meðal bestu liða Islands i 1.
deild, hefðu átt'að ná forustunni i
fyrri hálfleik.
Það tókst þeim ekki þrátt fyrir
góð tækifæri, en marktækifæri
Framara i fyrri hálfleiknum er
hægt að telja á einum fingri ann-
arrar handar. Það var er Gunnar
Guðmundsson skallaði á mark frá
markteigslinu, en Friðrik Jóns-
son i marki FH var vel með á nót-
unum og varði.
Og svo tók FH forustu verð-
skuldað á 54. minútu, og það
mark má skrifa á reikning
Marteins Geirssonar. Hann var
að dútla með boltann og lét
Magnús Teitsson hirða hann af
sér. Magnús sýndi siðan harðfylgi
er hann brunaði að markinu og
þrátt fyrir góða tilburði Trausta
Haraldssonar og Kristins Atla--
sonar tókst þeim ekki að afstýra
marki.
Það gekk hvorki né rak hjá
liöunum eftir að FH hafði náð for-
ustunni, og mönnum þótti Hólm-
bert þjálfari Fram tefla djarft, er
hann skipti þeim Gústaf Bjöms-
syni og Baldvini Eliassyni inná
fyrir Símon Kristjánsson og Pét-
ur Ormslev. En dæmið gekkk upp
hjá Hólmbert á 75. minútu. Þá tók
Baldvin homspyrnu og Marteinn
skallaði boltann af miklum krafti
i mark FH. Margir vildu meina
að Guðmundur Steinsson hefði
breyttstefnuboltansá leiðinni, en
það var ekki séð frá þeim stað, er
undirritaöur var á, rétt viö hlið
marks FH.
Sanngjörn úrslit þessa leiks
hefðu verið sigur FH, sem var
friskara liðið lengst af. Valþór
Sigþórsson, þeirra besti maður
var algjör „brimbrjótur” i vöm-
inni og þeir Viðar Halldórsson og
Pálmi Jónsson einnig mjög frisk-
ir. 1 liði Fram stóð enginn uppúr,
en flestir léku slakan leik og
áhugaleysið virtist allsráðandi. —
Dómari Eysteinn Guðmundsson,
og haföi góð tök á verkefni sinu.
gk--
Pétur Pétursson. Þetta nafn
er nú á hvers manns vörum
Hollandi eftir að hann hefur
skorað fjögur mörk f tveimur
fyrstu leikjum Feyenoord
hollensku knattspyrnunni.
Fyrst tvö gegn Sparta um
helgina, og siðan önnur tvö
gegn Willen I gærkvöldi.
Pétur, sem hefur ekkert
getað æft vegna meiösla, virö-
ist vera fundvisari á leiðina i
mark andstæðinganna en
áður, og tvö mörk hans i gær-
kvöldi lögöu grunninn aö 4:0
sigri Feyenoord.
Þrumu-
skot
Asgeirs
„Ég jafnaði metin meö góðu
skoti utan vitateigs”, sagöi
Asgeir Sigurvinsson, knatt-
spyrnumaður i Belgiu, er viö
ræddum viöhann i gærkvöldi.
Fyrsta umferöin i Belgiu er
að baki, og Standard geröi
jafntefli 2:2 á Utivelli gegn
Beringen. Asgeir skoraði jöfn-
unarmark Standard með
þrumuskoti, og ósanngjarnt
heföi veriö, að Standard heföi
tapað þessum leik.
Arnór Guðjohnsen geröi það
gott meö Lokeren, sem sigraði
Gent 1:0. Hann skoraði íkki,
en átti mjög góöan leik og er
nú I hópibestumanna Lokeren
á nýjan leik og kominn með
öruggt sæti i liöinu.
„vona aö viö höfum
tryggt stööu oRKar”
sagðl ottð Guðmundsson, lylrllðl KR. eltir að heir hðlðu slgrað
Breiðablik 1-011. delidlnnl I knattspyrnu
Ég er mjög ánægður. Við lékum
þennan leik undir mikilli pressu,
við erum I fallhættu, en ég vona
að við höfum tryggt stöðu okkar i
deildinni með þessum tveimur
stigum”, sagði Ottó Guðmunds-
son, fyrirliði KR.
KR-ingar náðu sér i tvö mikil-
væg stig suður í Kópavogi i gær-
kvöldi er þeir sigruðu Breiðablik
1-0 I 1. deildinni i knattspyrnu.
Fyrri hálfleikur var mjög lif-
iegur og segja má að það eina
sem vantaði voru mörkin, en þau
létu standa á sér.
Breiðabliksmenn höfðu oftast
yfirhöndina 1 fyrri hálfleik, tókst
oft að leika skemmtilega á vörn
KR, sem virkaöi frekar þung og
oft á tiðum gaiopin.
Hættulegasta tækifæri Breiða-
bliks i fyrri hálfieik kom á 34 mln.
Þór Hreiðarsson stal boltanum
skemmtilega frá Sæbirni Guð-
mundssyni rétt fyrir utan vita-
teiginn, lék upp að marki KR og
lék á Stefán Jóhannsson mark-
vörð en á einhvern óskiljanlegan
hátt skaut hann framhjá opnu
markinu.
Þarna voru Blikarnir óheppnir,
svo sannarlega hefðu þeir átt
mark skilið, en stuttu siöar áttu
Blikarnir að fá viti er Hákon
Gunnarsson var brugöiö af mark-
manninum, en Magnús V. Péturs-
son sá ekkert athugavert.
Seinni hálfleikur var ekki eins
liflegur og sá fyrri. Enn elti
óheppnin Biikana. A 60. min. gaf
Ólafur Björnsson góðan bolta inn
á Hákon en skot hans fór i stöng-
ina og út og þar stóð Helgi Bents-
son fyrir opnu marki, en Sigurði
Péturssyni tókst aö ná til boltans
á undan Helga og bjargaöi I horn.
Svo sannarlega vel gert hjá
Sigurði.
Ekkert gekk hjá Blikunum, þeir
áttu fjöldann af færum, en tókst
ekki að koma boltanum i markið.
Það var þvi ekki I samræmi við
gang ieiksins að KR-ingar skyldu
skora, en það gerðu þeirá 73. min.
Birgir Guöbjörnsson gaf þá
boltann til Sigurðar Indriöasonar
sem var á auðum sjó rétt fyrir
innan vitateiginn og hann skaut
jarðarbolta I horniö nær.
Þó að Blikarnir ættu færin, þá
skoruðu KR-ingar og þeir bættu
við öðru marki, en það var dæmt
af, þó ekki fyrr en Breiöabliks-
menn höfðu bent Magnúsi dóm-
ara á það, aö linuvörðurinn, Þor-
varður Björnsson hefði eitthvað
við það aö athuga.
Einn KR-ingurinn hafði leikið
boltanum útfyrir hliðarlinuna en
Magnús hafði ekki tekið eftir
bendingu linuvarðarins og sókn
KR endaði með marki, en eins og
áður sagöi, þá dæmdi Magnús
markið gilt en leikurinn var ekki
hafinn aö nýju og eftir að Magnús
hafði ráöfært sig viö linuvöröinn
þá dæmdi hann innkast Blikum tii
handa.
Stuttu siðar komst Elias Guð-
mundsson á auöan sjó en Guö-
mundur Asgeirsson markvörður
varði vel með úthlaupi.
Blikarnir voru óheppnir aö ná
ekki að minnsta kosti öðru stiginu
úr þessari viöureign. Þeir misstu
að visu Ólaf Björnsson út af um
miðjan seinni hálfleik vegna
meiðsla en hann hafði veriö besti
maöur Blikanna I leiknum. Þá
voru Sigurður Grétarsson og
Helgi Bentsson framlinumenn-
irnir óvenju daufir.
Það skaraði enginn einn framúr
i KR-liöinu. KR-ingarnir voru
óvenju daufir i fyrri hálfleik og
baráttugleðina virtist vanta.
Sigurður Pétursson átti ágætan
leik en aðrir tilheyrðu meðal-
mennskunni.
Dómari var Magnús V. Péturs-
son.
röp-.
PÉTUR
MEÐ
TVðl