Vísir - 30.08.1980, Blaðsíða 31

Vísir - 30.08.1980, Blaðsíða 31
31 vísm Laugardagur 30. ágúst 4980 Drukkið fyrir sex miiijaröa Islendingar hafa aukiö áfengis- kaup sin um 47 prósent á þriggja mánaða timabili, 1. april til 30. júni, miðað viö sama tima i fyrra. Þetta kemur fram i tilkynningu frá Afengisvarnaráði. Heildarsala þessa timabils i ár voru tæpir 6milljarðir, en rúmir 4 á sama tima i fyrra. Inn i þetta koma þó til frádráttar þær verð- hækkanir, sem orðið hafa á þess- um varningi þennan tima. —KÞ Blomaball í aldar- fjðrðung Blómaballið i Hveragerði verður aldarfjórðungs gamalt nú um helgina og verður haldið upp á það með „pomp og pragt” i' Hveragerði á laugardagskvöldið. Blómaballið hefur veriö ár- viss viðburður I skemmtana- lifinu fyrir austan fjall og hefur þar verið kjörin „blómadrottning” ár hvert. Svo verður einnig nú, og munu garðyrkjumenn þar eystra leggja sérstaka rækt viö skreytingar I tilefni afmælis- ins. Tvær hljómsveitir munu leika fyrir dansi á afmælis- hátíðinni, en þaö eru hljóm- sveitirnar Maraþon og Loð- mundur. — Sv.G. Dregið hefur verið i Kollgátu Visis sem birt- ist 12. ágúst. Vinningur er: Skoöunarferð m/flóabatnum Baldri um Breiðafjarða«yjar fyrir fjóra að verðmæti 28.000.- Dregnir verða út 4 vinningar að heildarverðmæti kr. 112.000,- Vinningshafar eru: Gumundur Steinsson, Vegamótum 1, Seltjarnarnesi. .Hallfriður Einarsdóttir, Dalsgerði 6 c, Akureyri. Arný Jóhannsdóttir, Möðrufelli 11, Reykjavik. Kristrún Asgeirsdóttir, Heiðarbæ 17, Keflavik. Dregið hefur verið i Kollgátu Visis sem birt- ist 13. ágúst. Vinningur er: Gisting — morgunmatur aö Staðarskála fyrir tvo að verðmæti 16.500,- Dregnir verða út 7 vinningar að heildarverðmæti kr. 115.500,- Vinningshafar eru: Ingunn Þórðardóttir, Safamýri 15, Reykjavik. Oddur Hallgrimsson, Karfavogi 37, Reykjavik. Þorbergur Guðmundsson, Holtaseli 22, Reykjavik. Björg Kjartansdóttir, Karfavogi 15, Reykjavik. Sandra S. Fannarsdóttir, Herjólfsgötu 8, Vestmannaeyj- um. Skæringur Georgsson, Illugagötu 57, Vestmannaeyjum. Davið Ólafsson, Skólavegi 7, Keflavik. S ""-BP"tókaráméisiárá TiTká u pmá n iTal ”Re y"ijavík:™ " „Hótun, sem ekki verð- ur tekin með Dögninni” Landssamband iönaðar- manna og Landsamband bakaramejstara hafa sent nokkrum kaupmönnum á Reykjavikursvæðinu bréf, þar sem þeir eru sakaðiriiiB að hafa á boðstólnum i verslunum sin- um vörur réttindalausra aðila i brauð- og kökugerö. I bréfinu segir meöal annars: „Þannig er mál með vexti aö einn félagi Landssarhbands bakarameistara telur sig hafa rökstuddan grun um, að i versl- un yðar séu seldar kleinur, kleinuhringir og/eða flatkökur, sem framleiddar eru af réttindalausum aðilum...... Flugleiðamáiið: Kannað verður hvort uppsagn- ir standast Astæða er til að ætla, að hrein- læti sé ekki nægilega i heiðri haft af ýmsum þessum aöilura, eada hafa heilbrigöisvfirvöld litil tök á þvi að fylgjékt með þessari oft óskráðu „huldustarf- semi”...... Landssamband iðnaðarmanna og Landssam- band bakarameistara leyfa sér að vona, að þér takið beiðni þessa til greina, svo aö eigi þurfi til {^Ss aö koma, að^stjórn Landssambands bakara- meistara neyöist til aö leita eftir þvi við aðildarfélaga sina, að öðrum og róttækari aðgerðum verði beitt, þar á meðal að bakarameistarar setji Verslun yöar i afgreiöslubann á brauöi og kökum”. Bakarameistarar rökstyðja þetía bréf sitt m@ð <$ilvitnun i jgpaöarlög, þar sem öngrein sem þessi skuli ávallt rekin undir forstöðu meistara. Visir leitaði álits eins kaup- manns i Reykjavik, sem fékk slikt bre'f. „Með þessu bréfi finnst mér þeir ekki vera að tala viö rétta aöila. Það er ekki okkarseljendanna að sjá um, aö iönaðarlögum sé framfylgt eöa að fyllsta hreinlætis sé gætt á ákveðnum vinnustöðum”, sagði þessi kaupmaður. „Auk þess er niðurlag bréfsins hótun, sem ekki er hægt aö taka með þögn- inni”. fu. Fólkið, sem fjér á i hlut, er oft- lega eldri kcllur, komnar á eftirlaun, sem oieÖ þessu eru að drýgja tekjurflár eða annaö það fólk, sem ekkilfenst að heiman til vinnu. „Manni finnst þvi ansi hart, að verið sé aö klekkja á ein- staklingum, sem eru að reyna að iétta undir meö sinu heimili á meðan kökur og brauð eru fluttar inn fyrir tugi milljóna”, sagði kaupmaöurinn enn- m fremur. „Þarna er veríð að ráð- ast á litilmagnann”. ■ — KÞ ■ —Rikisstjórnin hefur ákveðið að óska eftir skriflegri greinar- gerð um niðurstöður viðræðna Flugleiða við aöila i Luxemborg og hugmyndir um framhald slikra viðræðna. Þá hafa stjórn- völd ákveðið að beita sér fyrir viðræðum við yfirvöld i Luxem- borg um möguleika á áframhald- andi samvinnu f flugmálum. A fundi forsætisráðherra meö formönnum stéttarfélaga starfs- manna Flugleiða, voru vanda- mál aðila skýrð nánar og vonast er eftir samstarfi við rikisstjórn- ina um lausn i málinu, að sögn Kristjáns Egilssonar, formanns Félags ísienskra atvinnuflug- manna. I kjölfar fundarins, sem haldinn var i gærmorgun, sendi rikisstjórnin frá sér ofangreinda yfirlýsingu, þar sem jafnframt er ákveðið, að félagsmálaráðu- neytið kanni lagalegt gildi uppsagna starfsfólks Flugleiða, hvað varðar samningsbundinn uppsagnarfrest launþega- og einnig, hvort uppsagnir þessar samrýmist ákvæðum laga og reglugerðar um tilkynninga- skyldu fyrirtækja til vinnumála- skrifstofu félagsmálaráðuneytis- ins um samdrátt i rekstri. —AS HÆKKUN B0TA OG TEKJUTRYGGINGAR Myndatexti leiðréttur I Visi i fyrradag var birt for- siðumynd frá komu danska utan- rikisráðherrans, Kjeld Olesen, á Hótel Sögu, þar sem hann býr á meðan hann stendur hér við. Sagt var i myndatexta, að hann væri þar i fylgd islenskra embættis- manna. Ekki var það allskostar rétt. Annar maöurinn á myndinni með honum var reyndar islensk- ur embættismaður, Hörður Helgason, ráðuneytisstjóri utan- rikisráðuneytisins, en hinn var aftur á móti sendiherra Dana hér á landi, Janus Paludan. Er beðist velvirðingará þessum mistökum. Til samræmis viö hækkun kaupgjaldsvisitölu frá og með 1. september næstkomandi, hækka allar almennar bætur svo og tekjutrygging elli- og örorkulif- eyrisþega um 8,57%. Sem dæmi má nefna, að frá og með 1. september verður elli- og örorkulifeyrir einstaklings 99.792 krónur en hjóna 179.626 krónur. Tekjutrygging hjóna verður 162.711 krónur og barnallfeyrir 51.065 fyrir eitt barn. Með þessari hækkun hafa bætur hækkað um 29,36% á þessu ári og tekjutrygging um 35,83%. AB Berjaspretta er léleg I ár, segir Gísli hjá Búnaðarfélaginu. Þessi lúka komst þó I feitt undir Hekluhliðum um daginn. Vísismynd: Gsal LITIL BERJfl- SPRETTA í ÁR „Þaö eru ber hingað og þangað en yfirleitt litil berjaspretta i ár,” sagöi Gisli Kristjánsson hjá Búnaðarfélaginu i samtali viö VIsi. GIsli kvaðst hafa fregnir um berjasprettu úr ýmsum héruöum, sveitum og landshlutum og niður- staðan væri þessi. Um mánaöamótin mai og júni kom næturfrost viöa um land og skemmdist þá bláberjalyng svo mjög að engin ber hafa sprottið. „I sumum sveitum er auðvitað eitthvaö”, sagði Gisli, ,,en þess eru einnig dæmi i góðum berja- löndum aö þar er bókstaflega ekkert aö hafa.” Fyrir norðan var næturfrost i nótt og ber þvi frosið þar. Sunnanlands mun hins vegar vera viða nokkuö af berjum. —Gsal Starf dagskrárgerðamanns hjá sjónvarpinu Tíu sótlu um starfiD Umsóknarfrestur um starf dag- skrárgeröarmanns i Lista- og skemmtideild sjónvarpsins rann út nú um siöustu helgi, og eru um- sækjendur tiu: Edda Andrés- dóttir, Björn Emilsson, Geir Rögnvaldsson, Geirlaugur öli Magnússon, Guðmundur Þór Sig- urðarson, Ingveldur Sveinbjörns- dóttir, Kristin B. Pálsdóttir, Rúnar Gunnarsson, Sigurður Vil- berg Dagbjartsson og Viðar Vlk- ingsson. Starfsmannafélag sjónvarpsins mun hafa mælt meö ráðningu Björns Emilssonar. AB Víslsbíó I Visisbiói i dag klukkan þrjú verður sýnd bandariska gaman- myndin „Ekki núna félagi”. Myndin er með islenskum texta og sýningarstaöur er Hafnarbió. Bæjarslarlsmenn á Akureyrl sömdu: „Höldum hagstæðari launastiga en BSRB” Starfsmannafélag Akureyrar- bæjar hefur náö samkomulagi við samninganefnd bæjarins eftir aö nefndirnar höföu setið á mara- þonfundi. „Okkar samningar eru i takt við samninga BSRB og samninga Reykjavikurborgar”, sagði Er- lingur Aðalsteinsson, formaður starfsmannafélgsins í samtali viö VIsi. „Við höfðum heldur hag- stæðari launastiga en BSRB og starfsmenn Reykjavikurborgar og helst það, en það munar ekki nema einu til tveimur þúsundum á hverju þrepi að meðaltali”, sagði Erlingur. „Við náðum einnig desember- uppbótinni, sem felur i sér 26-28% uppbót á desemberlaun eftir átta til tólf ára starfsaldur. Þá náðum við inn ákvæðum um að starfs- menn staldri ekki við nema eitt ár I fimm neðstu launaflokkunum, sem er ívið hagstæöara en I BSRB-samningunum, og I sjötta til tiunda launaflokki staldra menn viö i fjögur ár. Það sem helst er nýtt i samn- ingum okkar, eru ákvæði um mötuneyti og ferðakostnað, sem hafa veriö i samningum BSRB og Reykjavikurborgar, en viö höfum ekki haft áöur”, sagði Erlingur i lok samtalsins. G.S. —Akureyri. _______ Nýsendíng af fuglabúrum Fjölbreytt úrval GULLFISKA BÚ£>IN í Aðalstrarti 4. (Ftschersundi) Talsími J17 57

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.