Vísir - 19.09.1980, Page 1
Ásdls Ingimundardóttir, ásamt Gauta syni slnum.sem nú er oröinn nlu mánaöa. Vlsismynd: EE.
listanum?
Siá bls. 9
Hvers vegna verk-
fall á blöðin?
Tilgangur
verkfalls-
Sjá bis. 26
DessuM
,,Ég geri ráð fyrir þvi, aö
þetta mál veröi tekiö upp á
sjóöstjórnarfundi i framhaldi af
umfjöllun Visis, sagði Jón Ingi-
marsson, formaður stjórnar at-
vinnuleysistryggingarsjóðs, er
Visir ræddi við hann i gær.
,.Þá verður væntanlega tekin
ákvörðun um, að það skuli
kannað hversu mikil brögð eru
að þessu, ekki bara hjá Iðju,
heldur einnig i öðrum félögum”.
Aðspurður um, hvort gera
mætti ráð fyrir að fleiri dæmi
væru um, að fólki væri synjað á
svipuöum forsendum, kvaðst
Jón óttast, að svo væri, en um
slikt væri vitaskuld ekki hægt að
fullyrða að svo stöddu.
„Við höfum nýlega tekiö upp
þá stefnu I sjóðstjórninni, aö
hafa fastan starfsmann, ein-
göngu i þágu sjóðsins”, sagði
Jón ennfremur”, Eyjólfur Jóns-
son, sem áöur var skrifstofu-
stjóri Tryggingastofnunar hefur
nú verið ráðinn framkvæmda-
stjóri sjóðsins.
Þetta er gert I tvennum til-
gangi: „Við eigum þá aögang að
ákveðnum starfsmanni og get-
um falið honum verkefni sem
segja má, að setið hafi á hakan-
um, t.d. að fylgjast meö þvi
hvernig úrskurðir ganga, svo og
að gera skyndikannanir á þeim,
án þess að undan þeim sé kvart-
að”. JSS
Jón Ingimarsson: Máliö tekiö
upp á sjóöstjórnarfundi I fram-
haldi af skrifum Visis.
Fékk fæðingarorlofiD
- vegna skrifa Vísis
„Mig langaði bara að láta
ykkur vita, að það var hringt til
min i gær, og mér sagt, að búið
væri að afgreiða umsókn mina
um fæðingarorlof, þannig að
það væri tilbúið”, sagði Ásdis
Ingimarsdóttir, félagi i Iðju. er
hún hafði samband við Visi i
gær.
Hún hafði, eins og komiö hafði
fram I skrifum blaðsins háð, að
þvi er virtist.vonlaiisa baráttu
til að fá greitt fæöingarorlof,
sem henni bar með réttu. Vegna
rangtúlkunar á lögum um
fæðingarorlof hafði henni verið
endanlega synjað, þegar Visir
tók málið upp með ofangreind-
um árangri.
„Ég vil bara þakka ykkur
kærlega fyrir”, sagði Asdis.
„Og ég vona, að þetta verði til
þess aö þær konur, sem synjaö
hefur verið á sömu forsendum,
ef einhverjar eru, fari nú af stað
og leiti réttar sins”.
—JSS
„Kannað
hversu
mikil brðgð
eru að
Nægir sex milllón
dala baktrygglng?
- stiórn Flugieiða tekur sennilega ákvörðun um bað næsta föstudag
Frá Sæmundi Guðvins-
syni, blaðamanni Visis
i Luxemborg, i morg-
un:
„Staöan á Atlantshafsleiðinni
hefur satt að segja veriö aö
breytast til hins verra frá mán-
uði til mánaöar að undanfömu,
og það er nauösynlegt, að við
endurmetum þessa stöðu áður
en við tökum ákvörðun um það
hvort fluginu veröur haldið á-
fram”, sagöi örn ó. Johnsson,
stjórnarformaður, á fundi meö
islenskum fréttamönnum hér I
Luxemborg i gær.
örn sagöi ennfremur, að ef
beir Flugleiðamenn kæmust aö
þeirri niðurstöðu, að tilboð
rikisstjórnanna nægði ekki, það
er aö segja, aö augljóslega yrði
meira tap á rekstrinum en
næmi þessari aðstoð, þá teldi
hann, að félagið væri ekki i að-
stöðu til áframhaldandi flugs
milli Luxemborgar og Banda-
rikjanna.
Sérfræðingar Flugleiöa munu
nú setjast niður og reikna út
hvort sex milljón dollara bak-
trygging rikisstjórnanna, ásamt
annarri aðstoð. nægi þeim eða
ekki. Stjórnarfundur veröur
haldinn 1 félaginu á föstudaginn
og er búist við, að ákvörðun
verði tekin þá hvaö félagið ætlar
aö gera.
—SG/ATA.