Vísir - 19.09.1980, Blaðsíða 22
> >
i,i * a » j . <
vtsm
r...
Föstudagur 19. september 1980.
Magnús E.
Sigurösson, starfsmaður HÍP:
m ERUM EKKI
VIRTIR VRÐLITS
- meðan samið er við aðra launpega
i
„Málin standa
þannig, að við erum
búnir að boða til verk-
fallsaðgerða til að
þrýsta á að þær tillögur
sem við höfum lagt
fram um breytingar á
kjarasamningum, verði
ræddar. Þar er fyrst og
fremst um að ræða at-
riði, sem snerta öryggis-
mál, tæknimál, og
annað þess háttar”
sagði Magnús E.
Sigurðsson starfsmaður
Hins islenska Prentara-
félags, þegar Visir
spurði i gær, hver væri
staðan i samningavið-
ræðum bókagerðar-
manna og viðsemjanda
þeirra.
Sagöi Magnús, að þetta væri
minnst spurning um laun. Lögð
væri áhersla á atvinnuöryggis-
mál og svo jöfnuð á kaupi milli
félaga hjá óiðnlærðu fólki, sem
ynni samskonar störf, en byggi
viö mismunandi kjör. Krafan
væri að jöfnuð yrðu út kjörin hjá
lægst launuðu hópunum, þannig
að þeir sætu a.m.k. við sama
borö.
„Við höfum ekkert heyrt frá
okkar viðsemjendum. Þeir vildu
ekkert ræða við okkur í gær-
morgun frekaren fyrr, þannig að
við vitum ekki um þeirra við-
brögð enn sem komið er. En við
vonum, aö það komist skriður á
máliö, þannig að ekki þurfi að
koma til þessara verkfalla”,
sagði Magnús.
Það hafa verið haldnir fundir
undanfarna mánuði, en við höfum
ekki fengið nein viðbrögð við
okkartillögum önnur en þau.sem
voru alveg þvert á þær. Gerðu
þau ráð fyrir að við afsöluðum
okkur einu og öðru, sem við höf-
um i samningum nú þegar. Við
fengum eiginlega skerðingartil-
boð”.
Nú er verið að semja við aðra
launþega i landinu, meðan við
erum ekki virtir viðlits, þannig að
það hlýtur að vega mjög þungt i
okkar afstöðu núna. Þannig geta
aðrir atvinnurekendur komið til
móts við sina viðsemjendur,
meðan okkur er nánast ekki
svaraö”, sagði Magnús að lokum.
—JSS.
Magnús E. Sigurðsson: Verkfallsaðgeröir tii aö þrýsta á um aö til-
lögur okkar veröi ræddar.
Visismynd:KAE.
Kennarí
Varnarliðiö óskar eftir að ráða kennara við
barnaskóla varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Umsækjandi hafi kennarapróf og
starfsreynslu við kennslustörf.
Kennslugreinar eru: íslensk menning,
Islandssaga, íslenska og landafræði.
Mjög góð enskukunnátta skilyrði.
Umsóknir sendist til ráðningarskrifstofu
varnamáladeildar, Keflavíkurflugvelli eigi
siðar en 26. sept. 1980. Simi 92-1973.
Tilboð óskast
í neðanskráðar bifreiðar
í tjónsástandi:
Toyota Corolla árg. '72
Toyota Starlet árg. '80
Fiat 125 P árg. '78
Wartburg árg. '80
Mercury Comet árg. '74
Fiat 850 árg. '71
Fiat 125 station árg. '78
Sunbeam Vogue árg. '71
Sunbeam 1500 árg. '72
Fiat 132 árg. '74
Lada 1600 árg. '79
Mercedes Benz árg. '69
Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut 26,
Hafnarfirði, laugardaginn 20. september frá
1-5 e.h.
Tilboðum sé skilað til aðalskrifstofu að
Laugavegi 103 fyrir kl. 5 mánudaginn 22. sept-
ember.
Brunabótafélag Islands.
Nauðungaruppboð
annaö og siöasta á Seljabraut 80, þingl. eign Jóns S.
Guönasonar fer fram á eigninni sjáifri mánudag 22. sept-
ember 1980 kl. 11.15.
Borgarfógetabnmbættiö I Reykjavfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 137., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á
hluta I Hraunbæ 74, tal. eign Elvars Bæringssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavík á eigninni
sjálfri mánudag 22. september 1980 kl. 14.15.
Borgarfógetaembættiö I Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 37., 39.og41.tbl. Lögbirtingablaös 1980 á
hiuta i Hrísateig 29, þingl. eign Jósafats Hinrikssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavik á eigninni
sjálfri mánudag 22. september 1980 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættiö í Reykjavik.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 137., 39. og 41. tbl. Lögbirtingablaös 1980 á
hluta I Hrisateig 10, þingl. eing Haraldar Stefánssonar fer
fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar i Reykjavlk á eigninni
sjálfri mánudag 22. september 1980 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið I Reykjavlk.
Nauðungaruppboð
aö kröfu Viljjálms H. Vilhjálmssonar, hdl., Jóns G. Briem
hdl., Arnmundar Bachmann hdl., og innheimtumanns
rikissjóös veröa eftirtaldir iausafjármunir seldir á nauö-
ungaruppboöi, sem fram fer föstudagin 26. september n.k.
kl. 16.00, viö Tollvörugeymslu Suöurnesja hf. aö Hafnar-
götu 90, Keflavik.
Bifreiöarnar: Ö-6094, Ö-5599, Ö-613, Ö-5300, Ö-4187, Ö-157
og Ö-2260.
Uppboösskilmálar liggja frammi á skrifstofu embættis-
ins.
Greiösla fari fram viö hamarshögg.
Uppboöshaldarinn I Keflavik.
W/sS'Y'?,
26
$7úTarhoríí
Snjaii
ertu
Steingrímur
Steingrimur Hermannsson
er tvimælalaust maður vik-
unnar og vaskleg framganga
hans i Flugleiðamálinu hefur
aflað honum álits meðal
þjóðarinnar og styrkt stöðu
hans og Framsóknarflokksins
á skákborði stjórnmálanna.
Fyrir bragðið hafa menn nú
slegið striki yfir fyrri afglöp
og enginn nennir lengur að
nöldra út af niöurtalningu eða
óheillavænlegum afskiptum
framsóknarmanna á efna-
hagsþróun i landinu á undan-
förnum árum.
Hiðpólitiska nef Steingrims
virðist þvi bæöi lengra og þef-
næmara en flestra kollega
hans I pólitikinni. Hann kann
að nýta tækifærin og viröist að
þvi leyti ætla að verða farsæll
maður i hlutverki stjórnmála-
foringjans. Menn minnast
þess nú, að það var Stein-
grimur sem opnaði öldurhúsin
ogbarina i fyrrasumar en meö
þeirri ákvörðun tókst honum
um stundarsakir aö dreifa
hugum manna frá óstjórnar-
ástandinu i þjóðfélaginu.
Menn hafa heldur ekki gleymt
þvi hvernig Steingrimur vann
siðustu kosningar fyrir Fram-
sóknarflokkinn með rólegri og
traustvekjandi framkomu i
sjónvarpi, þar sem hann
minnti kjósendur á, að „fram-
sóknarmenn báðu ekki um
þessar kosningar” og hin póli-
tisku lausnarorð „manngildi
ofar auðgildi” féllu i góðan
jarðveg.
Með þessu er ekki verið að
gera litiðúr Steingrimi eöa af-
stöðu hans I Flugleiðamálinu.
í þessu máli hefur hann sýnt,
að hann hefur bein i sinu póli-
tiska nefi.
Steingrimur hefur að visu
lýst þvi yfir, að hann sé ekki
eins greindur og Ólafur
Ragnar Grimsson. Enginn
efast um greind Ólafs Ragn-
ars en þvi miður viröist hann
vera sorglegt dæmi um, að
ekki fer alltaf saman greind
og dómgreind. Upphlaup hans
og talbrúöu hans Baldurs
Óskarssonar hafa skaöað
Alþýðubandalagið og fyrir
bragðið stendur flokkurinn nú
uppi meö allt niöur um sig I
Flugleiðamálinu. Reyndar
eru menn búnir að fá yfir sig
nóg af stóryrðaflaumnum og
froðusnakkinu úr þeirri átt.
En hvað sem greindarvisi-
tölu liður er ljóst að ólikt hefur
Steingrimur Hermannsson
fariðviturlegar að i Flugleiða-
málinu enda stendur hann þar
með pálmann i höndunum og
hefur gefiö andstæðingum
sinum langt (pólitiskt) nef.
A meðan aörir láta þannig
þjóömálin til sin taka
skemmta sjálf stæðismenn
skrattanum með fúkyrtum
yfirlýsingum i garð hvers ann-
ars. Bræðravigin i þeim garði
eru á góðri leið meö að ganga
af flokknum dauðum, and-
stæðingunum til óblandinnar
gleði og hugarhægöar. Hvað
varðar sjálfstæöismenn
heldur um þjóðmálin, — og
hvern varðar um álit þeirra?
—Sv.G.