Vísir - 04.10.1980, Blaðsíða 21
Laugardagur 4. október 1980.
21
scxndkassim
Gisli
Sigurgeirsson,
bla&amaður
Visis á
Akureyri,
skrifar.
Ævinlega alsæl.
• ,/Gistifyrirlestrar Jarð-
hitaskólans",
segir Mogginn. Þetta er
að verða munaður að
ganga í skóla nú til dags
— og þetta er það nýj-
asta að geta sofið á
fyrirlestrum.
#Leifi Ijónheppni var
alltaf fullur í vikunni.
Þar sem hann gegndi nú
ábyrgðarmiklu starfi,
þá fundu vinnuveit-
endurnir að þessu við
hann. „Hvenær á ég þá
að vera fullur", svaraði
Leifi, „ekki tími ég að
fórna frítímanum í svo-
leiðis vitleysu".
#„Of lengi látið heilaþvo
okkur",
segir formaður Alþýðu-
sambands Vestfjarða í
Tímanum. Skárri má
það nú vera óþrifnaður-
inn, það er eins gott að
þeir þoli örlitla suðu.
• „Stundarfriður fyrir
Gervasoni",
segir Þjóðviljinn. Ég er
ekkert hissa, þótt þeir
hafi verið fegnir, að fá
stundarf rið f yrir
„gervisyninum" á Þjóð-
viljanum.
#„Engin lögga í Grundar-
firði",
segir Þjóðviljinn. Alli,
Palli og Kalli, upp með
kúbeinin strákar, við
tökum næstu vél vestur.
#Nú mega hrossabændur
fara að vara sig, því ég
rakst á eftirfarandi
auglýsingu í einu blað-
anna: „Graðfolaeigend-
ur eru stranglega
áminntir um að láta
vana foia sína. Annars
verða þeir tafarlaust
geltir eða settir undir lás
og slá".
•„Leggjum niður frí-
höfnina",
segir Svarthöfði. Nei,
má ég þá heldur biðja
um gaffalbita.
•„Hvað varð um bjórinn
og áfengið?"
spyr Vísir. Spyrjiði
„Frakkalaf ið".
#Ég heyrði á tal tveggja
frambjóðenda við
kosningarnar í vetur.
Annar þeirra spurði:
„Um hvað talaðir þú í
framboðsræðunni". „O,
svo sem ekki neitt",
svaraði hinn. „Það vissi
ég, en hvernig fórstu að
koma orðum að því?",
spurði hinn þá aftur á
móti.
bankans og Rauða
krossins var hér sl.
þriðjudag að safna
blóði, en tíu ár munu
vera síðan þeir voru hér
síðast þessara erinda.
Því betur voru Húsvík-
ingar allgjafmildir, og
gáfu alls 124 blóð",
meiri hlutinn karlmenn,
en þó margar konur, þá
ekki næðu þær jafn-
réttishlutfalli á því
sviði.
Gjafmildi sína sýndu
aðeins 5% bæjarbúa í
þetta skipti, og hefði þar
betur mátt gera enda
veit enginn hver næstur
þarf að biðja um aðstoð
þessa banka sem úthlut-
ar öllum sem vilja
vaxta- og kostnaðar-
laust og aldrei er
lokaður". Svo mörg
voru þau orð Bóka-
varðafélagsins.
• Steini og Stjáni voru
búnir að vera „áþí" og
orðnir skítblankir. Þeir
lögðu á ráðin um sam-
særi til að verða sér úti
um góðan mat. Niður-
staðan varð sú, að fara á
Það er nú rétt að benda Mogganum á, að þetta kalla
þeir réttir í sveitinni.
#Þeir voru eitthvað að
pexa um Stalín og Rúss-
land í sjónvarpinu um
daginn. Nú hefur Al-
þýðubandalagið ákveðið
að efna til happdrættis
til stuðnings Þjóðviljan-
um, samkvæmt áreiðan-
legum heimildum Sand-
kassans. Þriðji stærsti
vinningurinn verður
þriggja vikna ferð til
Moskvu með fullu uppi-
haldi, annar stærsti
vinningurinn verður
tveggja vikna ferð með
fullu uppihaldi, en aðal-
vinningurinn verður
viku ferð til Moskvu
með fullu uppihaldi —
og Jón Múla fyrir farar-
stjóra.
•„Eiginkonur flugmanna
mæla með ráðningu
elstu flugfreyjanna",
segir Mogginn. Það er
svo sem skiljanlegt, en
f lugmennirnir, hvað
segja þeir um málið?
• Skotinn hafði neyðst til
að taka leigubíl á milli
bæja. Bílstjóranum
tókst ekki betur til en
svo, að hann missti bíl-
inn fram af hengiflugi
— og Ijóst að báðir voru
komnir að leiðarlokum.
„Taktu gjaldmælinn úr
sambandi h...... þitt"
öskraði Skotinn.
#,, Erfitt að lækka tekjur
sem þegar hefur verið
ráðstafað
segir Tíminn og á við
tekjur ríkissjóðs. Það
vissi ég, er til önnur leið
en leggja á nýja skatta?
En Ragnar minn, ég
ætla bara að láta þig
vita það, að ég get ekki
borgað meira.
•„Ríkissjóður ber svo til
allan kostnaðinn",
segir Mogginn og á við
félagsmálapakka ríkis-
st jórnarinnar. Hefur
nokkrum dottið í hug
hverjir eiga þennan
sjóð, eða hvaðan hann
fær peningana?
• „Deyja þúsundir
hungurdauða vegna
olíuleysis?",
spyr Mogginn. Flest eru
þeir nú farnir að drekka
á Mogganum.
• „Bókvarðafélag Is-
lands",
segir Mogginn í fyrir-
sögn, en fréttin sem
fylgdi með var á þessa
leið: „Húsavík 25.
september 1980. Blóð-
söf nunarsveit Blóð-
Borgina. Síðan þegar
þjónninn kæmi með
reikninginn átti Steini að
segja: „Ég borga". Þá
átti Stjáni að mótmæla
og segja: „Nei, ég
borga. Síðan ætluðu þeir
í hár saman út af þessu,
þannig að kallað yrði á
lögregluna og þeir hirt-
ir. Þá væri reikningur-
inn úr sögunni. Þeir fóru
svo að borða. Fengu f ín-
an mat og voru orðnir
pakksaddir þegar
þjónninn kom með
reikninginn. „Ég
borga", sagði Steini.
„Alltaf ertu jafn al-
mennilegur", sagði þá
Stjáni og labbaði út.
•Við sláum botninn í
þetta í dag með raunum
biskupsins.
„Ferðakistan farin
kristnir bræður.
Því forði sá sem öllu
ræður."
(Við fylgd sína átti
frómur biskuptal).
„Ég missti í henni
hundrað ræður.
Guð hjálpi þeim sem
stal".
Bless
Nýtt
símanúmer
26011
Skiptiborð — Innanlandsflug
26622
Farpantanir — Innanlands
og upplýsingar
FLUGLEIDIR j£>
3ja tonna trilla, nýendurbyggð með nýrri 36 ha
Buick vél, glussaspili o.fl.
Til greina koma skipti á bíl eða öðru tæki.
Upplýsingar i síma 98-2210, 2407 eða 1653.
Tilsö/u
jazzBaLLeccakóU búpu
JAZZBALLETTNEMENDUR
SKÍRTEINAAFHENDING
í dag og á
morgun kl. 1
til 5 í Suðurveri
niðri (gamla sal).
Mætið með
stundaskrár
Sími 83730
jQZZBQLLödCSkÓLÍ BÚHJ