Morgunblaðið - 08.06.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Englendingar komu fram
hefndum / B1, B3
Búist við hörkuleik
á Ítalíu í dag / B1, B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r8.
j ú n í ˜ 2 0 0 2
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir auglýs-
ingablaðið
„Þitt mál“ frá
VR . Blaðinu
verður dreift
um allt land.
VERZLUNARMANNAFÉLAG
Reykjavíkur og Samtök verslunar-
innar-FÍS hafa komist að samkomu-
lagi í sameiginlegri launanefnd um
breytingar á kjarasamningi sem und-
irritaður var 22. janúar 2000. Nær
samkomulagið til tæplega 2.000 fé-
lagsmanna sem starfa flestir hjá
heildsölufyrirtækjum.
Samkomulagið kveður á um 6%
launahækkun til þeirra félagsmanna
sem ekki hafa fengið launahækkun á
tímabilinu frá 1. janúar 2001. Samn-
ingur verslunarmanna og SV-FÍS
var fyrsti kjarasamningurinn sem
gerður var um svonefnd markaðs-
laun og var hann frábrugðinn samn-
ingi verslunarmanna og Samtaka at-
vinnulífsins að því leyti að ekki var
kveðið á um ákveðnar árlegar kaup-
hækkanir í samningnum. Var sér-
stakri launanefnd falið að meta og
bregðast við ef í ljós kæmi að veru-
legir brestir væru á að starfsmenn
sem samningurinn tekur til fengju
launahækkanir skv. markaðslauna-
samningnum, skv. upplýsingum
Gunnars Páls Pálssonar, formanns
VR.
,,Stærsti liðurinn er að kveðið er á
um að þeir sem ekki hafa fengið nein-
ar launahækkanir fá 6% hækkun og
þeir sem hafa fengið einhverja kaup-
hækkun fá þá þann mismun sem upp
á vantar,“ segir Gunnar.
Samningur gildir til febrúar
2004 og er án uppsagnarákvæða
Einnig var samið um styttingar á
vinnutíma til samræmis við kjara-
samninga sem gerðir hafa verið við
SA og fleiri atriði, m.a. um lágmarks-
laun ungmenna, hækkun desem-
beruppbótar, orlofsauka og hækkun
á mótframlagi vinnuveitanda í lífeyr-
issjóð.
Skv. samkomulaginu skulu laun
16–17 ára ungmenna ekki vera lægri
en kr. 77.500 á árinu 2002 og kr.
80.000 á árinu 2003. Þeir sem eru
yngri en 16 ára skulu hafa að lág-
marki kr. 70.000 í laun á samnings-
tímanum. Desemberuppbót hækkar í
kr. 45.000 á árinu 2002 og kr. 50.000 á
árinu 2003.
Með þessu samkomulagi falla
samningsaðilar frá uppsagnarákvæði
sem var í samningnum og miðaðist
við 1. september næstkomandi. Gild-
ir samningurinn til 29. febrúar 2004.
6% launahækkun og
breytingar á vinnutíma
VR og SV-FÍS ná samkomulagi um breytingar
á kjarasamningi fyrir tæplega 2.000 starfsmenn
BRÚARVINNUFLOKKUR Guð-
mundar Sigurðssonar frá
Hvammstanga vinnur þessa dag-
ana að gerð nýrrar tvíbreiðrar
brúar yfir Norðurá innst í Norð-
urárdal, en brúin verður 22 metr-
ar að lengd. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni hófst
verkið um miðjan apríl og er ráð-
gert að því ljúki um mánaðamót
júní og júlí.
Samfara vinnunni við brúar-
gerðina vinnur verktaki að nauð-
synlegri breikkun og hækkun
vegarins við nýju brúna.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ný brú í Norðurárdal
MORGUNBLAÐIÐ hefur falið lög-
mönnum sínum að óska eftir lög-
reglurannsókn á því hver sé réttur
höfundur tveggja greina, sem birt-
ust í blaðinu 7. maí og 1. júní sl.
Greinarnar voru sendar blaðinu í
nafni Sigurðar Jónssonar, íbúa á
Selfossi, en í ljós hefur komið að
hann er ekki höfundur þeirra, held-
ur hefur annar maður notað nafn
hans og kennitölu í blekkingar-
skyni. Morgunblaðið biður Sigurð
Jónsson velvirðingar á þeim óþæg-
indum, sem hann kann að hafa haft
af birtingu greinanna.
Önnur greinin fjallaði um málfar
íþróttafréttamanna í ljósvakamiðl-
um, hin um ráðningu bæjarstjóra á
Seltjarnarnesi. Málið er kært til
lögreglu m.a. á þeim forsendum að
það hafi verulega þýðingu fyrir
starfsemi Morgunblaðsins að höf-
undar aðsendra greina séu rétt til-
greindir í blaðinu. Annars vegar
varði málið almenna tiltrú blaðsins,
sem skipti það afar miklu máli.
Hins vegar ráði þetta atriði úrslit-
um um ábyrgð á efni aðsendra
greina, skv. 15. gr. laga nr. 57/1956
um prentrétt.
Óskað rann-
sóknar vegna
rangs höf-
undarnafns
BORGARFULLTRÚAR eiga nú
rétt á biðlaunum er þeir láta af
störfum samkvæmt samþykkt borg-
arráðs, en að sögn Gunnars Eydal,
skrifstofustjóra borgarstjórnar,
hafa borgarfulltrúar ekki fengið
biðlaun hingað til.
Hann segir að í sveitarstjórnar-
lögunum frá 1998 séu veittar heim-
ildir til ýmissa réttindamála sveit-
arstjórnarfulltrúa og í nýrri
samþykkt frá síðasta ári um stjórn
Reykjavíkurborgar og fundarsköp
borgarstjórnar sé sérstaklega tekið
fram að setja skuli reglur um bið-
laun og fleiri þætti og séu reglurnar
settar á þeim grundvelli. Tekið sé
mið af biðlaunum þingmanna, þótt
rétturinn sé aðeins rýrari.
Gunnari er ókunnugt um hvort
fleiri sveitarfélög hafa tekið þetta
upp, en segir að þetta þyki almennt
vera réttlætismál. „Stór hluti borg-
arfulltrúa hefur þetta sem aðalstarf,
að minnsta kosti þeir sem sitja í
borgarráði og eru formenn nefnda.
Þarna er því um að ræða aðalstarf
fólks sem getur breyst með litlum
fyrirvara,“ segir Gunnar.
Samkvæmt hinum nýju reglum
skulu biðlaun borgarfulltrúa miðast
við þau meðallaun sem þeir höfðu á
kjörtímabilinu fyrir setu í borgar-
stjórn og fastanefndum borgarinn-
ar. Greiða skal 2 mánuði eftir að lát-
ið er af störfum auk fullra launa
fyrir júní. Ef borgarfulltrúi hefur
gegnt störfum í tvö kjörtímabil
samfellt skal greiða einn mánuð til
viðbótar en hafi hann gegnt störfum
í þrjú kjörtímabil samfellt, eða leng-
ur skal greiða alls fjóra mánuði.
Taki borgarfulltrúi sem nýtur
biðlauna við starfi í þjónustu borg-
arinnar eða hjá fyrirtæki sem er að
minnsta kosti í helmingseigu henn-
ar falla biðlaun niður, að því gefnu
að nýju launin séu hærri en sem
nemur biðlaunum, en séu þau lægri
fær viðkomandi mismuninn greidd-
an.
Tillaga um biðlaun borgarfulltrúa samþykkt
Fá greiðslur frá tveimur
og upp í fjóra mánuði
FRANSKI djasspíanóleikarinn
Jacques Loussier er væntanlegur
hingað til lands og heldur tón-
leika í Háskólabíói 20. september
næstkomandi. Loussier, sem er
þekktastur fyrir að leika tónlist
eftir J.S. Bach í djassútsetningum,
hefur notið talsverðrar hylli hér á
landi og víðar í Evrópu á síðustu
áratugum fyrir plötur sínar, en
hér á landi hafa plötur hans selst
í nálægt 10.000 eintökum. Lous-
sier leikur hér með tríói sínu.
Jacques Loussier hóf að leika
verk Bachs í djassútsetningum á
sjötta áratugnum með Play Bach
tríói sínu. Á áttunda áratugnum
dró hann sig í hlé frá tónlist um
tíma en sneri aftur á 300. afmæl-
isári Bachs, 1985, og hefur haldið
grúa tónleika og gefið út fjölda
hljómplatna upp frá því. Á síðustu
árum hefur hann einnig útsett
tónlist eftir Ravel, Debussy, Satie
og fleiri fyrir djasstríó.
Tónleikarnir í Háskólabíói 20.
september næstkomandi verða á
vegum Hr. Örlygs ehf. Miðasala
hefst 18. júní næstkomandi, en
nánari upplýsingar er að fá í
verslun 12 tóna við Skólavörðu-
stíg.
Jacques Loussier
til Íslands
GENGI hlutabréfa deCODE Gene-
tics, móðurfélags Íslenskrar erfða-
greiningar, endaði í gær annan dag-
inn í röð í lægsta gildi frá upphafi á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum.
Lokagildi bréfanna lækkaði um
4,62% frá fimmtudegi og endaði í
3,72 Bandaríkjadölum. Gengið fór
um tíma í gær í 3,50 dali en það er
lægsta verð sem greitt hefur verið
fyrir bréfin frá því þau voru skráð á
Wall Street fyrir tveimur árum.
Á einni viku lækkaði gengi de-
CODE um 99 sent, eða um 21%, en
gengið var 4,71 dalur í lok síðustu
viku.
Gengi de-
CODE kom-
ið í 3,72 dali