Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 9

Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 9 Fyrir ferðalögin! Vinsælu stretsbuxurnar, peysur og léttir sumarjakkar Engjateigi 5, sími 581 2141. Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00. Gallaskokkar með spagettíhlýrum St. 36—56                Svartir jakkar, pils og buxur Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag 10-14 Ný sending Brúðarkjólar Opið mán.-fös. frá kl. 11-18, lau. kl. 11-16 Mömmusett Brúðarmeyjakjólar Brúðarsveinaföt s. 567 4727 Stærðir S-XXXL Verð 19,000-25,000 kr. okkar árlega Antik lagersala 20-80% afsláttur Klapparstíg 40, sími 552 7977 Opið lau. kl. 11-17. sun. kl. 13-17. HÁVÆRAR kröfur um hertar refs- ingar við tilteknum afbrotum, svo sem kynferðisafbrotum, fíkniefna- brotum og ofbeldisbrotum, hafa komið fram í þjóðfélaginu á síðustu árum. Lögmannafélag Íslands og Dómarafélag Íslands stóðu fyrir mál- þingi í gær, sem bar yfirskriftina Glæpur og refsing, viðurlög við glæp- um á Íslandi – er breytinga þörf? og voru þessi málefni þar til umfjöllun- ar. Sigurður Tómas Magnússon hér- aðsdómari fór í gegnum þróun refs- inga frá 1951 en hann hefur nýlokið úttekt á afbrotum á Íslandi 1951– 2000, sem hann vann fyrir dóms- málaráðuneytið, í samvinnu við Hildigunni Ólafsdóttur afbrotafræð- ing. Í máli hans kom fram að refs- ingar við ofbeldisbrotum hafa ekki þyngst að marki á þessu tímabili. Hann talaði um ákveðnar sveiflur í refsingum, en að þessar sveiflur gengju jafnframt ekki í neina átt. „Niðurstöður rannsókna sýna að lík- amsárásir virðast ekki hafa jafnal- varlegar afleiðingar og fyrr. Það er svolítið einkennilegt því samhliða er talað um að brotin séu orðin sífellt grófari,“ sagði Sigurður og benti á að þessu megi þakka mun öflugri við- bragðsþjónustu, svo sem neyðarlínu, sjúkraflutningum og framförum í læknavísindum. Hann sagði að svo virtist sem við ákvörðun refsinga væri mest horft til efnahagslegra og líkamlegra afleið- inga brota. „Þetta er í sjálfu sér eðli- legt, þar sem skilgreiningar á ein- staka refsiákvæðum miðast mjög mikið við afleiðingar og dómvenjan styrkir þessa nálgun. Aðrar afleið- ingar brota sem ekki eru beinlínis líkamlegar heldur andlegar hafa til- tölulega nýlega verið dregnar fram í dagsljósið. Áherslurnar á þessa þætti hafa aukist mjög á síðustu árum. Þessir þættir eru auðvitað ósýnilegir berum augum og sjást heldur ekki á röntgenmyndum, þannig að sönnun- arfærsla um þessi atriði er erfiðari,“ sagði hann og bætti við að réttarvit- und almennings væri ef til vill nokk- uð á undan dómstólum hvað varðaði áherslur á þessar andlegu afleiðing- ar. Að sögn Sigurðar er mikill hraði í dómskerfinu nú og afleiðingar brot- anna eru oft ekki komnar fram þegar búið er að dæma í málum. Hann velti þeirri spurningu upp hvort sakborn- ingurinn ætti að njóta góðs af því að vafi væri um hverjar afleiðingar brotanna væru, en taldi jafnframt að líta þyrfti til fleiri þátta, eins og til dæmis hættueiginleika brotsins og ofbeldið sjálft. Í erindi Sigurðar kom fram að refsingar þróast tiltölulega hægt. Hann rakti hvaða atriði gætu haft áhrif á þróun refsinga og nefndi breytingar á refsilöggjöf, breyttar áherslur ákæruvalds og ný viðhorf og gildismat. Hann sagði það hins vegar deiluefni hvort refsingar þróuðust nægilega hratt. Jón Þór Ólason, lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu, flutti erindi um eðli og þróun viðurlagakerfisins og kom einnig inn á það sem hann kallaði dómstól götunnar. Hann ræddi um nýjar viðurlagategundir, eins og helgar- og næturfangelsi, raf- ræn ökklabönd og síðast en ekki síst samfélagsþjónustu. „Reynslan af samfélagsþjónustu hér á landi er góð, en hins vegar eru núgildandi reglur um samfélagsþjónustu gagnrýni- verðar. Það væri til dæmis mun eðli- legra að dómstólar gætu sjálfir ákveðið samfélagsþjónustu sem vararefsingu fésekta, í stað þess að stjórnvöld breyti refsingu í sam- félagsþjónustu,“ sagði Jón Þór. Í máli hans kom fram að hann tel- ur það eðlilegt að ákvæði um sam- félagsþjónustu verði sett inn í hegn- ingarlög og nefndi sem dæmi að samfélagsþjónusta gæti verið mjög heppileg leið til að veita ungum brotamönnum aðhald. Hann telur að tími sé kominn til að hefja heildar- endurskoðun á hegningarlögunum. Lögin væru komin til ára sinna og hefðu gengið í gegnum ótal breyting- ar á liðnum áratugum, sem þyrfti að skoða betur í samhengi og samræma betur. Afbrotamál vinsæl „söluvara“ í fjölmiðlum Jón Þór sagði að umræður í þjóð- félaginu gengju í þá átt að of vægt væri tekið á brotamönnum. Á það ekki síst við þegar rætt er um refs- ingar fyrir brot eins og kynferðisbrot og ofbeldisbrot. Hann bætti við að þess bæri að gæta að umræðan blandaðist oft tilfinningahita og benti á að refsingar yrðu ekki þyngdar á einni nóttu. Þróunin tæki lengri tíma og refsingar væru að þyngjast í kyn- ferðisafbrotamálum og grófari lík- amsárásarmálum. Hann endaði á gagnrýni á fjöl- miðla fyrir umfjöllun um málefni af þessu tagi og sagði að afbrotamál væru orðin vinsæl „söluvara“ í fjöl- miðlaheiminum, þó að vissulega væri það breytilegt eftir einstökum fjöl- miðlum. „Oft bera fréttir fjölmiðla merki þess að sá sem segir frá hafi ekki vald á grundvallaratriðum og því verður frásögnin ekki jafnupplýsandi og hún gæti orðið, stundum villandi og í versta falli beinlínis röng. Má hér nefna dóm Héraðsdóms Vestfjarða frá 23. apríl 2001 þegar maður var sýknaður af grófum kynferðisafbrot- um sökum þess að brot ákærða voru fyrnd. Í umfjöllun eins fjölmiðils var komist svo að orði að enn fyrntist mál hjá dómstólum. Umfjöllun sem þessi er röng. Ekki var fjallað um það að brotaþolinn hefði ekki kært málið fyrr en löngu eftir að málið var fyrnt samkvæmt lögum, heldur var um að ræða enn einn sýknudóminn í kyn- ferðisbrotamáli af hálfu dómstóla. Vissulega eru aðfinnsluverð þau vinnubrögð ríkissaksóknara að gefa út ákæru í fyrndu máli. Það er því ljóst að fjölmiðlar hafa mikil áhrif á skoðanamyndun almennings og þessu valdi fjölmiðla fylgir mikil ábyrgð,“ sagði hann. Sigríður J. Friðjónsdóttir, sak- sóknari við embætti ríkissaksóknara, ræddi um ákvörðun refsinga með til- liti til jafnræðissjónarmiða. Hún sagði spurningar vakna um vægi for- dæma þegar refsingar væru skoðað- ar út frá jafnræðissjónarmiðum. „Að mínu mati á áherslan að vera lögð á sérstöðu hvers máls þegar kemur að alvarlegum refsimálum en fastheldni á fordæmi er talsverð,“ sagði hún og benti á að mikil fastheldni á fordæmi gæti verið varhugaverð. Sigríður bar saman þyngsta dóm- inn sem fallið hefur til þessa í kyn- ferðisafbrotamáli gegn börnum, eða fimm og hálfs árs refsivist og svo þyngsta dóminn fyrir fíkniefnabrot, þar sem refsingin var tíu ára fang- elsi. Hún sagði umhugsunarvert hvort hugsanlega væri verið að brjóta jafnræðisregluna með því að beita lögmæltum refsiákvæðum af fullum þunga, brotaþola í óhag, í sumum brotaflokkum eins og í fíkni- efnamálum en ekki öðrum eins og til dæmis í kynferðisafbrotamálum. Hún taldi að dómstólar væru á réttri leið hvaða varðar refsingar fyrir kyn- ferðisafbrot, en bætti við að þeir hefðu kannski verið fullfastheldnir á fordæmi. Jafnræðissjónarmiðin mættu ekki valda stöðnun og þau birtust í fleiri í myndum en þeirri að sama brotalýsing þýddi sömu refs- ingu. Flest afbrot eru framin undir áhrifum vímuefna Frummælendur eftir hádegishlé voru Erlendur S. Baldursson, af- brotafræðingur hjá Fangelsismála- stofnun, Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður og Þór Jóns- son, varafréttastjóri Stöðvar 2. Erlendur ræddi þróun fangelsa í fortíð, nútíð og framtíð. Hann rakti hvernig refsingar breytast eftir þjóð- félögum, bæði tegundir refsinga og áherslubreytingar. Hilmar fór yfir ýmis sjónarmið sem stundum vilja verða útundan í umræðunni og ræddi um ákvörðun refsinga á Íslandi út frá sjónarhóli verjanda, samkvæmt upplýsingum Ingimars Ingasonar, framkvæmda- stjóra Lögmannafélagsins. Hilmar taldi að líta þyrfti á rætur vandans og sagði að menn væru alltaf að horfa á það að vera með strangari refsingar, lengri fangelsisvist og fleiri fangelsi. Í máli hans kom fram að oft vildi það gleymast að stór hluti brotamanna væri sjúklingar, sem hefðu orðið fíkn að bráð. Hann benti á að flest afbrot væru framin undir áhrifum vímuefna og lausnin væri ekki fólgin í að lengja fangavist þessa fólks, heldur yrði að finna einhverja lækningu, refsingin sem slík hefði ekkert að segja. Þór hélt því fram, samkvæmt upp- lýsingum Ingimars, að dómstólar hefðu ekki traust almennings og vís- aði því til stuðnings á skoðanakönnun Gallups, þar sem kom fram að aðeins rúm 30% manna bera traust til dóm- stóla. Hann taldi jafnframt að að- gengi almennings að dómstólum væri of lítið. Þór benti á skyldu fjöl- miðla til að verða við kröfu almenn- ings og upplýsa fólk um þessi mál og sagði að samstarf yrði að vera á milli fjölmiðla og dómstóla um að koma þessum upplýsingum til þeirra sem eftir þeim leituðu. Málþing Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands um refsingar Refsingar í kynferðis- afbrotamálum þyngjast Fjölmargir lögmenn voru saman komnir í Eldborg við Svartsengi í gær, þar sem Lög- mannafélag Íslands og Dómarafélag Íslands stóðu fyrir málþingi um viðurlög við glæpum á Íslandi. Fanney Rós Þorsteinsdóttir var meðal áheyrenda á fyrri hluta ráðstefnunnar. Morgunblaðið/Sverrir Málþing Lögmannafélags Íslands og Dómarafélags Íslands um glæpi og refsingu var vel sótt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.