Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 13
Triumph sundbolir
og bikini B, C og D skálar
Útsölustaðir: Útilíf, Intersport,
Hringbrautarapótek, Músík og
sport Hf., HB búðin Hf, Axel Ó.,
Vestm., Palóma Grindavík,
Silfurtorg Ísafirði.
Heildsöludreifing: Aqua Sport ehf,
Hamraborg 7, sími 564 0035.
HAFIST var handa við gerð
nýs reiðstígs á Hólmsheiði á
miðvikudag en hann verður
um þrír kílómetrar að lengd.
Það er Reykjavíkurborg og
Vegagerðin sem standa að
reiðvegagerðinni.
Að sögn Halldórs Halldórs-
sonar, formanns reiðvega-
nefndar í Kjalarnesþingi hinu
forna, kemur vegurinn í fram-
haldi af reiðvegi sem lagður
var í haust í Óskoti innan Mos-
fellsbæjar en vegurinn sem nú
verður lagður er á landi sem
tilheyrir Reykjavík. Það eru
Reykjavíkurborg og Vega-
gerðin sem leggja fé til reið-
vegagerðarinnar og segir
Halldór áætlaðan kostnað
vera á bilinu 7,5 til 8 milljóna
króna. Gert er ráð fyrir að
vegagerðinni ljúki á tveimur
til þremur vikum.
Hann segir framkvæmdir
við Grafarholt koma þarna við
sögu. „Út af þessum fram-
kvæmdum voru samgöngurn-
ar á milli Mosfellsbæjar og
Reykjavíkur í uppnámi og
þess vegna lögðum við mikla
áherslu á að fá Hólmsheiðar-
veginn í gegn.“ Hann segir
reiðleiðina milli sveitarfélag-
anna tveggja þó hafa verið
lagfærða í lok apríl.
Fimm milljónir frá
hestamönnum
Halldór segir nefndina ný-
lega hafa fengið úthlutað
reiðvegafé, um fimm milljón-
um króna, frá Landssambandi
hestamanna. „Það verður not-
að að hluta til í undirhlíðarnar
í Hafnarfirði hjá Kaldárseli í
samstarfi við Skógrækt Hafn-
arfjarðar. Þar ætlum við að
reyna að fara að Bláfjallaveg-
inum. Við ætlum líka að laga
tengingarnar frá Elliðavatni
og inn í Heiðmörk, þessa svo-
kölluðu Hjallaleið.“
Loks segir Halldór að í
beinu framhaldi af fram-
kvæmdunum á Hólmsheiði
muni sömu verktakar fara í að
lagfæra reiðleið á Esjumelum
á Kjalarnesi.
Reykjavíkurborg
og Vegagerðin
Þriggja
kílómetra
reiðvegur
lagður
Hólmsheiði
ÞAÐ er orðinn órjúfanlegur hluti
sumarsins að sjá ungt fólk víða um
borg önnum kafið við að snyrta og
fegra umhverfið.
Þessir piltar stóðu í ströngu við
að leggja grasþökur á moldarbala
milli Suðurgötunnar og gangstétt-
arinnar þar hjá. Má því ætla að
þessi ræma verði bæði væn og græn
í sumar, gestum og gangandi til
yndisauka.
Tekið til
hendinni
við torfið
Vesturbær
Morgunblaðið/Þorkell