Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
sími 462 2900
iittala
á Glerártorgi
Blómin
í bænum
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Innbæinn.
Okkur vantar líka afleysingablaðbera
í sumar víðsvega í bænum.
„ÉG SKIL sáttur við allt,“ segir
Vilberg Alexandersson, sem nú
lætur af störfum skólastjóra í
Glerárskóla eftir 35 ára starf.
Hann og eiginkona hans, Sig-
urbjörg Guðmundsdóttir, sem
kennt hefur við skólann í jafn-
langan tíma, komu til starfa við
Glerárskóla árið 1967. Vilberg
lauk kennararprófi árið 1959 og
kenndi við Skóla Ísaks Jónssonar
til ársins 1966 þegar hann leysti
af sem skólastjóri í Ólafsfirði einn
vetur. „Þannig að ég hef bara ver-
ið við þrjá skóla um ævina,“ segir
hann.
Glerárskóli var á fyrstu árum
þeirra hjóna í húsnæði því sem nú
hýsir leikskólann Árholt. Þar voru
þrjár kennslustofur og fjöldi nem-
enda var yfirleitt í kringum 100
talsins. Árið 1972 var starfsemi
skólans flutt í nýbyggingu skammt
norðan við Árholt og þá voru
nemendur 278 alls. Síðasta vetur
voru 445 nemendur í Glerárskóla,
en flestir urðu þeir veturinn 1982–
’83, alls 696. Börn úr Hlíða- og
Holtahverfi á Akureyri sækja
Glerárskóla.
„Það urðu kaflaskipti í sögu
skólans þegar við fluttum í þetta
húsnæði, vissulega vantaði margt
til að byrja með, en við létum okk-
ur hafa það og allt gekk ljómandi
vel,“ segir Vilberg.
Mun betur gengur að fá
kennara en áður
Hann nefndi að á árum áður
hafi oft gengið illa að fá kennara
til starfa. Stundum hafi ekki verið
búið að ráða kennara í ákveðnar
stöður þegar komið var fram í
ágústlok „og þá urðum við að ráða
hvern þann sem bauð sig fram og
vildi kenna“. Segir Vilberg að
margir hefðu verið betur komnir í
öðru starfi en kennslu, en honum
hafi sem skólastjóra borið skylda
til að halda uppi kennslu í skól-
anum. „Á þessum árum var aldrei
hægt að gera áætlanir fram í tím-
ann því maður vissi aldrei hvernig
staðan yrði næsta haust,“ segir
Vilberg og bætir við að lands-
byggðin hafi sérstaklega átt undir
högg að sækja í þessum efnum.
Miklar breytingar hvað þetta
varðar hafi orðið á síðasta áratug,
en upp úr 1990 hafi ástandið batn-
að mjög og stefni í að verða mjög
gott. „Örlagavaldurinn í þessum
efnum er tilkoma kennaradeildar
við Háskólann á Akureyri og þeir
möguleikar sem sköpuðust þegar
réttindalausu fólki gafst kostur á
að stunda fjarnám. Þetta er mjög
ánægjuleg breyting,“ segir Vil-
berg, sem aldrei hefur fengið eins
mikið af umsóknum og nú í vor.
Vilberg segist kveðja skólann
þakklátur og hann sjái ekki eftir
að hafa valið sér þetta ævistarf.
„Þetta starf er þess eðlis að menn
fá ekki hrós á hverjum degi, en
oft kemur staðfesting á því síðar
að maður gerði rétt. Mér þykir
vænt um að hitta menn sem töld-
ust til grallarastráka á sínum
námsárum og voru hér oft inn á
teppi, en hafa síðar komist til
manns og láta mig vita af því að
þeir beri ekki til mín neinn kala.
Þeir hafi síðar skilið að ég vildi
þeim vel og hafði þeirra eigin
gæfu að leiðarljósi. Það er notaleg
tilfinning. Í þessum skóla, eins og
öðrum, hafa verið ótal grallarar
og ég hafði virkilegar áhyggjur af
sumum þeirra, að þeir yrðu seint
að manni. Þegar ég hitti þetta fólk
síðar og sé að vel hefur úr þeim
ræst finnst mér sem ég hafi ekki
lifað til einskis,“ segir Vilberg.
Lætur af störfum sem skólastjóri í Glerárskóla eftir 35 ára starf
Morgunblaðið/Kristján
Vilberg Alexandersson, fráfarandi skólastjóri Glerárskóla, í hópi yngstu nemenda skólans á útskriftardaginn.
Morgunblaðið/Kristján
Hjónin Vilberg Alexandersson og Sigurbjörg Guðmundsdóttir hafa
starfað í Glerárskóla í 35 ár en eru nú að láta af störfum.
Þakklát-
ur fyrir
ánægju-
legt
ævistarf
JÓHANN Ingimarsson, Nói, opnar
sýningu í nýjum sýningarsal, Galleríi
Gersemi í dag, laugardag, kl. 14. Það
er á annarri hæð í Hafnarstræti 96,
París, ofan við kaffihúsið Bláu könn-
una.
Yfirskrift sýningarinnar er
„Svona glöð er jörðin.“ Nói segir að
heiti sýningarinnar vísi til málverk-
anna. Þau eru öll ný af nálinni. Mál-
verk hans eru einnig sýnd um þessar
mundir í húsakynnum Bláu könn-
unnar. Úti í göngugötunni verða svo
tveir skúlptúrar til sýnis. Sýningin
verður opin fram eftir sumri.
Nói sýnir í
Galleríi
Gersemi
UNGLINGAKÓR Akureyrarkirkju
heldur tónleika á morgun, sunnudag,
kl. 17 í Akureyrarkirkju.
Flutt verður fjölbreytt dagskrá af
kirkjulegum og veraldlegum toga
eftir íslenska og erlenda höfunda.
Einsöngvarar verða úr röðum kórs-
ins. Stjórnandi er Sveinn Arnar Sæ-
mundsson og undirleik annast Ey-
þór Ingi Jónsson. Kórinn á 10 ára
afmæli í haust og 21. júní næstkom-
andi heldur hann til Þýskalands þar
sem haldnir verða tónleikar og sung-
ið við ýmsar uppákomur í borginni
Bochum og víðar. Kórfélagar eru 24
á aldrinum 12–16 ára. Aðgangseyrir
að tónleikum Unglingakórsins á
sunnudag er 1.000 kr.
Unglingakór
Akureyrarkirkju
Tónleikar
SÖGUFÉLAG Eyfirðinga heldur
aðalfund sinn á mánudagskvöld, 10.
júní, kl. 20.30 á lestrarsal Amtsbóka-
safnsins á Akureyri.
Birgir Þórðarson á Öngulsstöðum
flytur erindi sem hann nefndi; Skáld-
ið gleymda. Allir eru velkomnir á
fundinn, félagsmenn sem aðrir.
Skáldið
gleymda
ARNAR Þorsteinsson sigraði á
hraðskákmóti Skákfélags Akureyrar
sem fram fór um síðustu helgi. Hann
hlaut 9 vinninga af 10 mögulegum.
Á sunnudag verður háð annað
hraðskákmót og hefst það kl. 14 í
Íþróttahöllinni. Í dag (laugardag) er
fjöltefli fyrir krakka á Ráðhústorgi á
vegum Landsbankans og Skákfélags
Akureyrar og það hefst kl. 11.
Arnar sigraði á
hraðskákmóti
NÍTJÁN ára piltur hefur í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra verið
dæmdur í 45 daga fangelsi sem
skilorðsbundið er til tveggja ára.
Þá er honum gert að greiða 150
þúsund króna sekt til ríkissjóðs og
er sviptur ökurétti í tvö ár auk
þess sem hann skal greiða sak-
arkostnað.
Maðurinn var ákærður fyrir lík-
amsmeiðingar af gáleysi og um-
ferðarlagabrot með því að hafa ek-
ið bifreið undir áhrifum áfengis og
sviptur ökuréttindum. Atburður-
inn átti sér stað á Grenivíkurvegi í
lok maí í fyrra. Bifreiðin hafnaði
utan vegar og tveir farþegar sem
með honum voru í bifreiðinni slös-
uðust, annar alvarlega.
Játaði pilturinn brot sitt. Hann
hafði skömmu áður en umræddur
atburður átti sér stað gengist und-
ir lögreglusátt vegna ölvunarakst-
urs og þá verið sviptur ökurétti í
eitt ár.
Héraðsdómur
Norðurlands eystra
Olli slysi
ölvaður
undir stýri
MENOR, Menningarsamtök
Norðlendinga, minnast 20 ára
afmælis síns um næstu helgi,
en fjölbreytt skemmtidagskrá
verður í Laugarborg í Eyja-
fjarðarsveit á sunnudag, 9. júní,
og hefst hún kl. 15.
Á þeim 20 árum sem liðin eru
frá stofnun samtakanna hefur
verið unnið að margvíslegum
menningarmálum á Norður-
landi, m.a. staðið fyrir keppni í
ritun smásagna og ljóða.
Öll verk sem unnið hafa til
verðlauna á þessum árum koma
um þessar mundir út á bók í til-
efni afmælisins. Bókin nefnist
Slóðir mannanna og er Jón
Hjaltason ritstjóri. Bókin verð-
ur til sýnis og sölu á afmælishá-
tíðinni.
Menor hafa einnig staðið fyr-
ir keppni í ritun leikrita og ein-
þáttunga, haldið einsöngvara-
keppni og nú síðast á þessu vori
haldið keppni í hljóðfæraleik
meðal nemenda tónlistarskól-
anna.
Á vegum Menor hefur mál-
verkasýning farið milli skóla á
Norðurlandi síðustu ár og eru
tvær sýningar í gangi í einu,
önnur á Norðvesturlandi og hin
á Norðausturlandi.
Menningarsamtök
Norðlendinga 20 ára
Skemmti-
dagskrá í
Laugarborg