Morgunblaðið - 08.06.2002, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.06.2002, Qupperneq 20
ÁRBORGARSVÆÐIÐ 20 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ „ÉG hef áhuga á náminu og fæ með þessu tækifæri til þess að fá frítt nám og dvölin á skólanum gefur möguleika á frekari styrkj- um ef maður nær að standa sig í náminu og í körfuboltanum,“ sagði Ragnar Gylfason á Selfossi, landsliðsmaður í U17 liði Íslands. Hann er að fara sem skiptinemi til Miami í Flórída í Bandaríkj- unum. Ragnar fær skólastyrk út á það að vera góður í körfubolta en styrkurinn nemur skólagjöld- unum við skólann. „Skólinn heitir Palmer Trinity High School og þetta er venjulegur skóli sem er með körfuboltalið innan sinna vé- banda. Ég þarf að standa mig í náminu og kröfurnar eru ekkert minni þótt maður fái styrk, frek- ar meiri ef eitthvað er. Nái mað- ur ekki að standa sig dettur mað- ur út úr körfuboltaliðinu og missir styrkinn,“ sagði Ragnar og er ekkert banginn að halda á vit þessa kröfuharða skóla með haustinu. Ragnar hefur verið landsliðs- maður í U17 liði Íslands ásamt þremur öðrum piltum frá Sel- fossi. Landsliðsþjálfarinn var Ragnari innan handar við val á skóla þegar hann sótti um dvöl í gegnum skiptinemasamtökin og auðvitað var það ósk Ragnars að komast í skóla þar sem áhersla væri lögð á körfubolta. Þjálfarinn valdi skólann og sendi þangað upplýsingar um Ragnar. Skólinn valdi síðan Ragnar úr hópi um- sækjenda m.a. út frá því að það vantaði leikstjórnanda í körfu- boltalið skólans en Ragnar spilar í landsliðinu sem varaleikstjórn- andi. „Aðalhugsun mín við að fara út er sú að ef ég stend mig vel opn- ast tækifæri á háskólanámi en þjálfarar í skólunum vinna í því að koma sínum mönnum áfram í þessa skóla,“ sagði Ragnar en hann mun dvelja hjá fjölskyldu og hafði nýverið fengið upplýsingar um hana sem honum leist vel á. Hjónin eiga tvö börn sem bæði spila körfubolta, 12 ára dóttur og 14 ára son. Konan er prófessor við háskóla og karlmaðurinn er lögmaður. Svo er fjölskyldan einnig með áhuga á hestum sem Ragnari líkar vel enda hestamað- ur eins og öll hans föðurætt en faðir Ragnars er Gylfi Þorkels- son, Bjarnasonar frá Laugarvatni. Ef ég stend mig opnast tækifæri á háskólanámi Morgunblaðið/Sig. Jóns. Selfoss NÝTT og glæsilegt hótel, Hótel Eld- hestar í Ölfusi, var tekið í notkun á dögunum. Húsið er 602 fm að flat- armáli á einni hæð. Á hótelinu eru 10 gestaherbergi, sem öll eru tveggja manna. Þar er einnig veislusalur sem rúmar allt að 70 manns. Hótelið er ekki eingöngu ætlað hestamönn- um og er öllum opið. Að sögn Hróðmars Bjarnasonar framkvæmdastjóra Eldhesta er byggingarstíll hússins nýr, svo- nefndur casa bona stíll. Settar eru upp blikkstoðir og inn í þær er stein- ull felld. Þetta er því létt efni og auð- velt í uppsetningu. Arkitekt hótels- ins er Guðni Jóhannesson. Byrjað var á byggingunni 17. janúar og lauk henni 20. maí. Hótelið er, að svo miklu leyti sem það er hægt, um- hverfisvænt og unnið eftir stöðlum norrænu umhverfisstofnunarinnar Svans. Efni í lofti eru umhverfisvæn, ekkert lakk er notað á innréttingar, þær eru olíubornar. Innréttingar og húsgögn eru unnin úr ræktanlegum skógum, vatns- og rafmagnsnotkun er stillt í hóf með því m.a. að nota sjónvörp sem slökkva alveg á sér eft- ir ákveðinn tíma. Einnig verður allt rusl flokkað. Hvað aðgengi varðar eru allar hurðir í húsinu 90 cm og sal- erni aðgengileg öllum. Einnig er að- gengi að húsinu frá bílastæðum mjög gott. Hótelið á að flétta saman sögu íslenska hestsins sl. 100 ár og sögu Eldhesta. Herbergin eru ekki núm- eruð eins og oftast tíðkast heldu bera þau nöfn hesta sem eru eða hafa ver- ið í eigu Eldhesta. Þar er einnig lýs- ing á hestunum. Hvert herbergi lýsir líka einni af ferðum Eldhesta með málverki. Öll málverkin á hótelinu eru eftir Garðar Jökulsson. Rúmin sem eru á herbergjunum eru um- hverfisvæn frá Svíþjóð og heita Hes- ten. Byrjað er að bóka á hótelið og hafa bókanir gengið vel, um 50% nýt- ing á herbergjum í sumar er þegar orðin staðreynd. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Gestir við opnun Hótels Eldhesta. Hróðmar Bjarnason, framkvæmdastjóri Eldhesta, í einu herbergjanna. Hótel Eldhestar í Ölfusi opnað Hveragerði BÍLASALAN bill.is og knatt- spyrnudeild Ungmennafélags Sel- foss gerðu með sér samning ný- lega um að bill.is verði aðalstyrktaraðili deildarinnar á þessu ári. Bílasalan auglýsir á búningum keppnisliðsins og á búningum 2. flokks og deildin verður með kynningu á bílasöl- unni á öllum heimaleikjum Sel- foss í sumar. „Það er geysilega mikilvægt þegar fyrirtæki eins og bill.is sér sér hag í því að styrkja starf deildarinnar og renna þar með styrkari stoðum undir það sjálf- boðastarf sem unnið er hjá deild- inni, fyrir það erum við þakklát,“ sagði Þorvarður Hjaltason for- maður knattspyrnudeildar Umf. Selfoss. Knattspyrnulið Selfoss og forystumenn ásamt forsvarsmönnum bílasölunnar bill.is. Bílasalan bill.is styð- ur knatt- spyrnulið Selfoss Selfoss Morgunblaðið/Sig. Jóns. KÓR elsta stigs grunnskólans fór í fjögurra daga tónleikaferð til Græn- lands nú í lok skólaársins. Með hópn- um fóru kórstjórinn Kristín Sigfús- dóttir, undirleikararnir Margrét Stefánsdóttir og Ian Wilkinson, upp- lýsingafulltrúi Suðurlands Davíð Samúelsson og tveir kennarar, þau Guðríður Aadnegaard og Yngvi Karl Jónsson. Daginn eftir heimkomuna héldu krakkarnir lokahóf og buðu foreldr- um að koma og hlýða á söng og ferða- söguna í máli og myndum. Í ferðinni héldu krakkarnir dagbók sem þeir skrifuðu til skiptis allt sem gerðist. Krökkunum fannst ýmislegt öðruvísi í litlum bæ á Grænlandi en þeir eiga að venjast í Hveragerði. Húsnæði fólksins er víða ansi lúið og margar vörur í versluninni útrunnar. Ferðalangarnir höfðu það eftir heimamönnum að allir í bænum hlökkuðu mikið til 15. júlí. Þá er von á skipi og með því kemur m.a. ný mjólk. Kórinn söng við grænlenska messu og einnig fór hann í heimsókn í skólann á staðnum. Svo var að heyra á krökkunum að þetta væri ferð sem þau ættu aldrei eftir að gleyma og sum sögðust hafa kvatt nýja, græn- lenska vini sína með tárum. Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir Kórinn söng fyrir foreldra og gesti á lokahófinu. Grænlands- farar komnir heim Hveragerði
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.