Morgunblaðið - 08.06.2002, Qupperneq 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SÉRA Þorbjörn Hlynur Árnason,
prófastur á Borg á Mýrum, hitti í
gær Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, að máli í höfuðstöðvum
hans í Ramallah, en Þorbjörn er
staddur í Mið-Austurlöndum á veg-
um Lúterska heimssambandsins.
Þorbjörn segir aðstæður í nágrenni
höfuðstöðva Arafats eins og eftir
meiriháttar náttúruhamfarir en
Ísraelsher lagði fjölda bygginga í
Ramallah í rúst á fimmtudag, eftir
að sextán Ísraelar fórust í
sprengjutilræði í Norður-Ísrael.
Þorbjörn er í hópi tólf stjórnar-
manna og starfsfólks Lúterska
heimssambandsins sem kominn er
til Mið-Austurlanda til að kynna sér
ástandið þar, heimsækja lúterskar
kirkjur í Jerúsalem og Ramallah og
til að reyna að ná samningum við
ísraelsk stjórnvöld um rekstur
sjúkrahúss sem sambandið á og
rekur í Jerúsalem.
„Sjúkrahúsið þjónar fyrst og
fremst Palestínumönnum,“ sagði
Þorbjörn í samtali við Morgunblað-
ið, „og nú hafa ísraelsk stjórnvöld
sett fram kröfur á lúterska heims-
sambandið, sem og aðrar kirkjur
sem hér stunda hjálparstarf, um að
við borgum 12% launaskatt til ísr-
aelska ríkisins.“
Sagði Þorbjörn að þær upphæðir,
sem hér um ræddi, myndu setja allt
starf heimssambandsins á svæðinu
í uppnám. „Þetta er því miður af-
staða Ísraela og hún er okkur með
öllu óskiljanleg.“
Kom fram í máli Þorbjarnar að
sendinefnd Lúterska heimssam-
bandsins myndi hitta Shimon Per-
es, utanríkisráðherra Ísraels, á
mánudag til að ræða þessi mál, sem
og ráðherra félagsmála og trúmála,
auk ríkisskattstjóra Ísraels.
Þorbjörn er for-
maður mannréttinda-
nefndar Lúterska
heimssambandsins
og hann kom til Ísr-
aels á þriðjudags-
morgun, á undan
hinni eiginlegu sendi-
nefnd, ásamt Peter
Prove, yfirmanni
mannréttindaskrif-
stofu sambandsins í
Genf.
Fóru tvímenning-
arnir í vikunni í vett-
vangskönnun, hittu
forsvarsmenn marg-
víslegra mannrétt-
indasamtaka, bæði
palestínskra og ísraelskra.
Urðu áþreifanlega varir
við ótta manna í Betlehem
Þorbjörn var því á svæðinu þegar
palestínskir öfgamenn stóðu fyrir
sprengjutilræði á miðvikudag í
Meggido í N-Ísrael sem kostaði
sextán manns lífið en þeirri árás
svöruðu Ísraelar með
því að ráðast inn í Ram-
allah og leggja höfuð-
stöðvar Arafats í rúst.
„Við urðum einmitt
mjög varir við ótta
manna í tengslum við
þessa atburði þegar við
fórum til Betlehem á
miðvikudag,“ segir
Þorbjörn. „Þetta var
eins og að koma inn í
draugaborg. Það var
enginn á ferli í borg-
inni, sem þó er venju-
lega iðandi af mannlífi.“
Stafaði þetta af því
að fyrst eftir ódæðið í
Meggido var talið að til-
ræðismaðurinn hefði komið frá
Betlehem. Palestínumenn bjuggust
þess vegna við því að Ísraelsher léti
til skarar skríða þar, en síðan kom á
daginn að hann var frá Jenin og
réðust Ísraelar enda þar inn þegar
um miðjan dag á miðvikudag.
Þorbjörn sagði að mjög seinlegt
hefði verið að ferðast um heima-
stjórnarsvæði Palestínumanna, ísr-
aelskar öryggissveitir hefðu leitað í
hverjum bíl og menn ítrekað spurð-
ir um persónuskilríki.
Hann sagði að sendinefndin hefði
á fimmtudag farið um heimastjórn-
arsvæði Palestínumanna með lækni
frá sjúkrahúsi sem sambandið rek-
ur á Vesturbakkanum. Þar væri
hvert þorp og hver borg eins og
fangelsi. Byggðirnar væru afgirtar
og umkringdar hermönnum og íbú-
ar kæmust hvergi til að sinna vinnu
eða öðrum brýnum erindum. Var
palestínskt samstarfsfólk þeirra af-
ar fegið því að hafa Þorbjörn og fé-
laga með í för en á miðvikudag hafði
þeim verið snúið við án nokkurra
skýringa.
Höfuðstöðvar Arafats í rúst
Þorbjörn sagði aðstæður í Ram-
allah hafa verið afar slæmar. „Höf-
uðstöðvar Arafats voru í rúst. Þetta
var eins og að koma á stað eftir að
meiriháttar náttúruhamfarir hafa
riðið yfir. Þeir [Ísraelar] jöfnuðu
fjöldamargar byggingar við jörðu
og þarna lágu á milli þrjátíu og
fjörutíu bílhræ.“
Innandyra var allt á tjá og tundri,
að sögn Þorbjarnar. Sagði hann að
sannkallað umsátursástand ríkti í
höfuðstöðvunum. „En Arafat tók
vel á móti okkur og hann var mjög
frísklegur, þ.e. handtak hans var
þétt og gott. Hann var greinilega
betri til heilsunnar heldur en hann
hefur verið. Hann var hins vegar
fullur harms vegna ástandsins og
sagði við okkur að það gæti ekki
gengið lengur, að umheimurinn
fylgdist með en gerði ekki neitt. Ef
þetta héldi svona áfram þá myndi
allt fara um koll í Mið-Austurlönd-
um, sem hefði alvarlegar afleiðing-
ar fyrir heimsbyggðina alla.“
Kom fram í máli Þorbjarnar að
heimssambandið fordæmdi vita-
skuld sjálfsmorðsárásir Palestínu-
manna en að allir vissu að Arafat
gæti ekki haft hemil á öfgasveitum.
Leiðin til að ráða niðurlögum öfga-
mannanna væri ekki að grafa undan
Arafat eða eyðileggja innri stoðir
palestínsks samfélags.
„Við hittum Arafat til að lýsa
stuðningi – og við gerðum það ein-
róma – við að palestínska þjóðin fái
fullveldi og lifa í sínu landi í friði,“
sagði Þorbjörn. Hann sagði að
fundurinn með Arafat hefði staðið í
rúmlega klukkustund og að hann
hefði verið ánægjulegur og gefandi.
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason hitti Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í Ramallah
Aðstæður eins
og eftir miklar
náttúruhamfarir
Þorbjörn Hlynur
Árnason
’ Þetta var eins ogað koma inn í
draugaborg. Enginn
var þar á ferli. ‘