Morgunblaðið - 08.06.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.06.2002, Qupperneq 39
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 39 ÞJÓÐLENDUMÁLIÐ komst á nýtt stig eftir úrskurði óbyggða- nefndar, sem voru kynntir fyrir páska, en fengu gildi með útgáfu Lögbirtingablaðs 26. apríl. Þeir, sem úrskurðirnir varða, en sætta sig ekki við þá, geta höfðað mál í héraði. Eftir kynningu úrskurðanna hafa fræði- menn fjallað um þá almennt og for- sendur þeirra á þremur fundum: málstofu lagastofnunar Háskólans 12. apríl, fundi Sambands sveitarfé- laga 15. maí og Söguþingi 1. júní. Áður en þjóðlendumálið kom til, þótti mér erfitt að fá botn í eðli jarð- eignarréttar, og þá sérstaklega af- réttareignar. Ég hélt, að það stafaði af því, að málið væri flókið. Mér þyk- ir málið ekki hafa skýrst á þessum þremur fundum, sem ég hef sótt. Á Söguþingi flutti Einar G. Pétursson erindi um eignir inn til landsins. Það gefur nýjan skilning á sögu byggðar inn til landsins og á eignarhaldi lands ofan byggðar og annan en menn hafa byggt dóma og úrskurði um afrétti á. Það tíðkast nú í lögum að skil- greina hugtök, heldur en treysta því, að orð skiljist af samhenginu. Þetta var líka til í Jónsbók. Þar er afréttur skilgreindur (á tveimur stöðum) svo: það er afréttur, sem tveir eða fleiri eiga saman. Það er ekki að sjá í greinargerð óbyggðanefndar með úrskurðunum, að hún geri neitt með þessa skilgreiningu. Þrátt fyrir skil- greiningu Jónsbókar hefur orðið líka verið notað um það, sem aðeins einn (til að mynda jörð eða kirkjustaður) á, og einnig um afmarkaðan rétt kirkjustaða í annarri jörð. Notkun orðsins í skjölum hefur reyndar ekki verið könnuð til hlítar. Ágreiningsefnið er nú sem fyrr, að sveitamenn telja, að í forræði afrétt- ar felist nytjar hvers kyns verð- mæta, og þar með að leyfa eða meina öðrum nytjar, en það er líkt og for- ræði eigna yfirleitt. Dómar hafa gengið gegn þessum skilningi. Úr- skurðir óbyggðanefndar eru sams konar og gera afrétti að ríkiseign. Eftir sem áður segja sveitamenn skilning dómara hugarfóstur þeirra. Það er sem tveir menningar- heimar mætist í þessum ágreiningi, heimur sveitamanna og heimur dóm- ara, og haggist ekki þrátt fyrir end- urtekinn málflutning. Til úrlausnar tala menn um mannréttindasáttmála Evrópuráðsins, sem nær til eignar- réttar. Sérstakur dómstóll er vegna sáttmálans. Ágreinings- efni verður ekki borið undir hann fyrr en eftir æðsta dóm hér á landi. Jarðeignarréttur þótti mér flókið mál við lestur greina fræði- manna, eins og ég gat. Þar er nýleg grein Karls Axelssonar í afmælisriti Gizurar Bergsteinsson- ar, sem fjallar um ýmsa dóma, og greinargerð Þorgeirs Örlygssonar í áfangaskýrslu auðlinda- nefndar. Tveir menn hafa nýlega fjallað um eðli málsins af skarp- skyggni, en ekki tæmandi, Páll Skúlason í Jarðalögum, en Eyvindur Erlendsson í greinum í þessu blaði (sú fyrsta í Lesbók). Ef menn lesa þá fyrst, reynist málið ekki eins flókið og það hefur verið, en um leið verður ljóst, að dóm- arar og fræðimenn hafa flækt málið fyrir sér að óþörfu. Vandinn er sá, þeg- ar kanna á flókið mál, að mynda sér fyrst hugmynd um kjarna þess og láta svo reyna á hana. Þegar það tekst, verður allt ljós- ara og framsetning auðveldari. Ég vænti þess, að fræðimenn láti verða af því að kanna afréttarmál til hlítar, óháð verkefni Óbyggðanefndar. Þá hlýtur að blasa við að hefja málið á því upp- hafi, sem lengi gilti, Jónsbók. Það liggur beint við að gera ráð fyrir því, sem var einfaldast í framkvæmd í landinu, að ýmist hafi land verið bein eign eða afréttur. Reyndar voru að auki almenningar, en þeir eru ekki vandamál í þessu efni, enda glögg leiðbeining í Jónsbók um mun á af- rétti og almenningi. Mér þykir lík- legt, ef menn taka skilgreiningu Jónsbókar á afrétti blátt áfram og kynna sér fjölþætta nýtingu afrétta samkvæmt skjölum (afsölum og dómum) um aldir fram á þennan dag, að málið reynist ekki flókið, en fyr- irhafnarsamt hlýtur það að verða. Síðan þyrfti að leggja málið fram er- lendis á vettvangi sagnfræði og lög- fræði og áfrýja þannig ágreiningi áð- urnefndra tveggja menningarheima. Réttur og af- réttur eignar Björn S. Stefánsson Lendur Ég vænti þess, segir Björn S. Stefánsson, að fræðimenn láti verða af því að kanna afréttarmál til hlítar, óháð verkefni óbyggðanefndar. Höfundur er þjóðfélagsfræðingur. Begga fína Lína.Net veitir IP–þjónustu samkvæmt samstarfssamningi við Cisco Systems í Noregi og rekur IP–Borgarnet miðað við gæðastaðla þess samnings. F ít o n / S ÍA F I0 0 4 8 3 0 Lína.Net hf. Skaftahlíð 24 105 Reykjavík Sími 559 6000 Fax 559 6099 www.lina.net Starfsemi Línu.Nets hefur flutt aðsetur sitt að Skaftahlíð 24, 3. hæð. Lína.Net mun halda áfram að stýra uppbyggingu IP–Borgarnetsins frá nýju höfuðstöðvunum og efla virka samkeppni á fjarskiptamarkaði. Lína.Net vekur jafnframt athygli á nýju símanúmeri, 559 6000, og býður viðskiptavini sína velkomna í nýja húsið. Lína.Net hefur flutt höfuðstöðvar sínar að Skaftahlíð 24 – og fengið nýtt símanúmer, 559 6000.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.