Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.06.2002, Blaðsíða 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 51 Alvöru sumarbústaðalóðir fyrir hestamenn, skógræktar- og útivistarfólk Stærðir frá 2,7 hektörum og upp úr. Verð kr. 150.000 fyrir hvern hektara. ATH! Um eignarlóð er að ræða, engin leiga. Vegur og kalt vatn að lóðamörkum. Veldu þína stærð sjálfur.Á þessum slóðum eru án efa bestu útreiðaleiðir landsins. Paradís í Borgarfirði upp með Langá á Mýrum aðeins í 86 km fjarlægð frá höfuðborginni. laugardag og sunnudag frá kl. 13-16 Andrés Pétur sölumaður frá eign.is fasteignasölu verður á staðnum (við Stangarholt) með allar helstu upplýsingar. Einnig verður hægt að kaupa flugferð yfir svæðið gegn vægu gjaldi. OPIÐ HÚS UM HELGINA Paradís hestamannsins! Stangarholt Stangarholt Glæsilegt nýinnréttað 180 fm íbúðarhús ca 500 fm hesthús með plássi fyrir allt að 28 hesta í húsi. Hlaða sem nýtist sem reiðhöll, fjárhús og geymslur. 100 hektara land sem skiptist í ca 30 ha ræktað land og 70 ha beitiland. Frábærar reiðleiðir. Verðtilboð. Hentar vel fyrir hestafólk og eða ferðaþjónustu. eign.is - Suðurlandsbraut 46 - Bláu húsin við Faxafen sími 533 4030 - fax 533 4031 - www.eign.is -eign@eign.is markað hér á landi fyrir lúxusbif- reiðir ekki síst ef stórir jeppar væru einnig skilgreindir með lúxusbifreið- um. „Þarna var um alls konar teg- undir að ræða. Þetta er töluvert stór hluti af heildarinnflutningnum, en ég get ekki ímyndað mér að hann hafi mikil áhrif á markaðinn fyrir þessa bíla,“ segir hann. 70 þúsund fyrir hverja bifreið vegna kostnaðar umboðsins Samkvæmt upplýsingum utanrík- isráðuneytisins byggðist fram- kvæmdin á vorfundi utanríkisráð- herra NATO og samstarfsríkja þess á samningi íslenskra stjórnvalda og NATO. „Sá samningur kvað m.a. á um að gestgjafaríki útvegi bifreiðar fyrir sendinefndir þátttökuríkja og skyldu bílar fyrir ráðherra uppfylla kröfur um akstur með þá. Að ósk embættis Ríkislögreglustjóra var ákveðið að lögreglumenn myndu aka bifreiðum ráðherra og gæta þannig öryggis þeirra samtímis. Þekkt er sú aðferð erlendis á fundum sem þess- um, að fá afnot af bifreiðum sömu tegundar frá bílaumboðum en með því er tryggt að ráðherrar fái sömu prótókollmeðferð. Í ljósi þess var ákveðið að kanna áhuga bifreiðaumboða á slíku sam- starfi við utanríkisráðuneytið vegna fundarins, þannig að takast mundi að uppfylla kröfur um öryggi og prótó- kollmóttöku ráðherra,“ segir í skrif- legu svari ráðuneytisins við spurn- ingum Morgunblaðsins. Í svari ráðuneytisins segir einnig að sl. sumar hafi verkfræðistofan Línuhönnun kannað af hálfu utan- ríkisráðuneytisins hjá nokkrum bif- reiðaumboðum hvort þau væru í að- stöðu til að útvega bíla til að aka ráðherrum á vorfundum utanríkis- ráðherra Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess. „Undirtektir voru það dræmar að ekki var talið tilefni til að efna til útboðs á meðal bifreiðaumboða. Þessi leið virtist varla raunhæfur möguleiki. Sl. vet- ur, í lok ársins, kom hins vegar í ljós að Bifreiðar og landbúnaðarvélar höfðu áhuga á að kanna betur hvaða möguleika umboðið hefði til að út- vega bifreiðar til aksturs fyrir ráð- herra og hófust þá viðræður við ráðuneytið. Þeim lauk með samningi við umboðið. Tekið skal fram í þessu sambandi að utanríkisráðherrafund- urinn fellur undir undanþáguákvæði laga nr. 94/2001 um opinber innkaup og er því ekki útboðsskyldur,“ segir í svari ráðuneytisins. – Hvaða kostnað ber ríkið af samningnum við B&L? „Utanríkisráðuneytið greiddi kr. 70.000 fyrir afnot af sérhverri ráð- herrabifreið dagana 10.-16. maí, en það er kostnaður bílaumboðsins vegna skráningar, trygginga, þrifa, eldsneytis og annars við að útvega bifreiðarnar. Bifreiðarnar voru 45 talsins og nam heildarkostnaður því kr. 3.150.000, auk virðisaukaskatts,“ segir í svari ráðuneytisins. Öryggissjónarmið sett ofar útboðssjónarmiðum Ríkiskaup voru höfð með í ráðum varðandi framkvæmd nokkurra þátta við undirbúning NATO-fund- arins vegna gildandi reglna um op- inber innkaup og útboð, m.a. varð- andi breytingar sem gera þurfti á húsnæði og útbúnað í fundarsal. Inn- flutningur bifreiða fyrir utanríksráð- herrana kom þó ekki inn á borð Rík- iskaupa, sem átti engan hlut að máli við útvegun þeirra, að sögn Jóns. H. Ásbjörnssonar deildarstjóra útboðs- deildar. Aðeins voru boðnir út tveir eða þrír þættir í tengslum við undirbún- ing og framkvæmd fundarins, sem voru taldir þess eðlis að útboð tefldi ekki öryggi í tvísýnu, samkvæmt upplýsingum Jóns. „Það var ágætis samvinna við ut- anríkisráðuneytið í kringum þennan fund og þeir leituðu til okkar í viss- um málum. Það er hins vegar svo að um þetta gilda afar stífar öryggis- kröfur sem NATO setur á alla skap- aða hluti og eflaust líka ökutæki sem notuð eru til að flytja fólk,“ sagði hann. Að sögn Jóns bar íslenskum stjórnvöldum að fara eftir öryggis- reglum NATO til að geta haldið fundinn og öryggissjónarmiðin hafi vegið mjög þungt þegar metið var hvort bjóða þyrfti út einstaka þætti. Farið var yfir málin með lögfræð- ingum og skv. ströngustu túlkun hafi nánast öll atriðin við framkvæmdina verið þess eðlis að öryggissjónarmið hafi verið talið standa ofar útboðs- sjónarmiðum. Ákvörðun samgönguráðuneytisins að veita B&L bílaleiguleyfi með stuttum fyrirvara vegna útvegunar ráðherrabílanna, sætir einnig gagn- rýni forsvarsmanna bifreiðaumboða og ferðaþjónustufyrirtækja. Í reglugerð um bílaleigur eru sett ýmis skilyrði sem uppfylla þarf áður en starfsleyfi bílaleigna er gefið út. Þar segir m.a. að sækja skuli um leyfi að jafnaði a.m.k. mánuði áður en fyrirhuguð starfsemi á að hefjast. Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) hafa sent ráðuneytinu kvörtun vegna málsins. Þorleifur Þ. Jónsson, hag- fræðingur hjá SAF, segir samtökin hafa gert alvarlegar athugasemdir við þessa framkvæmd málsins. Tvær starfandi bílaleigur (Avis og Herz) eru með samning við Ríkis- kaup um kaup á þjónustu af þessu tagi. „Okkur þótti óeðlilegt að þau fyr- irtæki sem hafa verið hér í fullum rekstri skuli vera sniðgengin og komum athugasemdum á framfæri við okkar fagráðuneyti,“ segir hann. Skv. upplýsingum Rúnars Guð- jónssonar, viðskiptafræðings í sam- gönguráðuneytinu, veitti ráðuneytið B&L starfsleyfi til reksturs bílaleigu til bráðabirgða. „Þeir sóttu um og skiluðu gögnum og fengu leyfi til bráðabirgða. Það vannst ekki tími til að fara yfir um- sóknina eins nákvæmlega og yfirleitt er gert,“ sagði Rúnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.