Morgunblaðið - 08.06.2002, Page 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 55
SPORTDAGUR Landsbankans
verður haldinn í Laugardalshöll-
inni í dag, laugardaginn 8. júní, kl.
12–15.30. Landsbankinn býður
öllum krökkum 16 ára og yngri í
Laugardalslaugina þennan dag. Á
dagskrá verða ýmsar þrautir fyrir
alla krakka 9–13 ára. Margir leið-
beinenda í þrautunum eru þekktir
landsliðsmenn í sínum greinum.
Hægt verður að fara í fótbolta-
þrautir, handboltaþrautir, körfu-
boltaþrautir, frjálsíþróttaþrautir,
púttkeppni, fjöltefli, fimleika-
þrautir og risa trampolín. Að auki
verða risarennibrautir og hopp-
kastali fyrir yngri kynslóðina. Þá
verður Trúðafólkið á staðnum og
allir fá svaladrykk frá Leppin.
Kl. 14.45 draga nokkrir lands-
liðsmenn í handbolta út nöfn 24
heppinna krakka sem lokið hafa
a.m.k. 4 íþróttþrautum í úrvals-
liðið sitt. Skipt verður í 4 lið og
verður landsliðsmaður í hverju
liði og keppa liðin fjögur hvert við
annað. Dagur Sigurðsson mun
leika með öllum liðunum til skipt-
is.
Íþróttafélög í Reykjavík verða
með kynningu á starfsemi sinni í
anddyri Laugardalshallar og fim-
leikadeild Fylkis verður með fim-
leikasýningu á klukkustundar-
fresti.
Skráning er í útibúum Lands-
bankans, en einnig geta krakk-
arnir skráð sig þegar þeir mæta
til leiks í Laugardalshöllina, segir
í frétt frá Landsbankanum.
Sportdagur Landsbankans
LITBOLTAFÉLAG Reykjavíkur
og Litbolti ehf. í Lundi í Kópavogi
efna til opins dags í dag, laugardag-
inn 8. júní, til kynningar á íþróttinni
litbolta frá kl. 15 til 18.
„Tilgangur opna dagsins er að
kynna íþróttina fyrir almenningi þar
sem hún er mjög ný á Íslandi og lítið
þekkt. Félagar í Litboltafélagi
Reykjavíkur verða á staðnum og
kynna íþróttina og búnað henni
tengdan. Boðið verður upp á prufu-
leiki gegn vægu gjaldi.“
„Fyrirtækið Litbolti ehf. rekur lit-
boltavöll í Lundi í Kópavogi og býður
almenningi, hópum og fyrirtækjum
skemmtilega afþreyingu. Fyrirtæki
nota oft litbolta sem endapunkt á
hópefli eða stefnumótunarvinnu því
litbolti byggist á liðsheild, sem getur
skipulagt sig og unnið saman að
sameiginlegu markmiði þar sem
hver liðsmaður hefur ákveðið hlut-
verk og hefur traust liðsmanna sinna
til að sinna því,“ segir m.a. í frétta-
tilkynningu.
Kynna litbolta
Í TENGSLUM við sölu á íbúðum í
nýrri íbúðarþyrpingu í Skugga-
hverfi hefur sýning verið opnuð
gegnt verslun ÁTVR í Kringlunni
þar sem hægt er að skoða í tölvu
hvernig útsýnið verður frá íbúðum á
svæðinu. Einnig er á staðnum líkan
af nýja hverfinu og sýnt á sjónvarps-
skjá hvernig byggðin mun líta út
þegar framkvæmdum lýkur. Alls
verða 250 íbúðir byggðar á svæðinu
og er sala á þeim hafin á skrifstofu
101 Skuggahverfis ehf. í Kringlunni.
Í tilkynningu frá Skuggahverfi
ehf. segir að markmið með hönnun
hverfisins sé að það falli vel að því
umhverfi sem fyrir er og styrki inn-
viði Skuggahverfis sem heildar.
Sýningin stendur til og með 18.
júní.
Morgunblaðið/Þorkell
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt hjá Hornsteinum, Einar I. Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri 101 Skuggahverfis, og Jónas Þorvaldsson, Þyrpingu, skoðuðu sýninguna í Kringlunni.
Líkan af
Skuggahverfi
8
". ( # ,
, (
"# .
#
# -G
- 75 A )$ H%#4 " A!!"!$
&%"*)(
( *C.
9 ". ( ""
(
) 0 : 0.
, $ ./"$##'! &"!
($#%$
-!>/"$#%$
$$4!/"$##'! "*0."*%$
($#&"!/"$#%$ &!#!%"$
* $ *+$%* $ * $ *+$.
) . ". ( #
,
, (
(
"#
"#
0
D>
1> &"( +I
!$ !.
$$ +""
", 2
"
'$=!
,%"# $# ,%"#
% !$!.
8
,
,(
"#
0
&.-D= (A"(*
!.
!$$$,2$#'!
,2$. %$
%, +" "#.
)
,
(
(
"#
"#
"# "
"
&- 1/08>
)( $$
I
!.
:0 # -" 5!$'$#'!
/ "3'&!( %$ 5 $'$#'!
/ "(6 &!( #'! &+(&!" %$
% , *+$.
8
,
, (
"#
#
# &0D71
$#
(2'!.
9 .
" 6) 0 "
9
'A $$
", !(%$ -" !$!(%$
" !( #'! !$#
($#%$
* $ *+$%* $ * $ *+$.
! "#
711 - 4!E
",%!
"#
%$
" " "
9"
$&
$% %&
+ (
(
#
!( +4!$ +4!$%$.
AÐ morgni miðvikudagsins 5. júní
sl. var ekið á auglýsingaskilti aust-
an við Héraðsdóm Reykjavíkur á
Lækjartorgi. Skilti þetta er mikið
skemmt.
Vitni að árekstrinum eru beðin
um að gefa sig fram við rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík.
Einnig er tjónvaldur beðinn um að
gefa sig fram.
Lýst eftir
vitnum
TÍÐARFAR í maí hefur verið einkar
hagstætt dreifingu frjókorna í
Reykjavík, sólríkt og þurrt, en mæl-
ingar hófust þar 2. maí. Lyngfrjó hafa
verið í loftinu syðra frá maíbyrjun og
víðifrjó frá 6. maí, en fyrstu asparfrjó-
anna varð vart 14. maí.
Birkifrjó mældust stopult frá 7. til
24. maí en stöðugt eftir það þó frjótöl-
ur hafi verið lágar. Meðallengd á frjó-
tíma birkis er tæpar 3 vikur og gæti
frjódreifingu birkis því verið lokið um
miðjan júní í Reykjavík. Birkifrjó eru
oftast í hámarki í fyrstu viku júní.
Á Akureyri hófust frjómælingar 6.
maí en þar var kalt framan af mán-
uðinum. Lyngfrjó voru komin í loftið
þegar mælingar hófust og fyrstu asp-
arfrjóin mældust 11. maí. Birkifrjó
hafa mælst samfellt frá 24. maí en
frjótölur verið lágar og segja má að
frjótímabilið hafi farið hægt af stað og
sé viku til 10 dögum seinna á ferð en í
fyrra. Blautt tíðarfar veldur því að
heildarfrjótölur í maí í ár eru lægri en
í fyrra. Búast má við birkifrjóum fram
eftir júnímánuði og á þurrum og hlýj-
um dögum getur frjótalan skipt tug-
um. Á hinum Norðurlöndunum eru
birkifrjó skæðasti ofnæmisvaldurinn
en hér á landi eru grasfrjó skæðust og
geta frjótölur þeirra orðið háar í júlí
og ágúst og valdið þeim sem haldnir
eru ofnæmi fyrir grasfrjói ofnæmi
nema gripið sé inn í með réttri lyfja-
meðferð.
Tíðin í
Reykjavík
hagstæð
dreifingu
frjókorna
„Á FJÖGURRA ára afmæli Götu-
smiðjunnar, 21. júní 2002, leiðir
Benedikt S. Lafleur listamaður sína
fyrstu göngu gegn fíkn. Í þetta skipti
er gengið gegn vímuefnafíkninni
undir kjörorði Götusmiðjunnar
Street-Peace eða götufriður.
Tilgangur göngunnar er að safna
áheitum í þágu Götusmiðjunnar til
að vinna bæði forvarnar- og með-
ferðarstörf fyrir ungt fólk í vímu-
efnavanda, sem og aðstandendur
þess, og vekja um leið almenning til
vitundar um þá baráttu.
Söfnunin fer fram 21. og 22. júní.
Byrjað verður að taka á móti áheit-
um í fjölmiðlum vikuna fyrir göng-
una. Ágóðinn rennur óskiptur til
Götusmiðjunnar.
Á miðnætti leggur 22 manna
kjarnahópur af stað frá Almannagjá
á Þingvöllum. Gengið verður með
þjóðveginum og stefnt er að því að
koma á Ingólfstorg í Reykjavík fyrir
kl. 14.00 næsta dag, með viðkomu í
Mosfellsbæ og á nokkrum öðrum
stöðum.
Göngunni lýkur á Ingólfstorgi.
Þar er tekið á móti göngumönnum
og öðrum gestum göngunnar með
veitingum og tónleikahaldi,“ segir
m.a. í fréttatilkynningu.
Að ganga
gegn fíkn
TÍGURINN taminn „Teaching the
Tiger“: Handbók fyrir þá sem kenna
nemendum með athyglisbrest, Tou-
rette-heilkenni eða áráttu- og þrá-
hyggjuröskun, eftir Marilyn Dorn-
bush og Sheryl Pruitt, kom nýlega út
í íslenskri þýðingu. Þetta er gagnleg
handbók við kennslu og uppeldi
barna með ýmsar þroskaraskanir,
segir í fréttatilkynningu.
Tourette-samtökin stóðu að þýð-
ingu og útgáfu bókarinnar hér á
landi. Ýmsir sjóðir, samtök og
styrktaraðilar hafa styrkt útgáfu
bókarinnar og gert samtökunum þar
með kleift að selja bókina á vægu
verði. Verð hennar er 2.500 kr. hjá
Tourette-samtökunum og sending-
arkostnaður bætist síðan við hjá
þeim aðilum sem vilja fá bókina
senda. Þeir sem vilja fá hana senda
geta pantað með því að senda tölvu-
póst á netfangið tourette@tourette.-
is og einnig er hægt að kaupa bókina
á skrifstofu Tourette-samtakanna í
Þjónustusetri líknarfélaga, sem er í
Hátúni 10b, 9. hæð, 105 Reykjavík,
segir þar ennfremur.
Handbók
um Tourette-
heilkenni