Morgunblaðið - 08.06.2002, Page 60

Morgunblaðið - 08.06.2002, Page 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KRYDDLEGIN HJÖRTU e. Laura Esquivel Leikgerð: Guðrún Vilmundard. og Hilmar Jónss. Fi 13. júní kl 20 ATH: Síðustu sýningar í vor MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Í kvöld kl 20 - AUKASÝNING Ath: ALLRA SÍÐASTA SÝNING COSI FAN TUTTE - W.A. Mozart Óperustúdíó Austurlands Stjórnandi Keith Reed Lau 15. júní kl 20 - Frumsýning í Rvík Su 16. júní kl 17 - Síðasta sýning AND BJÖRK OF COURSE ... e. Þorvald Þorsteinsson Í kvöld kl 20 Síðasta sýning í vor JÓN GNARR Fi 13. júní kl 20 - SÍÐASTA SINN Ath. Afsláttur sé greitt með MasterCard PÍKUSÖGUR Á VOPNAFIRÐI þri 11. júní kl 20:30 í Miklagarði Stóra svið Nýja sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is LEIKFERÐ 3. hæðin                                                               !"    #   ! "#$   $!"  %&&'   !"  %&&'   !"  %&&'    !"  %&&' (  !"  %#   $!"  %&&'   !"  %&&'    !"  %    !"  %    )!"  %  NEMENDUR hinna ýmsu grunn- skóla höfuðborgarsvæðiðsins hafa verið duglegir við að sækja Morg- unblaðið heim til að kynna sér starfsemi blaðsins. Á dögunum komu þessir hressu krakkar úr bekkjum 3.BJ, 3.SG og 3.JG úr Foldaskóla í Grafarvogi í heimsókn í fylgd kennaranna sinna. Ekki er annað að sjá en að þau hafi skemmt sér vel í húsakynnum Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Ásdís Nemendur 3. bekkjar JG og 3. bekkjar SG: Andrés Viðar, Ágústa Rut, Bjarni, Dagbjört María, Edda, Edda Rún, Hild- ur, Hildur Þóra, Hjalti Geir, Írena Eva, Karín Rós, Karl Sesar, Katrín, Magnús Ingi, Marey, Sólrún Sif, Thomas Sam- úel. Ásta, Benedikt, Berglind Sesselja, Birna, Bjarni, Elvar Einir, Gunnar Emil, Gunnar Róbert, Harpa, Heiðrún Eva, Hjörvar Gísli, Hörður Ingi, Íris Dröfn, Katrín, Nadía Ýr, Pálmi Rafn, Sindri Snær, Snæbjörn, Sverrir Ingi. Folda- skóli í heimsókn Morgunblaðið/Golli 3. bekkur BJ: Agnar Freyr, Andri Steinar, Anna Andrea, Ása Hulda, Birgir Atli, Birna Kolbrún, Birna Ósk, Daníel, Egill, Einar, Elmar, Eva Hlín, Helga Birna, Ívar, Magnús Veigar, María Björk, Maríanna, Ólafur Árni, Sylvía Kristín, Viðar Pétur. ÞESSI hljómdiskur hefur að geyma einhverja þá tónlist sem er að finna í kvikmyndinni Varði goes Eu- rope, sem er sjálf- stætt framhald hinnar umdeildu myndar Varði fer á vertíð. Í þeirri mynd kynnumst við hávöxnum, hippalegum fýr að nafni Varði (Hall- varður Ásgeirsson), og fylgjumst við með honum feta skoplegar lendur ballbransans á Íslandi með popp- sveitina Tópaz sér til fulltingis. Í framhaldsmyndinni þvælist hann hins vegar til hinna ýmsu Evrópu- landa með forláta rafgítar í hönd, og kynnir sér blómlega götuspilara- menninguna sem þar þrífst. Varði goes Europe er einskonar „fluga á vegg“ (fluga á götu?) mynd; heimildarmyndarstíll sem hefur ver- ið ansi vinsæll undanfarið hjá ís- lenskum kvikmyndagerðarðarmönn- um, einkanlega þeim yngri. Efnistökin hér eru ansi athyglisverð, og hugmyndin sannarlega frábær. Varði og Grímur, kvikmyndatöku- maður, skelltu sér upp í Norrænu síðasta sumar og héldu í tveggja mánað ferðalag, með ekkert að vopni nema góða skapið og þá stefnu að ætla sér að klára eitt stykki kvik- mynd. Þar sem myndin fjallar um tónlist- armann og -menn er ekki nema sjálf- sagt að samhliða komi út diskur, til- einkaður tónlistinni einvörðungu. Gagnsemi disksins felst einkum í því að hér er hægt að einbeita sér að þeim þætti sem er útgangspunktur myndarinnar. Í raun nauðsynlegt þar sem oftar en ekki er um nokkuð athyglisvert, tónlistarlegt samsull að ræða. Varði spinnur með sjóuðum götuspilurum sem hafa – af rámri röddu og áreynslulausu öryggi að dæma – marga fjöruna sopið í gegn- um tíðina. Þeir slá vanalega einföld grip og syngja á meðan Varði leikur ókennilegan spuna af fingrum fram, að því er virðist. Flest lögin eru þjóðlaga- eður al- þýðuleg. Phil Deglass frá Osló syng- ur t.a.m. „Turn it away“, sem er afar skoskt/írskt á að hlýða. Deglass flyt- ur lagið örugglega og af næmi, á meðan undir kraumar sargandi, hol- ur gítarinn hans Varða. Skrýtin blanda, svo sannarlega. Það sem gefur disknum einnig skemmtilegan blæ er að oft má vel heyra hvað er að gerast í umhverf- inu, þegar spilað er. Þannig heyrast vélardrunurnar í Norrænu skýrt og skilmerkilega í „Hippie Daydream“ og gott ef þetta er ekki rigning sem ég heyri í í laginu „Svanasöngur Bó- hemsins“ sem tekið er upp í Þórs- höfn. Þetta gefur disknum „kvik- myndalega“ dýpt, mætti segja. Merkilegt er og að heyra að flest lögin eru fremur löng, eintóna og yf- ir þeim hvílir einhvers konar huggu- leg mæða, eins og það sé hægt að lesa úr þeim stolt einherjans, sem spilar einbeittur allan liðlangan dag- inn fyrir túkalla. Það sem klárlega stendur þó upp úr hér er innslag Laos-búans Paul Sanith, þungarokks-trúbadúrs sem búsettur er í París. Flutningur hans og Varða á Iron Maiden slagaranum „Number of the Beast“ og U2 laginu „One“ er ótrúlegur, í nákvæmri merkingu þess orðs. Þessi diskur er fín heimild um hvernig góð hugmynd nær að velta furðulegum tón-hlössum, víðsvegar um Evrópu, oftar en ekki með kát- legum, og vissulega kenjóttum, nið- urstöðum. Varði does Africa hlýtur að vera næst. Tónlist Evrópa – ég syng til þín Ýmsir Varði goes Europe Óháða kvikmyndagerðin Varði goes Europe inniheldur tónlist úr samnefndri kvikmynd. Flytjendur ásamt Varða eru þeir Lawrence Glaister, Eiríkur Örn Norðdahl, Phil Deglass, Leo Gille- spie, Paul Sanith, Börre Melstad, Eggert Már Marinósson og Wolfgang Müller. Lög eftir ýmsa, m.a. U2, Iron Maiden, John Lennon og Hank Williams. Tekið upp í Kragerö, Norrænu, Osló, Þórshöfn, París, Bergen, Reykjavík og Berlín. Hallvarður Ásgeirsson stjórnaði upptökum. Finnur Hákonarson hljómjafnaði. 55,00 mínútur. Arnar Eggert Thoroddsen „Six, six, six. The number of the beeeeeeast!!!“ DEE DEE Ramone, frum- kvöðull í sögu pönksins og einn stofnandi bandarísku pönksveit- arinnar The Ramones, fannst látinn á heimili sínu í Hollywood í Bandaríkjun- um. Eiginkona hans fann Ramone, sem heitir réttu nafni Douglas Glenn Colvin, látinn í sófa á heim- ili þeirra í fyrrakvöld. Hann var fimmtugur að aldri þegar hann lést. Áhöld til eiturlyfjanotkunar fundust einnig á heimilinu og er hugsanlegt að Ramone hafi látist af völdum of stórs skammts eitur- lyfja, að sögn dánardómstjóra Los Angeles. Fyrir ellefu vikum var hljóm- sveitin The Ramones tekin inn í Frægðarhöll rokksins í Bandaríkj- unum, að því er fram kemur í frétt BBC. Söngvari hljómsveitarinnar, Joey Ramone, lést í apríl í fyrra úr krabbameini, 49 ára gamall. Dee Dee Ramone finnst látinn á heimili sínu Dee Dee Ramone heitinn. Hugsanleg ofneysla eiturlyfja S U N D F Ö T undirfataverslun Síðumúla 3-5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.