Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 62

Morgunblaðið - 08.06.2002, Side 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 LAUGARDAGUR 8. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Ve r t u o r g i n a l – n o t a ð u h i n a e i n u s ö n n u Allt límist við hina einu sönnu Post-it®... *Tilboðið gildir á meðan birgðir endast. ÞETTA TI LBOÐ FÆST Í Ö LLUM BETRI BÓ KA- OG RITF ANGA- VERSLUN UM... Vörunr. 655D. 76 mm x 127 mm. 100 blöð pr. blokk. Vörunr. 654D. 76 mm x 76 mm. 100 blöð pr. blokk. Vörunr. 653D. 38 mm x 51 mm. 100 böð pr. blokk. Einstak t tilboð * Þú kau pir 10 ekta gu lar pos t-it ® blokkir og fær ð 2 ók eypis 10+2 ÓKEYP IS 10+2 ÓKEYP IS 10+2 ÓKEYP IS - líka velgengni Annað líf (Another Life) Drama Bretland, 2001. Skífan VHS. (101 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Philip Goodhew. Aðalhlutverk: Natasha Little, Nick Moran, Joan Gruffudd, Tom Wilk- inson. ÞESSI vel leikna breska kvik- mynd er byggð á sakamáli sem mun hafa vakið nokkra athygli í Bretlandi á þriðja áratug síðustu aldar, en þar var ung kona ákærð fyrir að hafa myrt eiginmann sinn í vitorði við ungan mann sem hún átti í ástarsam- bandi við. Kvik- myndin fjallar fyrst og fremst um líf hinnar ungu konu, tilfinningalíf hennar og framtíð- ardrauma. Lýst er hvernig hjóna- bandið sem hún gengur í veldur henni fljótlega von- brigðum og hvernig staða hennar sem kona á fyrri hluta aldarinnar byrgir henni allar útgönguleiðir úr því hjónabandi. Þetta er ágætlega gerð kvikmynd sem fjallar fremur um fólk, lífshamingju og bælingu en morðmálið sem slíkt og leiðir þannig getum að þeirri forsögu sem hefði getað legið að baki umræddum of- beldisverknaði.  Heiða Jóhannsdóttir Myndbönd Í leit að lífs- hamingju LANGT er síðan Elvis Costello ávann sér orðspor óútreiknanleikans. Ekk- ert er eins fjarri hans huga og að hjakka í sama farinu, endurtaka sig, jafnvel þótt hann virðist hafa fundið formúlu sem svínvirkar. Það er kannski erfitt fyrir þá sem féllu fyrir rómantíkernum Costello, þessum sem söng franska „She“ í Notting Hill og samdi róman- tískustu ballöðu- plötu síðustu ára í félagi við Burt Bacharach, að ferillinn hafi hafist með hávaðasömu nýbylgju- pönki. Og fyrir þá sem voru búnir að gleyma því þá minnir karlinn ræki- lega á það á nýju plötunni When I Was Cruel, sem er í senn hrárri og djarfari en síðustu verk hans. Hún er líka hans framsæknasta í háa herrans tíð, svei mér þá ef ekki síðan hann var enn meðal framvarða nýbylgjunnar fyrir tveimur áratugum. En maður kveikir ekki á því strax. Við fyrstu hlustun virðist hún nefnilega bara svolítið eins og enn ein Costello-plat- an en eftir því sem hún rúllar oftar í gegn þá rennur upp fyrir manni að karlinn er að prófa fullt af nýjum hlut- um, dyggilega studdur ungum upp- tökumönnum sem kalla sig The Imp- osters. Og skemmtilegast er að heyra hvernig hann nýtir gríðarlega reynslu sína og fjölhæfni í gegnum árin, því þótt áferð laganna sé aftur orðin gróf- kennd þá eimir enn af rómantíkinni, melódíunni ljúfsáru, sem hann hefur stúderað og reynt og fullkomna með aðferðum fræðimannsins. Útkoman er því tvímælalaust gjöfulasta sóló- plata Costellos í 16 ár eða síðan King of America kom út. Tónlist Grófkennd rómantík Elvis Costello When I Was Cruel Island Costello stendur upp frá píanóinu og stingur gítarnum í samband á ný. Skarphéðinn Guðmundsson Lykillög: „When I Was Cruel No. 2“, „Alibi“, „Episode of Blonde“ MÁLAFERLI eru í uppsigl- ingu milli tónlistarmanns- ins Michaels Jacksons og útgáfufyrirtækisins Sony vegna lítillar sölu á síðustu plötu Jacksons, Invincible. Er Sony sagt ætla að krefj- ast þess Jackson um að greiða til baka fyrirfram- greiðslu sem hann fékk vegna plötunnar en á móti er Jackson að undirbúa málsókn á hendur Sony á þeim grundvelli að hann telji að plata sín hafi ekki fengið þá kynningu sem um var samið. Jackson hefur ráðið lögmanninn Johnnie Cochran, sem m.a. varði O.J. Simpson á sínum tíma og hjálpaði Jackson einnig í málaferlum vegna meintrar kynferð- islegrar áreitni gegn börn- um. Sony hefur fallist á að Jackson geti gefið út safn- plötu á eigin vegum en krefst þess að hann end- urgreiði fyrirframgreiðsl- una. Invincible er dýrasta plata sem framleidd hefur verið til þessa, kostaði um 2,8 milljarða króna. Meðal kostnaðarliða er mynd- bandið „You Rock My World“ sem ku hafa kostað Sony litlar 400 milljónir króna en Marlon Brando kom m.a. fram í því. Jackson og Sony í hár saman Ekki getur talist lík- legt að Jackson gefi mikið meira út und- ir merkjum Sony. BANDARÍSKI kvikmyndaleik- arinn Woody Harrelson var hand- tekinn í Lundúnum í vikunni eftir mikinn eltingaleik lögreglu en Harrelson gekk berserksgang í aftursæti leigubíls og olli skemmd- um á bílnum. Harrelson reyndi að komast undan í öðrum leigubíl en þegar lögregla hóf eltingaleik hljóp leikarinn út úr bílnum en var síðan yfirbugaður. Leigubílstjórinn sagðist í samtali við enska götublaðið The Sun hafa tekið Harrelson upp í bíl sinn fyrir utan næturklúbb í borginni. Eftir skamma stund hefði hann heyrt hljóð í aftursætinu og séð að Harrel- son hefði fengið æðiskast, brotið rúður í bílnum og reynt að komast út. Þegar bílstjórinn stöðvaði bílinn hafi leikarinn leikarinn rokið út og eyðilagt bílhurðina. Harrelson, sem dvelst í Lundúnum ásamt eiginkonu sinni og tveimur ungum dætrum, hefður neitað að tjá sig um málið. Gekk berserksgang í leigubíl Woody karlinn gengur greini- lega ekki alveg heill til skógar þessa dagana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.