Morgunblaðið - 09.06.2002, Síða 10

Morgunblaðið - 09.06.2002, Síða 10
10 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞÓTT aðstæður allra þess-ara manna og framtíðar-sýn væru ólíkar fannstmér að vilji væri hjá öllumtil að finna lausn. En mat- ið á því hvað væri raunsætt var mis- munandi og þá skorti algerlega gagnkvæmt traust, ekki vottaði fyrir neinu slíku. Það virkaði verst á mig og ég hef enga trú á því að hægt sé að byggja upp þetta traust nema með utanaðkomandi þrýstingi og hjálp,“ segir Halldór Ásgrímsson ut- anríkisráðherra um ráðamenn Ísr- aels og Palestínu. Hann heimsótti Ísrael og hernumin svæði Palestínu- manna auk Jórdaníu um mánaða- mótin, ræddi við Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, Shimon Peres utanríkisráðherra og fleiri ísraelska ráðamenn í Jerúsalem, átti fund með Yasser Arafat Palestínuleiðtoga í Ramallah, einnig Abdúllah Jórdan- íukonung og aðstoðarutanríkisráð- herra landsins í höfuðstaðnum Amman. Halldór varð vitni að örvæntingu palestínskra kvenna sem biðu eftir aðhlynningu fyrir börn sín á sjúkra- húsi í Jenin, hann segir að vonleysi um betri framtíð og stríðsþreyta séu að sliga almenning, bæði Palestínu- menn og Ísraela. „Þegar við ætluðum að fara til Na- blus vorum við stöðvuð vegna þess að skriðdrekar voru á leið inn í borg- ina og við urðum að fara aðra leið,“ segir Halldór. „Meðan við biðum tal- aði ég við ungan, ísraelskan her- mann, hann sagðist vera úr vara- liðinu. „Ég er námsmaður, “ sagði hann, „ég er að læra heimspeki og sögu.“ Þetta er ljóta ástandið hér, sagði ég. Hann svaraði: „Það vill enginn okkar þurfa að standa í þessu.“ Ég fór til Jenin og sá skemmd- irnar á húsum flóttamannanna í búð- um þeirra sem eru í hlíðinni við sjálfa borgina en þess ber að gæta að í sjálfri borginni, sem er miklu fjöl- mennari, var flest með kyrrum kjör- um, sjálfar búðirnar eru afmarkað svæði. Við borðuðum hádegisverð á snyrtilegu veitingahúsi í borginni. Fólkið sem á hann hafði lagt aleigu sína í veitingastaðinn en þarna var nær ekkert um að vera, ekkert fólk á ferli enda takmarka Ísraelar mjög ferðafrelsi Palestínumanna og at- vinnulíf hinna síðarnefndu er nánast í rúst. Sameinuðu þjóðirnar hafa hjálpað Palestínumönnum mikið og skipu- lagt matarsendingar til hernumdu svæðanna. Enn er ræktað nokkuð af ávöxtum, bændur eru á ferli með hjarðir sínar en öll viðskipti eru meira eða minna lömuð. Áður seldi fólkið afurðirnar á markaði í Ísrael eða til Evrópu. EFTA gætir jafn- vægis og er með fríverslunarsamn- ing við bæði Ísraela og Palestínu- menn, við Íslendingar kaupum afskaplega lítið af hinum síðar- nefndu en samningurinn er til stað- ar. Kúlnagöt á heilsugæslustöð Það er alveg ljóst að þarna er mik- il neyð, skortur er á matvælum, lyfj- um og öðrum hjálpargögnum og ástandið fer síversnandi. Á heilsu- gæslustöð í Jenin var allt fullt af konum með grátandi börn, ég man ekki eftir að hafa séð nokkurn karl- mann á fullri biðstofunni. Á loftinu og veggjunum voru kúlnagöt, handsprengja hafði sprungið á gólfinu. Ég spurði full- trúa SÞ hver tilgangurinn hefði get- að verið með skothríð þarna og hann svaraði: „Enginn, bara leikaraskap- ur, hermenn hafa verið að skjóta eitthvað út í loftið.“ Þetta er ekkert skipulagt heldur gerist í hita leiks- ins, þarna er verið að berjast upp á líf og dauða. Ísraelar misstu 23 her- menn í flóttamannabúðunum og talið að 54 eða 56 Palestínumenn hafi fall- ið. Ísraelar segja að þar af hafi sjö verið óbreyttir borgarar en hinir úr vopnuðum sveitum. Fulltrúar SÞ segja að aldrei verði hægt að slá föstu hvort það sé rétt hve margir hafi verið vopnaðir.“ – Palestínumenn sögðu að hundr- uð manna hefðu fallið. Það eru rang- ar tölur eða hvað? „Ég spurði menn um þetta. Það er talið fullvíst að einhver lík séu í rúst- unum en fulltrúar SÞ sögðu mér að 54 Palestínumenn hefðu fallið og hugsanlega gætu tveir að auki hafa dáið, þeirra væri saknað. Aðrar full- yrðingar virðast því vera rangar og ásakanir um fjöldamorð fá ekki stað- ist. Þarna er mikið hatur og mikil reiði og við slíkar aðstæður er margt sagt. Og almenningsálit í heiminum skiptir miklu máli fyrir báða aðila.“ – Þú hittir menn sem eru stöðugt í fréttum og fá misjafna dóma, Ariel Sharon, Shimon Peres, Yasser Ara- fat, Moshe Katzav forseta, Abdúllah konung og fleiri. Sumir segja að stjórnmál í Miðausturlöndum séu svo ólík okkar að minni á tvo heima, við munum aldrei geta skilið aðstæð- ur á þessum slóðum. Hvað finnst þér? „Já og nei. Ef ég tek Ísraelana fyrst þá er ljóst að hjá þeim er við völd nokkurs konar þjóðstjórn. Stjórnarandstaðan er ekki öflug, hún er að miklu leyti innan stjórn- arinnar. Rétt áður en við hittum Sharon var hann að ná samkomulagi við flokkinn sem nokkrum dögum fyrr hafði sagt sig frá samstarfinu. En eitt virtist mér vera alger sam- staða um, líka meðal stjórnarand- stæðinga sem ég hitti í þinginu: Áhersla á öryggi borgaranna og að leggja yrði mikið í sölurnar til að tryggja þetta öryggi. Um þetta leyti dóu lítið barn og amma þess í árás sjálfsmorðingja, þrír ungir drengir létu lífið í annarri árás. Þessi áföll rista ákaflega djúpt í þjóðarsál Ísr- aela og gerðar eru kröfur til stjórn- málamanna um að þetta gerist ekki aftur. Það má segja að mikil þreyta sé farin að birtast hjá fólki, örvinglun og hræðsla. Fimm forsætisráð- herrar hafa verið að vinna að friði síðastliðinn áratug með Arafat. For- seti landsins sagði við mig að Palest- ínuleiðtoginn hefði „svikið“ þá alla. Ísraelskir leiðtogar verða að hafa stuðning þjóðarinnar við það sem þeir gera. Það er ljóst að stundum hafa þeir teygt sig langt, til dæmis í Óslóarsamkomulaginu, Barak taldi sig líka hafa gengið afar langt með Camp David-samkomulaginu og það varð hans pólitíski banabiti. Ísraelsk stjórnmál eru flókin en samt finnst manni ekki að stjórnmálamenninrir þeirra séu neitt öðruvísi í viðmóti en við erum vön. Þeir lifa hins vegar í allt öðru umhverfi, búa við þessa stöðugu ógn. Palestínumennirnir eru veikari aðilinn, efnahagurinn miklu lélegri og ástandið allt miklu verra hjá þeim, fátæktin meiri, menntun al- mennt minni. Þeir hafa færra til að byggja á betri framtíð. Stjórnkerfið er öðruvísi, menn sameinast frekar um einn leiðtoga sem hefur mikil völd. Hann hefur setið lengi og er jafnframt tákn þjóðarinnar. En í kringum hann er mikið af mönnum sem mér fannst vera afskaplega hæfir og líklegir til að taka þátt í að skapa eðlilegar aðstæður í sjálf- stæðu Palestínuríki. Hvað sem segja má um Ariel Sharon þá er það ljóst að hann hefur gengið svo langt að samþykkja stofnun Palestínuríkis og gert það í andstöðu við sinn eigin flokk, Likud, og það veldur honum auðvitað mikl- um vanda. Hann vill hins vegar að það gerist eftir langan tíma, Palest- ínumenn að það gerist sem fyrst og þarna skilur á milli. Sharon virðist hafa mikinn pólitískan stuðning meðal fólksins og nýtur vinsælda. Shimon Peres telur sig greinilega gera sitt besta sem maður af hinum vængnum, maður með aðra ímynd og vill reyna að skapa jafnvægi í leit- inni að friðsamlegri lausn. Katzav forseti horfir svo á þessi mál frá enn öðrum sjónarhóli, hann hefur svip- aða stöðu og okkar forseti, hefur ekki pólitískt vald en lét í ljós mjög ákveðnar skoðanir á ástandinu. Pe- res sagði mér að það væri erfitt að vera Ísraelsmaður en það er líka erf- itt að vera Palestínumaður. Ef til vill er alltaf erfitt að vera til en lífið er þrátt fyrir allt verðmætasta gjöfin og við viljum fara vel með hana. Ég geri mér samt grein fyrir því að menn hafa svo oft reynt að semja um frið, í Ósló, í Camp David, en allt hef- ur runnið út í sandinn. Þessi reynsla hefur skapað vonleysi. Menn segja að þetta hafi ekki tekist þá, hvers vegna í ósköpunum ætti það að tak- ast nú. Sharon maður með mikla reynslu Mér fannst gott að tala við alla þessa menn. Sharon er maður með gífurlega mikla og oft bitra reynslu og á að baki feril sem herforingi og stjórnmálamaður eins og reyndar allir Ísraelarnir. Yfirbragð Peres er mildara. Arafat er ekki við góða heilsu og að sjálfsögðu orðinn nokk- uð fullorðinn maður. Hann er þó skýr í hugsun. Hann virtist vera af- skaplega einlægur en talaði mikið um hið liðna, hvað hefði valdið því að málum er svona komið. Sjálfur vildi ég auðvitað mest tala um það sem væri framundan en bæði hann og Sharon rifjuðu upp það sem and- stæðingurinn hefði gert í fortíðinni. Arafat sagði að Sharon færi fyrir öfgastjórn. Mennirnir eru báðir merktir af því sem gerst hefur og langri reynslu sinni, það er hún sem gerir þá eins og þeir eru. En ég tel að þeir gætu báðir hafið sig upp úr þessu, þetta eru hvorirtveggju aldr- aðir menn og hafa engu að tapa. Spurningin er hins vegar hvað þeir geta fengið sína eigin stuðnings- menn, fengið þjóðir sínar til að sætta sig við miklar tilslakanir.“ – Þarf að þvinga þá til að slaka til? „Sú hótun liggur eiginlega þegar fyrir. Hún er að án lausnar er ekki hægt að stöðva hryðjuverkin, án lausnar er ekki hægt að losa um þau hörðu tök sem Ísrael er með á byggðunum á Vesturbakkanum. Án lausnar getur engin efnahagsaðstoð að ráði borist Palestínumönnum. Þetta eru því í reynd engar hótanir heldur blákaldar staðreyndir sem þeir standa frammi fyrir. Þessir menn verða því að taka erfiðar ákvarðanir, sætta sig við að þeir eigi enga aðra kosti en að fallast á mála- miðlun, jafnvel þótt þeim sé hún mjög á móti skapi. Alþjóðasamfélagið verður hins vegar að meta hvert þanþolið er og það er ekki auðvelt. Ég held að Bandaríkjamenn eigi mjög erfitt með að þvinga Ísraelsmenn til að losa tökin og draga herinn burt. Þetta gætu þeir vegna þess að Ísr- aelar eru mjög háðir aðstoð frá Vilji til friðar en Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að alþjóðasamfélagið verði að reyna að byggja upp traust milli Palestínumanna og Ísraela. Í viðtali við Kristján Jónsson segir ráðherrann að Ísraelar telji Evrópumenn ekki hafa skilning á hættunni sem að Ísrael steðji frá sumum grannríkjunum. ’ Þetta er ekkertskipulagt heldur gerist í hita leiksins, þarna er barist upp á líf og dauða. ‘                              ’ Án lausnar getur engin efna- hagsaðstoð að ráði borist Palest- ínumönnum. ‘ Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra um Arafat og Sharon, sem eru gamlir andstæðingar: „Mennirnir eru báðir merktir af því sem gerst hefur og langri reynslu sinni, það er hún sem gerir þá eins og þeir eru.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.