Morgunblaðið - 09.06.2002, Side 11

Morgunblaðið - 09.06.2002, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 11 Bandaríkjamönnum, þangað líta Ísr- aelar og þeir hafa traust á þeim. En ráðamenn Bandaríkjanna og ann- arra ráðamanna óttast að ef faraldur sjálfsmorðsárása gjósi upp á nýjan leik verði þeir gerðir ábyrgir. Ísrael- ar muni segja: Þarna sjáið þið, þetta sögðum við.“ Ísraelar treysta Bandaríkjamönnum – Ísraelar hafa verið gagnrýndir hart í Evrópu vegna atburðanna í Jenin og annars staðar. Treysta þeir okkur Evrópumönnum? „Þeir bera miklu minna traust til okkar en Bandaríkjamanna. Ísr- aelum finnst að Evrópumenn skilji ekki aðstæður þeirra. En Ísraelar verða að gera sér grein fyrir því að það er eðlilegt að málstaður Palest- ínumanna njóti skilnings og samúð- ar. Þeir standa höllum fæti. Þegar Ísrael var stofnað var gert ráð fyrir að réttindi Palestínumanna yrðu einnig tryggð en það hefur ekki verið gert. Fjöldi Palestínumanna býr á hinn bóginn í Ísrael og nýtur þar réttinda, sambúðin virðist ganga all- vel. Þetta er því hægt. Það er líka ljóst að ríki þessara tveggja þjóða geta ekki lifað nema í mjög nánum tengslum, allt svæðið er svo lítið, ekki eru það mikil fjöll eða önnur kennileiti sem skilja á milli, grann- arnir búa hinum megin við hólinn. Nálægðin er svo mikil, maður skilur það fyrst þegar maður er búinn að koma til landsins og sjá aðstæður. En þetta er hluti vandans, hvernig er hægt að tryggja öryggið þegar þjóðirnar búa nánast í sama túninu. Ekki gera menn það eingöngu með því að grafa skurði eða reisa girð- ingar ef alls staðar er nóg af vopn- um.“ – Arafat segist ekki geta stöðvað hryðjuverkamennina. En er hann enn áhrifamikill leiðtogi, er hann við stjórnvölinn? „Hann hefur látið handtaka menn sem grunaðir eru um hryðjuverk en hann hefur látið þá lausa á ný. Hann hefur líka lofað að láta handtaka menn án þess að standa við það, Ísr- aelar benda á skýr dæmi um að ekki hafi verið staðið við slík loforð. Ara- fat segir á móti: Ég hef skýr dæmi um að þeir hafi svikið sín loforð. Þannig ganga ásakanir á víxl en Ísr- aelar fullyrða að hann hafi stjórn á Fatah-hreyfingunni og menn úr henni beri ábyrgð á síðustu hryðju- verkunum. Ef þetta er rétt eru mikl- ir veikleikar í stjórnarfarinu hjá Pal- estínumönnum. Ísraelar halda því fram að svo mikið tillit sé tekið til Arafats meðal Palestínumanna að ef hann beitti sér að fullu myndi fólkið fara að ráðum hans, það myndi hlýða honum. Palestínumenn segja á hinn bóginn að vonleysið sé slíkt meðal al- mennings að þeir ráði ekki við það. Ég sá sjónvarpsviðtal við móður lítils barns í Ísrael, það hafði verið í barnavagni á stað þar sem sjálfs- morðsárás var gerð. Barnið og amma þess fórust bæði. Þetta viðtal snerti mig vegna þess að konan sagði: Ég er ekki alin upp við að hata. Ég vildi að ég gæti hatað eftir þennan atburð en ég get það ekki. Þeir sem gera þetta eru aldir upp við hatur, sagði hún. Stofnun og uppbygging Ísraels fyrir meira en hálfri öld, flótti margra Palestínumanna af svæðun- um sem tekin voru, þar sem þeir missa jarðir sínar og heimili, allt hef- ur þetta valdið heift og hatri sem enn er þarna til staðar. Jafnvel þótt mönnum takist að koma samninga- viðræðum um frið í gang og Ísraelar bindi enda á hernámið verða mjög erfið mál eftir, þar á meðal réttindi flóttamannanna til að snúa aftur heim, staða landnemabyggða gyð- inga og yfirráð í Jerúsalem. Lausnin hefur fjarlægst frá því að viðræðurn- ar í Camp David árið 2000 fóru fram og Ísraelar munu auk þess aldrei samþykkja að allir flóttamennirnir fái að snúa til baka. Reyndar eru engar líkur á að þeir vilji allir snúa aftur, margir þeirra hafa komið sér fyrir annars staðar. Ísraelar neita að samþykkt verði grundvallarregla um réttinn til að snúa aftur heim en Palestínumenn leggja einmitt ofur- áherslu á að rétturinn sé grundvall- aratriði; báðir aðilar gera sér grein fyrir því að fáir flóttamannanna munu koma til baka.“ Væri brjálæði að bíða – Ehud Barak, fyrrverandi for- sætisráðherra Ísraels, gaf í skyn í viðtali fyrir skömmu að Palestínu- menn yrðu ekki reiðubúnir að slaka á kröfum sínum fyrr en eftir 20–30 ár, þá yrðu flestir upprunalegu flóttamannanna látnir. „Ég held að það væri brjálæði að ætla að bíða svo lengi. Staðan fyrir alla aðila getur vart verið verri, nema algert blóðbað verði. Líf margra Palestínumanna er hörmu- legt, matarskortur gæti verið yfir- vofandi og þarna munu gjósa upp farsóttir. Þá verður angistin svo mikil að engu er hægt að spá um það sem gæti gerst. Reiðin í arabaheim- inum er líka mikil og margir hata þar Ísraela og alla gyðinga. Svæðið er allt ein púðurtunna en samt eru þarna tækifæri þó að alltaf sé að koma bakslag, eins og með tilræðinu í gær [miðvikudag] þar sem 17 dóu og yfir 30 særðust. Allir sem ég hef talað við eru sammála um að hægt sé að koma á friði. En í mínum huga er alveg ljóst að Ísraelar verða að efla traust sitt hjá alþjóðasamfélaginu, hjá Bandaríkja- mönnum, í Evrópu og í arabaheim- inum, í Rússlandi. Þeir vantreysta hins vegar Sameinuðu þjóðunum. Og Palestínumenn verða líka að byggja upp traust hjá Bandaríkja- mönnum og Evrópumönnum, þeir njóta þess þegar en þó ekki að öllu leyti meðal arabaþjóðanna. Menn verða að gera Palestínumönnum kleift að byggja upp sterkara örygg- iskerfi og þeir verða að endurskipu- leggja stjórnsýslu sína, þar er mikil spilling og þar skortir valddreifingu. Þetta er nauðsynlegur undirbún- ingur fyrir stofnun sjálfstæðs Pal- estínuríkis en jafnframt skilyrði þess að hægt sé að fá Ísraela til að hverfa frá svæðunum. Þá væri um leið búið að tryggja forsendu þess að pólitísk- ar viðræður um framtíðarsýnina geti aftur hafist af fullum krafti. Þá á ég við alþjóðlega ráðstefnu um þessi mál og samkomulag um stofnun Pal- estínuríkis sem njóti öryggis og að Ísrael verði viðurkennt af öllum, geti búið við öryggi innan landamæra sinna, treyst í sessi efnahaginn og horft til framtíðar. Ef þetta gerist ekki mun ekki tak- ast að veita Palestínumönnum að- stoð sem þeir þurfa mjög á að halda. Allir hafa því allt að vinna. Efna- hagslíf Palestínu er í rúst, það er illa skaddað í Ísrael, ferðaþjónusta er hrunin á svæðinu og því eru allir að tapa. En Ísraelar hafa ekki eingöngu áhyggjur af þessum málum heldur líka því sem er að gerast í Íran, Sýr- landi og víðar. Þeir hafa þá í huga þá sem lýsa því yfir hvað eftir annað að markmiðið sé að tortíma Ísraelsríki. Þess vegna líta Ísraelar svo á að þeir heyi nú baráttu fyrir tilveru sinni, baráttu fyrir því að þurfa ekki að ganga í gegnum sams konar tortím- ingu og reyndin var í Helförinni.“ – Stundum segja Ísraelar að við skiljum þetta ekki nógu vel, þennan ótta þeirra. Helförin sé farin að gleymast á Vesturlöndum. „Þetta er mjög sterkt í sálarlífi Ísraela og þeim finnst að þeir at- burðir hafi gleymst. Lítill skilningur ríki á því að þeir standi frammi fyrir því sama núna. Ekki af hendi Palest- ínumanna endilega heldur annarra arabaríkja sem séu að koma sér upp gereyðingarvopnum og af hendi ríkja sem styðja samtökin á bak við sjálfsmorðsárásirnar. Þeir nefna þá oft Sýrland og Íran og Hizbollah sem starfar í Líbanon. Trúarbrögðin eru sterkur þáttur í stjórnsýslu og stefnu Írana, miklu sterkari en hjá Írökum. Hjá þeim síðarnefndu er það fyrst og fremst Saddam Hussein sem ógnar, hann lætur ekki duga að drepa þá sem ógna völdum hans með einhverjum hætti heldur alla fjölskyldu and- stæðinga sinna. Hann heldur öllu í járngreipum. En þótt enginn mæli bót því sem hann gerir óttast menn að ef ráðist verði á Írak til að koma honum frá geti Írak klofnað í þrennt, þetta kom meðal annars fram í við- ræðunum við aðstoðarutanríkisráð- herra Jórdaníu og fleiri. Það verði ríki Kúrda í norðurhlutanum, ríki shíta-múslíma í suðurhlutanum og í þriðja hlutanum með höfuðborginni Bagdad verði aðrir landsmenn. Einkum eru Jórdaníumenn smeykir um að þetta geti orðið raunin enda er land þeirra á milli Ísraels og Íraks. Ef Írak liðast í sundur verður ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs- ins enn flóknara en nú. Margt annað en Palestína getur haft áhrif á framvinduna í Miðaust- urlöndum. Alþjóðleg barátta gegn hryðjuverkum í heiminum leikur þar sitt hlutverk. Flestir hermdarverka- mennirnir 11. september komu frá Sádi-Arabíu og nú hafa ráðamenn landsins tekið frumkvæði í Palest- ínudeilunum. Tillögur Abdúllah krónprins um samninga milli araba- þjóðanna og Ísraela eru uppi á borð- inu og allir vitna í þær en þær þarf að útfæra nánar, ramminn er ekki nægilega skýr. Egyptar eru í forystu um að útfæra þær betur. En inn í þessi mál spila auk þess þingkosningar í haust í Bandaríkj- unum, áhrif gyðinga á bandarísk stjórnmál og mismunandi áherslur innan stjórnarinnar í Washington, milli varnarmálaráðuneytisins og ut- anríkisráðuneytisins. Þær áherslur endurspegla ólíka sýn á baráttuna gegn hryðjuverkum í heiminum.“ Dýpri skilningur en áður – Hafa skoðanir þínar breyst við að fara á staðinn? „Ég veit ekki hvort ég get lýst því þannig. Mér finnst ég hins vegar hafa miklu dýpri skilning á ástand- inu, tel að ég átti mig betur á því hvernig ef til vill verður hægt að leysa deilurnar. En þrátt fyrir það finn ég til máttleysis gagnvart öllu þessu máli. Maður spyr sjálfan sig: Af hverju getur ekki orðið krafta- verk í Landinu helga núna eins og fyrir tvö þúsund árum? Það þarf kraftaverk. Enginn einn maður getur leyst málið, til þess þarf átak alþjóðasamfélagsins sem þarf að taka ábyrgð á því sem þarna er að gerast. Kristin trú hefur kennt okk- ur að trúa á vonina og ég trúi því að þarna séu forsendur fyrir því að kraftaverk geti orðið. En það mun ekki verða á augabragði eins og í Biblíunni,“ segir Halldór Ásgríms- son utanríkisráðherra. ekkert traust Morgunblaðið/Sigrún Birna Halldór Ásgrímsson á fundi með Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels. Utanríkisráðherra með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínu. Morgunblaðið/Sigrún Birna Halldór Ásgrímsson ásamt fylgdarmönnum sínum í Gömlu borginni í Jerúsalem, á undan þeim gengur ísr- aelskur hermaður, við öllu búinn. Uppreisn Palestínumanna, intifada, hófst í borginni í september árið 2000.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.