Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sóun á opinberu fé Margrét telur að ríkisstofnanir eins og Háskóli Íslands, Þjóðminja- safn og fleiri muni fá meira aðhald í nánustu framtíð en hingað til. Augu almennings, sem sett er að kosta rekstur slíkra stofnana, séu að opn- ast fyrir gagnrýnni umfjöllun um meðferð á opinberu fé. „Við getum tekið tugmilljónaverkefni á fornleifa- sviði. Þar er eins og ríkisgeirinn þurfi ekki að standa skil á neinu umtals- verðu, til að mynda varðandi lág- marks verkskil. Tökum fornleifa- rannsóknirnar á Bessastöðum á vegum Þjóðminjasafns. Erfitt hefur reynst að komast að því hversu margir milljónatugir fóru í þær af al- mannafé. Það er alllangt síðan þeim lauk, þótt ekki hafi birst neinar heild- arniðurstöður um þær. Ekki er það vegna fjárskorts. Nákvæmlega sama er með fornleifarannsóknirnar á Stóru-Borg, sem í raun voru reknar í skjóli Þjóðminjasafns. Þeim er löngu lokið. Á sama tíma fara stjórnandinn og aðrir sem unnu að þeim rannsókn- um úr einum uppgreftrinum í annan og það virðist ekki skipta neinu máli að viðkomandi skili ekki af sér upp- graftrarverkefnum í birtum niður- stöðum. Þess vegna þykir mér hart að ég, sem hef einungis setið stuttan tíma í föstum stöðum á löngum ferli og í raun fjármagnað mínar rann- sóknir að stærstum hluta með styrkj- um sem ég hef þurft að afla sjálf, sé svo markvisst sett út í kuldann fyrir vikið. Ég verð alltaf meira og meira hissa á fjárlagavaldinu, að það skuli halda þessari óráðsíu endalaust áfram, einnig varðandi sýningarmál og byggingarmál Þjóðminjasafns. Eftir sem áður eru það skattgreið- endur í einkageiranum og fyrirtækin sem halda samfélaginu gangandi sem gert er með ótæpilegum álögum að standa undir því að opinberir starfs- menn kunni ekki að halda settar kostnaðaráætlanir.“ Einkarekin akademía Aðspurð segir Margrét að svo virðist sem staða kennara í fornleifa- fræði hafi verið auglýst til mála- mynda. „Það er kannski alvarlegast, eins og kemur fram í mínum and- mælum, að starfið virðist vera aug- lýst til málamynda og búið að ákveða að sjálfskipaða einkaakademían, Fornleifastofnun Íslands, eigi að sjá um þessi mál fyrir Háskóla Íslands.“ Það skal tekið fram að Fornleifa- stofnun Íslands er einkarekin sjálfs- eignarstofnun sem fjórir einstakling- ar stofnuðu árið 1995. Nánar er hægt að lesa um stofnunina og skipulags- skrá hennar á heimasíðu hennar. Margrét segir að það hafi verið haft samband við hana, eftir að hún kynnti andmæli sín í Reykjavík- urakademíunni, og henni bent á grein í Morgunblaðinu (Frjálsar rannsóknir enn í vörn, 11. maí sl.) þar sem fram kemur að sífellt stærri hluti fjárveitinga til vísindarann- sókna renni til einkafyrirtækja á kostnað akademískra grunnrann- sókna. „Varðandi fornleifarannsókn- ir er um einsdæmi að ræða á alþjóða- vísu, að ýta undir svona einkavæðingu. Samkvæmt þjóð- minjalögum, alþjóðlegum samþykkt- um og Evrópusamningi, sem við er- um aðilar að, eiga stjórnvöld í viðkomandi ríkjum að sjá um skil- virka verndun fornleifa sem sameig- inlegs arfs mannkyns. Það er ekki þar með sagt að öll verkefni eigi að vera hjá ríkinu. En eftirlit með forn- leifaverndinni og þá ekki síður forn- leifarannsóknum á að vera hjá ríkinu. Eins og þetta hefur verið hér, og kemur fram í mínum andmælum, þá hefur þetta fyrirtæki (Fornleifa- stofnun Íslands) fengið fornleifa- verkefnin á færibandi frá opinberum aðilum. Þetta er mjög alvarleg stefna, því upphæðirnar eru það háar að þetta varðar við lög um opinber innkaup. Það ætti að bjóða þessi verk út sé miðað við gildandi lög og ábyrg- an og lýðræðislegan opinberan rekst- ur. Í þessum tiltölulega litla hópi fornleifafræðinga sem um er að ræða hjá okkur er það auk þess sáraeinfalt mál.“ Fornleifarannsóknir á Gásum Fornleifavernd ríkisins hefur nú neitað Margréti um rannsóknaleyfi á Gásum í Eyjafirði eftir að hafa dregið að afgreiða leyfisumsókn hennar í rúmlega hálft ár, að hennar sögn. Margrét hefur lagt mikla vinnu í undirbúning frekari rannsókna á Gásum. „Sá vel ígrundaði undirbún- ingur hefur verið lagður mér til lasts innan stjórnsýslunnar, þrátt fyrir að hann hafi fyrst og fremst miðast við umhyggju fyrir Gásaminjum sem óvenju flóknum og viðkvæmum minj- um, enda þekkir enginn þær minjar betur en ég,“ segir Margrét. „Gása- verslunarstaður hefur ekki eingöngu mikið gildi fyrir okkur heldur einnig verulegt alþjóðlegt gildi sem útpóst- ur skipulegra millilandaviðskipta í Norðvestur-Evrópu á miðöldum, og því enn mikilvægara að vanda vel til rannsókna á þeim minjastað.“ Þrátt fyrir að hafa þegar fengið vilyrði hjá fyrirtækjum fyrir fjármögnun rann- sókna á Gásum í ár, segir Margrét að Fornleifavernd ríkisins hafi ekki gef- ið henni tækifæri til að gera grein fyrir þeirri fjármögnun þegar á reyndi. Margrét segist sjá þann kost vænstan að leita réttar síns fyrir dómstólum og leitast þannig við að leiðrétta þá öfugsnúnu stefnu sem ný Fornleifavernd ríkisins hafi sett sér að fylgja, „þar sem fjármögnun forn- leifauppgraftra er skilyrði fyrir rann- sóknaleyfi í stað þess að rannsókna- leyfi liggi fyrir áður en að fjármögnun fornleifarannsókna kem- ur. Það er venjan annars staðar í okk- ar heimshluta þar sem menn hugsa fyrst og fremst um skilvirka varð- veislu fornleifa“. Á Gásum er að finna langstærsta samfellda minjasvæði frá miðöldum sem þekkt er hér á landi. Margrét vann upphaflega að forrannsóknum á Gásum 1986. Þegar Margrét hóf und- irbúning að áframhaldandi rann- sóknum á Gásum voru samstarfs- áform í deiglunni við Reidar Bertelsen við Háskólann í Tromsö í Norður-Noregi, sem stjórnaði rann- sóknum á að sumu leyti sambæri- legum verslunarstað í Lofoten. Þeg- ar þau samstarfsáform gengu ekki var það kollegi Margrétar við Há- skólann í Þrándheimi, dr. Axel Chri- stophersen, prófessor í miðaldaforn- leifafræði, sem sýndi verulegan áhuga á samstarfi vegna Gása. Enda vitað fyrir að kaupmenn og erkibisk- upsstóllinn í Þrándheimi stunduðu verslun á Gásum forðum. „Þegar Christophersen hafði sam- band voru liðin heil tíu ár frá því ég stundaði forrannsóknir á Gásum. Í millitíðinni reyndi ég að halda lífi í áframhaldi rannsókna á Gásum en sá ekki fram á að hægt væri að fjár- magna þær nema sem norrænt sam- starfsverkefni. Til að svo gæti orðið þurfti verulegur stuðningur að vera fyrir hendi hér á landi. Christopher- sen kom hingað til lands síðla árs 1996 og við ákváðum að sækja um styrki til að byrja með til að halda þverfaglegt málþing um Gásaversl- unarstað. Ég sótti til fjárlaganefndar Alþingis og þrátt fyrir fyrirheit kom ekkert út úr því. Síðan var send um- sókn til Rannsóknaráðs Noregs, sem veitti strax styrk til að kosta málþing um Gásir. Þar ytra þarf fólk iðulega að sækja um tvisvar eða þrisvar, en að strax var orðið við okkar umsókn segir sína sögu um áhuga Norð- manna á Gásaminjum.“ Gásamálþingið var svo haldið vorið 1998 við Rannsóknamiðstöðina í mið- aldafræðum við Háskólann í Þránd- heimi og ári síðar voru fyrirlestrarnir gefnir út í sérstöku riti. Mikill meiri- hluti fyrirlesara var Íslendingar. Fyrirlesararnir voru á sviði fornleifa- fræði, sagnfræði, jarðfræði, miðalda- bókmenntafræði og norrænna mál- vísinda. Ófyrirséð atburðarás Þegar líða tók að Kristnitökuhátíð á aldamótaárinu heyrði Margrét í fréttum að formenn þingflokkanna væru að vinna að þingsályktunartil- lögu um þjóðargjöf í formi sjóðs, eitt- hvað í líkingu við Þjóðhátíðarsjóð 1974. Þar var nefnt m.a. að sjóðnum væri ætlað að styrkja fornleifarann- sóknir. Margrét vann því sérstaka greinargerð til forseta Alþingis og þingflokksformanna þar sem hún kynnti mikilvægi Gásaverslunarstað- ar og að þar væri auk þess að finna kirkju sem hefði mikla sérstöðu. Margrét segir að þá hafi farið í gang atburðarás sem hún hafði ekki hug- mynd um fyrr en eftir á. Hún frétti síðar að nýr þjóðminjavörður og for- stöðumaður Minjasafnsins á Akur- eyri væru að vinna að því að Forn- leifastofnun tæki yfir rannsóknirnar á Gásum. „Nokkrum árum áður hafði þáverandi safnstjóri Minjasafnsins og núverandi borgarminjavörður fal- ið Fornleifastofnun að vinna skýrslu um Gásir, í stað þess að biðja mig um það sem þekki Gásaminjar manna best. Síðan gerist það síðla árs 1999, án þess að ég viti, að Minjasafnið á Akureyri sendir inn umsókn til fjár- laganefndar Alþingis en fær neitun. Og einnig árið 2000. Þá er umsóknin samþykkt sem hluti af umdeildum safnliðum sem Árni Johnsen fékk Margrét Hermanns Auðardóttir við fornleifauppgröft í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum ásamt Magnúsi Þorkelssyni. Morgunblaðið/Sigurgeir ÞETTA er meðal þess sem Þor- gerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur, komst að við rannsókn á 35 dómnefndarálitum sem gefin voru vegna ráðninga við Háskóla Íslands. Þorgerður vann rannsóknina, „Kynlegar víddir í dómnefndarálitum“, fyrir Jafnrétt- isnefnd háskólans og kynnti nið- urstöðurnar á ráðstefnunni Konur í vísindum sem haldin var 22. mars sl. Þorgerður hefur séð dómnefnd- arálitið vegna ráðningar í stöðu kennara í fornleifafræði. Hún telur að þetta álit skeri sig ekki úr þeim 35 sem hún hafði áður skoðað. „Sá einstaklingur sem dóm- nefndin telur hæfastan fær mjög karllega umsögn. Eitt af einkenn- um þessarar karllegu orðræðu er mjög áberandi lofskotin umsögn. Ég kalla þetta „jákvæða mismunun karla“. Í því felst að þeir eru born- ir miklu lofi en verk kvenna eða kvengerðra umsækjenda eru ann- að hvort dregin í efa eða nánast þögguð niður.“ Þorgerður segir að í álitum dómnefndanna séu umsækjendur það sem hún kallar ýmist „karl- gerðir“ eða „kvengerðir“, óháð því hvort þeir eru karlkyns eða kven- kyns. „Ein leið til að draga úr hæfni óæskilegra karla er að fjalla um þá eins og konur. Því karllæg- ari sem umsögnin er, því hæfari þykir yfirleitt umsækjandinn.“ Þorgerður segir að það sé ein af niðurstöðum rannsóknar sinnar að kynjaðri orðræðu af þessu tagi sé beitt sem ákveðnu valdatæki. „Þetta tiltekna dómnefndarálit fellur mjög vel að þeim nið- urstöðum sem ég kemst að í rann- sókninni,“ segir Þorgerður. „Ég hefði getað notað dæmi úr því í allri minni rannsókn.“ Þorgerður Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur Dæmigert dómnefndarálit Svo virðist sem kyn hafi áhrif á hvernig umsækj- endur eru metnir við mannaráðningar í Háskóla Íslands. Konur þurfa að afreka meira en karlar til að sanna sig og verk þeirra eru litin gagnrýnni augum en karlanna. Körlum er hins vegar frekar hrósað fyrir reynslu sína og unnin verk. Morgunblaðið/Ásdís Þorgerður Þorvaldsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.