Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 23
Járn + C vítamín
fyrirbyggir járnskort.
C-vítamínið
eykur nýtingu járns.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
samþykkta í fjarveru formanns fjár-
laganefndar, enda var sú fjárveiting
ekki borin upp við mig þótt ég hefði
áður lagt ítarlega rannsóknaráætlun
fyrir fjárlaganefnd vegna Gása.“
Þegar Margrét frétti af fjárveit-
ingu til Gásarannsókna segist hún
strax hafa haft samband við nýjan
þjóðminjavörð, enda fjárveitingin
sett undir Þjóðminjasafn, og spurt
nánar um málið. Þjóðminjavörður
staðfesti að þetta væri rétt en verk-
efnið væri í höndum Minjasafnsins á
Akureyri. Margrét segir að þjóð-
minjavörður og safnstjóri Minja-
safnsins hafi þekkt vel til undirbún-
ingsvinnu hennar vegna rannsókna á
Gásum.
Næsti leikur Margrétar var að
bjóðast til að taka að sér þetta verk-
efni fyrir Minjasafnið á Akureyri
ásamt beiðni um að halda fund um
málið, sem ekki var orðið við. Hófust
þá umleitanir og bréfaskriftir til ým-
issa aðila sem stóðu í marga mánuði.
„Þjóðminjavörður og safnstjóri höfn-
uðu mínu tilboði vegna Gása án allra
skýringa eftir að hafa dregið mig á
svari lengi vel,“ segir Margrét. Hún
sneri sér einnig til formanns forn-
leifanefndar, sem þá veitti leyfi til
fornleifarannsókna en Fornleifa-
vernd ríkisins gerir nú, og bað for-
manninn að sjá til þess að nefndin
virti rannsóknaráform hennar á Gás-
um. „Ég hafði einnig samband við
formann fjárlaganefndar og fleiri
þingmenn, innan sem utan fjárlaga-
nefndar, úr báðum stjórnarflokkun-
um. Þeir höfðu reyndar orð þjóð-
minjavarðar fyrir því að það yrði
ekkert ákveðið vegna Gása nema í
samráði við mig! Ég treysti á það
sem þingmenn höfðu sagt mér, að
þjóðminjavörður myndi standa við
gefin fyrirheit. Líka að formaður
fornleifanefndar myndi láta mig vita í
tíma ef nefndinni bærist umsókn
vegna Gása. Hvorugt var staðið við.
Um það leyti sem ný þjóðminjalög
voru samþykkt, undir lok þings vorið
í fyrra, frétti ég það annars staðar
frá, að Minjasafnið á Akureyri væri
búið að ganga frá samningi við einka-
rekna Fornleifastofnun um rann-
sóknir á Gásum fyrir atbeina nýs
þjóðminjavarðar á grunni fjárveit-
ingar fjárlaganefndar fyrir árið
2001.“
Margrét segir að Fornleifastofnun
hafi m.a. notað Gásaminjar til þjálf-
unar erlendra stúdenta og telur hún
það mjög ámælisvert.
Höfundaréttur ekki virtur
Margrét segir að við fyrirhugaðar
rannsóknir á Gásum sé m.a. stuðst
við hennar vinnu, án þess að hún hafi
veitt leyfi sitt fyrir því. Hún segir að
það sé ekki einsdæmi að frumkvæði
og höfundarréttur fornleifafræðinga
sé ekki virtur. Hún ákvað því að leita
réttar síns. Leitaði til lögmanns og
lagði fram stjórnsýslukæru til
menntamálaráðherra sem taldi sig
ekki geta tekið á málinu nema form-
leg kæra bærist ráðuneyti hans. Lítið
kom út úr því eftir fleiri mánaða af-
greiðsluferli að sögn Margrétar.
„Höfundaréttur okkar fornleifafræð-
inga er fótum troðinn hvar sem er.
Þarna er verið að yfirtaka mitt hug-
verk með óheiðarlegum hætti. Þetta
er allt unnið á bak við tjöldin, í skjóli
myrkurs. Ég aftur á móti hef alltaf
kynnt mín verkefni fyrir opnum
tjöldum, en það er hættulegt hér að
kynna sínar hugmyndir og hugverk
með slíkum hætti, þótt annað gildi
um þau lönd þar sem um ábyrga
minjavörslu er að ræða.“
Margrét segir að Minjasafnið á
Akureyri hafi tekið sér vald varðandi
Gásaminjar sem það hefur ekki,
hvorki með hliðsjón af þjóðminjalög-
um frá 1989 eða þeim nýju sem tóku
gildi í júlí á fyrra ári. „Það horfa allir í
gegnum fingur sér með þetta. Eng-
inn gerir neitt og greinilega ekki
heldur Fornleifavernd ríkisins. Við
erum komin í þá stöðu að þeir sem
fjármagna fornleifarannsóknir, sem
eru aðallega ríkið, opinberir styrkt-
arsjóðir og sveitarfélög, eigi að ráða
því hverjir stjórni fornleifarannsókn-
um og hvernig.“
Fornleifavernd í molum
Margrét segir á sér brotið, hún fái
ekki að framfylgja sinni undirbún-
ingsvinnu vegna rannsókna á Gásum
sem hún hafi lagt ómælda vinnu í og á
henni sé brotinn stjórnarskrárbund-
inn réttur til að hafa atvinnu af rann-
sóknum. „Þetta er orðið að miklu
stærra máli, sem dómstólar verða að
fást við, fyrst framkvæmdavaldið
gerir það ekki og ekki stofnunin sem
á að fara fyrir fornleifaverndinni í
landinu. Það virðist orðið þannig að
Kristnihátíðarsjóður, Rannís, minja-
söfn eða hver sem verða vill geti ráð-
ið því hvernig haga beri fornleifa-
rannsóknum í landinu en ekki
Fornleifavernd ríkisins.“
Margrét segir að það séu aðallega
þeir sem eru með verulega menntun
að baki sem geti lent í vandræðum
vegna persónubundinnar neikvæðni
innan stjórnsýslunnar fyrir það eitt
að eiga frumkvæði að mikilvægum
verkefnum og kynna þau fyrir opn-
um tjöldum eins og venja er í öðrum
Evrópuríkjum þar sem minjavarslan
byggir á traustum grunni. Þar ytra
sé höfuðáhersla lögð á menntun og
áunna reynslu fornleifafræðinga til
að sinna verndun fornleifa og stjórna
fornleifarannsóknum, en ekki hér.
Rannsóknaleyfi og fjármögnun
„Annars staðar er rannsóknaleyfið
vottorð um að viðkomandi sé hæfur
sem fagmaður til að stjórna rann-
sóknum á tilteknum fornleifum og
viðkomandi auk þess skylt að leggja
fram rannsóknaráætlun sem réttlæt-
ir uppgröft sem raskar fornleifum.
Það alvarlega hjá einkarekinni Forn-
leifastofnun, samkvæmt gögnum
sem ég fékk hjá fjárlaganefnd, er að
þetta fyrirtæki ætlar að grafa burt
lungann af Gásaminjum. Kirkju
ásamt umlykjandi kirkjugarði og
stóran hluta búðaminja frá Gása-
verslunarstað, en leggur ekki fram
neina rannsóknaráætlun sem rétt-
lætir svo umfangsmikil inngrip í
þessar ómetanlegu minjar. Rann-
sóknaráætlun er skýring á því hvað
maður ætlar að fá út úr fornleifaupp-
greftri hverju sinni, en þrátt fyrir að
fyrri og núgildandi reglur um leyfi til
fornleifarannsókna kveði á um slíka
áætlun sem „skýringu“ virðist síð-
asta Fornleifanefnd líkt og ný Forn-
leifavernd ríkisins horfa í gegnum
fingur sér með þetta grundvallarat-
riði. Það kemur ekki á óvart, því ég er
búin að kynna ásamt norskum koll-
ega mínum okkar ítarlegu rannsókn-
aráætlun fyrir Gásir allt frá árinu
1997.“
Heldur þú að Fornleifastofnun
ætli bara að stela henni?
„Já, svo virðist vera,“ svarar Mar-
grét. „Ég þori að fullyrða að betri
rannsóknaráætlun færðu ekki en þá
sem við höfum lagt fram, enda miðast
áætlun okkar við þá þekkingu sem
fyrir liggur um Gásaverslunarstað.“
Réttur komandi kynslóða
Margrét leggur áherslu á að í áætl-
un hennar sé ekki gert ráð fyrir að
moka burt lunganum af Gásaminjum,
eins og Fornleifastofnun stefni að.
„Hjá okkur er aftur á móti alveg
skýrt að við ætlum að raska þessum
minjum sem allra minnst. Kynslóð-
irnar á eftir okkur eiga rétt til þess-
ara minja ekki síður en við. Eftir því
sem tækninni og þekkingunni vindur
fram, þess meiri upplýsingar færðu
út úr fornleifauppgreftri ef rétt er á
málum haldið. Það eru fyrst og
fremst persónubundin sjónarmið, en
ekki grundvallarmarkmið skilvirkar
verndunar fornleifa, sem fyrirtækið
Fornleifastofnun og stuðningsmenn
hennar hafa að leiðarljósi og fæstir
virðast gera sér grein fyrir af hverju.
Þó að viðkomandi hafi upp til hópa
setið á skólabekk einn vetur eða tvo í
fornleifafræði þá hafa þau greinilega
misst af því að sú fræðigrein miðar að
verulegu leyti að varðveislu fornleifa.
Þetta kemur einnig fram í því að þeir
sem ráðnir hafa verið til að fara fyrir
minjavörslunni í landinu hafa ekki
einu sinni skilið mikilvægi þess að
stuðla að samræmdum staðli við
skráningu fornleifa og þar af leiðandi
sitjum við uppi með fornleifaskrár
sem koma að takmörkuðu gagni þeg-
ar á reynir. Til þess að vita hvað við
erum að gera þegar við gröfum upp
og skráum fornleifar, þurfum við að
afla okkur verulegrar menntunar til
að geta haldið sómasamlega utan um
þær flóknu upplýsingar sem fornleif-
ar geyma.“
Margrét segir sárt til þess að vita
að fornleifar liggi víða undir
skemmdum, einnig friðlýstar forn-
leifar. Þær séu umhverfisminjar auk
þess að vera menningarminjar og
slæmt að umhverfisverndarsinnar,
t.d. á Alþingi, skuli ekki hafa tekið
vernd þeirra upp á sína arma líkt og
náttúruminjar sem umhverfisminjar.
„Á öðrum Norðurlöndum og víðar í
Vestur-Evrópu hafa stjórnvöld þeg-
ar fellt fornleifaverndina undir um-
hverfisvernd, enda felur slíkt í sér
hagræðingu og sparnað í ríkisrekstri
sem samtímis stuðlar að markvissari
verndun fornleifa.“
gudni@mbl.is
TENGLAR
..............................................
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands:
http://www.hi.is/stjorn/jafnrettisn/
jafnrettisaaetlun_H_I.html
Fornleifastofnun Íslands:
http://www.instarch.is/.
Margrét Hermanns Auðardóttir:
http://www.akademia.is/
Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir
Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar
Til þjónustu reiðubúnir!
Eitt númer - 511 1707
www.handlaginn.is
handlaginn@handlaginn.is