Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 29 Auðbrekku 14, Kópavogi, símar 544 5560 og 864 1445. Vilt þú verða jógakennari? Í júní hefst ný jógakennaraþjálfun en þessi þjálfun hefur fest sig í sessi í starfsemi okkar frá því sú fyrsta var haldin árið 1997. Kennari er sem fyrr Ásmundur Gunnlaugsson, þekktur fyrir námskeiðið ,,Jóga gegn kvíða”. Þjálfunin er yfirgripsmikil og fyllilega sambærileg við það besta sem í boði er erlendis. Þetta er tækifæri til að nema af kennara með mikla reynslu og þekkingu á íslenskum starfsvettvangi. Þjálfunin er ekki aðeins fyrir þá sem vilja gerast jógakennarar heldur einnig öflugt sjálfsþekkingar- og þroskanámskeið. Hún hentar t.d. öllum sem eru í ein- hvers konar vinnu með einstaklinga eða hópa og/eða þeim sem vilja gera breytingar á lífsháttum sínum. Ekki er krafist mikillar reynslu og ástund- unar af jóga, mikilvægast er áhugi og jákvætt hugarfar. Einhver grundvall- arþekking á jóga er þó æskileg. Þjálfunin er alls 6 helgar (auk mætingar í jógatíma): 21.–23. júní, 5.–7. júlí, 16.–18. ágúst, 4.–6. október, 1.–3. nóvember og 6.–8. desember. Kennt er föstud. kl. 20-22, laugard. og sunnud. kl. 9-15. Ásmundur heldur kynningarfund laugardaginn 15. júní kl. 17-18. Lokafrestur til að staðfesta þátttöku og ganga frá greiðslu er miðvikudagurinn 19. júní. Nánari upplýsingar veittar í síma og á www.yogastudio.is.  MÁLVERKASÝNINGIN „Augnablik…“ stendur yfir í Húsi málaranna um þess- ar mundir, en þar sýnir Ari Svavarsson 26 málverk sem unnin eru í akrýl á tré. Um er að ræða fyrstu einkasýningu Ara en hann hefur m.a. starfað við kennslu og grafíska hönn- un undanfarin ár, en málun nam hann við Myndlistar- skólann á Akureyri og við Myndlista- og handíða- skóla Íslands á níunda ára- tugnum. Ari hefur þó ein- beitt sér að myndlistinni að undanförnu. „Ég hef geng- ið með málverkið í magan- um frá því að ég var í námi, en ýmislegt orðið til þess að ég hef ekki getað ein- beitt mér að því. Nú get ég hins vegar ekki látið það hjá líða lengur að takast á við það sem ég ætlaði mér,“ segir Ari sem hyggst halda áfram á þeirri braut. Sýninguna kallar Ari „Augna- blik…“ og skírskotar þar til þess sem hann lýsir sem tilfinningaleg- um tíma. „Í mínum huga er ákveð- inn tími til sem ég hitti á þegar ég er rétt stemmdur og mér finnst hlutirnir ganga upp. Þetta á kannski almennt við um lífið, en einnig það ferli sem málverkin eru unnin út frá. Verkin eru dálítið „spontant“, og læt ég tilfinningarn- ar ráða að miklu leyti við gerð þeirra. Ég mála í þunnum og oft mörgum lögum, og fikra mig þannig áfram með myndina. Þá nota ég sterka liti, og virðast myndirnar e.t.v. eintóna, en þegar betur er horft koma í ljós listir og form sem leynast undir ystu lögunum. Augna- blikið sem ég vísa til í titilinum er í raun það augnablik þegar maður veit að myndin er orðin til,“ segir Ari. Í listsköpun sinni fæst Ari fyrst og fremst við málverkið, og teljast verkin sem hann sýnir í Húsi mál- aranna til afstrakt expressjónisma. „Málmur, járn og eldsmíði eru efni og aðferð sem ég hef einnig fengist dálítið við en annars er það fyrst og fremst málverkið sem ég er að vinna með,“ segir Ari. Sýningin „Augnablik…“ stendur til 23. júní. Hús málanna, Eiðistorgi 11, er opið frá fimmtudegi til sunnu- dags milli kl. 14 og 18. Augnablikið þegar allt gengur upp „Nóttin hefur þúsund augu“ eftir Ara Svavarsson. Akrýl á tré. Árbæjarsafn Eftir hádegi verður fræðsla og spjall um íslensk grös og lækningajurtir á Kornhúsloftinu. Dagskráin hefst kl. 13 en kl. 13.30 flytur Elín Soffía Ólafsdóttir, lyfja- fræðingur og dósent við Háskóla Ís- lands, fyrirlestur sem hún nefnir: Lyfjafræðin og lífríkið. Auk þess kynna ýmsir aðilar framleiðslu sína og spjalla við gesti um íslenskar jurtir og nýtingu þeirra. Meðal þátt- takenda eru: Ævar Jóhannesson, Sólheimar í Grímsnesi, Íslensk fjallagrös, Sandur – jurtate, Íslensk Fjallagrös– Lyfjaverslun Íslands, og Heilsujurtir. Í Árbænum verður síð- an kynnt jurtalitun. Klukkan 14 hefst dagskráin Spek- úlerað á stórum skala í húsinu Lækj- argötu 4. Þar býður Þorlákur Ó. Johnson upp á skemmtun í anda lið- ins tíma. Þar fá gestir innsýn í lífið í Reykjavík á 19. öld. Auk þess verður boðið upp á hefðbundna sunnudags- dagskrá, handverksfólk verður í húsunum, teymt verður undir börn- um og í Dillonshúsi verður boðið upp á ljúffengar veitingar. Árbæjarsafn er opið frá kl. 10–18 um helgar. Einnig er opið þriðjudaga til föstu- daga kl. 9–17 en á mánudögum er Árbærinn og kirkjan opin frá kl. 11– 16. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is GUNNHILDUR Una Jónsdóttir opnar sýningu sína í GUK+; SPACEMAN í dag, sunnudag. Opn- unin verður kl. 2 á Íslandi en kl. 4 í Danmörku og Þýskalandi. GUK+ býður listamönnum að sýna verk á fjórum stöðum samtímis: í garði á Selfossi, garðhýsi í Lejre, Danmörku, gangi í Hannover, Þýskalandi, og á skjá fartölvu sem verður í Berlín í Þýskalandi á opn- unardaginn. Verkin sem Gunnhildur Una hefur gert fyrir sýninguna tengjast öll inn- byrðis. Á ganginum í Hannover sýnir Gunnhildur Una teikningu í raun- stærð af rússneska geimfaranum Yuri Gagarin í fari sínu Vostok1. Frá útvarpi á ganginum mun berast upp- taka af útsendingu sovéska ríkisút- varpsins frá 12. apríl 1961. Í garð- inum á Selfossi gefst gestum tækifæri til að sigrast á aðdráttarafli jarðar eitt augnablik og á skjá far- tölvunnar má leika tölvuleikinn SPA- CEMAN. Á opnunardaginn mun fallhlífarstökkvari í geimbúningi lenda á akri nálægt sýningarstað GUK+ í Lejre en þar verður geim- búningurinn til sýnis út sumarið. Sýnir í GUK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.