Morgunblaðið - 09.06.2002, Side 31

Morgunblaðið - 09.06.2002, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 31 ELFAR Guðni sýnir þessa dagana málverk í Svartakletti, Hafnargötu 9 á Stokkseyri. Þetta er 38. sýning hans en á henni eru myndir mál- aðar með olíu á striga. Fjarlægðir og dulúð eru ríkjandi. Einnig eru til sýnis möppur sem Elfar hefur mál- að á. Sýningunni lýkur í dag, sunnu- dag. Hún er opin frá kl. 14 til 22. Elfar Guðni á vinnustofu sinni. Fjarlægðir og dulúð 23. árgangur tímaritsins Íslenskt mál og almenn málfræði er kominn út. Efnið er fjölbreytt að venju og í heftinu er m.a. fjallað um orðaröð í aukasetningum, tungutækni, nýju þolmyndina svokölluðu, hljóð- fræðileg einkenni íslenskra lok- hljóða, kvenkyn og karlkyn, nafnið Blær, málfræði Björns Guðfinns- sonar, rím og stuðla, hjálparsagna- sambönd, dönsk tökuorð í heim- ilishaldi o.fl. Auk þess eru ritdómar og ritfregnir í heftinu, en það er alls um 320 bls. að stærð. Ritstjóri er Höskuldur Þráinsson en Íslenska málfræðifélagið gefur tímaritið út. Heftið kostar kr. 3.490 í almennri áskrift en háskólanemar njóta sér- kjara. Málvísindastofnun Háskóla Íslands sér um afgreiðslu og þar eru allir eldri árgangar tímaritsins einnig fáanlegir á sérstöku tilboðsverði. Tímarit alltaf á þriðjudögumÍÞRÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.