Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 35
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 35
Hrauneyjafossstöð opnar um helgina!
Nánari upplýsingar á www.lv.is og í síma 515 9000.
Heimsækið Hrauneyjafossstöð og skoðið sýningu á tillögum í samkeppni um
útilistaverk við Vatnsfellsstöð, nýjustu aflstöð Landsvirkjunar.
Í Hrauneyjafossstöð gefur einnig að líta veggspjöld sem skýra frá rannsóknum
á náttúru Íslands sem Landsvirkjun hefur stuðlað að.
Verið velkomin!
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
0
6
6
0
0
•
sia
.is
framhaldsskóli í Grafarvogi
Borgarholtsskóli
Innritun nýnema á haustönn 2002
fer fram í skólanum 10. og 11. júní kl. 11.00-18.00
Í boði eru eftirtaldar námsbrautir:
Bóknám til stúdentsprófs
Félagsfræðabraut: Áhersla á félags- og hugvísindi. Góður grunnur að háskólanámi í félags-,
uppeldis- og umönnunargreinum.
Náttúrufræðibraut: Áhersla á stærð-, eðlis-, efna- og líffræði. Góður grunnur að háskólanámi í
verkfræði, læknisfræði o.fl. greinum.
Málabraut: Fjögur erlend tungumál í kjarna. Góður grunnur að háskólanámi í erlendum
tungumálum og málvísindum.
Listnám
Margmiðlunarhönnun: Listir og menning, myndvinnsla og margmiðlunarverkstæði. Góður grunnur
að námi í listaháskólum.
Iðnnám - Starfsnám
Bíliðnir: Réttindi til starfa í bíliðngreinum að loknu sveinsprófi og til náms í
meistaraskóla.
Félagsliðabraut: Fagnám fyrir störf í félagsþjónustu- og uppeldisstofnunum með áherslu á
sálfræði, uppeldi, umönnun og fatlanir.
Málmiðnir og pípulagnir: Réttindi til starfa í málmiðnum og pípulögnum að loknu sveinsprófi og til
náms í meistaraskóla.
Fagnám fyrir störf á fjölmiðlum og við upplýsingamiðlun í stofnunum og
fyrirtækjum með áherslu á fjölmiðlatækni og vefsmíði.
Verslunarbraut: Fagnám fyrir störf í verslun og viðskiptum með áherslu á rekstur, fjármál,
tölvur og viðskipti.
Upplýsinga- og
fjölmiðlabraut:
Almenn námsbraut
Almenn námsb. I og II: Nám fyrir þá sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á ofangreindar námsbrautir
eða eru óákveðnir.
Upplýsingar um inntökuskilyrði á einstakar brautir eru á heimasíðu.
Borgarholtsskóli, v. Mosaveg, 112 Reykjavík. Sími 535 1700. Bréfasími 535 1701.
Heimasíða: www.bhs.is
kveðja þig, „að það skeður jú ekk-
ert fyrr en maðurinn kemur sem á
að hengja“, enn ein spekin frá þér,
svona munum við um ókomin ár
halda áfram að minnast þín. Þín
verður sárt saknað, en við megum
ekki vera svona eigingjörn og þess
vegna reynum við að samgleðjast
þér að fá að hvíla í friði.
Hjartans þakkir fyrir allt og allt.
Elsku Stína mín ég vona að þú
getir á þessari erfiðu stundu hugs-
að og þið öll um „sporin í sand-
inum“ þar eru á kafla bara ein spor
og það eru spor guðs þar sem hann
ber okkur yfir erfiðleikana, því við
getum ekki orkað að ganga sjálf.
Guð fylgi ykkur öllum.
Sigurlaug Maren Óladóttir.
Elsku afi okkar. Í síðustu viku
fengum við að vita að búið væri að
leggja þig inn á sjúkrahús einu
sinni enn, en við héldum að þú
myndir eins og alltaf rísa upp úr
þessum veikindum. En í morgun
(miðvikudag) fengum við símhring-
ingu frá pabba um að þú værir far-
inn til paradísar. Að sjálfsögðu
vildum við óska þess að við hefðum
fengið tækifæri til að hittast öll í
júlíbyrjun eins og áætlað var, en
vegir Guðs eru órannsakanlegir og
þeim stjórnum við ekki. Eigi ein-
hver skilið hvíldina þá ert það þú
elsku afi.
Á degi sem þessum flæða tilfinn-
ingarnar og minningarnar um í
kollinum á okkur og við eigum erf-
itt með að velja hvað við eigum að
festa á blað til þín, en við viljum að
þú vitir hversu vænt okkur þykir
um þig og þín verður sárt saknað.
Þótt þú sért horfinn úr þessum
heimi vitum við að þú ert hinum
megin og líður vel, ert eflaust kom-
inn í baksturinn ef við þekkjum þig
rétt.
Þú hefur alltaf verið og munt
alltaf verða mikill maður í okkar
huga, þú varst alltaf til staðar ef
eitthvert okkar þurfti á hjálp að
halda, þú gast verið alvarlegur þeg-
ar því var að skipta en það var stutt
í grínið og þinn einstaka stríðnis-
glampa. Þeir eru nú ófáir brand-
ararnir sem hafa skotið upp koll-
inum alveg óvænt í gegnum tíðina.
Okkur ert þú mikil fyrirmynd og þú
hefur kennt okkur marga skemmti-
lega hluti eins og þegar við vorum
yngri og vorum í bakaríinu hjá þér
og ömmu. Þið kennduð okkur að slá
upp kringlum og þið ítrekuðuð allt-
af hversu mikilvægt væri að gera
sitt besta í öllu sem maður tekur
sér fyrir hendur og það elsku afi
höfum við alltaf í huga í hvert sinn
sem við tökum að okkur verkefni.
Takk fyrir allar góðu stundirnar
og við vonum að þú hafir það gott í
himnaríki. Elsku amma, pabbi,
Haukur, Konni og Gullý, megi Guð
gefa ykkur styrk í sorginni.
Ástarkveðjur,
Haukur Friðrik, Guðlaug
Kristín, Þórey Ósk, Guðjón
Óskar og makar í Danmörku.