Morgunblaðið - 09.06.2002, Blaðsíða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 39
Skipasundið. Það var heldur ekkert
smájólaboð, fullt af jólaöli, kokkteil-
pylsum og skinku. Með árunum lærð-
ist mér að fleiri réttir voru til staðar,
kjötbollur, baunir, kalt lambakjöt og
svo auðvitað Janson. Á þessum eft-
irmiðdögum fór Eric á kostum. Hann
hellti í glösin, fór með gamanmál og
skálaði að hætti sænskra heldri-
manna. „Skol, Matte mínn.“ Hann var
eiginlega allt í öllu, meira að segja
jólaglöggin var hans privatuppskrift.
Eric var líka einstakur sjentilmaður.
Kom alltaf með blóm handa kokknum
þegar hann kom í matarboð. Minning-
arnar eru óteljandi og ylja mér um
hjartarætur.
Ég hitti Eric seinast í mars síðast-
liðnum í brúðkaupi mínu og Döllu í
Þórsmörk. Aðeins þeim allra nánustu
boðið. Mikið ævintýraferðalag. Sig-
rún og Eric voru nýkomin frá Banda-
ríkjunum og Eric hafði verið með þrá-
láta flensu. Hann vildi þó endilega
koma þrátt fyrir viðsjárverð veður.
Við hjónin að bjóða til veislu og í Eric
hafði ég mína fyrirmynd sem gest-
gjafi. Kvöldið var yndislegt, borðhald-
ið langt og ræður margar. Enginn
hefði rennt í grun að þetta mundi
verða síðasta veislan okkar saman.
Rétt eftir brúðkaupið greinist Eric
með sitt banamein. Dauðinn bankaði
fast og vildi ekki bíða.
Elsku Sigrún mín, Björn, Elisabet
og Eva. Ástvinirnir deyja aldrei með-
an minningarnar lifa. Þeir eru svo
mikill hluti af manni að án þeirra væri
maður ekki til. Sá sem sagði „Matte
mínn“ mun hverfa en hann verður
ennþá til í minningunni um góðan
dreng.
Matthías Sigurðarson.
Það er ótrúlegt að hinn lífsglaði og
góði vinur okkar Eric Hallbeck sé dá-
inn. Hann sem var jafnan svo hress og
kátur, léttur á fæti og virtist fær í
flestan sjó.
Kynni okkar hófust fyrir rúmum
tuttugu árum þegar við Sigrún fórum
að vinna saman við sænskukennslu og
varð þegar vel til vina. Eiginmenn-
irnir fundu líka strax til andlegs
skyldleika þar sem þeir þurftu að
hlusta tímunum saman á okkur ræða
ýmis kennslufræðileg vandamál þeg-
ar við hittumst. Þeir eignuðust sam-
eiginlegt áhugamál, hnefaleika.
Tíðindin um veikindi Erics komu
sem mikið áfall fyrir nokkrum vikum,
skömmu eftir að þau Sigrún komu
heim úr heimsókn frá Evu í Las Ve-
gas. Þaðan hafði hann verið ötull við
að senda heim blaðaúrklippur um
hnefaleikakeppnir í Las Vegas. Ófáar
ánægjustundir höfum við karlarnir
átt á undanförnum árum þegar við
vöktum saman til að fylgjast með
spennandi hnefaleikum í sjónvarpinu.
Þá voru oft fjörugar umræður um
frammistöðu keppenda fram undir
morgun.
Hjálpsemi Erics var við brugðið.
Hann var ávallt reiðubúinn að rétta
hjálparhönd ef fjölskylda eða vinir
þurftu á einhverri aðstoð að halda.
Hann var líka gleðimaður mikill, létt-
ur í skapi, hrókur alls fagnaðar og
góður vinur. Það er erfitt að sætta sig
við að Eric sé ekki lengur á meðal
okkar. Hans er sárlega saknað.
Við vottum Sigrúnu, Evu, Elisa-
betu, Birni og fjölskyldum þeirra inni-
lega samúð vegna þessa ótímabæra,
skyndilega fráfalls.
Ingegerd og Guðmundur.
Yndislegur nágranni minn og góð-
ur vinur Eric Hallbeck verður borinn
til grafar á morgun. Ekki óraði mig
fyrir því þegar ég flutti í kjallara-
íbúðina mína í Skipasundinu fyrir átta
og hálfu ári, nýfráskilin og einstæð
móðir, að ég væri þá ekki bara að
eignast mitt framtíðarheimili heldur
einnig þá bestu nágranna sem nokkur
maður gæti hugsað sér. Á þessum
tíma var álit mitt á mannkyninu í
heild ekki sem best og hafði ég ekki
hugmynd um að til væri jafn yndis-
legt fólk og þau Sigrún og Eric sem
tækju mér bláókunnugri manneskj-
unni svo opnum örmum. Það er ótrú-
legt að hugsa til þess en allan þann
tíma sem ég hef búið hér hef ég aldrei
mætt öðru en jákvæði, velvilja og tak-
markalausum stuðningi frá þeim. Það
var alveg sama hvort sonur minn
sparkaði niður öllum páskaliljunum í
fótboltaleik eða glamraði á píanóið,
maður fékk aldrei að heyra annað en
að blessuð börnin yrðu nú að fá að
leika sér og það væri svo gaman að
hlusta á hann spila. Það kom fljótlega
í ljós að Eric nágranni minn var verk-
laginn maður og lét sig ekki muna um
að klifra upp á þak og laga fyrir mig
loftnetið, losa um stíflur í handlaug-
inni, gera við sprungið dekk á hjóli
sonar míns og svona mætti endalaust
telja upp. Öll þessi hjálp var ómet-
anleg einstæðri móður sem ekki hafði
mikla reynslu af að bjarga sér í hörð-
um heimi. Ég mun aldrei gleyma því
þegar ég kom heim ein af fæðingar-
deildinni með yngri son minn og Eric
mætti mér brosandi með blómvönd,
bauð mig velkomna heim, óskaði mér
til hamingju og skrúfaði í leiðinni fyrir
mig fótinn undir vögguna sem ég
hafði fengið lánaða.
Elsku Eric, ekki grunaði mig þegar
þú talaðir við mig út um gluggann fyr-
ir nokkrum vikum að þetta yrði í síð-
asta skiptið sem við töluðum saman.
Þú barst þig svo vel að þó ég vissi að
þú værir veikur þá vildi ég ekki trúa
því að þetta væri svona slæmt, ég var
svo viss um að þér mundi batna. Ég
ætlaði að koma upp og heimsækja þig
um helgina en þá varð Guðmundur
minn svo veikur að ég ákvað að bíða
með það svo ég smitaði þig ekki, ég
vissi ekki að við hefðum svona stuttan
tíma. Það hefur verið þungt yfir hús-
inu okkar þessar síðustu vikur. Það
hefur verið svo skrýtið að hafa þig
ekki úti að stússast í garðinum eins og
þú ert vanur og nú ert þú farinn. Ég
veit þetta eru fátækleg orð en mig
langar að þakka þér fyrir alla hjálpina
og umhyggjuna gagnvart mér og
strákunum mínum. Það verða mikil
viðbrigði að geta ekki lengur sótt til
þín ráðleggingar og hugmyndir. Ég
mun alltaf geyma allar góðu minning-
arnar um glaðlyndi þitt og skemmti-
legu samverustundirnar okkar. Vin-
átta þín hefur gert mig að betri
manneskju.
Elsku Sigrún, Eva, Björn, Elísabet
og fjölskyldur, ég bið góðan Guð að
styrkja ykkur og umvefja. Ég veit að
Guð mun launa Eric ríkulega öll góðu
verkin og velviljann.
Þorgerður Guðmundsdóttir.
Það var fyrir rúmlega 30 árum að
Eric kom til starfa á Teiknistofu Sam-
bandsins, þar sem hann var til ársins
1986 er hann ásamt okkur vinnufélög-
unum stofnaði Nýju teiknistofuna
ehf.
Síðustu árin starfaði hann á öðrum
vettvangi, en var duglegur að heim-
sækja okkur enda virkasti félaginn í
útgerðarfélagi teiknistofunnar meðan
það var og hét.
Hann kom síðast í heimsókn á stof-
una um miðjan apríl, sýndi okkur þá
myndir af byggingum og sagði okkur
frá athyglisverðri ferð þeirra hjóna til
Bandaríkjanna, til Evu dóttur þeirra
um jólin.
Hann minntist á að hann hefði
veikst lítillega þarna úti og hefði verið
hálfslappur síðan, sem hann taldi þó
ekki vera neitt alvarlegt og áætlaði
frekari ferðalög með hækkandi sól.
Ekki hvarflaði þá að okkur að svo
stutt væri í hinstu ferðina, enda Eric
líflegur persónuleiki, hraustlegur og
ekki nema 68 ára gamall.
Eric er sá þriðji úr okkar hópi sem
við kveðjum á allt of stuttum tíma og
viljum við þakka honum samstarfið
og vináttuna.
Sigrúnu, Elísabetu, Evu, og Birni
og fjölskyldum þeirra vottum við okk-
ar innilegustu samúð og óskum þeim
Guðs blessunar.
Vinnufélagar á Teiknistofu
Sambandsins og Nýju teikni-
stofunni.
Menntaskólinn við Hamrahlíð varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá Eric
Hallbeck til starfa við skólann haustið
1997 og nutum við starfskrafta hans
þar til hann fór á eftirlaun fyrir tæpu
ári. Störf hans voru fjölbreytt og
kröfðust þess að hann hefði mikil
samskipti við flesta starfsmenn skól-
ans. Það er lýsandi fyrir Eric að hon-
um tókst alltaf að leysa málin þannig
að allir voru ánægðir. Það er ekki svo
lítið afrek í stórum skóla þar sem allir
hafa skoðanir á hvernig best er að
gera hlutina og allt átti helst að gerast
í gær. En Eric var þannig gerður að
málin virtust leysast af sjálfu sér.
Húmor, hlýja og gleði einkenndu
hann. Við í MH höfum misst góðan
vin og erum harmi slegin yfir því hve
stutt hann fékk að njóta frjálsu ár-
anna eftir að vinnu hjá okkur lauk.
Sigrúnu konu hans, sem var kennari
og deildarstjóri við skólann í fjölda-
mörg ár, vottum við okkar dýpstu
samúð, svo og börnum þeirra þremur.
Lárus H. Bjarnason,
Sigurborg Matthíasdóttir,
Kristín Guðmundsdóttir.
!
" # $%&'&
"( )& * # $%&'&
" + '& , " *
*$ - ., !
!"
# #$ %
& ' %
() '*"+ !"
,- %
+ + '%'+ + +
! "# !$$%
!
"# "$$#
!
"#$! % & '# !
( ') !
&**+)
Kransar - krossar
Kistuskeytingar • Samúðarvendir
Heimsendingarþjónusta
Eldriborgara afsláttur
Opið sun.-mið. til kl. 21
fim.-lau. til kl. 22
við Nýbýlaveg, Kópavogi
!
"##
!
" #!$!%#
&% '! !(
! " #
$ % & #
# !' ! (
! "#
$%&'( '
)*+%!! (+!'&+ ,