Morgunblaðið - 09.06.2002, Page 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 9. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FURUBYGGÐ 4 - Mosfellsbæ
Fallegt 108 fm raðhús á rólegum
stað. 3 svefnherb, gott eldhús,
baðherbergi með kari. Stór stofa
með sólskála. Góður garður í
suður. Stutt í leikskóla. Fallegt og
gróið hverfi. Verð kr. 14,9 m. Áhv.
8,7 m. Til afhendingar strax.
Húsið er til sýnis í dag
á milli kl. 13 og 16,
Uppl. gefa Einar s. 899 5159
og Ingibjörg s. 899 9983.
Opið hús í dag frá kl. 13-16
Borgartúni 22,
105 Reykjavík,
sími 5-900-800.
Vorum að fá í sölu sérlega glæsilega
og vel skipulagða 133 fm íbúð í
þessu fjölbýli ásamt 24 fm bílskúr.
Íbúðin skiptist í aðalhæð með stórri
stofu, glæsilegu eldhúsi og baðher-
bergi, þvottahúsi og tveimur her-
bergjum. Tvennar svalir, suður og
vestur. Vandaður og rúmur sérsmíð-
aður stigi upp í risið en þar eru tvö
stór herbergi og góð sjónvarpsstofa
eða vinnuaðstaða. Áhv. 8,8 millj. hagstæð lán. Verð 16,7 millj.
Árni og Helga taka á móti gestum í dag á milli kl. 14 og 16.
REYKÁS 45 - HÆÐ+RIS
5 - 6 HERB. ÁSAMT BÍLSKÚR
Glæsilegt 243 fm einbýlishús ásamt
33 fm bílskúr, staðsett á besta stað
í Skógahverfinu með mjög fallegu
útsýni. Húsið skiptist í sérrými á
jarðhæð sem er 104 fm og getur
auðveldlega nýst sem 3ja herbergja
séríbúð. Aðalhæðin er 139 fm. og
skiptist í forstofu, hol, hjónaher-
bergi, barnaherbergi, stóra stofu,
borðstofu og glæsilegt stórt eldhús sem er allt endurnýjað á vandaðan
hátt. Svalir eru til suðurs. Í risi er eitt stórt herbergi. Áhvílandi eru 8,2 millj.
mjög hagstæð lán. Verð 24,9 millj.
Ragnheiður tekur á móti gestum í dag á milli kl. 14 og 16
LJÁRSKÓGAR 18 - EINBÝLI
Mjög góð 3ja herbergja 83 fm íbúð
á 1. hæð í góðu fjölbýli. Verið er að
laga og mála húsið að utan, greið-
ist það á kostnað seljanda. Parket
á flestum gólfum, góðar suðursval-
ir og nýlegt baðherbergi flísalagt í
hólf og gólf. Áhv. 6,8 millj. húsbréf
Verð 11,1 millj.
Gunnar og Katrín taka á móti
gestum í dag á milli kl. 14 og 16.
HJARÐARHAGI 32 - 3JA HERBERGJA
OPIN HÚS Í DAG
Eftirtaldar eignir eru til sýnis í dag á milli kl. 14 og 16
Hóll býður þér og þínum að skoða þetta
glæsilega og vel staðsetta parhús efst í
Áslandshverfinu. Húsið er mest allt á einni
hæð, samtals 225,8 fm, þar af er bílskúr
31 fm. Húsið er ríflega tilbúið til innréttinga.
Fjögur til fimm rúmgóð svefnherbergi. Stór
og björt stofa. Útsýnið er ekki af verri endanum og nær yfir mest allan bæinn
og út á sundin blá. Áhv samtals ca 11,5 millj. húsbréf og gott bankalán. Verð
21,7 millj. Árni sölumaður Hóls ásamt eiganda verða á staðnum milli kl.
14 og 16 í dag. Kíktu við og skoðaðu þessa skemmtilegu eign með
þessu óviðjafnanlegu útsýni.
SÖLUSÝNING Í DAG
að Þrastarási nr 39 í Hafnarfirði.
Um er að ræða þetta einstaka hús á Funa-
höfða nr. 17A í Rvk sem innréttað hefur
verið á veglegan máta. Eignin hefur
samtals 43 herbergi. Húsið er samtals ca.
1700 fm að stærð og er á 3 hæðum. Mög-
ul. er á að bæta við 7 herbergjum. Á efstu
hæðinni eru 17 herbergi, þar af eru 6 her-
bergi með fullbúnum baðherb. Stærð her-
bergja eru frá 15-30 fm. Á hæðinni er eldhús og fjórar sameiginl. snyrtingar.
Miðhæðin hefur 27 herbergi, þar af 4 með sérbaðherbergi. Vegleg tvö eldhús
og fjögur baðherbergi. Á jarðhæð eru fjögur alhliða verslunar- eða iðnaðar-
rými í útleigu. Eigninni hefur verið vel við haldið og er sérlega snyrtileg.
Traustur rekstur og miklir tekjumöguleikar með lítilli fyrirhöfn. Tilvalið fyrir öfl-
ugan einstakling eða fyrirtæki í svipuðum rekstri.
Allar nánari uppl. gefa Ágúst í síma 894-7230
eða Franz í síma 893-4284.
Til sölu heil húseign sérhæft í
herbergjaútleigu og í fullum rekstri.
Um er að ræða einstaklega fallega og
bjarta samt. 118 fm 4-5 herbergja íbúð á 1
hæð í þessu netta fjölbýli. Húsið er byggt
1983. 3 góð svefnherb. á hæðinni og
aukaherb. á jarðhæð m. aðgengi að snyrt-
ingu. Stór stofa með útg. út á suður-
grillsvalir. Sérlega fallegt eldhús og gott
baðherbergi. Þvottaherb. í íbúð. Barnvænt hverfi. Stutt í útivistarparadísina í
Öskjuhlíð og Nauthólsvík. Eignir sem þessar liggja ekki á lausu. Verð 18,3
millj. Láttu sjá þig og Þórunn tekur vel á móti þér .
Opið hús í dag frá kl 14-16.
Markarvegur nr. 15 í Fossvogi
Aðeins tvö hús eftir. Stórglæsileg 150 fm
raðhús á góðum útsýnisstað í Garðabæ. 4
svefnherbergi, sérlega björt stofa með
stórum útsýnisgluggum. Húsin eru fullbúin
að utan og fokheld að innan. Til afhending-
ar nú þegar. Verð 14,5 millj. (1564)
Renndu framhjá og skoðaðu þessi hús
þú verður ekki fyrir vonbrigðum.
Birkiás 33 og 35 Garðabæ
Skúlagata 17
Sími 595 9000
Fax 595 9001
holl@holl.is - www.holl.is
Alltaf rífandi sala!
Grjótagata 7 og Túngata 6 eru til leigu/sölu. Húsin eru tengd
með vandaðri glerbyggingu og gefa mikla möguleika, s.s.
fyrir félagasamtök, stofnanir, þjónustustarfsemi eða til íbúðar.
Níu bílastæði fylgja eigninni.
Upplýsingar veita Hallur A. Baldursson í síma 896 1247 og
Birgir Ingólfsson í símum 570 8735 og 562 8038.
Frábær
staðsetning og 9 bílastæði
Sími 575 8500 • Fax 575 8505
Síðumúla 11 • 2. hæð • 108 Reykjavík
Opið hús – Hrauntunga 71
Í dag, á milli klukkan 14 og 16,
verður raðhúsið í Hrauntungu 71,
Kópavogi, til sýnis. Húsið er 214,3
fm að stærð á tveimur hæðum og
eru í því í dag þrjár íbúðir. Aðalíbúð-
in er með 3-4 svefnherb., eldhús
með nýlegri innréttingu, stór flísa-
lögð stofa með útgangi út á um 47
fm sólríkar svalir og nýuppgert bað-
herbergi. Á jarðhæð hússins er
tveggja herb. íbúð og ein stúdíó-
íbúð. Hægt að hafa góðar leigutekj-
ur af þeim. Húsið er nýmálað og sprunguviðgert að utan og er eignin í
heild í góðu ástandi. Magnús tekur á móti gestum. Áhv. eru 17,8 m., ásett
verð er 22,4 m.
533 4300 564 6655
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-17
Í GILJALANDI 22
Mjög gott pallaraðhús ásamt bílskúr, samtals
210 fm. Stór og björt stofa sem hægt væri
að skipta. 4 svefnherb. með skápum, einnig
fataherb. Nýtt parket á gólfum. Stórar suður-
svalir. Fallegur suðurgarður. Stutt í verslanir
og skóla. Rólegt og barnvænt hverfi. Skipti
koma til greina á ódýrari eign. Verð 20,8 m.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá stjórn
BSRB:
„Stjórn BSRB tekur undir með
samtökum íslenskra sjómanna og
krefst þess að íslensk stjórnvöld
tryggi að Atlantsskip ehf. fylgi
ákvæðum samnings vegna flutninga
fyrir bandaríska herinn á Íslandi og
fari um leið að samkomulagi aðila á
íslenskum vinnumarkaði. Treysti
stjórnvöld sér ekki til þess, ógildi
þau samninginn við Atlantsskip ehf.
á grundvelli vanefnda eða sjái til
þess í öllu falli að samningurinn
verði ekki framlengdur þegar þessu
tímabili lýkur.
Atlantsskipum ehf. hefur verið fal-
ið af stjórnvöldum, skv. samningi þar
að lútandi, að sjá um hinn íslenska
hluta flutninganna. Atlantsskip ehf.
hafa hins vegar falið ýmsum erlend-
um skipafélögum að gera út skip til
flutninganna og í öllum þeim tilvik-
um ganga ráðningarkjör áhafna
þessara skipa þvert á þær reglur
sem gilda á íslenskum vinnumarkaði.
Atlantshafsskip ehf. brjóta því ekki
aðeins gegn samningum íslenskra
kaupskipaútgerða og sjómanna,
heldur brýtur fyrirtækið um leið
samninginn sem þeir fengu frá rík-
isstjórninni.
Sú sátt sem náðist milli íslenskra
kaupskipaútgerða og sjómanna árið
2000, felur í sér að íslenskir kjara-
samningar skuli gilda um allar fastar
áætlunarsiglingar. Er það grund-
vallaratriði í baráttu verkalýðshreyf-
ingarinnar að standa vörð um þau
kjör sem gilda á almennum vinnu-
markaði viðkomandi landa.“
BSRB styð-
ur samtök
sjómanna
„ATLANTSSKIP fara eftir þeim
lögum sem gilda í samfélaginu og
er krafa BSRB á misskilningi
byggð,“ segir í frétt frá Atlants-
skipum.
„Atlantsskip eru ekki aðili að fé-
lagi íslenskra kaupskipaútgerða og
eru því ekki bundin af samningum
sem það félag gerir.
Samningur Atlantsskipa við
flutningadeild Bandaríkjahers hef-
ur verið í gildi í rúm þrjú ár en
samningurinn er til fimm ára. Atl-
antsskip uppfylla öll ákvæði þess
samnings.
Atlantsskip hafa verið í forystu í
samkeppni á flutningamarkaðnum
frá því þau hófu starfsemi fyrir
fjórum árum. Á þeim tíma hafa
neytendur séð stórlækkuð farm-
gjöld á milli Íslands og Bandaríkj-
anna. Nú hafa Atlantsskip hafið
Evrópusiglingar við góðar undir-
tektir og bjóða þar hagstæðari kjör
en áður hafa sést. Þetta mun án efa
skila sér í lægra vöruverði í land-
inu sem kemur öllum skjólstæð-
ingum BSRB til góða.
Því er undarlegt þegar verka-
lýðsfélög ráðast að fyrirtækjum
sem leggja lið í að auka samkeppni.
Ef menn vilja breyta lögum, þá er
það Alþingi sem gerir það, en það
hlýtur að vera grundvallaratriði að
fyrirtæki fái að starfa í friði svo
lengi sem þau fara eftir lögum og
reglum líkt og Atlantsskip hafa
alltaf gert,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Atlantsskipum.
Segja kröfu
BSRB byggða
á misskilningi
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
flísar