Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GRO Harlem Brundtland, yfirmaður
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar,
WHO, kynnti í gær á alþjóðlegri
krabbameinsráðstefnu í Osló áætlun
og leiðbeiningar um krabbameins-
varnir sem ætlað er að draga úr ný-
gengi og dauðsföllum af völdum
krabbameins.
Áætlunin og leiðbeiningarnar eru
ætlaðar heilbrigðisyfirvöldum sem
líkan í baráttunni gegn krabbameini
og segir Brundtland að unnt væri að
bjarga milljónum mannslífa ár hvert
ef menn nýttu sér þá þekkingu og að-
ferðir sem fyrir hendi eru til að forð-
ast krabbamein og meðhöndla það.
Fram kom í máli hennar að með
núverandi þekkingu sé unnt að forð-
ast um það bil þriðjung tilfella sem
upp koma ár hvert um heim allan.
„Þar sem aðstæður eru fyrir hendi
hvetur þekking okkar til greiningar
krabbameinssjúkdóma sem fyrst og
við þekkjum leiðir til árangursríkrar
meðferðar á einum þriðja sjúkdóm-
anna,“ sagði Brundtland á blaða-
mannafundi sem efnt var til í Osló í
gær.
Hún segir að beita þurfi líknandi
meðferð til að auka lífsgæði krabba-
meinssjúklinga og fjölskyldna þeirra
og hægt sé að beita henni jafnvel þar
sem efnahagur stendur ekki styrk-
um fótum.
Í frétt frá WHO um nýju aðgerða-
áætlunina segir að ár hvert deyi sex
milljónir manna vegna krabbameins
og gerir stofnunin ráð fyrir að eftir
20 ár muni um 10 milljónir manna
deyja árlega af völdum sjúkdómsins.
Fram kom í máli Brundtland að ár-
lega greinast u.þ.b. 10 milljónir
manna með krabbamein og gerir
stofnunin ráð fyrir að fjöldi greindra
tilfella verði komin upp í 15 milljónir
eftir 20 ár.
Bjarga má/12
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kynnti verkefnaáætlun í
baráttunni gegn krabbameini á blaðamannafundi í gær
Unnt að forðast um þriðjung
krabbameinstilfella á ári
Osló. Morgunblaðið.
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isMarkvörðurinn Oliver Kahn
fékk uppreisn æru /B4
Framarar fögnuðu sigri
í bikarnum í vesturbænum /B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
RANNSÓKNARNEFND flugslysa
hefur nú lokið frumrannsókn á flug-
atviki sem varð er loftskrúfa flugvél-
arinnar TF-ULF brotnaði á flugi yf-
ir Breiðafirði 21. júní síðastliðinn.
Flugvélin er eins hreyfils af gerðinni
Jodel og var henni nauðlent við bæ-
inn Á á Skarðsströnd. Tveir menn
voru um borð og sakaði hvorugan.
Frumrannsókn bendir til þess að
loftskrúfan hafi brotnað við sprungu
sem myndaðist vegna málmþreytu á
framhlið annars blaðsins og því hafi
hluti skrúfunnar brotnaði af.
FLUGVÉL Landgræðslu ríkisins,
sem ber heitið Páll Sveinsson, hefur
lokið störfum í sumar. Að sögn
Sveins Runólfssonar landgræðslu-
stjóra tókust verkefni sumarsins
giftusamlega. Vélin dreifði liðlega
400 tonnum af áburði og grasfræi á
Suðurlandi, húnvetnsku heiðunum,
á Reykjanesskaga og í umhverfi
Þorlákshafnar. Samtals fór vélin í
um það bil 140 til 150 flugferðir í
sumar og flugu flugmenn Flugleiða
vélinni endurgjaldslaust eins og
undanfarin 29 sumur.
Í gær var vélin þvegin og bónuð
en henni verður síðan komið fyrir í
skýli á Reykjavíkurflugvelli. Í vetur
fer þar fram árlegt eftirlit og við-
hald á vélinni og verður hún tilbúin
í slaginn næsta vor. Þá verður flug-
vélin, sem er af gerðinni DC-3, 60
ára. Verða þá liðin 30 ár frá því hún
hóf að dreifa áburði og grasfræi en
landgræðsluflug hófst á Íslandi
1958. Sveinn segir að á síðari árum
hafi dregið verulega úr því magni
sem dreift er með flugvél því bænd-
ur hafi tekið þau verkefni að sér
þar sem það er gerlegt að dreifa
með dráttarvélum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson var þrifin hátt og lágt í gær að loknu áburðarflugi í sumar.
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson
Dreifði um 400 tonn-
um af áburði í sumar
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum í gær að veita sam-
gönguráðherra, Sturlu Böðvarssyni,
heimild til að undirbúa þátttöku rík-
isins í undirbúningsfélagi að lagn-
ingu sæstrengs milli Íslands, Fær-
eyja og Skotlands. Jafnframt var
ákveðið að stefnt skyldi að því að rík-
ið legði fram allt að 9 milljóna króna
hlutafé í undirbúningsfélagið. Aðrir
aðilar að félaginu verða Landssími
Íslands og Föroya Tele, en hlutur
þess fyrrnefnda í félaginu verður
50% og hlutur þess síðarnefnda 20%.
Þar með yrði hlutur ríkisins 30%.
Samtals er áætlað að hlutafé félags-
ins verði 30 milljónir kr.
Í minnisblaði ráðherra til ríkis-
stjórnarinnar segir m.a. að Síminn
og Föroya Tele hafi átt í viðræðum
um stofnun fyrirtækis um lagningu
sæstrengs, sem hlotið hafi vinnuheit-
ið Farice. „Slíkur strengur ásamt
Cantat 3 myndi tryggja viðunandi
fjarskiptasamband Íslands við út-
lönd til næstu ára eða fram á næsta
áratug þessarar aldar. Opinberir að-
ilar þurfa að koma að því að tryggja
rekstrarumhverfi Farice en hefjast
þarf handa við undirbúning fjár-
mögnunar sem fyrst.“
Undirbúningsfélag að
lagningu sæstrengs
SAMÞYKKT var á ríkisstjórnar-
fundi í gær að gera breytingar á
Íbúðalánasjóði sem heimila sjóðnum
að ganga til nauðasamninga. Að sögn
Tómasar Inga Olrich menntamála-
ráðherra lagði ráðherrann til á rík-
isstjórnarfundi í maí að skipuð yrði
ráðherranefnd fjögurra ráðuneyta
til að fara yfir rekstrarvanda Fé-
lagsíbúða iðnnema og hvort stjórn-
völd gætu komið til aðstoðar.
Stjórn Félagsíbúða hafði áður leit-
að til ráðuneytisins vegna erfiðrar
rekstrarstöðu og óskað eftir fjár-
hagsaðstoð.
Málið var skoðað í fjórum
ráðuneytum
„Ég lagði til að þetta yrði skoðað
af fjórum ráðuneytum, þ.e. auk mín
voru í því fjármálaráðherra, félags-
málaráðherra og iðnaðarráðherra.
Sú athugun liggur nú fyrir og nið-
urstaðan er sú að það væri eðlilegast
að gera breytingar á lögum um
Íbúðalánasjóð sem heimila sjóðnum
að ganga til nauðasamninga.“
Menntamálaráðherra segir að þar
eð málið varði breytingar á lögum
um Íbúðalánasjóð sé það í höndum
félagsmálaráðherra, sem muni
væntanlega leggja fram frumvarp
þar að lútandi í haust. Hann segir að
fari málið í þann farveg ætti það að
gefa aðilum málsins svigrúm til þess
tíma til að finna lausn.
Samþykkt að gera breytingar á Íbúðalánasjóði
Sjóðnum verði heimilt að
ganga til nauðasamninga
LANDSMÓT hestamanna á Vind-
heimamelum fer sannarlega vel af
stað í fögru veðri þar sem hitamæl-
ar náðu að teygja sig upp í fimmtán
gráðurnar og „Melarnir“ skarta
sínu fegursta. Aðstaðan virðist lofa
mjög góðu og ekki annað að heyra
en mannskapnum sem kominn er á
staðinn líki lífið hér vel.
Þoka frá Hólum skaust í efsta
sæti hryssna sjö vetra og eldri og
Berglind Rósa Guðmundsdóttir og
Þjótandi frá Svignaskarði eru efst
að lokinni forkeppni í ungmenna-
flokki þar sem keppnin er geysi-
hörð og ljóst að enginn getur bókað
sigur þar.
Vel á annað þúsund manns voru
komnir á svæðið síðdegis í gær og
voru forráðamenn mótsins afar
ánægðir með aðsóknina, sögðu
hana mjög svipaða því sem vænst
hefði verið á fyrsta degi.
Hestakostur mótsins veldur
ekki vonbrigðum og hefur það ekki
verið síðri skemmtun að horfa á
hina snjöllu knapa mótsins æfa
hesta sína á góðum völlum Vind-
heimamela. Þar hefur mátt sjá
mörg gammagripin og hreyfinga-
fegurð gæðinganna. Stefnir hér
greinilega í frábært mót.
Landsmót hestamanna er hafið
Ánægja með
upphaf mótsins
Vindheimamelum. Morgunblaðið.
Stúlkurnar/37
Flugatvik á Breiðafirði
Málmþreyta
í skrúfublaði
♦ ♦ ♦