Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 25
liður í því hve illa hefur stundum tekist til við að taka á þess- um nýju ógnum. Þekkingar- vandi FBI Sem dæmi má nefna að einstaka starfmenn FBI, bandarísku alríkis- lögreglunnar, voru komnir á snoðir um flugnám hryðju- verkamannana sem unnu síðar verk sín 11. september. Nokkrir FBI-menn lögðu sig í líma við að fá yfirmenn sína til að kanna betur hvað hér væri á seyði. Yfirboðarar þeirra brugðust hins vegar seint og illa við og því fór sem fór, skv. nýjustu fréttum New York Times. Ástæður þessa voru ekki endi- lega vanhæfni yfirmanna heldur ástæður af menningarlegum og stjórnunarlegum toga, en þetta eru einmitt uppáhaldsviðfangsefni þekkingarstjórnunar. Yfirmenn óttuðust að sérstök rannsókn á mönnum frá Miðaust- urlöndum yrði séð sem „racial profiling“, þ.e. kynþáttahatur af því tagi að stjórnvöld ónáða markvisst fólk vegna útlits þess. Íslenska rík- isstjórnin hefur einmitt verið ásök- uð um „sérstaka tegund kynþátta- haturs“ í tengslum við að meina fólki af asískum uppruna að komast til landsins og var þá væntanlega átt við „racial profiling“ (sbr. ræðu Steinunnar Valdísar Óskardóttur 17. júní sl.). Ásakanir af þessu tagi eru teknar mjög alvarlega í Bandaríkjunum. Þessi þankagangur virðist hafa heft rannsókn FBI á athöfnum hryðju- verkamannanna. Fleiri vandamál þekkingarmiðl- unar hjá FBI mætti nefna: fjöldi manns starfar þar við þýðingar úr arabísku yfir á ensku (t.d. á efni sem fundist hefur í fylgsnum hryðjuverkamanna) en þetta fólk nýtur ekki mikillar virðingar í því „lögguandrúmslofti sem ríkir hjá alríkislögreglunni“ (tilvitnun úr New York Times). Ábendingar og athugasemdir frá spekingunum við þýðingarnar voru illa nýttar af öðrum starfsmönnum. Það eru einmitt félagslegir „múr- ar“, menningarlegir múrar, deild- armúrar og fagmúrar af þessu tagi sem þekkingarstjórnun bendir á að geti stöðvað þekkingarmiðlun. Skjaladagur FBI Bandaríska alríkislögreglan týndi um daginn skjölum sem vörðuðu annan hryðjuverka- mann, Timothy Mc- Veigh, þannig að fresta varð aftöku hans. Skjöl- in fundust að lokum og McVeigh er kominn til feðra sinna. En skortur á skjala- stjórnun getur einmitt verið liður í þekkingar- vanda vinnustaðar. FBI brást við þessu með því að hafa sérstak- an skjaladag, einn vinnudag þar sem starfsmenn tóku nám- skeið í skjalastjórnun, eða unnu eingöngu að því að huga að skjalastjórnun. Þekkingarauður mældur Þekkingarstjórnun nýtur nú vin- sælda hér á landi sem annarstaðar. Í fyrirtækjum vilja menn nota fagið til að mæla innri þekkingarauð sinn, ekki síst í þeim tilgangi að styðja stöðu sína á verðbréfamark- aði. Fyrirtækið verður þá að sýna fram á að það búi yfir vinnuferlum til að vista og miðla vel innri þekk- ingu. Metinn er þekkingarvandi vinnustaðar, þ.e. erfiðleikar við þekkingarmiðlun, og greint frá leið- um til að leysa hann. Annars staðar verða menn fyrst varir við þekkingarvanda sinn þeg- ar þeir fá „skell“, þegar atburður afhjúpar vandann. Í Bandaríkjun- um velta menn því nú fyrir sér hvort þekkingarvandi stórrar stofn- unar (FBI) hafi verið liður í því að ekki tókst að koma í veg fyrir hin ægilegu hryðjuverk 11.sept. í fyrra. Sigmar Þormar Höfundur er framkvæmdastjóri Skipulags og skjala ehf. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 25 Kaffibollar Cappucino verð kr. 2.700 Mokka verð kr. 1.890 Kaffikönnur verð kr. 1.890 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mánudag-föstudag 11-18, laugardag 11-15 Heimsmeistarinn! blandarinn, sá öflugasti og ímynd þess besta! Fæst í ýmsum litum, verð frá kr. 13.900 stgr. Gullverðlaunahafar íslenska landsliðsins í matreiðslu nota eingöngu KitchenAid blandara og hrærivélar. Gerð þú líka kröfur - veldu KitchenAid! ÚTSALAN HEFST Á MORGUN! 20-50% af mörgum tegundum! Kringlan 8-12, sími 568 6211. Skóhöllin, Firði, Hf, sími 555 4420. afsláttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.