Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 43
DAGBÓK
Árnað heilla
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 3.
júlí, er fimmtug Helga Alex-
andersdóttir leikskóla-
stjóri, Laugalæk 11,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Friðrik Guð-
mundsson. Þau taka á móti
ættingjum og vinum laugar-
daginn 6. júlí kl. 17–20 í
Borgartúni 17.
70 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 3.
júlí, er sjötugur Sigvaldi Jó-
hannsson, verkstjóri og
verktaki. Afmælisbarnið er
að heiman í dag.
LJÓÐABROT
SMALADRENGURINN
Út um græna grundu
gakktu, hjörðin mín.
Yndi vorsins undu.
Eg skal gæta þín.
Sól og vor ég syng um,
snerti gleðistreng.
Leikið, lömb, í kringum
lítinn smaladreng.
Steingrímur Thorsteinsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5
d6 4. Rf3 Rxe4 5. d3 Rf6 6.
d4 d5 7. Bd3 Bg4 8. O-O
Be7 9. He1 Rc6 10. c3 O-O
11. Bg5 h6 12. Bh4 g5 13.
Bg3 Re4 14. h3 Bxf3 15.
gxf3 Rxg3 16. fxg3 Bd6 17.
Kg2 Re7 18. Dc2 c6 19.
Rd2 Dc7 20. Rf1
Kg7 21. He2 h5
22. Dd2 f6 23. Bc2
h4 24. Hae1 Hf7
25. Dd3 Hh8 26.
g4 f5 27. He6 Rg6
Staðan kom
upp á EM kvenna
sem lauk fyrir
skömmu í Varna í
Búlgaríu. Lilit
Mkrtchian (2391)
hafði hvítt gegn
Jönu Krivec
(2271). 28.
Hxg6+! Eftir
þessa skipta-
munsfórn kemst
hvítur inn fyrir víglínur
svarts og veldur miklum
usla í svörtu herbúðunum.
Framhaldið varð: 28...Kxg6
29. He6+ Kg7 30. Re3 fxg4
31. Dg6+ Kf8 32. Hxd6
gxh3+ 33. Kh1 De7 34. Bf5
Hg8 35. Dh6+ Hgg7 36.
Dh8+ Hg8 37. Dh6+ Hgg7
38. He6 Dc7 39. Dh8+ Hg8
40. He8+ Kxe8 41. Dxg8+
Hf8 42. Bg6+ Kd7 43. Dxf8
og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HIMINN og haf skilur að
fimmta og sjötta sætið á
Evrópumótum, því fimm
efstu sætin veita rétt til þátt-
töku á HM en uppskeran
fyrir sjötta sætið er aðeins
vonbrigði. Mikil spenna var í
HM-baráttunni í Salsom-
aggiore í báðum flokkum. Í
opna flokknum skutust Sví-
ar upp fyrir Pólverja í næst-
síðustu umferð og enduðu 6
vinningsstigum ofar, en í
kvennaflokki stóð baráttan
um fimmta sætið á milli
þriggja Norðurlandaþjóða
og höfðu Svíar vinninginn,
aðeins hálfu vinningsstigi á
undan norsku konunum.
Norðmenn spiluðu við Ís-
lendinga í lokaumferðinni og
unnu 19-11, en einn IMPi í
viðbót hefði gefið þeim 20
stig og sæti á HM.
Austur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 105
♥ DG7
♦ ÁK732
♣G109
Vestur Austur
♠ D8763 ♠ ÁKG942
♥ 632 ♥ 984
♦ G64 ♦ D98
♣62 ♣4
Suður
♠ --
♥ ÁK105
♦ 105
♣ÁKD8753
Í þessu spili var þó meira
en einn IMPi í húfi. Sjö lauf
eru borðleggjandi í NS, en
norsku konurnar spiluðu að-
eins fimm lauf á meðan Alda
Guðnadóttir og Dóra Axels-
dóttir komust upp á sjöunda
þrep:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 spaði Dobl
3 spaðar 4 tíglar 4 spaðar 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 lauf
Pass Pass 6 spaðar 7 lauf
Pass Pass Pass
Alda var með sterku spilin
í suður og byrjaði á opnunar-
dobli. Þegar Dóra gat frjáls-
meldað fjóra tígla yfir þrem-
ur spöðum sá Alda fyrir sér
a.m.k. hálfslemmu og spurði
um lykilspil með fjórum
gröndum. Dóra sýndi tvö –
ÁK í tígli – og þá þóttist Alda
vita að stutt væri í alslemmu.
En til að fæla þær norsku frá
fórninni sagði hún fyrst sex
lauf og lét svo „reka sig“ í al-
slemmuna. Áætlunin tókst
og uppskeran var 2.140 stig,
en fórnin í sjö spaða kostar
ekki nema 1.400.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 28. júlí 2001 í Kópa-
vogskirkju af sr. Jóni
Bjarmann þau Sjöfn Sig-
valdadóttir og Guðmundur
Jón Ludvigsson. Heimili
þeirra er í Lundabrekku 4,
Kópavogi.
Morgunblaðið/Arnaldur
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu kr.
6.370 til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Nadia
Ýr Emilsdóttir, Birna Kristín Sigurjónsdóttir og Katrín
Ragnarsdóttir.
Hlutavelta
Nei, bíddu aðeins. Ert þú
ekki svaramaður mannsins
míns?!
Smælki
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Að vera blátt áfram og trúr
sjálfum sér er einkennandi
fyrir afmælisbarn dagsins.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vegna jákvæðra efasemda
þinna og raunveruleikaskyns
er dagurinn upplagður til
flestra viðskiptaákvarðana,
en þær munu reynast bæði
réttar og traustar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Verslun með listaverk eða
aðra fagra hluti borgar sig í
dag. Gríptu gæsina meðan
hún gefst.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú tekur skyldur þínar og
skuldbindingar alvarlega í
dag og vegna þess nýturðu
virðingar annarra sem munu
leita eftir ráðum þínu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Baktjaldamakk og aðstoð
undir borðið, einkum frá op-
inberri hálfu, mun veita þér
möguleika á tekjuaukningu.
Vertu með augu og eyru opin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Félagsskapurinn er þér
meira virði en að fara einn á
vit ánægju og skemmtunar
og því viltu fórna eigin löng-
unum í þágu hagsmuna hóps-
ins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú laðast að eldra fólki því
þér finnst þú geta sótt leið-
sögn til þess. Gerðu það fyrir
alla muni því það getur orðið
til mikils léttis.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Alvarlegar umræður um trú-
mál eða heimspeki koma upp
hjá þér í dag, en það eru mál-
efni sem þú virðir og vilt öðl-
ast djúpan skilning á.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Upplagt að stunda viðskipti
við aðra í dag, ekki síst ef þú
þarft að reiða þig á tekjur
þeirra. Samningar sem nú
verða gerðir munu reynast
traustir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hugsanlega fer samband út
um þúfur í dag vegna gagn-
kvæms skilningsskorts á
kröfum og þörfum hins aðil-
ans. Þess vegna er að setjast
niður og brjóta málið til
mergjar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Ræddu við samstarfsmenn
um hvernig þið getið öll tekið
ykkur á. Afleiðingin getur
orðið aukin framleiðni og
meiri skilvirkni; betri árang-
ur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú verður í aðstöðu til að ráð-
leggja ungu fólki um heilt í
dag. Bentu þeim á að íhuga
hegðan og framkomu því það
sem þau aðhafast hittir þau
sjálf fyrir síðar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Treystu áætlunum sem þú
gerir með fjölskyldunni varð-
andi fasteignir og heimilið,
hugsun þín er skýr og áreið-
anleg um þessar mundir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Heimsferðir kynna nú haust-
ferðir sínar til Kanaríeyja, þann 23. október og 24. nóvember, en Kan-
aríeyjar eru tvímælalaust vinsælasti vetraráfangastaður Íslendinga í dag.
Við bjóðum nú betri gistivalkosti en nokkru sinni fyrr í hjarta ensku
strandarinnar og að sjálfsögðu njóta farþegar okkar rómaðrar þjón-
ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Sigurður Guðmundsson
verður að vanda með fjölbreytta skemmti- og íþróttadagskrá, leikfimi
og kvöldvökur til að tryggja það
að þú fáir sem mest út úr fríinu.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Fyrstu 50 sætin á sértilboði
Kanarí-
veisla
Heimsferða í haust
frá kr. 56.165
Brottför
· 23. okt. - 32 nótt
· 24. nóv. - 23 nætur
23 nætur
Verð frá 56.165
24. nóvember, m.v. hjón með 2 börn á
Tanife, 23 nætur.
Verð kr. 78.750
24. nóvember, m.v. 2 í íbúð, Tanife,
23 nætur.
5. vikur
(32 nætur)
Verð frá 64.965
23. okt., m.v. hjón með 2 börn á Tanife,
32 nætur.
Verð kr. 89.550
23. okt., m.v. 2 í íbúð, Tanife, 32 nætur.
Gististaðir Heimsferða
· Roque Nublo
· Los Tilos
· Los Volcanes
· Paraiso Maspalomas
· Tanife
· Dorotea
Kærar þakkir til allra, er veittu mér gleði á
80 ára afmæli mínu þann 17. júní sl.
Guð blessi ykkur öll.
Anna Tryggvadóttir,
Hamraborg 32, Kópavogi.
Lokað
í dag
Ítölsk barnafataverslun
Laugavegi 53, s. 552 3737
Úrval af stelpu-
og strákafötum
fyrir krakka frá 0-12 ára
Útsalan hefst á
morgun