Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 13 Ólífutré er vel þekkt fyrir undraverðan kraft. Hreint efni, unnið úr laufblöðum þeirra, styrkir viðnám húðar- innar gegn fyrstu hrukk- um og línum. Heimsækið okkur á www.biotherm.com AGE FITNESS Krem og dropar sem inni- halda hreint efni, unnið úr laufblöðum ólífutrjáa. Yngjandi og mýkjandi áhrif ásamt vörn gegn utanaðkomandi áhrifum. Útsölustaðir: Höfuðborgarsvæðið: Andorra Hafnarfirði, Bylgjan Kópavogi, Fína Mos- fellsbæ, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni, Hygea Lauga- vegi, Hygea Smáralind, Lyf og heilsa Kringlunni, Lyf og heilsa Mjódd. Landið: Bjarg Akranesi, Konur og menn Ísafirði. Lokað í dag Útsalan hefst á morgun Kringlunni 4-12 Sími 568 6688 ÍSTAK fékk hæstu einkunn í lok- uðu alútboði á bílakjallara undir Tjörninni sem hugmyndir eru um að byggja. Tilboð Ístaks var jafn- framt lægst og hljóðaði upp á 719 milljónir króna eða 3,1 milljón á hvert bílastæði. Kostnaður vó 60 prósent af heildareinkunn dóm- nefndar en aðrir matsþættir tóku meðal annars til hönnunar, skipu- lags og umhverfisáhrifa. Niðurstöðurnar voru kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykja- víkur í gær en auk Ístaks tóku Ís- lenskir aðalverktakar annars vegar og Eykt í samvinnu við MTHøy- gaard A/S hins vegar þátt í útboð- inu. Skilaði Ístak tveimur tillögum sem hlutu einkunnirnar 90,1 stig og 85,7 stig. Tillaga ÍAV hlaut 83,1 stig en Eykt skilaði tveimur tillögum sem hlutu 77,3 stig og 73,7 stig. Ístak fékk teiknistofuna Studio Granda til samvinnu við sig við hönnun sinna tillagna. Sú tillaga Ís- taks sem þótti hagstæðari gerir ráð fyrir tvílyftu bílastæðahúsi í norð- austurhorni tjarnarinnar þar sem rými yrði fyrir 231 bílastæði. Inn- og útkeyrslurampar að húsinu liggja í gegn um Mæðragarðinn við Lækjargötu og undir Fríkirkjuveg. Aðgangur fótgangandi er með lyftu og hugmyndir eru um að koma henni fyrir í turni sem fluttur verð- ur úr Mæðragarðinum og settur niður vestan Lækjargötu. Sömu- leiðis verður stigi í norðausturhorni hússins. Kom fram í máli Ingibjarg- ar Sólrúnar Gísladóttur borgar- stjóra á fundinum að deilt var um hvort rétt væri að turninn sem geymir lyfturnar yrði sá sem nú er í Mæðragarðinum og því kemur allt eins til greina að byggja nýtísku- legri turn, sé til þess vilji. Svæðið þurrkað upp meðan á framkvæmdum stendur Framkvæmd verksins verður með þeim hætti að í byrjun verður stálþil rekið niður umhverfis bygg- ingarreitinn og það þéttað þannig að reiturinn þurrkast upp meðan á framkvæmdunum stendur. Eftir að framkvæmdum lýkur verður þilið fjarlægt og vatni hleypt á reitinn á ný. Kom fram í máli Stefáns Her- mannssonar bæjarverkfræðings og fleiri á fundinum að þetta var einn- ig gert þegar Ráðhús Reykjavíkur og bílastæðahús undir því var í byggingu og í raun hafa verkfræð- ingar borgarinnar öðlast víðtæka þekkingu á botni og lífríki Tjarn- arinnar við þá framkvæmd. Ekki er gert ráð fyrir lokun á bílaumferð meðan á framkvæmd- unum stendur. Í fyrsta áfanga verksins verður bílaumferð leidd um vestari helming Fríkirkjuvegar, en eftir að meginhluti aðkomu- rampans hefur verið byggður verð- ur keyrt um eystri helming veg- arins. Hvað varðar burðarvirki hússins gerir hagstæðari tillaga Ístaks ráð fyrir að húsið verði njörvað niður með bergboltum en botnplatan sjálf verði 800 mm að þykkt. Milliplata og loft verða aftur á móti borin uppi af veggjum og súlum. Verður þak- platan þykkari en milliplatan enda er álag á hana mun meira, að því er segir í greinargerð með niðurstöðu dómnefndar. Yfir þakplötunni verð- ur síðan heillímdur dúkur. Taka verður tillit til varptíma fugla Ingibjörg Sólrún sagði á fund- inum að lengi hefði verið í athugun hvar koma mætti fyrir bílastæða- húsi í miðborginni en samkvæmt áætlun á bílastæðaþörf vantar á milli 1.200 og 1.300 bílastæði þar. Ýmsar hugmyndir hefðu verið uppi í því sambandi, meðal annars hvort koma mætti fyrir bílastæðahúsi undir Austurvelli, en þær hug- myndir þóttu of kostnaðarsamar. Þá hefði bílastæðahús neðanjarðar við Suðurgötu þótt setja of mikinn svip á umhverfi sitt, þ.e. innkeyrsl- an að því frá Suðurgötu. Á fundinum kom fram að borg- aryfirvöld hafa ekki tekið endan- lega afstöðu til málsins. Ráðist var í alútboðið með það að sjónarmiði að ekki yrðu gerðar breytingar á skipulagi miðborgarinnar fyrr en fyrir lægi hvort tillögurnar þættu raunhæfar. Alútboðið sýndi að sú er raunin. Að sögn Ólafs Bjarnasonar, for- stöðumanns hjá borgarverkfræð- ingi, fer málið nú í framhaldinu til umfjöllunar í nefndum og ráðum bæjarins. Þá tekur við gerð deili- skipulags og mat á ýmsum þáttum, þar á meðal umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar þar sem al- menningi gefst kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri, ef einhverjar eru. Kom fram að gangi allt að óskum er hugsanlegt að framkvæmdir hefjist á komandi hausti en taka þarf tillit til varptíma fugla á Tjörn- inni við val á byrjunartíma verks- ins. Gangi ekki að byrja í haust gæti þess vegna verið að ekki yrði hafist handa fyrr en í mars á næsta ári. Gert er ráð fyrir að röskun vegna framkvæmdanna standi yfir í um eitt ár. Kom fram í máli bæjarverk- fræðings að þegar er byrjað að huga að mótvægisaðgerðum til þess að vernda fuglalíf meðan á fram- kvæmdunum stendur. Þá kom fram að jákvæð áhrif framkvæmdarinnar á umhverfið verða þau að gert er ráð fyrir að hreinsa þungamálma úr setlögum Tjarnarinnar að einhverju leyti áður en þeim er komið fyrir á ný ofan á þaki hússins. Ístaki ekki veitt forskot við mat á tillögum Loks kom fram á fundinum að hugmyndir um bílastæðahús undir botni Tjarnarinnar þóttu lengi vel ekki framkvæmanlegar vegna þess hversu kostnaðarsamar þær voru. Það var svo að eigin frumkvæði sem Ístak kom fram með nýjar til- lögur sem þóttu raunhæfar hvað kostnað varðar. Eins og Morgun- blaðið hefur greint frá voru ekki taldar lagalegar heimildir fyrir því að borgin semdi beint við fyrirtækið og því var ráðist í útboðið. Þegar hann var spurður hvort það hefði ekki legið í augum uppi að Ístak myndi vinna samkeppnina sagði borgarverkfræðingur að fyr- irtækinu hefði ekki verið gefið neitt forskot við mat á tillögunum. Fyr- irtækið hefði breytt upphaflegum tillögum sínum en vissulega hefði það haft, vegna frumkvæðis síns, lengri tíma til að meta aðstæður.                                                     Framkvæmdir gætu hafist á haustmánuðum Miðborg Tillaga Ístaks um bílastæðahús undir botni Tjarnarinnar metin hagstæðust Borgaryfirvöld ekki búin að taka endanlega afstöðu Tölvugerð ljósmynd þar sem horft er frá Lækjargötu í átt að Tjörninni. Hér er búið að færa turninn úr Mæðragarðinum að norðausturhorni Tjarnarinnar þar sem lyftur fyrir fótgangandi verða staðsettar. Teikning/Studio Granda Grunnmynd efri hæðar bílastæðahússins en þrjár akreinar munu liggja til og frá rampanum með bómur staðsettar á milli. Akstursleið milli hæða er svo skammt frá innkeyrslu. Á fundinum var innt eftir skýringu á nafni Mæðragarðs- ins. Kom fram að nafngiftin væri þannig til komin að rólu- vellir voru kallaðir mæðra- garðar áður fyrr. Í umrædd- um garði voru einmitt rólur, sandkassi og fleiri leiktæki sem einhverjir muna kannski eftir. Róluvellir voru kallaðir mæðragarðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.