Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 33 Margar bjartar minningar koma upp í hugann þegar ég sest niður og hugsa um liðnar samverustundir með Steinþóri frænda mínum. Veikindi hafa þjakað Steinþór und- anfarin ár en engu að síður kom kallið óvænt, nóttina eftir gleðidag með ættingjum heima á Hjartar- stöðum. Steinþór var yngstur í hópi sex barna þeirra Magnúsar Sig- urðssonar og Ólafar Guðmunds- dóttur. Steinþór ólst upp á Hjart- arstöðum og var síðar bóndi þar. Steinþór missti föður sinn á barnsaldri. Þetta var mikill missir en Ólöf amma fékk góðan stuðning frá eldri börnum sínum, einkum þó Sigurði elsta syninum sem tók síð- ar við búinu. Steini, eins og Stein- þór var kallaður, og Guðmundur faðir minn voru yngstir og urðu þeir mjög nánir og samrýndir bræður. Það eru ófáar sögurnar sem ég hef fengið að njóta frá föð- ur mínum af þeirra ævintýrum og uppátækjum allt fram á fullorðins- ár. Þessar sögur voru m.a. af dag- legum störfum, skemmtunum, íþróttum og skólagöngu. Við kröpp kjör þess tíma nutu systkinin frá Hjartarstöðum nábýlisins við Al- þýðuskólann á Eiðum með vinnu og menntun. Mín kynni af Steinþóri urðu strax náin. Ólöf amma bjó á heim- ilinu hjá Steinþóri og Sólveigu konu hans og strákarnir, synir þeirra, voru góðir félagar mínir. Það var ekki ósjaldan að faðir minn gerði sér erindi í Hjartarstaði eftir vinnu og þá fylgdi ég með, nær undantekningarlaust. Farið var í fjárhúsin til gegninga, rætt um sauðféð, heyin og tíðina. Síðan var farið í bæinn og drukkið kaffi. Við strákarnir fórum að leika okkur en þeir bræður að spjalla um ung- mennasambandið, skólamál, hreppsmál eða bridge. Áður en heim var haldið klippti Steini hárið á okkur feðgum. Á tímum bítla- tísku var þessi athöfn ekki einfalt mál en með lagni og ákveðni Steina endaði leikurinn ætíð svo að ég stóð upp úr stólnum hárinu styttri. Steinþór gekk til allra verka af alúð og vandvirkni. Hann var ekki að ota sér fram, fylgdi málum eftir, en ef á reyndi kraumaði skap und- ir. Þessi einkenni komu ekki síst fram í starfi hans sem bóndi með afurðasamt sauðfé sem var ræktað eftir bestu þekkingu þess tíma, hvítt, grátt og tvílembt. Óþol á þurru heyi hefur sent margan bóndann á mölina og einnig Stein- þór. Fjölskyldan fluttist í Egils- staði árið 1972 og gerðist hann fulltrúi í útibúi Búnaðarbankans. Störf Steinþórs voru ýmis fleiri en að framan greinir, við handverk, kennslu, prófdómari á landsprófi, bókhald og rekstur. Að sinna fé- STEINÞÓR MAGNÚSSON ✝ Steinþór Magn-ússon fæddist á Hjartarstöðum í Eiðaþinghá 5. sept- ember 1924. Hann andaðist á heimili sínu á Egilsstöðum 24. júní síðastliðinn og var útför hans gerð frá Egilsstaða- kirkju 2. júlí. lagsstörfum var stór þáttur í upplagi hans og lífi. Má þar nefna formennsku hjá Ung- menna- og íþróttasam- bandi Austurlands, setu í skólanefndum Alþýðuskólans á Eið- um og Hússtjórnar- skólans á Hallorms- stað og síðast, formaður stjórnar Kaupfélags Héraðs- búa. Mér er sagt að á fundum hafi Steinþór ekki farið mikinn, hlustað, íhugað en síð- an látið álit sitt í ljós svo eftir var tekið. Steinþór og Sólveig áttu alla tíð myndarlegt heimili hvort sem var í sveit eða bæ. Það er minnisstætt hvað þau voru alltaf góðir félagar, glaðvær og gott til þeirra að koma. Sólveig hefur undanfarin ár staðið traust við hlið Steinþórs í veikind- um hans. Megi minningin um tryggan og glaðværan mann lifa. Við systkinin, Ólöf, Anna, Gylfi og Gígja, sendum Sólveigu, börnum og fjölskyldum þeirra innilegustu samúðarkveðjur. Guðmundur Gylfi Guðmundsson. Í vestrænum hugmyndaheimi er tímanum líkt við fljót sem streymir. Ekki verður því neitað að stundum er árniður tímans nálægur. Þegar ég heyrði lát Steinþórs Magnússonar fann ég þennan þunga straum. Hann var einn af samferðamönnum mínum á Egils- stöðum, og nú eru mörg ár liðin frá því að þau Sólveig og hann settu sig niður þar með fjölskyldu sinni, eins og margir úr sveitum Fljóts- dalshéraðs gerðu. Fyrstu minning- ar mínar um Steinþór eru um vörpulegan mann á gulum vörubíl. Seinna fór hann að vinna í Bún- aðarbankanum og starfaði þar um árabil. Hins vegar var það á vettvangi Kaupfélags Héraðsbúa sem við kynntumst. Hann tók að sér for- mennsku í félaginu sem hann gegndi á uppgangs- og uppbygg- ingartíma í sögu þess. Ég sat með honum og fleirum ágætismönnum í stjórninni sem fulltrúi starfs- manna. Þetta voru skemmtilegir tímar og formaðurinn átti drjúgan þátt í því. Hann var sanngjarn, hafði metnað fyrir félagið og naut virðingar samferðamannanna. Þar að auki var hann mannasættir og skemmtilegur félagi, en gat verið fastur fyrir ef á þurfti að halda. Þegar hann lét af störfum í stjórn- inni kom í minn hlut að taka við af honum. Hjá honum var ætíð stuðn- ing að finna. Steinþór átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. Ég hitti hann síðast á landsmóti UMFÍ á Egils- stöðum, þar sem hann sat upp í áhorfendasvæðinu og var að fylgj- ast með keppni. Héraðið skartaði sínu fegursta og glæsilegur íþrótta- völlurinn lá fyrir framan í sólskin- inu, umluktur trjágróðri. Á vell- inum stóð yfir keppni. Steinþór brá á glens eins og áður og það var létt yfir honum. Þannig er gott að minnast þessa mæta manns, félags- málamannsins og ungmennafélag- ans. Hafðu þökk fyrir samfylgdina. Við Margrét sendum Sólveigu og fjölskyldunni allri innilegar samúð- arkveðjur. Jón Kristjánsson. Mig langar að minnast Steinþórs Magnússonar móðurbróður míns í örfáum orðum. Þegar ég var smástelpa kom fjöl- skylda mín oft að Hjartarstöðum þar sem Steini og Solla bjuggu ásamt börnum sínum og Ólöfu ömmu. Það var alltaf jafn gaman að koma til þeirra hjóna og þegar ég hafði náð aldri fékk ég að fara og vera í sveit hjá þeim. Það var alltaf fjör á bænum og mikið um að vera. Eitt af því sem er mér minnisstæð- ast úr sveitinni er sú laugardags- hefð sem höfð var. Það er að í há- deginu á laugardögum var alltaf hrísgrjónagrautur í matinn. Ekki var nú hrísgrjónagrautur uppá- haldsmaturinn minn og það vissi Steini frændi. Hann sat því alltaf hjá mér og fylgdist með að ég klár- aði af diskinum mínum, stundum var hann ekki heima á laugardög- um og þá gaf Solla mér alltaf eitt- hvað annað gott í staðinn fyrir grjónagrautinn. Þessi sveitadvöl mín var mér lærdómsrík á margan hátt og mun ég ávallt vera þakklát fyrir að fá að hafa upplifað þennan tíma. Í sveitinni var alltaf nóg fjör og ég man sérstaklega hvað mér fannst gaman að fá að fara í réttir og standa innan um féð á pallbíl á leiðinni í sláturhúsið. Á Hjartarstöðum var tvíbýli og bjuggu Sigurður bróðir Steina og fjölskylda hans í hinu húsinu. Mik- ill samgangur var milli fjölskyldna og því margir leikfélagarnir að leika við. Eftir að Steini og Solla fluttust til Egilsstaða var alltaf það sama upp á teningnum ef gesti bar að garði. Öllum var tekið opnum örm- um og allir voru velkomnir inn á þeirra fallega heimili. 23. júní sl. vorum við, ættingjar Steina hér fyrir austan, með ætt- armót og var það góður dagur sem við áttum saman hér. Það er í síð- asta skiptið sem ég hitti hann frænda minn og langar mig að þakka honum hér fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt sam- an. Elsku Solla, Una Þóra, Ólafur, Einar Birgir, Aðalsteinn, Magnús, tengdabörn barnabörn og barnabarnabörn. Fjölskylda mín sendir ykkur inni- legustu samúðarkveðjur. Megi guð vera með ykkur öllum. Hulda Sveinsdóttir, Seyðisfirði. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka við fyrirbænum í síma 520 9700. Háteigskirkja. Kvöldbænir kl. 18. Neskirkja. Bænamessa kl. 18. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í kirkjunni og í síma 567 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar verða í sumar í safnaðarheimili Kirkjuhvoli kl. 10– 12. Við hittumst og spjöllum. Heitt á könn- unni og djús fyrir börnin. Öll foreldri vel- komin með eða án barnanna. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12, íhugun, altarisganga, fyrir- bænir. Léttur hádegisverður kl. 13 í Ljós- broti Strandbergs. Víðistaðakirkja. Foreldramorgnar á fimmtudögum kl. 10–12. Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í dag kl. 10-12. Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 11 helgistund á Hraunbúðum. Kl. 20–22 opið hús í KFUM&K-húsinu fyrir unglinga bæj- arins. Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30 Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í síma 565 3987. Kefas. Samverustund unga fólksins kl. 20.30. Orð guðs rætt og mikil lofgjörð. Allt ungt fólk velkomið. Safnaðarstarf Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090. LEGSTEINAR Komið og skoðið í sýningarsal okkar eða fáið sendan myndalista MOSAIK Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík sími: 587 1960, fax: 587 1986                  (- &. ) 97 0,!" #! 8  %C *     8     . &     10     !    3 &   $   ,    00 21 !  *" 3 6 ( 5     &" !  . 6 ( ( 5  . 60 ( 5  :0 . D! !  "#  ( 5  2 *9,2 ! 6 60 , 7        # 8- .  88-99 *   "   : !    &    +;   - !           +,   : 6 3!6?   : 3!6?   "#60 " 6  !  !!4"#"! !   "#"! ! , 7                   8. 71./9E)  3""%B 1  *         (" *#"  !  60 !60  6 60  '6 , ) (         2-   8  # #"  &<5$ &' ' # * "            5#" &  ! ! 60 ,                          . . :2   & "6?>C +* * "    8    &   '        !    <  &   $   ,    00   F"#"! !  "    & +" " #  + :0 " # !   ': +" # !  !60 6 60  6 6 60 , KIRKJUSTARF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.