Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÚTSALA Lokað í dag Útsalan hefst á morgun, fimmtudag, kl. 10.02 GK REYKJAVÍK www.gk.iskonur kringlunni menn laugavegi SÝNING tískuhönnuðarins Hedi Slimane fyrir Christian Dior sló í gegn í París í fyrrakvöld en þar var herratískan fyrir vorið og sumarið 2003 sýnd. Slimane hefur vakið athygli að undanförnu og olli sýningin ekki vonbrigðum. Viðstaddir voru m.a. hönnuðurinn Karl Lagerfeld og Pierre Berge, annar stofnenda Saint Laurent- tískuhússins. „Þetta var tíska nákvæmlega eins og ég vil hafa hana, tíska sem lætur þér líða umsvifalaust eins og það sem þú ert í sé orðið úrelt,“ sagði Lagerfeld í samtali við blaðamann New York Times. Annar hönnuður sem hefur ver- ið mikið í sviðsljósinu er Tom Ford en hann sýndi herrafatalínu Yves Saint Laurent í gær og brást ekki vonum manna frekar en fyrri daginn. Hann lagði áherslu á jakkaföt á sýn- ingunni en borið hefur á nýjum út- færslum á hinum hefðbundnu jakkafötum í sýn- ingunum nú. Er það komið til ekki síst vegna þess að sala þeirra dróst mjög saman eftir hryðjuverkaárás- irnar 11. sept- ember og var skyrtum og peysum hampað í staðinn. París hefur nú sannað mikilvægi sitt í herratískunni. „Á síðustu þremur tískuvikum hefur París verið mjög mikilvæg fyrir herra- tískuna,“ sagði Kal Ruttenstein, tískustjóri Bloomingdales, og sparaði ekki stóru orðin. „Við gætum ekki lifað án hennar,“ sagði hann. Sýning Dior slær í gegn í París Hönnun Hedy Slimane fyrir Christian Dior. Hönnun Hedy Slimane fyrir Christian Dior. AP Hönnun Hedy Slimane fyrir Christian Dior. Hönnun Hedy Slimane fyrir Christian Dior. Hönnun Tom Ford fyrir Yves Saint Laurent. Hönnun Tom Ford fyrir Yves Saint Laurent. Hið ósagða (The Unsaid) Spennudrama Bandaríkin 2001. Myndform VHS. (111 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Tom McLoughlin. Aðalhlutverk Andy Garcia, Trevor Blumas, Teri Polo. ÞAÐ getur vart margt verið sárara en að horfa upp á barn sitt taka eigið líf. Þetta upplifir virtur sálfræðingur (Garcia) en eins góður og hann var í að hjálpa öðrum að taka á slíku reiðarslagi þá á hann sjálfur í mesta basli með að höndla líf sitt eftir að unglingssonur hans fremur sjálfsmorð. Hann lokar sig af, neit- ar að takast á við sorg- ina og gerir það sem hann bannar öðrum að gera í sömu stöðu, að kenna sér um. Hann er líka hættur að taka sjúklinga í meðferð, uns á fjörur hans rekur ungan dreng (Blumas) á aldur við son hans, drengur sem hefur verið á geðsjúkra- húsum frá barnsaldri, allt síðan hann horfði upp á föður sinn myrða móður hans. Drengurinn virðist í fyrstu vera orðinn heill á geði en við nánari grennsl- an fer sálfræðinginn að gruna að ekki sé allt með felldu. Hér er á ferð mjög vel leikið og vand- lega gert sálfræðidrama. Vissulega heldur langdregið til þess að halda manni fullkomlega við efnið en frammi- staða þeirra Garcia og Blumas er alltaf eftirtektarverð og sagan nægilega at- hyglisverð til að mæla megi með mynd- inni.  Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Lesið milli línanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.