Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ABSTRAKT EÐA HÚSIÐ?
Allt fyrir málarann og myndlistarmanninn í Litalandi,
nýrri verslun okkar í Domus Medica.
Komdu og fáðu góð ráð þegar þú ætlar að mála.
Dugguvogi 4 • www.slippfelagid.is Domus Medica við Snorrabraut
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I |
Y
D
D
A
•
N
M
06
45
4
•
si
a.
is
VON er á Vaira-Vike Freiberga,
forseta Lettlands, í opinbera heim-
sókn til Íslands í fyrrihluta ágúst-
mánaðar, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Freiberga kemur
hingað í boði Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands. Gert er ráð
fyrir að hún verði hér á landi í u.þ.b.
tvo daga.
Vaira-Vike Freiberga var kjörin
forseti Lettlands sumarið 1999. Hún
er á sjötugsaldri og flúði til Kanada
á Sovéttímanum. Þar gegndi hún
m.a. um árabil prófessorsembætti í
sálfræði við Montreal-háskóla.
Forseti
Lettlands í
opinbera
heimsókn
Reuters
MÁLSKOTSNEFND Lánasjóðs
íslenskra námsmanna hefur úr-
skurðað að fella beri úrskurð í
máli Jóhannesar Davíðssonar úr
gildi en stjórn Lánasjóðsins hafði
synjað honum um undanþágu á ár-
legri endurgreiðslu námslána
vegna veikinda hans og örorku.
Nefndin telur að rannsókn á
fjárhagslegum aðstæðum Jóhann-
esar hafi ekki verið næg og leggur
fyrir stjórn LÍN að meta beiðni
hans að nýju með hliðsjón af að-
stæðum hans á því tímamarki þeg-
ar beiðni hans var til meðferðar.
Jóhannes sótti um undanþágu
frá greiðslu námslána árið 1999, en
stjórn sjóðsins hafnaði beiðninni.
Málskotsnefnd LÍN staðfesti úr-
skurð lánasjóðsins í ársbyrjun
2000. Í framhaldi af því leitaði Jó-
hannes til umboðsmanns Alþingis.
Umboðsmaður sendi frá sér álit í
maí 2001 þar sem hann komst að
þeirri niðurstöðu að afgreiðsla
stjórnar LÍN og síðar málskots-
nefndar LÍN hefði ekki verið í
samræmi við lög. Beindi hann
þeim tilmælum til málskotsnefndar
að hún tæki málið aftur til skoð-
unar.
Stjórn LÍN tók málið aftur upp
og felldi síðan úrskurð í málinu 1.
mars á þessu ári, þar sem hún
staðfesti fyrri niðurstöðu sína frá
því í nóvember 1999. Jóhannes
kærði úrskurðinn til málskots-
nefndar og felldi nefndin hann úr
gildi í sumarbyrjun eins og fyrr
segir.
Jóhannes býr í Danmörku og er
gullsmiður að mennt. Hann sótti
um undanþágu frá afborgun náms-
lána vegna breytinga sem urðu á
högum hans vegna mænusiggs-
sjúkdóms sem veldur því að hann
getur ekki sinnt starfi sínu. Hann
lagði fram frekari gögn um fjár-
hagslegar aðstæður sínar eftir að
mál hans var endurupptekið hjá
málskotsnefnd Lánasjóðsins. Þar
kemur fram að hagur hans hefur
farið versnandi og hann hefur haft
útgjöld af lyfjakaupum.
Í niðurstöðu málskotsnefndar
segir að ekki verði séð að hjá
stjórn LÍN hafi farið fram rann-
sókn á fjárhagslegum aðstæðum
kæranda á þeim tíma þegar um-
sókn hans um undanþágu var til
meðferðar hjá sjóðnum eins og
hefði átt að gera og taldi málskots-
nefnd því að fella bæri hinn kærða
úrskurð úr gildi.
Málskotsnefnd LÍN fellir úrskurð í máli öryrkja úr gildi
Stjórn Lánasjóðsins
meti beiðni að nýju
ÞESSI kajakræðari var í hópi
nokkurra sem urðu á ferð ljós-
myndara í hvítfyssandi öldum
Þjórsár neðan við Þjórsárbrú.
Nokkrir félagsmenn í Kayak-
klúbbnum, sem aðsetur hefur í
Reykjavík, léku sér á ánni á svo-
kölluðu „leiksvæði“, á máli kajak-
ræðara, rétt neðan við brúna og
var greinilega mikill handagangur
í öskjunni eins og sjá má af öldu-
ganginum í ánni sem var vatns-
mikil.
Að sögn Gunnlaugs Magnús-
sonar, félaga í Kayakklúbbnum,
sem þekkir vel til á þessum slóðum,
er algengt að menn leiki sér á um-
ræddu svæði og er þá mest um vert
að öldugangurinn sé sem mestur.
Þá er einnig hægt að byrja ofar og
láta strauminn fleyta sér niður ána. Ljósmynd/Guðmundur Jakobsson
Að leik í
straum-
harðri
Þjórsá
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sakfellt rúmlega tvítugan
mann sem játaði að hafa sent
sprengjuhótun í bandaríska sendi-
ráðið í upphafi ársins. Dómurinn
frestaði að ákveða refsingu og
haldi maðurinn skilorð í tvö ár fell-
ur refsing niður.
Maðurinn sendi sprengjuhót-
unina með tölvupósti 15. janúar en
í henni sagði að sendiráðið yrði
sprengt samdægurs og allir
Bandaríkjamenn á Íslandi yrðu líf-
látnir. Undir hótunina var ritað
nafn Osama bin Laden, höfuðpaurs
hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin
11. september sl. Maðurinn játaði
að hafa sent hótunarbréfið, sum-
part í gríni en sumpart til að mót-
mæla stefnu Bandaríkjastjórnar. Í
niðurstöðum dómsins segir að mað-
urinn hafi enga möguleika átt á að
framfylgja hótun sinni og hafi
heldur ekki viljað það. Það hafi við-
takanda hótunarinnar hins vegar
ekki verið ljóst og eins og tölvu-
skeytið hafi birst hafi ekki verið
unnt að ganga að því sem vísu að
um innihaldslaust grín væri að
ræða.
Fram kemur í dóminum, að mað-
urinn hafi verið að jafna sig eftir
alvarlegt þunglyndi er hann sendi
hótunina. Hann hafi gert sér fulla
grein fyrir gerðum sínum og þrátt
fyrir veikindi sé hann örugglega
sakhæfur. Hann hefur ekki áður
sætt refsingu og í ljósi veikinda
hans, greiðrar játningar og þess að
hann er ungur að árum þótti dóm-
ara rétt að skilorðsbinda refs-
inguna. Var ákvörðun refsingar
frestað og fellur hún niður eftir tvö
ár haldi maðurinn almennt skilorð.
Maðurinn var dæmdur til að borga
allan sakarkostnað. Jón Finn-
björnsson héraðsdómari kvað upp
dóminn.
Dómur yfir manni sem sendi sprengju-
hótun í bandaríska sendiráðið
Hafði hvorki vilja
né möguleika til
að framfylgja
hótuninni
♦ ♦ ♦
SAMKEPPNISRÁÐ hefur úrskurð-
að að ferðaskrifstofan Heimsklúbbur
Ingólfs – Ferðaskrifstofan Príma
skuli greiða 400 þúsund króna stjórn-
valdssekt en ferðaskrifstofan var tal-
in hafa brotið gegn samkeppnislögum
með því að láta ítrekað hjá líða að til-
greina flugvallaskatta í verði ferða
sem hún auglýsti.
Samkeppnisráð sektaði fyrr á
þessu ári fjórar ferðaskrifstofur fyrir
sams konar brot á samkeppnislögum.
Fram kemur í úrskurði samkeppn-
isráðs að hinn 18. janúar 1995 hafi
Samkeppnisstofnun sent flugfélögum
og ferðaskrifstofum, þ.m.t. Heims-
klúbbi Ingólfs – Ferðaskrifstofunni
Príma, nýjar reglur sem þá höfðu ver-
ið settar um verðupplýsingar í aug-
lýsingum. Var sérstök athygli vakin á
því að uppgefið verð skyldi vera end-
anlegt verð til kaupanda og óheimilt
væri að undanskilja flugvallaskatta
og forfallagjald ef það væri hluti af
verði ferðar.
Fram kemur að í mars sl. birtust
auglýsingar frá Heimsklúbbi Ingólfs
– Ferðaskrifstofunni Príma þar sem
kynntar voru m.a. siglingar með
skemmtiferðaskipum. Verð í þessum
auglýsingum var birt án flugvalla-
skatta. Samkeppnisstofnun gerði at-
hugasemdir við þessar auglýsingar 3.
apríl sl. og tilkynnti Heimsklúbbi Ing-
ólfs – Ferðaskrifstofunni Príma að
mál þetta yrði lagt fyrir samkeppn-
isráð. Í úrskurðinum segir, að þrátt
fyrir þetta hafi fyrirtækið birt auglýs-
ingar í Morgunblaðinu 1. og 4. júní sl.
þar sem uppgefið verð er ekki end-
anlegt verð til kaupanda.
Fram kemur í úrskurði samkeppn-
isráðs að það villir fyrir neytendum
og er til þess fallið að skaða þá ef aug-
lýst verð vöru eða þjónustu er lægra
en þeir þurfa í raun að greiða. Slík
háttsemi fyrirtækja skekkir einnig
eðlilega samkeppni á viðkomandi
markaði.
Ferðaskrifstofu gert að
greiða stjórnvaldssekt
Tilgreindi
ekki flug-
vallaskatta
í verði