Morgunblaðið - 03.07.2002, Side 18
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
18 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
533 4300
FJÁRFESTAR ATHUGIÐ
Vorum að fá í einkasölu eftirtaldar eignir
Allar frekari upplýsingar veitir Agnar í s. 533 4300 eða gsm 820 8657
FLUGHÓTEL/KJARNI Í KEFLAVÍK
Glæsileg 7.298 fm bygging auk
bílageymslu í kjallara hússins.
Skiptist m.a. í 2.787 fm hótelbygg-
ingu sem hýsir rekstur Flughótels-
ins í Keflavík. Kjarni er samtals um
4.511 fm, glæsilega innréttað hús-
næði. Öll sameign og frágangur
hússins til mikillar fyrirmyndar. Frá-
bær eign.
BREKKUSTÍGUR – KEFLAVÍK
Þetta vandaða húsnæði stendur á
fjölförnu og áberandi umferðar-
horni. Stærð hússins er samtals
1.336,4 fm og skiptist í verslunar-
og lagerhúsnæði á jarðhæð.
Góðir verslunargluggar á framhlið
og stórar innkeysludyr á bakhlið.
Á efri hæð eru mjög vandaðar
skrifstofur. Malbikuð lóð.
HAFNARGATA – KEFLAVÍK
Gott 3.272 fm verslunar-, skrif-
stofu- og lagerhúsnæði, vel stað-
sett á fjölförnu umferðarhorni.
Húsið hefur verið í góðu viðhaldi.
Stærð lóðar 6.240 fm með afgirtu
porti á bakhlið. Ath. hagstætt verð.
NÝBÝLAVEGUR – KÓPAVOGI
Verslunar-, skrifstofu- og lager-
húsnæði á 3 hæðum samtals 1.062
fm. Innkeyrsla á 1. og 2. hæð.
Húsið er í mjög góðu ástandi og er
frábærlega staðsett varðandi allt
auglýsingagildi.
ÞORMÓÐUR rammi-Sæberg og
Skeljungur eru stærstu hluthafar í
Þorbirni Fiskanesi hf. samkvæmt
nýjum hluthafalista félagsins, en
talsverð viðskipti voru með hluta-
bréf í félaginu í júní.
Þormóður rammi-Sæberg á nú
10% eignarhlut í félaginu, eða
111,3 milljónir að nafnverði, en átti
engan hlut áður. Hluturinn var
keyptur hinn 20. júní af Afli fjár-
festingarfélagi.
Eignarhlutur Skeljungs nemur
7,49%, eða 83,3 milljónum að nafn-
verði, en fyrir átti Skeljungur
2,5%, eða 27,7 milljónir að nafn-
verði. Landsbanki Íslands á þriðja
stærsta hlutinn, 6,18% eða 68,7
milljónir að nafnverði, en fyrir átti
bankinn 32 þúsund krónur að nafn-
verði. Allur eignarhlutur bankans
er í formi framvirkra samninga
sem gerðir voru við Afl fjárfesting-
arfélag hinn 6. júní um kaup á
6,18% hlut Landsbankans. Afl, sem
áður hét Íslenski fjársjóðurinn, á
nú 4,75% í Þorbirni Fiskanesi, eða
52,9 milljónir að nafnverði, og fer
með atkvæðisrétt af eignarhlut
Landsbankans. Tilkynnt var um
sölu á eftirfarandi hlutum hinn 6.
júní á verðinu 6,0:
Gunnar Tómasson stjórnar-
maður seldi 13 milljónir að nafn-
verði, Eiríkur Tómasson forstjóri
seldi 13 milljónir, Gerður Tómas-
dóttir varamaður í stjórn seldi 12,3
milljónir, Hrafn sf., sem tengist
Gunnari, Eiríki og Gerði, seldi all-
an sinn hlut, 0,6 milljónir, Árni
Klemenz Magnússon stjórnar-
maður seldi 7,4 milljónir, Stefán
Þór Kristjánsson seldi 5,2 milljónir,
Rúnar Þór Björgvinsson varamað-
ur í stjórn seldi 3,2 milljónir og
Hrafnhildur Björgvinsdóttir maki
innherja seldi 3,2 milljónir. Aðrir
innherjar með minni eignarhluti
seldu samtals um 4,5 milljónir að
nafnverði auk þess sem seld voru
öll eigin bréf félagsins að nafnverði
11 milljónir króna.
Alls keypti Afl fjárfestingarfélag
þennan dag, 6. júní, hlutabréf í
Þorbirni Fiskanesi að nafnvirði
222,6 milljónir króna, eða 20%
hlutafjár í félaginu. Eignarhlutur
Afls fór þá í 24,35%, eða 270,9
milljónir að nafnvirði. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins var
hluturinn keyptur fyrir hönd Þor-
móðs ramma-Sæbergs, Skeljungs,
Tryggingamiðstöðvarinnar og
fleiri aðila sem tengjast Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna (SH) en
stjórnarformaður Afls er Þorsteinn
Vilhelmsson, stjórnarmaður í SH.
Miðað við að viðskipti með 20%
hlutinn hafi farið fram á genginu
6,0 nemur virði hlutarins rúmum
1,3 milljörðum króna sem þýðir að
félagið í heild er metið á 6,7 millj-
arða króna.
!
!
"
# $% &' (
%')*# # (
+ ,& -) ,(
.+(* (' (/)(
0# 1
2 # 1
0' # % # 1
,
1 3 4 (
5)) ,.'6)
7 * . &
8&* # 2
9*4 : ;0#
%'( "
:),# 1
0## ,# <
< 7)''
9# '(
<
=)3 # > 7*
0## ,# 2
7*
)#( ?@
% 1+%
A
A
A
A!
A
A
A
A
A!
A
A!
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A!
A
A
A!
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A!
A
A
A
A
A
A
A
Þormóður
rammi og
Skeljungur
stærstir í
Þorbirni
Fiskanesi
AÐ MATI Þorsteins Más Baldvin-
sonar, forstjóra Samherja, eru
fiskimjölsverksmiðjur of margar í
landinu og telur hann að þeim muni
fækka allnokkuð á komandi árum.
Þorsteinn ræddi þetta í viðtali í
Morgunblaðinu um síðustu helgi og
sagði þá að fiskimjölsverksmiðjur
væru fjárfrekur iðnaður og dýrt
væri að viðhalda og endurnýja bún-
aðinn í þeim. Hann vísaði einnig til
nágrannalandanna og fækkunar
fiskimjölsverksmiðja sem þar hefur
átt sér stað.
Samherji hf. á beinan og óbeinan
hlut í níu af 21 fiskimjölsverk-
smiðju í landinu.
Lokun
bæjarfélags
Hafþór Sigurðsson, oddviti nýrr-
ar sveitarstjórnar á Raufarhöfn og
verksmiðjustjóri SR-mjöls á staðn-
um, segir að á álagstímum hafi
hingað til ekki veitt af afkastagetu
fiskimjölsverksmiðjanna í landinu.
„Ef menn fækka verksmiðjunum þá
verður að stækka annars staðar.“
Um áhrif á bæjarfélagið ef til
lokunar verksmiðju kæmi sagði
hann að það jafngilti lokun byggð-
arlagsins. „Fiskimjölsverksmiðjan
er það stór hluti af atvinnulífinu
hér að ef henni yrði lokað væri
byggðarlagið nánast búið að vera.
Hér vinna 25 manns þegar það er
fullmannað og höfnin byggir á
tekjum af bræðsluiðnaðinum. Ég
held að það séu fáir staðir á landinu
þar sem fiskimjölsverksmiðjur hafa
jafnmikið vægi og hér,“ sagði Haf-
þór.
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri
á Þórshöfn, tekur í sama streng.
„Það yrði auðvitað hið versta mál ef
til lokunar kæmi. Það myndi skipta
miklu máli fyrir bæjarfélagið. 20
manns starfa í verksmiðjunni og til
viðbótar hafa menn atvinnu af
tengdri þjónustu, s.s. vélsmiðju.“
Hann segir að lokun kæmi sér
líka spánskt fyrir sjónir því verk-
smiðjan sé langhagkvæmasta ein-
ingin í rekstri Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar. „En það segir sig auð-
vitað sjálft að ef framleiðslugetan
er mikið umfram það hráefni sem
fæst til vinnslu þá kallar það á
grisjun og hagræðingu.“
Björn segir að nýting verksmiðj-
unnar sé góð í samanburði við aðr-
ar verksmiðjur. „Svo þegar við er-
um ekki að vinna hráefni er tíminn
nýttur í viðhald. Þessar verksmiðj-
ur þurfa að stoppa út af viðhaldi
öðru hverju.“
Nýbúið að endurbyggja
Í Sandgerði er fiskimjölsverk-
smiðjan Barðsnes. Sigurður Valur
Ásbjarnarson, bæjarstjóri í Sand-
gerði, segir að lokun fiskimjöls-
verksmiðjunnar kæmi sér afar illa
fyrir bæinn og t.d. myndu tekjur
hafnarinnar skerðast töluvert. „Þá
má nefna það að ástæðan fyrir
dýpkun hafnarinnar á sínum tíma
var að styrkja starfsemi verksmiðj-
unnar. Miklir fjármunir voru settir
í það og það yrði því bagalegt að
missa verksmiðjuna. Það yrði líka
með ólíkindum ef ákveðið yrði að
hætta starfseminni þar sem nýlega
var verksmiðjan nánast endur-
byggð frá grunni,“ sagði Sigurður
Valur.
Magnús Jóhannsson, forstöðu-
maður fjármálasviðs Fjarðabyggð-
ar, segir að þrjár fiskimjölsverk-
smiðjur séu í Fjarðabyggð, þar af
tvær öflugar, á Eskifirði og í Nes-
kaupstað. „Það hefur legið fyrir að
ekki hefur verið á áætlun hjá SR að
endurnýja verksmiðjuna á Reyðar-
firði sem er gömul eldþurrkunar-
verksmiðja. Vegna eðlis hennar
fullnægir hún ekki kröfum um
mengunarvarnir og hefur einungis
takmarkað starfsleyfi af þeim sök-
um,“ sagði Magnús.
Hann sagði að það yrði vissulega
slæmt fyrir atvinnulífið í Fjarða-
byggð ef verksmiðjan færi. „Aftur
á móti má benda á að unnið er að
gríðarlega stóru atvinnulífsverk-
efni á Reyðarfirði sem er bygging
álvers og ef þær áætlanir ná fram
að ganga vegur það margfalt upp
brotthvarf loðnuverksmiðju SR.“
Fækkun fiski-
mjölsverk-
smiðja hefði
mismikil áhrif
Morgunblaðið/Kristinn
Þorsteinn Már Baldvinson, forstjóri
Samherja, segir að fiskimjölsverk-
smiðjur séu of margar í landinu.
Á aukaaðalfundi Frjálsa lífeyr-
issjóðsins sl. föstudag sam-
þykktu 85% fundarmanna
breytingar á samþykktum
sjóðsins en slík atkvæða-
greiðsla var forsenda fyrir
sameiningu hans og Lífeyris-
sjóðsins Einingar undir nafni
Frjálsa lífeyrissjóðsins. Á fyrri
hluthafafundi Frjálsa lífeyris-
sjóðsins var sameiningin felld.
Áður höfðu stjórn og sjóðfélag-
ar Einingar samþykkt að
ganga í sjóðinn með fyrirvara
um samþykktarbreytingar
Frjálsa.
Í fréttatilkynningu frá Kaup-
þingi kemur fram að umsýslu-
þóknun rekstraraðila muni
lækka um 20% við samein-
inguna og tryggingaleg áhætta
sjóðsins minnka verulega.
Sameining Frjálsa lífeyris-
sjóðsins og Lífeyrissjóðsins
Einingar skerðir ekki réttindi
sjóðfélaga, að því er fram kem-
ur í tilkynningu Kaupþings,
rekstraraðila sjóðsins.
Stjórnarformaður Frjálsa
lífeyrissjóðsins verður Hörður
Sigurgestsson, fráfarandi for-
maður Lífeyrissjóðsins Eining-
ar, en Sigurður R. Helgason,
sem áður skipaði stjórnarfor-
mannssæti Frjálsa, verður
varaformaður. Aðrir í stjórn
eru: Bjarnar S. Ingimarsson,
Jón Halldórsson, Guðmundur
Hauksson, Bjarni Lúðvíksson
og Einar Róbert Árnason.
Hinn nýi sameinaði sjóður hóf
formlega starfsemi sína á
mánudag.
Frjálsi
lífeyris-
sjóðurinn
og Eining
sameinast
VAKI-DNG, Landmat Internatio-
nal og IMG þekkingarsköpun hafa
stofnað einkahlutafélagið Peocon
ehf. Tilgangur félagsins er þróun
og sala á tækni- og hugbúnaði,
tölvu- og upplýsingakerfum ásamt
skyldum atvinnurekstri.
Eignarhlutur Vaka-DNG í Peo-
con er 75,6%, Landmat Internatio-
nal ehf. með 15% eignarhlut IMG
þekkingarsköpun hf. með 9,4%
eignarhlut.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að félagið tekur yfir markaðssetn-
ingu á búnaði þeim sem Vaki DNG,
IMG og Landmat International
hafa þróað í samvinnu undanfarin
misseri og er ætlaður til greiningar
á flæði fólks, m.a. verslunarmið-
stöðvum. Stofnhlutafé félagsins er 1
milljón króna en verður hækkað í
70 milljónir króna á næstu dögum.
Aukning á hlutafé verður m.a. not-
að til yfirfærslu á búnaði og hug-
verkaréttindum frá Vaka DNG,
IMG og Landmati International
sem nauðsynleg eru fyrir framþró-
un félagsins. Nú þegar eru tilbúnar
á markað vörur sem eru farnar að
skila tekjum, að því er segir í til-
kynningu.
Í stjórn félagins eru: Hermann
Kristjánsson, Vaki-DNG hf., Einar
Einarsson, IMG þekkingarsköpun
hf., Geir Oddsson, Landmat Int-
ernational ehf.
Vaki-DNG, Land-
mat og IMG stofna
nýtt félag