Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 23

Morgunblaðið - 03.07.2002, Page 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 23 KAMMERKÓRINN Schola cantor- um undirbýr nú þátttöku í al- þjóðlegri kórakeppni sem kennd er við Seghizzi í Gorizia á Norður- Ítalíu og efnir af tilefninu til styrkt- artónleika í Hallgrímskirkju í kvöld kl. 21. Flutt verða verk sem sungin verða í keppninni, auk nokkurra ljúflingslaga úr safni íslenskra tón- skálda. Mótettur eftir Gesualdo, Brahms, Rautavaara, Kverno, Ny- stedt, Hjálmar H. Ragnarsson, Báru Grímsdóttur, svo og kórlög eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Ásgeirs- son, Jón Nordal o.fl. Stjórnandi Schola cantorum er Hörður Áskels- son organisti Hallgrímskirkju. Guðrún Finnbjarnardóttir alt- söngkona í Schola cantorum segir að eftir árangursríka keppnisferð til Frakklands árið 1999, þar sem kór- inn deildi fyrstu verðlaunum með öðrum kór, hafi þau í Schola cantor- um langað til að prófa þetta aftur. „Það er mjög ögrandi og skemmtilegt að taka þátt í svona keppni og þegar heim kom frá Frakklandi fórum við að leita að fleiri svoleiðis tækifærum. Okkur leist best á þessa keppni, bæði hvað varðaði staðsetningu og tímasetn- ingu. Við sóttum um, sendum nokkra geisladiska, og vorum valin í keppnina ásamt sextán öðrum kór- um. Þegar við sáum hvaða kórar keppa þarna, þá fór nú svolítill fiðr- ingur um okkur, þetta virðast vera ansi öflugir kórar, og verðugir and- stæðingar. Það er þarna kór frá Fil- ippseyjum sem sigraði í keppninni 1999, og Pro musica frá Gautaborg sem er mjög góður kór.“ Guðrún segir kórferðalög af þessu tagi dýr, en að kórinn reyni að sækja um styrki, auk þess sem þau hafi látið ágóða af söng kórsins renna í ferða- sjóð. „Við vinnum fyrir ferðinni með söng kórfélaga; og launin fyrir það sem við höfum verið að syngja und- anfarið og það sem við syngjum fram á haust, renna í þennan sjóð. Kvenfélag kirkjunnar hefur líka styrkt okkur og einnig nokkur fyr- irtæki.“ Strax á vorönn var farið að æfa fyrir keppnina; í júní tók kórinn sér hlé, þar til um síðustu helgi, að strembin lokatörn tók við, með mikl- um æfingum, sem lýkur með tón- leikunum í kvöld. Keppnin er haldin dagana 5. til 7. júlí n.k. og er þetta 49. sinn sem hún fer fram. Schola cantorum keppir í tveimur ólíkum flokkum og eru 16 nafntogaðir kórar í hvorum flokki víðsvegar að úr heiminum. Í öðrum keppnisflokknum eru verkefnin tengd mismunandi tímabilum tón- listarsögunnar, en í hinum aðeins einu tímabili, en þar flytur Schola cantorum tónlist frá seinni hluta 20. aldar. Aðgangseyrir á tónleikana í Hall- grímskirkju í kvöld er 1.500 krónur. Schola cantorum keppir á Ítalíu Kammerkórinn Schola cantorum. NÝTT gluggagallerí hefur verið opn- að á Vatnsstíg 9 og nefnist það Heima er best. Galleríið er í glugga heimilis Margrétar Leopoldsdóttur sem áður hýsti Götugalleríið Grjóthús. Í glugganum stendur nú yfir sýn- ing á verkum Rósu Sigrúnar Jóns- dóttur sem nefnist Sögur. Rósa útskrifaðist úr skúlptúrdeild LHÍ árið 2001 og hefur hún tekið þátt í ýmsum sýningum frá því hún út- skrifaðist. Rósa vinnur gjarnan út frá rýminu og aðstæðum á hverjum stað. Í þessu verki tengir hún verk sitt við húsið sjálft með því að leyfa vegfar- endum að gægjast inn í þá veröld sem það hefur að geyma. Heima er best býður listamönnum að sýna ókeypis. Brot úr verkinu Sögur. Sögur í nýju gluggagalleríi KATRÍN H. Ágústsdóttir opnar stuttsýningu í Galleríi Reykjavík, Skólavörðsutíg 16, á morgun, fimmtudag, kl. 15 og nefnist hún „Borgin Reykjavík“. Katrín hefur að undanförnu lagt stund á vatnslitamálun og aðallega fengist við myndefni byggt á lands- lagi og húsamótífum. Áður lagði hún stund á batíktækni og valdi þá gamalt íslenskt þjóðlíf að viðfangs- efni. Sýningin stendur til 17. júlí og er opin virka daga kl. 12–18, laug- ardaga kl. 11–16. Verkið Miðborgin, 2002, eftir Katrínu H. Ágústsdóttur. Stuttsýning á vatnslitaverkum ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.