Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.07.2002, Blaðsíða 37
HESTAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 37 gangtegundir nema skeið en í for- keppninni var einungis sýnt hægt tölt, brokk og yfirferðartölt. Auk þeirra sem að ofan eru talin mæta í milliriðil Perla D. Þórðardóttir, Sörla, á Síak frá Þúfum, 8,47, Krist- inn Loftsson, Sleipni, á Glanna frá Strönd, 8,46, Eyjólfur Þorsteinsson, Sörla, á Dröfn frá Þingnesi, 8,43, Hrefna M. Ómarsdóttir, Fáki, á Zorro frá Álfhólum, 8,42, Fanney Valsdóttir, Ljúfi, á Báru frá Bjarna- stöðum, 8,41, Þórunn Kristjánsdótt- ir, Geysi, á Perlu frá Vindási, 8,37, Bjarni Bjarnason, Trausta, á Patta frá Þóroddsstöðum, 8,36, Helga R. Pálsdóttir, Blæ, á Gimsteini, 8,35, Rut Skúladóttir, Fáki, á Vígahrapp frá Reykjavík, 8,34, Sveinbjörn Bragason, Mána, á Tóni frá Torfu- nesi, 8,32 og Bylgja Gauksdóttir, Andvara, á Leyni frá Enni. Þessi röð getur riðlast verulega þar sem inn koma tvær nýjar gangtegundir í milliriðli sem fram fer í dag klukkan 15:30. GÆÐINGAKEPPNI landsmótsins hófst í gær með keppni ungmenna og er ljóst að ekki verður síður barist þar en í eldri flokkunum. Berglind Rósa Guðmundsson, Gusti, á Þjótanda frá Svignaskarði, trónir efst með 8,56 en fast á hæla hennar er Sylvía Sigurbjörnsdóttir, Fáki, á Loga frá Skarði með 8,53. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, Stíg- anda, er í þriðja sæti á Golu frá Ysta- Gerði með 8,52. Í þriðja til fjórða sæti eru Guðmundur Ó. Unnarsson, Mána, á Braga frá Þúfu með 8,50 ásamt Þórunni Hannesdóttur, And- vara, á Gjöf frá Hvoli. Fjórir kepp- endur eru jafnir með 8,49 en þau eru Viðar Ingólfsson, Fáki, á Frakki frá Mýnesi, Kristján Magnússon, Herði, á Hrafnari frá Hindisvík, Daníel Ingi Larsen, Sleipni, á Loga frá Voðmúla- stöðum. Af þessu má sjá að hart verður barist um sigurinn hjá ung- mennum að þessu sinni. Tuttugu keppendur fara áfram í milliriðil þar sem sýna þarf allar Hnífjafnt er í ungmennaflokki á Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum, sem hófst í gær Stúlkurnar leiða í æsispenn- andi keppni Hera Hannesdóttir sem keppir fyrir Andvara fékk 8,18 í einkunn á Galdri en það dugði þeim ekki til áframhaldandi keppni í milliriðli. Morgunblaðið/Valdimar Það var spennu þrungin biðin hjá Bylgju Gauksdóttir meðan síðustu keppinautar hennar í ungmennaflokki luku keppni en niðurstaðan var þó sú að þau rétt sluppu í 20 keppenda hópinn sem heldur áfram keppni og mætir í milli- riðil. Bylgja bíður hér með gæðing sinn Leyni ásamt föður sínum, Sveini Gauki Jónssyni, eftir niðurstöðunni. ÞOKA frá Hólum er í efsta sæti hryssna sjö vetra og eldri eftir dóma í dag og hefur nú skotist yfir Gígju frá Auðsholtshjáleigu sem var efst eftir forskoðun fyrir landsmót- ið. Þoka hækkaði úr 8,5 fyrir skeið í 9,0 en Gígja lækkaði úr 9,5 fyrir skeið í 9,0. Fór Þoka með þessari breytingu í 8,64 í aðaleinkunn en Gígja er með 8,60. Knapi á Þoku er Þórarinn Eymundsson en Atli Guð- mundsson er knapi á Gígju. Það má því segja að spennan sé mikil í þess- um flokki og ekki útséð með hvor þessara muni verma efsta sætið. Ljóst er að Gígja þarf að ná fyrri einkunn í skeiðinu og sömuleiðis er klárt að Þoka mun ekki lækka frek- ar en önnur hross á yfirlitinu sem verður klukkan 8 á föstudag. Í þriðja sætinu er svo Rebekka frá Kirkjubæ sem Halldór Guðjóns- son sýnir en hún hlaut 8,34 í aðal- einkunn og hækkar sig nokkuð frá forskoðun í vor og munar þar mestu um að hún hækkar sig um hálfan fyrir tölt. Védís frá Síðu sem sýnd var af Atla Guðmundssyni er í fjórða sæti með 8,31 ásamt Flautu frá Miðsitju sem Daníel Jónsson sýndi. Ein hryssa, Hrafnkatla frá Leirubakka, hlaut 10,0 fyrir fet og var það eina tían sem sást í þessum flokki. Þórður Þorgeirsson sýndi Hrafnkötlu. Hörð keppni hryssna sjö vetra og eldri Þoka og Gígja berjast um efsta sætið Veðrið lofar góðu á Vindheimamelum, 15 stiga hiti og bjart veður, og fór vel um áhorfendur, sem voru vel á annað þúsund síðdegis í gær. HEKLA frá Heiði hlaut eina tíu fyrir vilja og geðslag og tryggði sér efsta sætið í sex vetra flokki í dómum í gær. Hlaut hún 8,40 í aðaleinkunn en það var Þórður Þorgeirsson sem sýndi hana og raunar líka hryssu í öðru sæti sem var Saga frá Strandarhöfða en hún hlaut 8,38. Í þriðja sæti varð Sól frá Efri-Rauðalæk með 8,36, Frigg frá Heiði varð fjórða með 8,27 og í fimmta sæti varð Þeysa frá Hólum með Mette Mannseth. Yfirlitssýning sex vetra hryssna verður klukkan 9.40 á föstudag. Frigg frá Heiði og Þórður Þorgeirsson mættu í hæfileikadóm og stóðu sig bæði með prýði. Sú moldótta fer hér á svifmiklu brokki. Hekla frá Heiði með eina tíu og efsta sætið S U N D F Ö T undirfataverslun Síðumúla 3-5 Smekkbuxur Gallabuxur, kvartbuxur, sokkabuxur, nærbuxur Þumalína, Skólavörðustíg 41 Moggabúðin Derhúfa, aðeins 800 kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.