Morgunblaðið - 03.07.2002, Qupperneq 39
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2002 39
HÖFÐABAKKI 9 112 REYKJAVÍK
SÍMI: 544 5330 FAX: 544 5335
Leitið tilboða
í stærri verk
Stærð:
D: 50 cm
B: 30/40 cm
H: 180 cm
Stál-
skápar
fyrir
vinnustaði
kr. 7.300,-
Verð frá
Stálskápar
Stærð:
D: 100 cm
B: 290 cm
H: 250 cm
Tekur
9 bretti
Brettahillur
kr. 19.920,-
Næsta bil
kr. 15.438,-
Lagerhillur
Stærð:
D: 60 cm
B: 190 cm
H: 200 cm
3 hillur
kr. 15.562,-
Næsta bil
kr. 13.197,-
Stálhillur
í fyrirtæki
og heimili
Stálhillur
Stærð:
D: 40 cm
B: 100 cm
H: 200 cm
5 hillur
kr. 8.765,-
Næsta bil
kr. 6.125,-
en gott
Við bjóðum
ÓDÝRT
10
11
/
T
A
K
T
ÍK
-
N
r.:
2
9
B
Stökktu til
Costa del Sol
17. júlí
frá kr. 39.865
Verð kr. 49.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 17. júlí, 2 vikur.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 52.360.
Ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til
Costa del Sol þann 17. júlí í eina eða tvær vikur. Hér getur þú notið
hins besta í sumarfríinu á þessum einstaka áfangastað. Þú bókar núna,
og tryggir þér síðustu sætin, og 4 dögum fyrir brottför hringjum við í
þig og tilkynnum þér hvar þú býrð. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Síðustu sætin í júlí
Verð kr. 39.865
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flug, gisting, skattar, 17. júlí, vikuferð.
Staðgreitt. Alm. verð kr. 41.860.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Einkaumboð
Spúnasett
Stangveiðisett
hannað fyrir íslenskar
aðstæður
Fæst í
öllum helstu sport-
og veiðivöruverslunum
landsins
og Bensínstöðvum Esso
um land allt
Grænar sökkur
Rotari
Fyrir silungsveiði
Flugusett
10
63
A
/
TA
K
T
ÍK
19
.6
´0
2
HELSTU ár Vopnafjarðar, Selá og
Hofsá, voru opnaðar um miðja síð-
ustu viku, en rólega gengur fyrir sig
á bökkum beggja og aðeins örfáir
laxar komnir á land, 3 fiskar úr Hofsá
og eitthvað fleiri í Selá, en þó innan
við tíu stykki. Það er þó bót í máli að
allt eru þetta rokvænir laxar og
menn hafa séð aðeins meira líf nú
undir það allra síðasta. Jón Þór Frið-
geirsson, kokkur í Árhvammi við
Hofsá, sagði ástand vatnsfalla á
svæðinu gott, vatnsveður hefðu verið
öðru hvoru og vatnsmagn eins og
best væri á kosið.
Góð opnun í Brunná
Hin ágæta sjóbleikjuá Brunná í
Öxarfirði var opnuð um helgina og
veiddust 14 fiskar sem er allgott því
yfirleitt er sjóbleikjan fremur há-
sumars- og síðsumarsfiskur. Þetta
voru nær allt mjög vænar bleikjur, 3
til 4,5 punda og veiddist helmingur-
inn á fluguna Krókinn.
Hæstu tölurnar úr Norðurá
Norðurá er sú á sem gefur stærstu
tölurnar nú um stundir, þar lauk holl
veiðum fyrir skemmstu með 83 laxa
sem verður að teljast allgott. Nær
allt smálax og nú veiðist fiskur alveg
fram að Króksbrú. Aðrar ár sem gefa
þokkalega eru Blanda, Þverá og
Langá. Víða er þó komið slangur af
laxi sem tekur illa í vatnsleysinu og
bjartviðrinu. Á það einkum við um
Suðvestur- og Vesturlandið.
Fréttir úr ýmsum áttum
Rúmlega tugur laxa veiddist
fyrstu vikuna í Hafralónsá sam-
kvæmt upplýsingum frá leigutakan-
um Lax-á, allt boltafiskur og telst
opnunin góð.
Um helgina hafði frést af sex löx-
um af Iðu, þ.a. einum 16 punda. Lítið
sést af laxi á svæðinu og vatnsmagn
er með minnsta móti.
Í vikubyrjun voru aðeins tveir lax-
ar komnir á land úr Leirvogsá og
menn sjá lítið af laxi enn sem komið
er.
Enn er enginn lax kominn úr
Gljúfurá, en hins vegar hefur verið
líflegt í Straumunum þar sem Gljúf-
urárlaxinn bíður gjarnan þegar
vatnsmagn hentar ekki til framrásar.
Um daginn veiddust t.d. 8 laxar á ein-
um degi í Straumunum og 4 laxar
stuttu seinna.
Enn er fyrsti laxinn úr Álftá ókom-
inn á land og síðast er fregnaðist var
það sama uppi á teningnum í Reykja-
dalsá í Borgarfirði, sem er afar
vatnslítil.
Hrolleifsdalsá í Skagafirði var
opnuð nýverið og veiddist talsvert af
ágætum staðbundnum urriða. Lítið
var þó gengið af sjóbleikju enda þess
varla von svo snemma á þeim slóðum.
Morgunblaðið/Golli
Logi Leo Gunnarsson, 12 ára,
með sinn annan lax úr Elliða-
ánum sama morguninn.
Byrjar rólega
í Vopnafirði
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
Rangur orgelleikari
„Í gagnrýni minni um tónleika
Kórs Akureyrarkirkju 5. maí sl., sem
birtist í Morgunblaðinu í júní með
fyrirsögninni Kröftug miskunnar-
bæn, varð mér heldur betur á í mess-
unni. Þar segi ég að Sveinn Arnar
Sæmundsson hafi leikið á orgel. En
því fór fjarri, enda þótt hann sé org-
elleikari. Antonia Hevesi hinn ágæti
orgelleikari frá Ungverjalandi sem
starfar á Siglufirði lék vandasamt
orgelhlutverk í Messe Solenelle eftir
Louis Vierne, eða eins og segir í
gagnrýninni, þá var „orgelleikurinn
til mikillar fyrirmyndar“. Það lof átti
Antonia að fá. Ég bið hana og les-
endur afsökunar á þessum flumbru-
hætti.“
Jón Hlöðver Áskelsson
LEIÐRÉTT
STUÐNINGSHÓPUR um krabba-
mein í blöðruhálskirtli verður með
rabbfund í húsi Krabbameinsfélags-
ins í Skógarhlíð 8 í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 3. júlí, kl. 17. Kaffi
verður á könnunni.
Rabbfundur um
krabbamein
HLEYPT hefur verið af stokkunum
nýju tryggðarkerfi hjá Olíuverzlun
Íslands hf. „Tryggðarkerfið, sem
einkum er hugsað fyrir þá viðskipta-
vini sem hafa akstur að atvinnu,
nefnist Flugmíluklúbbur Olís og
tengist hann Vildarklúbbi Flugleiða.
Þeir sem skrá sig í Flugmíluklúbb
Olís gerast þannig sjálfkrafa með-
limir í Vildarklúbbi Flugleiða. Með-
limir fá afhent sérstakt Flugmílu-
kort sem þeir framvísa í kjölfar
viðskipta sinna hjá Olís og renna þá
1,5% af andvirði viðskiptanna til
handhafa Flugmílukortsins í formi
punkta í Vildarklúbbi Flugleiða.
Í samstarfi við
Vildarklúbbinn síðan 1998
Fyrir er Olís í samstarfi við Vild-
arkort Visa og Flugleiða og hefur
verið að bjóða handhöfum slíkra
korta 1,25% afslátt af viðskiptum
þeirra við Olís í formi punktainn-
eignar í Vildarklúbbi Flugleiða. Í til-
efni af 75 ára afmæli Olís hefur þessi
afsláttur nú verið hækkaður í 1,5%
og verður þar að auki boðið upp á
tvöfalda punkta í sumar eða sem
samsvarar 3,0% af viðskiptum í
formi punkta.
Kynningarbækling og umsóknir
um aðild að Flugmíluklúbbnum má
nálgast á þjónustustöðvum Olís um
land allt auk þess sem sækja má um
á netinu undir slóðinni www.olis.is,“
segir í fréttatilkynningu frá Olís.
Flugmíluklúbb-
ur Olís fyrir at-
vinnubílstjóra
MIÐVIKUDAGINN 3. júlí gengst
Ferðafélag Íslands fyrir gönguferð á
Keili á Reykjanesskaga. Keilir
stendur stakur og áberandi og þaðan
er góð útsýn yfir Reykjanesskagann
og allt vestur á Snæfellsnes og inn til
landsins til Þórisjökuls og Skjald-
breiðar svo nokkuð sé nefnt. Uppi á
fjallinu er gestabók, sem sjálfsagt er
að rita nafn sitt í. Keilir er 378 m hár
og hæðaraukning á göngu um 280 m.
Gönguleiðin upp og niður er 8–9 km
og áætlað að hún taki 3–4 klst. Far-
arstjóri í þessari ferð verður Trausti
Pálsson, þátttökugjald er 1.500 fyrir
félagsmenn en 1.800 krónur fyrir
aðra. Fyrir þá sem ekki treysta sér á
brattann verður í boði ferð á svip-
aðar slóðir á sama tíma og gengið frá
Höskuldarvöllum að Spákonuvatni
og að Lækjarvöllum. Fararstjóri í
þeirri ferð verður Sigurður Krist-
jánsson. Brottför er frá BSÍ og
Mörkinni 6 kl. 19.30 á miðvikudags-
kvöld.
Gönguferð á
Keili með
Ferðafélagi
Íslands