Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ABSTRAKT EÐA HÚSIÐ?
Allt fyrir málarann og myndlistarmanninn í Litalandi,
nýrri verslun okkar í Domus Medica.
Komdu og fáðu góð ráð þegar þú ætlar að mála.
Dugguvogi 4 • www.slippfelagid.is Domus Medica við Snorrabraut
N
O
N
N
IO
G
M
A
N
N
I|
Y
D
D
A
•
N
M
06
45
4
•
si
a.
is
RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi
sínum í gærmorgun að ríkissjóður
skyldi styrkja landssöfnun Rauða
kross Íslands um tvær milljónir
króna vegna yfirvofandi neyðar í
sunnanverðri Afríku. Safnast hefur
hátt í fjórar milljónir króna frá al-
menningi í söfnuninni.
Í fréttatilkynningu frá utanrík-
isráðuneytinu segir:
„Þann 22. júlí brást Rauði kross
Íslands við neyðarbeiðni Alþjóða
Rauða krossins með landssöfnun
vegna yfirvofandi hungursneyðar í
fimm ríkjum sunnanverðrar Afr-
íku; Zimbabve, Malaví, Zambíu,
Lesótó og Svasílandi. Hungurs-
neyðin stafar einkum af langvar-
andi þurrkum og flóðum með til-
heyrandi uppskerubresti og
matarskorti, slæmri stjórnsýslu og
hárri tíðni eyðni. Talið er að 13
milljónir manna séu í hættu vegna
ástandsins og hefur Alþjóða Rauði
krossinn óskað eftir 85 milljónum
svissneskra franka til að veita
750.000 manns aðstoð.
Safnast hafa fjórar milljónir
hjá almenningi
Rauði kross Íslands hyggst
svara beiðninni með fjögurra millj-
ón króna framlagi, auk þess sem
þrír sendifulltrúar félagsins verða
sendir til starfa á svæðinu. Þá er
ótalin landssöfnunin sjálf, en safn-
ast hafa hátt í fjórar milljónir
króna frá almenningi og Rauða
kross félögunum um allt land.
Utanríkisráðuneytið hefur þegar
lagt til eina milljón króna til Mat-
vælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna
(WFP) vegna fæðuskorts á sama
svæði, en nýlegt ákall stofnunar-
innar er hið stærsta í sögu hennar.
Alþjóða Rauði krossinn og Mat-
vælaáætlun Sameinuðu þjóðanna
hafa með sér náið samstarf vegna
neyðarástandsins.
Í ljósi mikillar neyðar í sunnan-
verðri Afríku er lagt til að ríkis-
stjórn Íslands styrki landssöfnun
Rauða kross Íslands um tvær millj-
ónir króna.“
Landssöfnun vegna neyðarástands í sunnanverðri Afríku
Ríkissjóður styrkir RKÍ
um tvær milljónir króna
UM þessar mundir er verið að
flytja fimm stóra olíutanka frá
norðanverðum Vestfjörðum suður
á Kjalarnes. Þar munu tankarnir
fá nýtt hlutverk. Þeir verða nýtt-
ir sem fóðurgeymslur fyrir
svínabú á Kjalarnesi. Samkvæmt
upplýsingum Bæjarins besta hef-
ur tönkunum verið komið fyrir á
Hnífsdalsbryggju en þaðan verða
þeir dregnir suður með vestur-
strönd landsins og allt suður á
Kjalarnes.
Þegar þessi mynd var tekin var
björgunarskip frá Björgunar-
félagi Ísafjarðar að flytja tvo
tanka frá Hnífsdalsbryggju til
Bolungarvíkur.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Olíutankar fá nýtt hlutverk
EKKI verður hægt að flytja inn í
nýjar höfuðstöðvar Orkuveitu
Reykjavíkur við Réttarháls 1.
september eins og stefnt var að,
þar sem húsið er ekki tilbúið. Seg-
ir Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitunnar, að búið sé að
fresta flutningunum fram í nóv-
ember, miðað sé við að búið verði
að flytja inn þann 1. desember nk.
Ákvörðun um þetta var tekin á
fundi byggingarnefndar í gær.
Guðmundur segir meginskýr-
inguna vera að dregist hafi að af-
henda utanhússklæðningu á annað
húsið, sem er flutt inn frá Dan-
mörku. „Hún er orðin tveimur til
þremur mánuðum á eftir áætlun. Á
meðan við getum ekki lokað hús-
inu er erfitt að vinna inni í því og
það seinkar öllu,“ segir hann.
Í lok apríl, þegar hornsteinn var
lagður að húsinu, var gert ráð fyr-
ir að heildarkostnaður vegna
byggingarinnar næmi 2,3 milljörð-
um. Fyrir um mánuði var kostn-
aðurinn metinn að nýju og segir
Guðmundur að ljóst sé að kostn-
aðurinn muni fara fram úr þessari
tölu. Nýjar tölur hafi þó ekki verið
kynntar fyrir stjórn Orkuveitunn-
ar og því geti hann ekki gefið þær
upp.
Eignir Orkuveitunnar á Eir-
höfða hafa verið á sölu á tíunda
mánuð, en hafa að sögn Guðmund-
ar ekki selst. Þar er um 4.500 fer-
metra húsnæði, á um þriggja hekt-
ara lóð sem er seld með
byggingarrétti. Þegar eignin var
sett á sölu var verðhugmyndin um
400 milljónir króna og á söluand-
virðið að fara upp í byggingar-
kostnað vegna nýju höfuðstöðv-
anna.
Guðmundur segir að reiknað sé
með því að starfsemi í gömlu raf-
veitu- og hitaveitubyggingunum á
Grensásvegi og Suðurlandsbraut
verði flutt í höfuðstöðvarnar þann
1. desember, en vinnuflokkarnir og
verkstæðið sem hafa aðsetur á
Eirhöfða flytji ekki fyrr en næsta
vor.
Flutningi í nýjar höfuðstöðvar OR frestað fram í nóvember
Kostnaðurinn fer fram
úr 2,3 milljörðum
ÁRNI Johnsen, fyrrv. alþingismaður,
mun áfrýja dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur sem kveðinn var upp 3.
júlí sl. en áfrýjunarfrestur rennur út í
dag. Árni var dæmdur í 15 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi fyrir fjár-
drátt í opinberu starfi, rangar
skýrslur til yfirvalda, mútuþægni og
umboðssvik. Fjórir menn sem einnig
voru ákærðir í málinu voru allir sýkn-
aðir.
„Árna þótti dómurinn harður, refs-
ingin, sem er algjörlega óskilorðs-
bundin, þung og Árni var sakfelldur
fyrir atriði sem hann taldi að hefði átt
að sýkna hann af,“ sagði Jakob R.
Möller, verjandi Árna, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Skv. lögum um meðferð opinberra
mála skal ákærði tilkynna um áfrýjun
til Hæstaréttar ekki síðar en fjórum
vikum eftir að dómur er birtur. Rík-
issaksóknari hefur á hinn bóginn
frest í átta vikur frá því honum berst
endurrit af dómnum til að ákveða
hvort honum verði áfrýjað. Jakob
segir að þetta óeðlilega misvægi í
áfrýjunarfrestinum valdi því að
ákveðin réttaróvissa ríki um það
hvort Hæstiréttur getur breytt sak-
fellingu í héraði í sýknu í Hæstarétti,
hafi ákærði ekki áfrýjað málinu af
sinni hálfu. Þetta ójafnvægi sé algjör
tímaskekkja. „Árni Johnsen hefur því
ákveðið að áfrýja dómnum til að
standa ekki höllum fæti ef í ljós kem-
ur að ákæruvaldið muni áfrýja,“ sagði
Jakob. Aðspurður sagði hann að ef
ákæruvaldið ákveður að áfrýja ekki
dómnum, þá komi til greina að draga
áfrýjunina til baka af hálfu Árna.
Árni John-
sen áfrýjar
dómi hér-
aðsdóms FÉLAG kúabænda á Suðurlandi
hefur sent frá sér harðorða álykt-
un þar sem fram kemur að um all-
nokkurt skeið hafi skilaverð fyrir
nautgripi til bænda tæpast staðið
undir framleiðslukostnaði og telur
félagið að greinin stefni í hrun ef
fram haldi sem horfi.
Valdimar Guðjónsson, ritari Fé-
lags kúabænda á Suðurlandi, segir
óánægju bænda vera mikla með
skilaverð til bænda. Að sama skapi
séu bændur ekki að setja á og ala
nýja nautgripi til slátrunar. „Það
borgar sig varla fyrir bændur að
standa í nautgriparækt vegna þess
framleiðslukostnaðar sem er því
fylgjandi, fóðurkostnaðar og þess
háttar. Það er dýrt að ala nautgrip
til kjötframleiðslu, í 16–18 mánuði
að jafnaði. Greinin er á engan hátt
styrkt, og er það einsdæmi meðal
Evrópulanda að nautgriparæktin
standi ein og óstudd. Ræktunin á
allt sitt undir markaðnum.“
Aðspurður segir hann hættu á
skorti á nautakjöti innan skamms.
„Ef fram heldur sem horfir verður
skortur á íslensku nautakjöti í
framtíðinni, sem er mjög alvar-
legt.“
Nautgripabændur
Segja hrun
framundan
í greininni
TVEIR útlendingar sluppu
ómeiddir þegar bíll þeirra fór út af
Vesturlandsvegi við Fiskilæk síð-
degis í gær. Ökumaður missti
stjórn á bíl sínum í lausamöl en
verið er að leggja bundið slitlag á
veginn. Höfðu verktakar lagt
seinna lagið á veginn fyrr um dag-
inn.
Bíllinn valt ekki en var óökufær
eftir óhappið. Lögreglan í Borg-
arnesi ók mönnunum til Borgar-
ness þar sem þeir tóku við öðrum
bílaleigubíl. Kvaðst ökumaðurinn
aldrei áður hafa ekið á vegi sem
lausamöl hafði verið lögð ofan á.
Missti stjórn á
bílnum á vega-
vinnusvæði
♦ ♦ ♦
ÍSLENSKU kvikmyndinni Reykja-
vík Guesthouse – rent a bike, sem
frumsýnd var í mars síðastliðnum,
hefur verið boðið á eina stærstu kvik-
myndahátíð Norður-Ameríku, Mont-
real World Film Festival. Hátíðin er
haldin frá 22. ágúst til 2. september.
Myndin verður sýnd í flokki ásamt
öðrum myndum, sem fjalla á einn eða
annan hátt um samtímann.
Leikstjórar myndarinnar eru tveir,
þau Unnur Ösp Stefánsdóttir og
Björn Thors. Kvikmyndatökumaður
var Börkur Sigþórsson, og þau þrjú
voru framleiðendur myndarinnar, í
nafni fyrirtækisins Réttir dagsins ehf.
Með helstu hlutverk í myndinni fara
þau Hilmir Snær Guðnason, Krist-
björg Kjeld og Stefán Eiríksson.
Boðið á al-
þjóðlega kvik-
myndahátíð
♦ ♦ ♦