Morgunblaðið - 31.07.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 31.07.2002, Blaðsíða 31
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 31 ✝ Steinunn HafdísPétursdóttir fæddist í Keflavík 15. október 1948. Hún lést á Landspítalan- um við Hringbraut 24. júlí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Árni Pétur Jónsson tollvörður, f. 22. september 1919, d. 23. október 1999, og Svana E. Sveins- dóttir, f. 25. mars 1925, d. 21. maí 1999. Systkini Steinunnar eru: 1) Sveinn Krist- ján, f. 22. janúar 1944, maki Guð- rún Iðunn Jónsdóttir, f. 24. júlí 1953. Sonur þeirra er Gunnar Hrafn, f. 11. júní 1996. Sonur Guðrúnar er Hannes Jón, f. 13. nóvember 1975. 2) Jenný Olga, f. 13. október 1951, maki Veigar Már Bóasson, f. 6. ágúst 1950. Synir þeirra eru Árni Pétur, f. 15. mars 1979, Helgi Már, f. 4. maí 1982, unnusta hans er Ásta Guð- mundsdóttir, f. 28. júlí 1983, son- ur þeirra er Veigar Már, f. 9. júní 2001, og Steinar Páll, f. 6. febrúar 1987. Sonur Veigars er Daði, f. 26. janúar 1973, eiginkona hans er Berglind Bergþórsdóttir, f. 14. júní 1974, dætur þeirra eru Sara Margrét, f. 10. september 1994, og Lena Rún, f. 26. ágúst 2001. 3) Kristín, f. 3. apríl 1968, maki Antwan Spierings, f. 29. septem- ber 1971. Sonur þeirra er Aaron Johannes Pétur, f. 29. mars 2002. Steinunn varð gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur 1965. Hún lauk námi frá Hjúkr- unarskóla Íslands 1971, stundaði framhaldsnám í skurðhjúkrun við Landspítalann okt. 1973 til des. 1974. Hún vann á Sjúkra- húsi Keflavíkur 1971–1973 og síðan á skurðstofum Land- spítalans. Hún vann þrjú ár á sjúkrahúsi í Englandi auk þess sem hún starfaði á sjúkrahúsum í Nor- egi. Í Bretlandi náði hún sér í breska rík- isviðurkenningu á hjúkrunarnáminu. Steinunn tók þátt í starfsemi Leikfélags Keflavíkur og lék í nokkrum sýningum þess. Steinunn var mikil keppnis- manneskja, synti 200 metra sund fimm ára gömul, þá yngst á Ís- landi til að gera það, og synti heiðurssund fyrir þáverandi for- seta Íslands, herra Ásgeir Ás- geirsson, og fékk heiðurspening að launum. Hún var í unglinga- landsliði kvenna í handknattleik 1966 og tók þátt í fyrsta opinbera knattspyrnuleik kvenna á Íslandi 1970, en þá áttust við lið Keflavík- ur og Reykjavíkur. Það keppnisskap sem hún ávann sér í íþróttum kom sér vel þegar hún varð fyrir slysi við störf á skurðstofu Landspítalans fyrir sex árum og gat ekki unnið sitt hjartfólgna starf frá þeim tíma. Steinunn var ógift og barnlaus. Útför hennar fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Hvalsneskirkjugarði. Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga, að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. (P.J. Árdal.) Enn og aftur er maður minntur á hverfulleika lífsins og hversu hratt getur runnið úr stundaglasinu. Þeg- ar ég kveð Steinunni systur mína takast á margs konar tilfinningar, það hellist yfir mig tómleikatilfinn- ing en jafnframt tilfinning sem er full af þakklæti og gleði. Á undanförnum dögum hafa myndir minninganna liðið hjá hver af annarri. Æskudagarnir í Keflavík, þegar við systkinin vorum að alast upp í Sóltúninu, þar sem stórt leik- svæði var í nálægð við heimilið, en þar fóru leikir okkar krakkanna fram. Á þessum árum voru íþrótt- irnar, sundið, fótboltinn og þó sér- staklega handboltinn aðaláhugamál Steinunnar. Hún rifjaði það upp fyr- ir stuttu og hafði gaman af þegar strákarnir ásamt Svenna bróður vildu ekki leyfa henni að spila fót- bolta vegna þess að hún var stelpa. Hún gafst samt ekki upp og fékk að spila í einum leik og viti menn þar skoraði hún mark og þá varð ekki aftur snúið, hún fékk að vera með. Hún sýndi það og sannaði að hún gaf þeim ekkert eftir. Þessi kraftur, þrjóska og dugnaður kom snemma fram og átti eftir að fylgja henni systur minni fram á síðasta dag. Steinunn var ung þegar hún tók þá ákvörðun að læra hjúkrun og varð það hennar starfsvettvangur. Seinna fór hún í framhaldsnám og lærði skurðstofuhjúkrun. Árið 1982 hélt hún til Englands ásamt Þórunni vin- konu sinni sem lést fyrir nokkrum árum en þær fóru utan til að læra ensku og að starfa við hjúkrun. Þar náðu þær sér í breska ríkisviður- kenningu á hjúkrunarnáminu. Stein- unn var í Bretlandi í nokkur ár en eftir heimkomuna fór hún að vinna á skurðstofu Landspítalans og var síð- ustu starfsárin yfirhjúkrunarfræð- ingur á hjartaskurðdeild. Hún unni hjúkrunarstarfinu af heilum hug og það var tekið eftir því hversu góður hjúkrunarfræðingur hún var. Það var systur minni mikið áfall þegar hún varð fyrir slysi á vinnu- stað sem leiddi til þess að hún gat ekki lengur unnið það starf sem stóð hjarta hennar næst. Hún þurfti að standa í málaferlum til að ná fram rétti sínum, en varð þeirrar gleði að- njótandi stuttu eftir að hún greindist með krabbamein að vinna málið fyrir héraðsdómi. Ekki auðnaðist henni þó að sjá málið endanlega í höfn þar sem það er nú í Hæstarétti en vísa ein sem birtist í bændablaðinu ný- lega um þetta mál vakti hjá henni hlátur og hafði hún mikið gaman af. Það var okkur öllum mikið áfall að Steinunn skyldi greinast með krabbamein fyrir fimm mánuðum. Hún háði stutta baráttu en sýndi ótrúlegan styrk og baráttuvilja, það hvarflaði ekki að neinu okkar sem næst henni stóðu að svo stutt væri í kveðjustundina. Við systurnar bjuggum í nágrenni hvor við aðra í mörg ár, hún var heimagangur á mínu heimili og eftir að hún kom heim frá Bretlandi bjó hún hjá mér í eitt ár. Hún var ekki bara frænka heldur líka vinur drengjanna minna. Öll jól og áramót dvaldi hún á heimili mínu, hún hafði það hlutverk fyrir hvert aðfanga- dagskvöld að sauma fyrir fyllinguna í jólagæsina en þar gaf hún fag- mönnum ekkert eftir. Hún var við- stödd fæðingu strákanna og tók þátt í uppeldi þeirra allra. Við Veigar þurftum aldrei að hafa áhyggjur ef við vildum skreppa í burtu hvort sem það var innanlands eða utan þá flutti hún bara inn eða strákarnir til henn- ar. Þannig mynduðust órjúfanleg tengsl á milli hennar og fjölskyldu minnar. Það mun taka okkur öll langan tíma að átta okkur á því að stundirnar með henni verða ekki fleiri en við erum rík að eiga sjóð af yndislegum minningum sem munu ylja okkur um ókomin ár. Það er ekki hægt að ljúka þessum skrifum án þess að minnast á hversu mikill dýravinur hún var. Hundurinn hennar, hún Perla, var vinur hennar, maður skynjaði svo mikinn kærleika og vináttu á milli þeirra. Steinunn vildi helst alltaf hafa Perlu nálægt sér, hún talaði við hana eins og manneskju og hundurinn virtist skilja það sem sagt var við hann og jafnvel höfðum við það á tilfinning- unni að tíkin skynjaði líðan hennar í veikindunum. Nokkrum dögum fyrir andlátið fór Steinunn með okkur Veigari í sumarbústað í Vaðnesi og dvaldi með okkur í nokkra daga. Þetta gerði hún meira af vilja en mætti, en dugnaðurinn og sjálfstæð- ið sem hún ætíð sýndi kom þarna ríkulega í ljós. Hún tókst á við veik- indi sín heima og dvaldi ekki á sjúkrahúsi nema í fáar klukkustund- ir. Það er gæfa mín að hafa átt systur eins og Steinunni en jafnframt mín mikla sorg að hafa misst hana svona í blóma lífsins. Þessa styrku stoð sem alltaf var til staðar í lífi mínu. Við Veigar sendum hjartans þakklæti fyrir allt sem hún gerði fyrir okkar fjölskyldu. Minningin um systur, mágkonu og frænku verður ljós í lífi okkar. Hve ljúft er þá að lifa og dreyma líta yfir farinn veg, minningarnar mun ég geyma meðan lífs ég andann dreg. Þín systir Jenný. Þegar við í dag kveðjum ástkæra frænku okkar, hefur myndast tóma- rúm í hjörtum okkar. Við hefðum viljað fá að hafa hana svo miklu leng- ur hjá okkur og finnst hún hafa farið allt of fljótt. En við huggum okkur við allar þær yndislegu minningar sem við eigum um hana. Hún var einstök manneskja hún frænka okkar, hún átti ekki bara stóran þátt í uppeldi okkar strák- anna heldur var hún mikill vinur okkar. Hún var stöðugt að kenna okkur og maður gat talað við hana um allt milli himins og jarðar. Það var nefni- lega svo gott að hún gat alltaf út- skýrt hlutina þannig að maður skildi þá. Ef einhverjum okkar leið illa þá fórum við til hennar, ræddum málin og komum alltaf út með bros á vör. Hún var hjúkrunarkona af lífi og sál og við vorum afar stoltir af því að eiga hjúkku fyrir frænku. Þegar við vorum veikir þá var hún mætt á stað- inn og sat hjá okkur en umhyggja hennar var einstök. Hún var svo góð manneskja og var alltaf tilbúin til að hjálpa öllum sem leituðu til hennar. Sá yngsti okkar, Steinar Páll, heit- ir í höfuðið á frænku og við vitum að henni þótti gott að eiga nafna en við vitum það líka að við vorum allir strákarnir hennar. Hún átti það til að kalla okkur syni sína og við mát- um það mikils. Það er komið að kveðjustund, í okkar huga var hún hetja. Við trúum því að hún sé nú með ömmu og afa en það eru ekki nema þrjú ár síðan við kvöddum þau með stuttu millibili. Við biðjum guð að varðveita frænku og gefa okkur öllum aðstand- endum styrk á þessum erfiðu tímum. Hvar sem lítið kærleikskorn, kann að festa rætur, þar fer enginn út í horn, einmana og grætur. (R. Gröndal.) Strákarnir þínir Árni Pétur, Helgi Már og Steinar Páll. Elsku Steinunn frænka. Nú hefur þú kvatt þennan heim og okkur lang- ar að þakka þér samveruna með nokkrum orðum. Sumir segja að guð taki þá góðu til sín fyrst. Það að guð skuli hafa tekið þig frá okkur núna rennir stoðum undir þá kenningu. Þú varst nefni- lega góð í gegn. Þú varst stoð og stytta svo margra í okkar fjölskyldu og alltaf var auð- sótt að leita til þín, hvort sem það var vegna vandamála, greiða eða að láta búa um fótboltameiðsl. Þú varst læknari í víðasta skilningi þess orðs og ekki furða að þú skulir einmitt hafa valið þér stafsvettvang við að lækna fólk, það var þér í blóð borið. Þú varst mikilvægur hlekkur í fjölskyldu okkar og tókst okkur allt- af sem þínum eigin þó svo að við vær- um ekki blóðskyld. Þú verður alltaf Steinunn frænka í okkar huga og þannig munum við minnast þín með hlýhug um ókomna tíð. Við þökkum þér samveruna og vonum að þér líði vel á nýjum stað. Elsku Jenný, Sveinn, Kristín og fjölskyldur, þið hafið misst mikið á stuttum tíma en huggið ykkur í sorg- inni við það að minning þeirra sem eru farnir lifir áfram með okkur og með nýju einstaklingunum í fjöl- skyldunni. Guð veri með ykkur, og öðrum aðstandendum Steinunnar. Daði Þór Veigarsson, Berglind Guðrún Bergþórsdóttir. Steinunn vinkona okkar og starfs- félagi hefur kvatt eftir stutta en snarpa baráttu. Við sem störfuðum með Steinunni á skurðdeild Land- spítalans við Hringbraut viljum minnast hennar með nokkrum orð- um. Steinunn, eða Steina eins og hún var jafnan kölluð, hóf störf á deild- inni 1987 en starfaði áður sem skurð- hjúkrunarfræðingur í Englandi og á skurðdeild kvennadeildar Landspít- alans. Með Steinu fengum við skurð- hjúkrunarfræðing með mikla reynslu, sem lagði allt í starf sitt og hlífði sér hvergi. Hún var vakin og sofin yfir því hvernig hún gæti sem best leyst verkefni sín og lagði á sig ómælda vinnu í því skyni. Um nokk- urra ára skeið sinnti Steina krefjandi umsjón með hjartaaðgerðum á deild- inni og var það henni mikið kapps- mál að standa undir þeim kröfum sem það gerði til hennar. Steina varð fyrir slysi við vinnu sína 1996 sem batt enda á starfsferil hennar. Við starfsfélagarnir höfðum áhyggjur af því hvernig Steinu tækist að sætta sig við breyttar aðstæður og þá sér- staklega þar sem við vissum að vinn- an var svo stór þáttur í lífi hennar. Steina átti eftir að koma okkur á óvart. Hún tókst á við breyttar að- stæður sínar með óbilandi kjarki og bjartsýni, þótt vafalaust hafi hún átt sínar erfiðu stundir. Með sama hætti mætti hún örlögum sínum er hún greindist með krabbamein í byrjun ársins. Hún ætlaði að berjast og halda í bjartsýnina og það gerði hún. Þó svo við vissum að hverju stefndi kom andlát Steinu okkur á óvart, því hún kvartaði aldrei heldur smitaði okkur af bjartsýni sinni. Eins og áður er getið um varð Steina að hætta störfum á skurð- deildinni árið 1996, en hún var þó alltaf ein af okkur stelpunum á skurðstofunni. Hún tók í gegnum ár- in þátt í ýmsum gleðistundum hjá okkur og það var sjálfsagt að muna nú eftir að láta Steinu vita þegar eitt- hvað stóð til. Einnig fylgdumst við með baráttu hennar fyrir því að fá viðurkenningu á rétti sínum til slysa- bóta og samglöddumst henni þegar hún hafði sigur í því máli. Það er því sárt til þess að hugsa að hún fékk ekki notið baráttu sinnar heldur féll fyrir þeim vágesti sem leggur svo marga að velli. Það fór ekki framhjá okkur að fyr- ir utan vinnuna snerist líf Steinu og hugsun um Jenný systur og fjöl- skyldu hennar. Jenný og strákarnir voru henni ávallt efst í huga. Það er erfitt að kveðja og það sækja að okk- ur ýmsar spurningar um lífið og til- veruna. Við geymum með okkur dýr- mætar og ljúfar minningar sem munu lifa með okkur sem þekktum Steinu um ókomin ár. Hugur okkar og samúð er hjá systkinum Steinu og fjölskyldum þeirra og við biðjum guð að styrkja þau. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Fyrir hönd starfsfólks skurðdeild- ar 12-CD Landspítalanum við Hringbraut, Herdís Alfreðsdóttir deildarstjóri. Í september 1968 kom saman í Hjúkrunarskóla Íslands á fimmta tug ungra kvenna, bjartsýnar og glaðar með óráðna framtíð. Allar stefndu þær að sama marki, en það var að verða hjúkrunarkonur. Hjá þessum ungu og bjartsýnu konum speglaðist fjölbreytileiki manneskj- unnar og mannlífsins í hnotskurn. Hver og ein hafði sín sérkenni, sína sýn á lífið og tilveruna og hver og ein naut virðingar og aðdáunar allra hinna. Ein af þessum ungu konum var Steinunn Hafdís Pétursdóttir eða Steina P. eins og við kölluðum hana jafnan. Þær sem bjuggu á heimavistinni kynntust mjög vel og var hún í þeim hópi. Á þessum tíma þegar margar höfðu ekki einu sinni bílpróf átti Steina bíl og var óspör á að bjóða okkur í styttri og lengri ökuferðir og eftirminnilegt er sumarfrí norður í land í maímánuði eitt árið. Steina var kát og lífsglöð og ófeimin að láta skoðanir sínar í ljós. Trygglynd var hún og vinur vina sinna. Í skólanum var hún félagslynd og oftast tilbúin að taka þátt í gríni og glensi. Eft- irminnilegt er framlag hennar til leiklistarinnar á árshátíð skólans eitt árið. Fljótlega eftir útskrift hóf hún nám í skurðhjúkrun. Þar nutu sín vel nákvæmni og skipulagshæfileikar hennar. Skurðhjúkrun var hennar starfsvettvangur, bæði hér heima og erlendis og vitum við að hún var eft- irsóttur skurðhjúkrunarfræðingur, enda harðdugleg og ósérhlífin. Fyrir nokkrum árum varð Steina fyrir því óláni að slasast á fæti og varð óvinnufær eftir það. Þar sem starfið var henni mikilvægt, var þetta henni mjög þungbært, en hún tók því með ótrúlegu æðruleysi. Eins var fyrir fá- einum mánuðum, þegar hún greind- ist með illkynja sjúkdóm sem leiddi til dauða hennar langt um aldur fram. Steina lét sig ekki vanta þegar hollsysturnar komu saman af ýms- um tilefnum. Ferðin til Prag sl. Haust í tilefni 30 ára útskriftar úr HSÍ er okkur efst í minni. Í þessari ferð áttum við yndislegar stundir saman með Steinu. Af þessum stóra hópi er hún sú fyrsta sem fellur frá og verður hennar sárt saknað. Systkinum Steinu og fjölskyldum þeirra vottum við dýpstu samúð. Guð blessi minningu hennar. Hollsystur úr Hjúkrunarskóla Íslands. Þá er baráttu og þrautum Steinu okkar lokið. Krabbinn kom eins og eldibrandur og sigraði á aðeins örfá- um mánuðum. Við kynntumst Steinu fyrir rúmum ellefu árum þegar við fluttum í Sporhamrana og urðum ná- grannar. Fljótt mynduðust vináttutengsl sem styrktust með ári hverju. Þegar við fórum í burtu í lengri eða skemmri tíma fórum við algerlega áhyggjulaus því allt var í góðum höndum Steinu. Var hún einn besti vinur okkar og bar þar aldrei skugga á. Steina lærði hjúkrun og var það ævistarf hennar þar til hún lenti í vinnuslysi árið 1996. Eftir það var hún öryrki. Það hlýtur að vera ótrú- lega erfitt að vera allt í einu kippt út af vinnumarkaðinum og öðru tilheyr- andi. Aldrei kvartaði hún blessunin, heldur var hún alltaf tilbúin til að hugga, styrkja og hjálpa öðrum. Fljótlega eftir slysið eignaðist hún tíkina Perlu, þá aðeins tveggja mán- aða gamla. Hún létti Steinu lífið mik- ið á hennar þrautagöngu. Perla er svo vel upp alin að undrum sætir. Í dag kveðjum við Steinu í hinsta sinn með söknuði og trega um leið og við þökkum fyrir að hafa fengið að kynnast henni og þekkja hana. Elsku Jenný, Kristín, Svenni, strákarnir og aðrir aðstandendur, Guð gefi ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Blessuð sé minning Steinu. Guðrún og Jón Óli. STEINUNN HAFDÍS PÉTURSDÓTTIR ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upp- lýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Formáli minningar- greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.