Morgunblaðið - 31.07.2002, Side 27

Morgunblaðið - 31.07.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 27 verkefnasvið heilbrigðisráðuneytis- ins. Hafsteinn segir aðspurður um þessi atriði að sjómælingar Land- helgisgæslunnar og Landmælingar Íslands eigi mjög gott samstarf sín á milli, en ekki sé raunhæft að Landmælingar taki við sjómæl- ingadeild Gæslunnar. „Sjómæling- ar verður að framkvæma á sér- hæfðan hátt með miklu öryggi þar sem taka verður tillit til annarra þátta en við landmælingar. Þá verður og að hafa í huga að skip verða að geta treyst nákvæmni sjó- kortanna. Skipstjórnarlærðir menn með sérmenntun í sjómælingum annast sjómælingarnar, en þeir vinna síðan með sérhæfðu korta- gerðarfólki við sjókortagerðina. Þessi þáttur er mjög mikilvægur. Landhelgisgæslan er virkur þátt- takandi í alþjóðlegum samtökum um sjómælingar þar sem strangar reglur eru um sjókortagerð. Við er- um með samninga við Bresku sjó- mælingastofnunina og í samtökum með Norðurlöndunum og ýmsum Evrópulöndum. Hins vegar tel ég rétt að heilbrigðisráðuneytið fjár- magni þyrlusveit lækna. Í rauninni greiðum við sjúkrahúsunum sem greiða svo aftur læknunum. Það er miklu eðlilegra að heilbrigðisráðu- neytið greiði þennan kostnað. Á tímabili safnaðist upp 20 milljóna króna kostnaður hjá Landhelgis- gæslunni sem hún var látin greiða vegna þessarar þjónustu umfram það sem henni var ætlað í fjárlög- um. Fyrir utan það sem ég minntist á fyrr, er þetta ein orsök þess að fjármál Landhelgisgæslunnar eru í því ástandi sem raun ber vitni.“ Erum sérfræðingar í sjóbjörgun Hafsteinn er einnig spurður að því hvort ekki hefði verið eðlilegt að stjórnstöð Gæslunnar tæki þátt í sameiningu ríkislögreglustjóra, Flugmálastjórnar og Slysavarna- félagsins Landsbjargar vegna leit- ar og björgunar. „Við erum sér- fræðingar í sjóbjörgun og stjórnstöð okkar er fyrst og fremst til öryggis fyrir sjófarendur,“ segir hann. „Við teljum að mesta öryggið sé fólgið í því að eiga samstarf við aðra aðila án þess að vera beinlínis hluti af þeirra starfsemi. Við vitum að margir hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, sem hafa unnið við sjóbjörgun, eru okkur sammála í þessu. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem við höfum fengið á þessi sameiginlega stjórnstöð að vera samræmingarstöð sem verður mönnuð þegar á þarf að halda. Það er hinsvegar lykilatriði í sjóbjörgun að geta brugðist strax við neyðar- boðum og því þarf sjóbjörgunar- stöð að vera fullvirk allan sólar- hringinn, alla daga ársins, svo að hægt sé að setja af stað björgunar- aðgerðir fyrirvara- og milliliða- laust. Við lítum á það sem skyldu okkar að koma sem fyrst til hjálpar á sjó og þeirri skyldu sinnum við best með því að Tilkynningaskylda íslenskra skipa væri hjá Landhelg- isgæslunni og að við myndum ann- ast þessi mál í góðu samstarfi við Slysavarnafélagið Landsbjörg.“ Hafsteinn ítrekar að lokum hlutverk Gæslunnar í öryggis- málum. „Stofnunin gegnir löggæslu á sjó, svæði sem er 758 þúsund fer- kílómetrar en til samanburðar er Ísland rúmlega 102 þúsund ferkíló- metrar að stærð. Í fréttum hefur komið fram að smygla átti eiturlyfj- um með skútu til Íslands, og hve- nær megum við búast við því að reynt verði á ólögmætan hátt að koma fólki sjóleiðina til landsins? Við slíka atburði gegnir Landhelg- isgæslan mikilvægu hlutverki.“ ð hugsan- ipanna sé r 19 mán- egir hann úðar. Nú- mánuðir. hugsa sér slu á hafi en nú er. u gerð stur mtíðar, má eitt 500 ip, annað riðja rúm æti verið g, en eins Landhelg- rðskip og við höfum æri í fram- ær þyrlur u og eru eftirlits- verkefni arast við r í áður- urskoðun- æri að sjó- i þeirrar érhæfð á Landmæl- ætti fjár- kna undir þurfa tæk lgis- ein ækkun Gæsl- í stað m. laðið/Golli gun og dur.“ Sjóbjörgunarstöð þarf að vera full- virk allan sólar- hringinn orsi@mbl.is Þ AÐ ríkir eflaust tog- streita á mörgum heimilum núna rétt fyrir verslunarmanna- helgi. Unga fólkið vill gjarnan fara á útihátíðir en for- eldrar eru yfirleitt ekki eins hrifnir af þeirri hugmynd, því hætturnar geta leynst víða og margt ber að varast. En hvenær eru unglingar tilbúnir til að fara á útihátíðir og hvað geta foreldrar gert til að fyr- irbyggja að börn þeirra láti freist- ast af vímuefnum? Halldóra Ingi- bergsdóttir og Stefán H. Stefánsson eru meðlimir í For- eldrahópi Vímulausrar æsku og þekkja vel til þessara málefna, en Foreldrahópur Vímulausrar æsku samanstendur af foreldrum barna sem hafa leiðst út í notkun vímu- efna. Stefán segir að allir foreldrar, hvort sem þeir eru í foreldrahópi Vímulausrar æsku eða ekki, þurfi að vera á varðbergi fyrir versl- unarmannahelgi. Það sé staðreynd að vímuefnaneysla eigi sér stað á sumum hátíðum, þótt aðeins lítill hluti fólks neyti fíkniefna og marg- ar hátíðir séu til fyrirmyndar. „Við getum tekið hátíðina í Galtalæk sem dæmi og séð að þetta er ekki alvont,“ bendir hann á. Halldóra leggur áherslu á að það þurfi snemma að byrja að huga að þessum málum. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að við sem for- eldrar ræðum á jákvæðum nótum við unglingana okkar. Þeir eru allir mjög skynsamir. Flestir þeirra falla nú ekki í freistni en því miður of margir. Við þurfum að gera það hluta af uppeldinu að reyna að fá krakkana eitthvað með okkur um verslunarmannahelgi,“ segir hún. Hún segir að verslunarmannahelg- ina þurfi að undirbúa í tíma. Það þýði lítið að ákveða það nokkrum dögum áður að nú ætli fjölskyldan ið að verða meðvitaðra um vímu- efnavandann. „Þetta er vand- meðfarið. Það er erfitt að banna barninu sínu að fara á útihátíð fyrr en það verður átján ára. Þau sem yngri eru hópast oft saman þar sem ekki eru skipulögð hátíðahöld og þá er ennþá meiri voði vís því þar er engin gæsla,“ heldur hún áfram. Foreldrar kaupa sér falskan frið En hvað ráðleggja Halldóra og Stefán foreldrum sem eiga börn og unglinga sem sækjast eftir því að fara á útihátíð nú um versl- unarmannahelgina? „Fyrst og fremst þurfum við að vera í góðu sambandi við unglingana okkar til þess að við getum fengið þau með okkur og reynt að gera versl- unarmannahelgina að skemmti- legri fjölskyldustund,“ segir Hall- dóra. Stefán telur það mikilvægt að foreldrar kaupi ekki áfengi fyrir börnin sín. Hann segir sjónarmiðið um að þau útvegi sér áfengi hvort sem er mjög sterkt hjá mörgum en bendir jafnframt á að kippa af bjór eða vodkapeli fyrir versl- unarmannahelgi dugi kannski föstudaginn og þá leiti þau annarra leiða. „Með þessu eru foreldrar að kaupa sjálfum sér falskan frið. Þeir eru ekki að gera neinum greiða. Það er bannað samkvæmt lögum að fólk 20 ára og yngra kaupi áfengi og við eigum ekki að vera fyrirmynd í því að brjóta lög. Við eigum ekki að taka þátt í því að kaupa áfengi fyrir börnin okkar fyrr en þau mega kaupa það sjálf,“ undirstrikar Stefán. Halldóra segir það jákvætt að foreldrar vinahópa hafi samband sín á milli og jafnvel samráð áður en unglingunum sé hleypt á útihá- tíð. „Ein vinsælasta setning barna og unglinga er „það mega allir nema ég“. „Oft er það þannig að það fékk í rauninni enginn leyfi upphaflega en það var pressað á foreldrana með þessari setningu,“ bendir Stefán á og bætir við að ef börnin fari á hátíð sé mikilvægt að þau hafi samband við foreldrana reglulega. „Fólk tekur áhættu með því að fara á útihátíðir. Það er ýmislegt annað en vímuefnahættan, til dæmis nauðganir og fleira. Það er mikið af fólki, það er komið myrk- ur og margt getur gerst. Þau þurfa að passa sig og halda hópinn. En það er ekki nokkur spurning að þeim mun yngri sem þau eru þeim mun meiri hætta er á ferðum er kemur að vímuefnum. Aðalatriðið er samt að það sé gott samband á milli foreldra og unglinga,“ segir Halldóra. „Að þau treysti hvert öðru,“ bætir Stefán við. safni í sig kjarki með efnum. „Ég held að krökkum, sem eru með gott sjálfstraust, góðan bakgrunn og eru vel upplýst, sé treystandi til að fara á svona útihátíðir en jafn- framt held ég að þau færu síður. Það er ekki algilt en ég held að stór hópur sé ekki tilbúinn til að fara á þessar hátíðir,“ bætir hún við. Vímuefnaneysla skapar stöðuga sorg Hún segir að foreldrar verði að reyna að sýna börnunum sínum eins lengi og hægt er hversu annt þeim sé um að ekki fari illa fyrir þeim. „Þegar þau eru komin ofan í pyttinn er mjög erfitt fyrir mörg þeirra að snúa til baka. Eitt og eitt fiktar en alltof mörg sökkva of djúpt og eru annaðhvort alltof lengi eða koma sér aldrei út úr því. Það er ekki spurning að hættan er meiri eftir því sem þau byrja fyrr,“ segir hún og Stefán tekur í sama streng. Halldóra segir ekkert hræði- legra fyrir fjölskyldur en að börnin leiðist út í neyslu. Skemmtilegustu árin fari í eintóma sorg. „Það er engin sorg sem ég get lagt að jöfnu, án þess að ég sé að gera lítið úr annarri sorg. Þegar aðstand- andi deyr er útför og á eftir reynir maður að muna eftir góðu minn- ingunum. En ef maður á barn í neyslu árum saman er maður stöð- ugt í sorg og nær ekki að losna undan henni,“ lýsir hún. Stefán heldur áfram og bendir á að öll stórfjölskyldan sé undirlögð. „Ef makinn lendir í þessari óham- ingju er hægt að skilja við hann ef út í óefni fer en þú skilur aldrei við börnin þín.“ Halldóra ítrekar nauðsyn þess að foreldrar séu vel vakandi fyrir hættunum sem leynast víða. Hún telur að sem betur fer sé þjóðfélag- að gera eitthvað saman eingöngu vegna þess að unglingarnir höfðu hugsað sér að fara á útihátíð. Hún leggur jafnframt áherslu á að eitt- hvað skemmtilegt þurfi að vera í boði, til dæmis fljótasigling eða sumarbústaðarferð, og ef fjöl- skyldan stefnir á utanlandsferð sé upplagt að stíla inn á að hana beri upp á verslunarmannahelgi. 18 ára aldurinn ekki nefndur að ástæðulausu „Það er voðalega erfitt að standa í stríði við ungling sem vill fara á útihátíð og banna það því þeir leita sinna leiða. Það er auðvitað ekki hægt að alhæfa neitt því þeir eru svo misjafnir,“ bendir hún á og segir að það geti verið erfitt að tala um fyrir þeim. Aðspurð hvenær þau telja að ungt fólk sé reiðubúið að fara ein- samalt á útihátíðir segja þau að það sé mjög mismunandi. „Í um- ræðunni undanfarið hefur verið talað um 18 ára aldur og sá aldur er náttúrlega ekki nefndur að ástæðulausu. Ungt fólk er svo mis- jafnlega þroskað en ég held að hvert ár komi öllum til góða og sér- staklega þegar kemur að því að standast vímuefnafreistinguna,“ segir Stefán. Halldóra undirstrikar að á hátíð- um myndist mikil spenna í kring- um áfengi og fíkniefni og hvort krakkarnir láti freistast fari heil- mikið eftir því hvernig þeir séu búnir undir það andlega. Sumir hafi tekið ákvörðun um að prófa ekki neitt en á þessum stöðum þurfi kannski ekki mikið til að þeir láti freistast. „Staðirnir auka áhættuna. Þetta er eins og múg- sefjun og öllu skiptir að verða ekki útundan,“ lýsir Stefán. Halldóra telur að ungt fólk með lítið sjálfstraust sé í meiri hættu en aðrir á að leiðast út í neyslu, það Foreldrar úr Foreldrahópi Vímulausrar æsku Verslunarmannahelgina þarf að undirbúa í tíma Morgunblaðið/Jim Smart Halldóra Ingibergsdóttir og Stefán H. Stefánsson. Verslunarmanna- helgin á sér bæði ljósar hliðar og dökk- ar og ber margs að gæta. Foreldrar úr Foreldrahópi Vímu- lausrar æsku eiga nokkur heilræði fyrir áhyggjufulla foreldra og aðra sem vilja tryggja að allir komi heilir heim. YFIRVÖLD á Norðurlöndunum hafa að undanförnu verið að bregð- ast við vandamálum vegna svokall- aðra nauðungarhjónabanda sem tíðkast stundum meðal innflytj- enda. Hér á landi hefur þó ekki borið á nauðungarhjónaböndum en Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra segir samt ástæðu til að gefa þróun mála í nágrannalöndunum gaum. Sérstök umræða um nauðungar- hjónabönd var tekin upp á árlegum fundi norrænna dómsmálaráðherra fyrr í sumar og segir Sólveig slík hjónabönd lýsa sér í því að innflytj- endur, t.d. frá Pakistan, hafa samið um hjónabönd dætra sinna við for- eldra pilta. Stúlkunum er síðan til- kynnt um ráðahaginn án þess að samþykkis þeirra hafi verið aflað. „Þetta getur átt við í þeim tilvikum þar sem bæði hjónaefnin búa í Nor- egi, og eins þegar aðeins annað þeirra er búsett þar, en hitt í Pak- istan,“ segir Sólveig. „Þess eru dæmi að stúlkur hafi verið sendar til þorpa í upprunaríki foreldranna þar sem lífsvenjur og kjör eru öld- um á eftir því sem þekkist í Noregi. Það hefur einnig verið sérstakt vandamál að slíkir hjúskaparsamn- ingar eru oft gerðir þegar stúlk- urnar eru langt undir lögaldri. Það segir sig sjálft að stúlkur, sem að- lagast hafa norsku samfélagi en hafa verið neyddar í hjónaband með þessum hætti, hafa stundum leitað til yfirvalda. Um leið hafa þær auðvitað lent upp á kant við fjölskyldu sína. Norðmenn hafa brugðist við þessum vanda með því að gera nauðungarhjónabönd refsi- verð þannig að milliganga um slíkt sæti opinberri ákæru. Einnig að ákært verði eftir barnaverndarlög- um þar sem við á.“ Sólveig segir að fram hafi komið á fundi dómsmálaráðherranna, að í Svíþjóð sé einnig leitast við að vernda ungar stúlkur gegn nauð- ungarhjónaböndum og í Danmörku er verið að endurskoða viðurlög við þeim, þar sem talsvert beri á vandamálinu. „Meðal annars hefur komið til álita þar í landi að aft- urkalla dvalarleyfi aðstandenda,“ segir Sólveig. Í Finnlandi eru nauðungarhjónabönd ekki vanda- mál þótt Finnar hafi hert kröfur um hjónabönd sem gengið er í er- lendis og m.a. er ekki viðurkennt að hægt sé að ganga í hjónaband án þess að bæði hjónaefnin séu við- stödd hjónavígsluna. „Við vitum ekki um nein dæmi um nauðung- arhjónabönd á Íslandi, en það er sjálfsagt að fylgjast með þróun mála á Norðurlöndunum, þar sem þetta hefur verið raunverulegt vandamál í allnokkurn tíma,“ segir Sólveig. Nauðungarhjónabönd gerð refsiverð í Noregi Fylgjast þarf með þróun mála

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.