Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 31.07.2002, Qupperneq 36
MINNINGAR 36 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Kristín Halldórs-dóttir Eyfells fæddist í Reykjar- firði á Ströndum 17. september 1917. Hún lést í Orlandó í Flór- ída 20. júlí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Halldór Kristinsson, héraðs- læknir á Reykjarfirði 1917–1919, í Bolung- arvík 1920–34, og á Siglufirði 1934–59, f. á Söndum í Dýrafirði 20. ágúst 1889, d. í Reykjavík 18. júní 1968, og María Jenný Jónasdóttir, f. 26. september 1895 í Reykjavík, d. 24. febrúar 1979. Systkini Kristínar eru Þórir, f. 27. apríl 1920, d. 12. nóv. 1990, Jónas, húsa- smíðameistari, f. 30. júní 1921, d. 16. okt. 2001, Kári, bryti, f. 3. júní 1923, Atli, vélstjóri, f. 3. júlí 1924, Magnús, útvarpsvirkjameistari, f. 12. des. 1925, og Markús, f. 22. febr. 1935, d. 1. júlí 1936. Kristín giftist 26. september 1949 Jóhanni Eyfells, listamanni og prófessor, f. 21. júní 1923 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Eyjólfur J. Eyfells listmálari og kona hans Ingibjörg Einarsdóttir. Jóhann og Kristín bjuggu á Long Island í New York og í New Jers- ey á árunum 1950–60, í Gaines- ville í Flórída, 1960–64, í Kópa- vogi 1964–69, og í Orlandó í Flórída samfleytt frá 1969. Kristín gekk í Verslunarskóla Íslands 1932–35 og bjó þá hjá Daníel Kristinssyni, föðurbróður sínum, á Bókhlöðu- stíg 9 í Reykjavík. Samhliða fyrirsætu- störfum nam hún fatahönnun við Rud- olf Schaefer School of Design í San Francisco í Kaliforn- íu 1945–46, og var við háskólanám í Hofstra University 1957–60. Hún lauk BA-prófi í sálfræði 1962 og BFA í mynd- list 1964 frá Univers- ity of Florida. Hún opnaði kjóla- verslunina Fix í Reykjavík 1938 og rak hana í nærri fjóra áratugi. En þegar leið á sjöunda áratuginn lagði Kristín viðskipti smám sam- an á hilluna og sneri sér óskipt að listsköpun. Eftir hana liggur mik- ið safn málverka og höggmynda. Á listamannsferli sínum tók Krist- ín Eyfells þátt í um 100 einkasýn- ingum og samsýningum í Banda- ríkjunum, Íslandi, Danmörku og víðar. Árið 1998 var haldin stór yfirlitssýning undir nafninu „Famous Faces“ í sýningarsal University of Central Florida í Or- lando á yfir 80 málverkum Krist- ínar af áberandi einstaklingum úr samtímasögunni, þ.á m. Ronald Regan, Yasser Arafat, Jack Nich- olson og Salvador Dali, en stórar andlitsmyndir voru helstu við- fangsefni málverka hennar síð- ustu tvo áratugi. Útför Kristínar var gerð frá Kópavogskirkju 29. júlí síðastlið- inn. Lilla frænka var óvenju sterkur persónuleiki sem haft hefur mikil áhrif á líf mitt frá upphafi. Í fyrstu minningu minni er hún svo glæsileg í svartri dragt með barðastóran hatt. Hún er nýkomin frá Ameríku færandi hendi með fínan kjól handa mér og dúkku með alvöru hár og postulínstennur. Verslunin hennar í Garðastræti 2 var ævintýraheimur á sjötta áratugnum. Þar var alltaf mik- ið um að vera. Fyrir innan voru efnisstrangar í regnbogans litum upp um allar hillur og konur að sníða, sauma og bródera í kjóla með pallíettum, perlum og semelíustein- um. Fram í búð fullunnin varan, káp- ur, kjólar, dragtir, hattar. Þetta var Lillu veröld í þá daga, og á glæsilegu heimili hennar sem var skammt und- an í Garðastræti 8 var oft glatt á hjalla. Þegar árin liðu og Lilla fór að dvelja lengur í Ameríku tóku Sigrún og Dóra smám saman við stjórn verslunarinnar, en Lilla kom þó öðru hvoru heim með ferskar hugmyndir að utan og setti drift í reksturinn. Sölukonan Lilla er mér minnisstæð frá því ég var á unglingsárum mínum sumarstúlka í versluninni sem þá var við Laugaveg 20. Inn komu konur sem vildu máta nýjustu tískuna sem þær sáu í búðargluggunum. Ef Lilla afgreiddi þær fóru þær oftar en ekki ánægðar út með allt annað en þær ætluðu í upphafi, vegna þess að Lilla hafði fundið flík sem hæfði þeirra persónuleika. Sú leit gat tekið dá- góða stund og mikið spjallað og hleg- ið þar til rétta flíkin fannst, kannski ofan í kjallara. Undir lokin fluttist verslunin á Skólavörðustíginn og sá þá Alla mágkona Lillu og vinkona til margra ára um reksturinn. Við Róbert bróðir minn áttum því láni að fagna að búa hjá Lillu og Jóa í Flórída á fyrri hluta námsára okkar. Þá var hún liðlega fimmtug og komin vel á skrið í myndlistinni. Hún hafði aðallega unnið með ljósmyndatækni og skúlptúr en var nú að þreifa sig áfram í málaralistinni. Uppi á veggj- um birtust fyrst orkídeur og svo undarlegar varir og augu. Þar með var grundvöllurinn lagður að andlits- málverkunum sem hún vann óslitið að í þrjátíu ár eða þar til fyrir fjórum árum. Nýlega sagði hún mér að mik- ilvægasta ævistarfið hefði hún unnið eftir fimmtugt. Lilla var frábær kokkur. Á elda- vélinni kraumaði oft heilsusamleg og matarmikil súpa, og hjá henni voru allar matarkistur ætíð fullar. Þótt við værum aðeins fjögur í heimili eld- aði hún skammta fyrir tuttugu manns. Hún gantaðist með það að hún væri að elda fyrir bræður sína og stóra heimilið í Bolungarvík eða á Siglufirði. Úr matarafgöngum bjó hún til nýja og nýja rétti á hugvits- samlegan hátt, en bragði, næringar- gildi, útliti og framreiðslu matarins gerði hún ávallt jafn hátt undir höfði. Hún lét heldur ekkert tækifæri ónot- að til að halda matarveislur fyrir fjölda manns meðan við bjuggum hjá henni. Síðustu tvo áratugina varð mynd- listarsköpunin aðalatriði í lífi henn- ar. Þrátt fyrir að hún væri með ein- dæmum félagslynd undi hún sér æ betur við þær á margan hátt óvana- legu aðstæður sem þau Jói höfðu skapað sér í Flórída. Þau unnu bæði óskipt að list sinni, svo ótrúlega sam- hent en þó svo ólík. Þetta voru góð og frjó ár í listsköpun þeirra beggja. Heimsóknum þeirra til Íslands fækkaði en síminn tengdi Lillu við umheiminn. Þegar hún hringdi urðu símtölin alltaf mjög löng og umræðu- efnin voru óþrjótandi. Listir og stjórnmál, heilsufræði og mataræði, uppeldi og menntunarmál. Hún las mikið og fylgdist vel með. Á Siglu- firði hafði hún verið helsta hjálpar- hella föður síns í annasömu læknis- starfi hans, og á þeim tíma ætlaði hún sér að verða læknir. Nú síðustu árin var hún hugfangin af bylting- unni sem orðin er í sameindalíffræð- inni, og sagðist myndu, væri hún ung núna, leggja fyrir sig vísindi um erfðirnar og genin. Hún pældi alla tíð í því hvernig hegðunarmynstur og útlit erfast milli kynslóða og má segja að bæði sálfræðinámið og per- sónusköpunin í málverkunum hafi tengst þeim áhuga hennar á rökræn- an hátt. Þannig var ákveðið sam- hengi í því sem hún tók sér fyrir hendur sem kristallaðist að lokum í málverkunum. Það var einkar ánægjulegt að vera viðstödd fjöl- menna opnun á yfirlitssýningu á málverkum Lillu 1998 og sjá öll þessi kraftmiklu verk samankomin. Eftir heilablóðfall sem hún fékk fyrir hálfu þriðja ári varð hún háð eiginmanni sínum með alla hluti en hann annaðist hana af einstakri hug- ulsemi og ást til síðasta dags. Þrátt fyrir þær aðstæður missti hún aldrei húmorinn og gerði oft grín að sjálfri sér um leið og hún var þakklát fyrir að hafa fengið gott skaplyndi í vöggugjöf. Þótt hún eignaðist engin börn sjálf fann hún sig í ömmuhlut- verkinu. Börn okkar Róberts bróður og Ingólfs, sonar Jóa, sem öll kölluðu hana Lillu ömmu, sakna hennar nú sárt eins og við öll hin. Ég þakka henni samveruna, stuðninginn og öll góðu heilráðin og votta Jóa mína dýpstu samúð. Kristín Magnúsdóttir. Frænka mín Kristín Halldórsdótt- ir Eyfells er látin. Eftir stendur mik- ill árangur verka hennar í gegnum tíðina og kynstur góðra minninga. Á bernskuárum mínum var Lilla frænka, eins og mér er tamt að kalla hana, önnum kafin í viðskiptalífinu. Það var gaman fyrir lítinn strák að koma í heimsókn í kjólabúðina Fix sem þá iðaði af lífi. Lilla stofnaði Fix 21 árs gömul og var með margt saumakvenna og afgreiðslufólk í fullu starfi. Minnisstæð er mér einn- ig ferð okkar Lillu til Siglufjarðar að heimsækja afa og ömmu, Halldór héraðslækni og Jenný konu hans. Við flugum í flugbát og lentum á firð- inum og var það mín fyrsta flugferð. Lilla útskrifaðist úr Verslunar- skóla Íslands 1935. Síðan fór hún til San Francisco að nema fatahönnun við Rudolf Schaefer School of De- sign. Kynntist hún þar eftirlifandi manni sínum, Jóhanni Eyfells, lista- manni, sem þá stundaði nám við Uni- versity of California í Berkeley. Þau giftu sig árið 1949 og fluttust til New York þar sem Jóhann starfaði sem arkitekt og hönnuður í nokkur ár. Með brennandi áhuga á að víkka sjóndeildarhringinn gekk hún þá í Hofstra University á Long Island og lagði stund á margvísleg fræði, þ.á m. jarðfræði, sálfræði og mynd- list. Þegar Jóhann hóf framhalds- nám í arkitektúr og höggmyndalist við University of Florida 1960 hélt Lilla námi sínu áfram og tók BS-próf í sálfræði 1962 og BFA-próf í mynd- list 1964 frá sama skóla. Eftir það bjuggu þau hjón á Íslandi í nokkur ár eða til 1969 er Jóhanni bauðst pró- fessorsstaða við listadeildina í Uni- versity of Central Florida, Orlandó. Hafa þau búið þar síðan. Í Orlandó hófst nýtt skeið í lífi Lillu þar sem listin var allsráðandi. Varð þá til mikið safn listaverka, bæði skúlptúrar og olíumálverk. Hún tók þátt í um 100 einka- og sam- sýningum í Bandaríkjunum, á Ís- landi og víðar. Hin stóru andlitsmál- verk af þekktum persónum úr samtímasögunni eru sérlega áhrifa- mikil og spegla innri mann þess mál- aða í túlkun Lillu. Dæmi um þetta má sjá á vefsíðu þeirra hjóna, www.eyfellsandeyfells.com. Kristín og Jóhann voru sannkölluð listahjón, samstiga í öllu en jafnframt með skýrar mismunandi áherslur í list- inni. Lilla var kjarnmikil kona með ákveðnar skoðanir á flestu. Hún var hörð af sér og bjóst við því sama af mér og öðrum nákomnum. Hún var ætíð í góðu skapi og hrókur alls fagn- aðar á mannamótum. Þá geislaði af henni líf og gleði. Lilla hafði mikil og góð áhrif á mig. Frá barnæsku hvatti hún mig til dáða og sérlega til náms. Með einu sannfærandi símtali kom hún mér að í Menntaskólanum á Akureyri, sem þá átti að heita lokaður fleiri nem- endum. Með þessu ásamt margvís- legum öðrum stuðningi lagði hún grunninn að náms- og vísindaferli mínum. Lilla hélt góða skapinu og andleg- um skýrleik fram á síðustu stund þrátt fyrir erfiða sjúkdómslegu síð- ustu tvö árin þar sem Jóhann ann- aðist hana að öllu leyti. Það var enn jafngott að tala við hana um marg- vísleg áhugamál hennar svo sem mataræði, heilsurækt, pólitík og list- ir. En stundum sagði hún að best væri nú að þessu færi að ljúka. Hún fékk hægt andlát nýverið og er þar með gengin mikil og góð kona. Róbert Magnússon. Hún Lilla amma eins og ég kallaði hana alltaf er einhver magnaðasta manneskja sem ég hef kynnst. Þrátt fyrir að ég hafi ekki hitt hana í nokk- ur ár minnti hún reglulega á sig. Hún hringdi í okkur á Skólavörðu- stíginn nánast annan hvern sunnu- dag og ræddi við okkur öll um heima og geima. Hún vildi alltaf vita hvað væri að gerast í lífi okkar, hún vildi fylgjast með. Símtölin urðu oft á tíð- um ansi löng því hún vildi fá að heyra í öllum meðlimum fjölskyldunnar. Þegar ég hafði sagt henni það helsta sem hafði drifið á mína daga fór hún að setja mér lífsreglurnar. Hún fræddi mig um siði og venjur á hin- um ýmsu sviðum. Hún sagði mér að standa mig vel í skólanum, vera góð- ur við fjölskyldu mína og vini og að ég ætti að fara skynsamlega með peninga. Svo skipti hún stundum rækilega um gír og fór að tala um viðkvæm málefni án þess að blikna. Hún sagði mér til dæmis oft að fara varlega með áfengi og að ég ætti sko að passa mig á að vera ekki að barna einhverjar stelpur úti í bæ. Svona var hún Lilla, það varð ekki af henni skafið. Ég hlustaði alltaf af mikilli at- hygli á það sem hún hafði fram að færa og tel mig hafa lært mikið af henni. Hún Lilla var nefnilega svo heilsteypt manneskja á öllum svið- um. Ég fór í nokkrar heimsóknir til þeirra hjóna í Flórída. Þá sýndi Lilla ávallt allar sínar bestu hliðar og sá til þess að mér leiddist ekki í eina mín- útu. Hún galdraði fram ótrúlega góð- an mat úr eldhúsinu, oftar en ekki úr afgöngum. Hún var nefnilega svo nægjusöm. Ég fór til dæmis eitt sinn að kaupa mér föt í Orlando. Eftir að hafa farið búð úr búð án þess að finna eina einustu flotta flík sagði Lilla að hún ætlaði að fara með mig í bestu fatabúð borgarinnar, Hjálp- ræðisherinn. Mér leist nú ekki á blik- una, ef ég væri ekki hrifinn af föt- unum sem Orlando-búar vildu eiga, hvernig væru þá fötin sem þeir vildu ekki eiga? En viti menn, ég hef lík- lega aldrei komið í betri fataverslun. Ég keypti ótrúlegt magn af notuðum gallabuxum á einn dollar stykkið, jökkum á þrjá dollara o.s.frv. Þótt ég hafi brosað breitt eftir þann versl- unarleiðangur brosti enginn breiðar en Lilla því hún var svo ánægð með hvað ég hafði gert góð kaup auk þess sem henni fannst fötin sem ég hafði keypt öll svo flott, enda var hún með algjöra tískudellu, komin hátt á átt- ræðisaldurinn. Lilla var líka frábær listamaður, það efast enginn um það. Stóru andlitsmálverkin hennar eru hreinir gullmolar. Eitt þeirra er heima hjá okkur og hafa ófáir vinir mínir haft orð á því hversu ótrúlega flott sú mynd er. Vonandi munu þau verk fá að njóta sín á góðu safni í framtíðinni. Ég ætla að láta þessi fátæklegu orð duga þótt hægt væri að skrifa margar bækur um þessa stórkost- legu manneskju. Ég vil þó að lokum minnast á eitt. Lilla talaði mikið um ömmur mínar og fór ekki leynt með aðdáun sína á þeim. Hún sagði alltaf við mig: „… já Jói minn, hún amma þín er sko one hell of a girl.“ Þar hitti hún naglann á höfuðið líkt og svo oft áður. Ég hugsaði þó alltaf að þetta ætti nú líka við um hana. Því hún Lilla amma var sko „one hell of a girl“. Elsku Jói afi minn, ég votta þér mína dýpstu samúð. Jóhann Bjarni Kolbeinsson. Kristin Halldórsdóttir Eyfells, eða Lilla eins og hún var alltaf köll- uð, var sjálfstæðismaður af gamla skólanum. Hún trúði á frelsi einstak- lingsins, einkaframtakið og mann- auðinn en var fráhverf forsjárhyggju hvort heldur af þjóðfélagslegum eða guðlegum toga. Lilla var gagnrýnin í hugsun og tók sérhvert viðfangsefni allt að því vísindalegum tökum. Hún setti vart ofan í sig matarbita ára- tugum saman án þess að ganga fyrst ítarlega úr skugga um næringargildi hans og efnasamsetningu. Innkaup á aðskiljanlegustu neysluvörum voru iðulega grundvölluð á umfangsmikl- um rannsóknum og samanburði milli fjölda verslana á verðlagi, gæðum og þjónustu. Heimilisrekstur hennar og líferni var hugmyndarík tilraun í nýtingu hráefna og endurvinnslu. Eðlislæg vísindaleg nálgun Lillu við lífið leiddi smám saman til þess að henni tókst oftar en ekki að finna skynsamlegustu leiðina í úrlausn margvíslegustu viðfangsefna dag- legs lífs jafnt á sviði sálfræði, fé- lagsfræði, lífeðlisfræði sem fagur- fræði. Eina forsjárhyggjan sem Lilla trúði á var vissan um að greiningar hennar og ráðleggingar væru nærri sanni og oftast réttar. Ekki var laust við að sá lífsstíll sem hún mótaði ásamt eiginmanni sínum, Jóhanni Eyfells, í flestu markaður af nyt- semi, þolgæði og sjálfsstjórn í bland við sérstakan höfðingsskap og lífs- fögnuð, hefði á vissan hátt trúarlegt inntak og bæri að líta á sem uppeld- islegt fordæmi öðrum til eftir- breytni. Að verða meistari í daglegu lífi krefst þess að einstaklingurinn sé á jörðinni, sé jarðbundinn í besta skilningi þess orðs. Það sama á við um árangur í hvers kyns listsköpun. Listin lifir á yfirborðinu en dýptin er handan við yfirborðið. Sæki listræn viðleitni öll á dýptina verða í besta falli úr henni uppskrúfuð gervivís- indi, en sukki listsköpunin eingöngu í stílbrögðum umbúðanna verður út- koman síbyljuhnoð sem fyrr en varir fer upp í kok. Þau verk sem ná því að verða listaverk eru alveg sérstaklega jarðnesk, eru meira „hér “ en aðrir áþreifanlegir hlutir. Af þessum sök- um getur þetta „hér“ sýnst svo djúpt að halda mætti, í töfrabirtu lista- verksins, að eitthvað hljóti þrátt fyr- ir allt að vera fyrir handan. Ef Lilla hefði lesið þessar hugleiðingar hefði hún verið vís til að varpa fram einni af sínum uppáhaldsvinnutilgátum: „Þetta er bara búll!“ Og gefið mér síðan góð ráð. Listsköpun hennar var og er samt, að mínu mati, óvana- lega mikið „hér“. Þetta kemur til af því að Lilla var fyrst og fremst greinandi og sjáandi en ekki sveim- hugi á höttunum eftir góðum hug- myndum. Eins og við var að búast nálgaðist hún listsköpunina með báða fætur á jörðinni og tók efnivið sinn svo föstum tökum að yfirborð verka hennar var í stöðugu uppnámi. Í höggmyndum sínum frá sjöunda áratugnum krufði hún mannslíkam- ann svo óvægið að einungis innri byggingin varð eftir, bein og leggir sem hanga saman á liðamótum í mis- flóknum hrúgum. Í stórum olíumál- verkum af andlitum áberandi sam- tímamanna og útvalinna vina – en eftir Lillu liggja vel á annað hundrað slík málverk frá síðustu þremur ára- tugum – vofir alltaf yfir að hún fari inn úr yfirborðinu. Maðurinn er ekki bara það sem við sjáum, jafnvel finnst okkur að hann sé miklu meira það sem falið er bak við yfirborðið og við sjáum aldrei. En í vissum skiln- ingi er maðurinn og hlutirnir í heim- inum samt ekkert annað en bara það sem við blasir. Þetta er ein sú mót- sögn sem listsköpunin er í stöðugri glímu við. Andlitsmyndir Lillu eru á sífeldum þönum inn og út úr yfir- borðinu. Eftir að hún hefur dregið upp kunnuglegt útlit einstakling- anna er hreinlega eins og hún taki til við að kryfja andlitin með óvæntum skurðum og byrji að fletta húðinni af að hluta, en hætti svo við í miðju kafi áður en hún fer alla leið. Þetta gerir það að verkum að andlitsmyndir hennar eru oft yfirþyrmandi, ögr- andi og spennuþrungnar, eiga það jafnvel til að skjóta fólki skelk í bringu sem síst vildi hafa þessi verk yfir sófum sínum. Þær sýna mann- eskjuna á mörkum yfirborðsins, á þeim mörkum þar sem útlitið virðist vera að byrja að flettast af og hverfa úr augsýn; – en einmitt þarna er nærvera hlutanna jafnan mest. Lilla er nú sjálf, eftir langa og góða ævi, á þessum sömu óræðu mörkum og list- sköpun hennar dansaði gjarnan á í gegnum árin. Andlitsmyndir hennar munu í framtíðinni gefa okkur ljóslif- andi innsýn í kröftugan og sjálfstæð- an persónuleika hennar. Ég votta eftirlifandi eiginmanni Lillu, Jó- hanni Eyfells, og öðrum aðstandend- um hennar dýpstu samúð mína við andlát hennar. Hannes Lárusson. KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR EYFELLS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.