Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 6

Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRÁ því í ársbyrjun 2000 hefur lögregla handtekið rúmlega 40 manns sem grunaðir eru um að smygla fíkniefnum innvortis. Yfir- læknir hjá Heilsugæslunni í Reykjavík segir þetta stór- hættulega aðferð enda geti umbúð- ir utan um fíkniefnin auðveldlega rifnað með alvarlegum afleið- ingum fyrir heilsu viðkomandi. Slíkt geti hæglega valdið dauða. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu í gær var breskur karl- maður handtekinn af tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli á föstudag en hann reyndist vera með tæplega hálft kíló af hassi innvortis. Megn- ið hafði hann gleypt en um 40 grömm hafði hann falið í enda- þarmi. Hassið var vafið inn í plast- filmu og voru yfirleitt um 2,5–3,5 grömm í hverri pakkningu. Gera má ráð fyrir að það hafi tekið hann nokkra klukkutíma að gleypa svo mikið magn. Maðurinn kom með kvöldvélinni frá Kaupmannahöfn á föstudag og hefur að öllum lík- indum gleypt hassið fyrr um dag- inn. Síðasta pakkningin skilaði sér niður á sunnudag, tæplega tveimur sólarhringum eftir að hún var gleypt. Á laugardag var íslenskur karlmaður handtekinn, grunaður um aðild að málinu. Skv. upplýs- ingum Morgunblaðsins var þáttur hans ekki talinn stórvægilegur og var honum sleppt að loknum yf- irheyrslum. Dönsk stúlka var með Bretanum í för og var henni einnig sleppt að loknum yfirheyrslum og hefur hún snúið aftur til Danmerk- ur. Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík fer með rannsókn máls- ins. Sést auðveldlega á röntgenmynd Skv. upplýsingum frá ríkislög- reglustjóra hefur 41 verið hand- tekinn frá árinu 2000, grunaður um að smygla fíkniefnum innvort- is, 24 á árinu 2000, 11 árið 2001 og sex það sem af er þessu ári. Telji lögregla að menn séu með fíkniefni innvortis er haft samráð við Heilsugæsluna í Reykjavík og viðkomandi er sendur í röntgen- myndatöku á Landspítalanum. Helgi Guðbergsson, yfirlæknir hjá Heilsugæslunni, segir að auðvelt sé að sjá hvort menn hafi aðskota- hluti innvortis. Margir smygl- aranna telja hins vegar að fíkni- efnin sjáist alls ekki og viðurkenna seint að þeir hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Helgi segir þetta at- hæfi stórhættulegt og áhættunni megi líkja við rússneska rúllettu. Meltingarveginum sé ætlað að sundra því sem þangað er sett og allt frá því fíkniefnin eru gleypt vinnur maginn á umbúðunum. Þær nuddast upp við meltingarveginn, hvor við aðra og eru um leið löðr- andi í meltingarvökvum. Það er því er mikil hætta á að umbúðirnar rofni og fíkniefnin berist út í blóð- ið. Áhrifin af því eru líkust því að viðkomandi hafi tekið of stóran skammt fíkniefna. Sé langt á sjúkrahús, t.d. ef smyglarinn er staddur um borð í flugvél í milli- landaflugi, geta eitrunaráhrifin hæglega dregið hann til dauða. Ástandið verður enn alvarlegra ef nokkur fíkniefni blandast saman í maganum en slíkt getur valdið röngum viðbrögðum heilbrigðis- starfsmanna. Gríðarleg niðurlæging Komi í ljós að menn sem lög- reglan grunar um smygl hafi tor- kennilega hluti innvortis eru þeir látnir dúsa í fangaklefa þar til hin meintu fíkniefni ganga niður af þeim. Hinum grunuðu er útvegað þar til gert klósett og eru þeir und- ir strangri gæslu lögreglumanna meðan á þessu stendur. Aðspurður hvort ástæða sé til að halda við- komandi á sjúkrahúsi til að tryggja skjóta læknisaðstoð í neyð- artilfellum, segir Helgi að slíkt verði að meta í hvert skipti. Það hafi verið talið nægjanlegt að fylgst sé með þeim í fangageymslu en kalla eftir læknisaðstoð ef ástæða þykir til. Helgi veit þó um eitt tilfelli þar sem smyglari var lagður inn á sjúkrahús þar til fíkniefnin gengu niður af honum. Þeir sem smygla fíkniefnum inn- vortis ýmist gleypa þau eða koma þeim fyrir í endaþarmi eða kyn- færum. Helgi segir að þetta sé gríðarleg niðurlæging fyrir við- komandi, bæði að koma efnunum fyrir í líkama sínum en ekki síður að þurfa að standa skil á þeim hjá yfirvöldum. Það sé í raun með ólík- indum að nokkur fáist til að gera annað eins. Smyglinu fylgir lífs- hætta og niðurlæging Morgunblaðið/Arnaldur Algengt er að smyglararnir gleypi fjölda pakkninga með fíkniefnum. Þegar þær eru komnar í meltingarveginn er mikil hætta á að umbúð- irnar rofni, sem setur líf smyglarans í bráða hættu. Myndin er úr safni. Frá ársbyrjun 2000 hefur 41 verið handtekinn vegna gruns um að smygla fíkniefnum innvortis LÖGMAÐUR Þorfinns Ómarssonar, framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs Íslands, Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl., sendi í gær Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra bréf þar sem hann fer fram á að ákvörðun ráðu- neytisins um að víkja Þorfinni tíma- bundið úr embætti verði tafarlaust afturkölluð og að Þorfinnur taki nú þegar aftur við starfi sínu. Þorfinni var tímabundið vikið úr starfi með bréfi hinn 23. júlí í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar, sem er dagsett 22. júlí, þar sem alvarlegar at- hugasemdir eru gerðar við bókhald sjóðsins. „Af dagsetningu þessara skjala og efni þeirra er ljóst að ráðu- neytið hefur ekki gert eigin rannsókn á atvikum málsins og ekki tekið sjálf- stæða afstöðu til athugasemda Ríkis- endurskoðunar áður en fyrrnefnd ákvörðun var tekin. Þá gaf ráðuneytið skjólstæðingi mínum ekki kost á að tjá sig um málið eða skýrslu Ríkis- endurskoðunar og leitaði ekki upplýs- inga eða skýringa hjá honum áður en honum var vikið úr starfi,“ segir í bréfi Vilhjálms. Með þessu hafi ráðu- neytið brotið gegn 10. og 13. greinum stjórnsýslulaga, sem mæla á um rannsóknarreglu og andmælarétt. Segir engan rökstuðning fyrir ákvörðuninni Segir að í bréfinu þar sem Þorfinni var tilkynnt tímabundin brottvikning hans sé ekki að finna neinn rökstuðn- ing fyrir ákvörðuninni. Einungis sé vitnað í bréf Ríkisendurskoðanda. „Niðurlagi bréfs hans er þó sleppt, en það skiptir sköpum um niðurstöðu Ríkisendurskoðunar og þar með hvort ráðuneytinu er heimilt að víkja skjólstæðingi mínum úr starfi um stundarsakir,“ segir í bréfi Vilhjálms. Í umræddu niðurlagi bréfs Ríkisend- urskoðanda segir að skrifstofustjóra sjóðsins hafi verið falið að annast í auknum mæli þá þætti í rekstri sjóðs- ins sem snúa að bókhaldi, afstemm- ingu og vörslu gagna. Í kjölfar þess hafi orðið „gjörbylting til batnaðar“ á þessum atriðum á síðustu misserum. Segir Vilhjálmur að með vísan til þessarar niðurstöðu Ríkisendurskoð- anda sé ljóst að ákvörðun ráðuneyt- isins sé ekki í samræmi við 3. mgr. 26. greinar laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins sem segir að hafi embættismaður fjárreiður eða bók- hald með höndum megi veita honum lausn um stundarsakir ef ætla megi „að víst þykir að óreiða sé á bókhaldi eða fjárreiðum, bú hans er tekið til gjaldþrotaskipta eða hann leitar nauðasamninga“. Vilhjálmur segir að fyrir atbeina Þorfinns hafi verið bætt úr þeim ágöllum sem voru á bókhaldi og vörslu fylgiskjala hjá Kvikmynda- sjóði. Þá komi fram í bréfi ríkisend- urskoðanda að Þorfinnur hafi gert „trúverðuga grein“ fyrir útgjöldum sjóðsins að fjárhæð 363.000, en reikn- ingar fyrir þessari fjárhæð eru glat- aðir. Þá sendi Vilhjálmur með bréfinu afrit úr fundargerð stjórnar Kvik- myndasjóðs 23. nóvember 1999 en þar greindi Þorfinnur frá auknu álagi í starfsemi stofnunarinnar, bæði vegna aukinna verkefna og skýrari reglna í almennum ríkisrekstri, og lagði til að ráðinn yrði fjármálastjóri við stofnunina, þ.e. bæði fyrir Kvik- myndasjóð og Kvikmyndasafn. Breytir í raun engu Tómas Ingi Olrich menntamálaráð- herra segir að bréf lögmanns Þor- finns breyti í raun engu. „Málið er komið í lögformlegan farveg og það er núna fyrir nefnd sem á að meta ástæður fyrir lausn um stundarsakir. Það er hlutverk nefndarinnar enn- fremur að láta álit sitt í ljós hvort rétt hafi verið staðið að því að víkja emb- ættismanninum frá störfum um stundarsakir,“ segir ráðherra. Hann segist ósammála því að ráðu- neytið hafi brotið rannsóknarreglu og á andmælarétti Þorfinns. „Miðað við afdráttarlausa niðurstöðu Ríkisend- urskoðunar um að um bókhaldsóreiðu hafi verið að ræða, og eins og þeir kalla það viðvarandi hirðuleysi í að halda bókhaldsgögnum til haga, taldi ég mig ekki hafa stöðu til annars en að veita Þorfinni lausn frá starfi um stundarsakir og vísa málinu í raun til rannsóknar samkvæmt lögum.“ Brottvikning Þorfinns Ómarssonar verði afturkölluð Telur ráðuneytið hafa brotið rannsóknarreglu MIKIÐ gekk á í fyrrinótt þegar færanlegt hús með tveimur kennslustofum, sem er í eigu menntamálaráðuneytisins, var flutt frá Laugalækjarskóla í Reykjavík á lóð Menntaskólans í Kópavogi við Digranesveg. Framkvæmdir standa yfir við viðbyggingu menntaskólans sem kalla á þetta bráðabirgðahúsnæði. Húsið, sem er 40 tonn að þyngd, felldi niður einn ljósastaur á leið- inni, taka þurfti niður hátt í 30 um- ferðarskilti, umferðarljósum var snúið, og á áfangastað sprakk á hjólbörðum vörubílsins að framan er hann rakst utan í festingar á skilti sem hafði verið fjarlægt. Sjálft húsið skemmdist ekki á leið- inni, en það er um 20 metra langt, nærri átta metrar á breidd og tæp- ir fimm metrar á hæð. Fjarlægja þurfti forstofu utan á húsinu fyrir flutninginn. Að sögn Guðmundar Adolfssonar húsasmíðameistara, sem ásamt sín- um mönnum bjó kennsluhúsið til flutnings og mun koma því fyrir á lóð MK, tók það eina átta tíma að koma húsinu í Kópavoginn. Farið var eftir Laugalæk, Kirkjusandi, Sæbraut, upp á Miklubraut til að sleppa við brúna við Ártúnsbrekku, eftir Reykjanesbraut upp á Smiðjuveg, þá Skemmuveg, Ný- býlaveg, Dalveg og loks eftir Digranesvegi að menntaskólanum. Vöruflutningabíll frá GG hf. flutti húsið og tveir kranar frá GP- krönum ehf. lyftu húsinu, sem híft var niður af vörubílspalli í gær- kvöldi. Til marks um þunga verkefnisins segir Guðmundur að „löpp“ á öðr- um krananum hafi skilið eftir sig eins metra djúpa holu á lóð Lauga- lækjarskóla. Hann segir flutning sem þennan vera „stórmál“ þótt sumir vilji halda öðru fram. Til allrar hamingju hafi verkið gengið stóráfallalaust fyrir sig og húsið óskemmt á eftir, enda sérlega byggt og undirbúið til flutnings. Morgunblaðið/Hjörtur Þ. Færanlega kennsluhúsið komið á lóð Menntaskólans í Kópavogi í fyrri- nótt, en það var híft niður af vörubílspalli í gærkvöldi. Fjörutíu tonna hús flutt úr Laugalæk Hjólbarðar sprungu og ljósastaur féll STEFÁN Haukur Jóhannesson, fastafulltrúi Íslands í Genf, hefur verið tilnefndur til að gegna for- mennsku kærunefndar til að úr- skurða í deilu aðildarríkja Alþjóða- viðskiptastofnunarinnar (WTO) vegna ákvörðunar Bandaríkja- stjórnar um að leggja verndartolla á innflutt stál. Evrópusambandið og sjö aðild- arríki WTO, Brasilía, Kórea, Japan, Kína, Sviss, Noregur og Nýja-Sjá- land, hafa lagt fram kæru á hendur Bandaríkjastjórn fyrir meint brot á samn- ingsskuldbindingum gagn- vart Alþjóðaviðskipta- stofnuninni. Fréttatilkynning þessa efnis barst frá utanríkis- ráðuneytinu í gær. Í kærunefndinni sitja, auk fastafulltrúa Íslands, tveir aðrir úrskurðaraðilar, Margaret Liang frá Singa- púr og Mohan Kumar frá Indlandi. Reynt er að velja fulltrúa í kærunefndir í samræmi við stöðu þeirra og samskipti innan WTO og eiga þeir engra hags- muna að gæta í meðferð málsins. Málið er mjög viðkvæmt og þess vegna eru nefndarmenn bundnir trúnaði. Íslendingur formaður kærunefndar Stefán Haukur Jóhannesson KONAN, sem skorin var á háls á sunnudagskvöld, losnaði úr öndunarvél í gær og er komin til meðvitundar. Skv. upplýsingum frá gjör- gæsludeild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Fossvogi líð- ur henni vel eftir atvikum og er hún ekki lengur talin í lífs- hættu. Komin til meðvitundar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.