Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Glæsileg...
Baðkar og sturta 336.900 kr.
180x90x213 cm, með nuddi
verð áður: 449.323 kr.
Baðkar með nuddi 195.900 kr.
Scala handlaug 29.656 kr.
stölluð, 470x470 mm og 20mm á hæð
...hreinlætistæki
Handy C. hornbaðkar 149.900 kr.
135x135x58 cm, með nuddi
Ver› á›ur: 197.202 kr.
180x90x58 cm
verð áður: 208.778 kr.
145x145x58 cm, með nuddi
Ver› á›ur: 381.227 kr.
Stelleria hornbaðkar 285.900 kr.
Öndvegissúlurnar hafa rekið á land hérna, Gunnar minn.
Líknar- og vinafélagið Bergmál
Gleði okkar er
að gleðja aðra
LÍKNAR- og vina-félagið Bergmálhefur verið starf-
andi frá árinu 1992. Það
býður krabbameinssjúk-
um og langveiku fólki til
orlofsdvalar á Sólheimum í
Grímsnesi gestum að
kostnaðarlausu. Þar er
margvísleg þjónusta og af-
þreying í boði, svo sem
hárgreiðsla, nudd og höf-
uðbeina- og spjaldhryggj-
armeðferð, sund og kvöld-
vökur. Starfsemi félagsins
byggist á sjálfboðaliða-
starfi, og er allra leiða leit-
að til þess að gera lang-
veikum dvölina sem besta.
Morgunblaðið ræddi við
Kolbrúnu Karlsdóttur,
formann félagsins, til þess
að forvitnast nánar um
sögu þess og tilgang.
– Hvað kom til að þið stofnuðuð
félagið?
„Við sem stofnuðum félagið
Bergmál vorum öll nemendur
Jóns Hjörleifs Jónssonar, skóla-
stjóra og kórstjóra á Hlíðardals-
skóla í Ölfusi. Hann slasaðist lífs-
hættulega 36 árum eftir að ég var
þarna í skóla, og til að sýna honum
væntumþykju okkar og virðingu
stofnuðum við kór úr gamla skóla-
kórnum og nefndum hann Berg-
mál. Síðar veiktist einn kórfélag-
inn af krabbameini, og það sem
við lærðum af að fylgjast með
hans þrautagöngu uns yfir lauk
varð til þess að kórinn varð líkn-
arfélag. Það er enginn staður til
fyrir mjög veikar manneskjur
nema sjúkrahús hér á landi, og á
heilsuhælum hér þarf fólk að vera
nokkuð sjálfbjarga. Við sáum
þörfina fyrir sjálfboðaliðasamtök
sem störfuðu að þessum málum.
Nú hafa margar góðar manneskj-
ur bæst í hópinn sem ekki tengj-
ast kórnum okkar gamla, fólk sem
hefur eins og við löngun til að láta
gott af sér leiða og finnur í þessu
starfi mikla lífsfyllingu.“
– Hvernig er starfinu háttað?
„Allt starfið er unnið í sjálf-
boðavinnu, og við leitumst við að
gleðja aðra vegna þess að það gef-
ur okkur svo mikið. Flest höfum
við horft á börnin okkar fljúga úr
hreiðrinu og eigum því rýmri tíma
en yngra fólk sem venjulega er
bundið við barnauppeldi. Það er
ómetanlegt að finna, að þrátt fyrir
að börnin séu ekki lengur í jafn
mikilli þörf fyrir okkur og þegar
þau voru lítil er rík þörf fyrir okk-
ur til starfa innan Bergmáls.
Starfið þar er svo afskaplega gjöf-
ult, og það er góð tilfinning. Marg-
ir gestanna hafa líka orðið nánir
vinir okkar, og fundið góða vin-
áttu í öðrum dvalargestum.“
– Hvað eruð þið mörg í félaginu
Bergmáli?
„Við erum rúmlega fjörutíu í fé-
laginu, og veitir ekki af. Það þarf
mikinn mannskap í sjálfboðastarf
til þess að aðstoða fólk, elda, þvo
og hjúkra. Við bjóðum langveiku
fólki úr tíu aðildarfélögum Ör-
yrkjabandalagsins, auk
krabbameinssjúkra, til
orlofsdvalar.“
– Hversu oft eru or-
lofsvikurnar haldnar?
„Við höldum orlofs-
viku tvisvar á ári, og höfum gert
síðan árið 1995. Þær eru yfirleitt
síðasta vikan í maí og síðasta vik-
an í ágúst, og er skráning einmitt
að hefjast nú um mánaðamótin.
Dvalið er á Sólheimum í Gríms-
nesi, en þar er frábær aðstaða, fal-
legt, skjólgott, góð sundlaug og
ágætis húsakostur. Síðast en ekki
síst er okkur tekið þar opnum
örmum af öllum sem þar búa.
Meðan á dvöl stendur er boðið
upp á fótsnyrtingu, hárgreiðslu,
bæði snerti- og fótanudd, og
höfuðbeina- og spjaldhryggjar-
jöfnun. Kvöldvökur eru á hverju
kvöldi þar sem margir af bestu
listamönnum þjóðarinnar gefa
okkur af tíma sínum og hæfileik-
um, og auðvitað er gætt að holl-
ustu matar. Heimilisfólki á Sól-
heimum er að sjálfsögðu boðið á
allar kvöldvökur, enda okkar
kæru vinir. Vinabandið kemur til
okkar síðasta kvöldið og hefur
gert frá upphafi. Þá er slegið upp
dansiballi, þar sem allir taka þátt
eftir föngum, hjólastólar og hækj-
ur eru þar engin hindrun.“
– Hvernig er starf félagsins
fjármagnað?
„Við njótum góðvilja fjölda fyr-
irtækja hvað varðar mat og vistir
fyrir orlofsvikuna. Svo gefa allir
listamennirnir vinnu sína, sem og
fagfólk á sviði hárgreiðslu, nudds
og líkamsræktar. Einnig hafa
ýmsir aðilar stundum stutt okkur
með fjármagni. Án þess góðvilja
sem við njótum væri félagið ekki
til. Okkar helsta fjáröflunarleið
eru jólakortin okkar en einnig er-
um við með minningarkort.“
– Það hlýtur að myndast vin-
samlegt andrúmsloft í starfinu hjá
ykkur.
„Upphaflega hugmyndin var að
leyfa fólki að kynnast og eiga góð-
ar stundir saman, og það hefur
tekist. Vináttan er svo mikilvæg,
ekki síst þegar heilsan bilar. Við
reynum því að hlúa að vinabönd-
unum með því hafa opið hús í
Hamrahlíð 17 um það bil einu
sinni í mánuði, en Blindrafélagið
er svo vinsamlegt að lána okkur
sal og eldhús til þess arna. Auk
þess höldum við bæði árshátíð og
aðventuhátíð sem hafa
verið mjög vel sóttar.“
– Nú eruð þið að
undirbúa næstu orlofs-
ferð sem verður í lok
ágúst.
„Já, það er mjög gott að láta
alla þá vita, sem ekki hafa heyrt
um okkur áður, af tilvist félagsins.
Innritun hefst nú um mánaðamót
og verður svarað í síma 587-5566
fyrir hádegi til 10. ágúst. Bið ég
þá, sem áhuga hafa á að leggja fé-
laginu lið eða þiggja orlofsdvölina,
að hafa samband og vona ég að við
getum öll átt saman góða og gleði-
lega viku.“
Kolbrún Karlsdóttir
Kolbrún Karlsdóttir er fædd á
Fáskrúðsfirði árið 1942. Hún
kennir postulínsmálun og heldur
námskeið í ýmsum öðrum hand-
verksgreinum. Hún er formaður
í stjórn líknar- og vinafélagsins
Bergmáls. Eiginmaður Kol-
brúnar er Jón Kjartansson og
eiga þau fjögur börn.
Dýrmæt og
uppbyggjandi
reynsla