Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt þríhliða samstarfssamn-
ing Reykjavíkurborgar, Flug-
leiða og Hr. Örlygs ehf. vegna
tónlistarhátíðarinnar Iceland
Airwaves sem haldin hefur ver-
ið árlega í Reykjavík undan-
farin þrjú ár.
Vegna þessa árs greiðir
Reykjavíkurborg þrjár milljón-
ir króna til hátíðarinnar og 4 m.
kr. árlega frá 2003–2005.
Iceland Airwaves er jafnan
haldin í októbermánuði en
markmið hátíðarinnar er að
kynna tónlist á heimavelli fyrir
erlendum fjölmiðlum og útgef-
endum með aukna útrás ís-
lenskrar tónlistar að leiðarljósi.
Þá er hugmyndin með hátíðinni
auk þess sú að markaðssetja
Reykjavík sem skemmtilegan
og menningarlegan ferða-
mannastað utan hefðbundins
ferðamannatíma og höfða til
ungs fólks, að því er segir í
greinargerð með tillögu um
styrkveitingu frá borgarráði.
Mikill fjöldi erlendra gesta,
fjölmiðlafólk og fólk úr menn-
ingarlífinu, auk almennra tón-
listargesta, hefur sótt hátíðina
heim. Áætlað er að nálægt 200
fulltrúar fjölmiðla frá 15 lönd-
um komi að jafnaði ár hvert og
er það mesti fjöldi erlends fjöl-
miðlafólks sem reglulega sækir
einstakan viðburð í Reykjavík,
segir í greinargerðinni.
Reykjavíkur-
borg styrkir
Airwaves
Reykjavík
BIRGIR Einarsson, einn þriggja
skólastjórnenda við Lágafellsskóla,
hefur sagt upp störfum og óskað eft-
ir að fá að hætta frá og með 1. sept-
ember nk.
Í bréfi sem Birgir ritar forstöðu-
manni fræðslu- og menningarsviðs
segir að trúnaðarbrestur hafi orðið
milli hans og fræðslunefndar í um-
boði meirihluta bæjarstjórnar.
Einnig hafi starfsáætlun Lágafells-
skóla verið skorin niður einhliða og
án samráðs við stjórnendur skólans
auk þess sem fræðslunefnd hafi ekki
svarað fyrirspurnum hans um nið-
urskurðinn sem bornar voru upp á
fundi fræðslunefndar. Segir í bréf-
inu að niðurskurður sá sem óskað
var skýringa á muni valda veruleg-
um vandræðum í skólastarfi Lága-
fellsskóla næsta skólaár. Hann muni
hafa þau áhrif á faglegt starf innan
skólans að Birgir treysti sér ekki til
að veita þá faglegu forystu sem hon-
um ber að veita skv. grunnskólalög-
um.
Bæjarráð hefur fjallað um málið
og hefur forstöðumanni fræðslu- og
menningarsviðs og bæjarstjóra ver-
ið falið að ganga frá starfslokasamn-
ingi við Birgi í samræmi við óskir
hans.
Fyrir einu ári var sett á laggirnar
teymi þriggja skólastjórnenda við
Lágafellsskóla með heimild ráðu-
neytisins til að ganga á svig við
grunnskólalög um að einn skóla-
stjóri sé ábyrgur fyrir skólastarfinu.
Birgir Einarsson var fyrsti ábyrgð-
armaður síðastliðið skólaár en sam-
kvæmt hugmyndinni skipta skóla-
stjórnendurnir með sér að gegna
stöðu ábyrgðaraðila.
Að sögn Ragnheiðar Ríkharðs-
dóttur bæjarstjóra var starfsáætlun
fyrir næsta skólaár lögð fram í mars
og lá hún hjá fráfarandi meirihluta
allan apríl- og maímánuð án þess að
vera afgreidd. Þegar nýr meirihluti
tók við í júní þurfti fyrst að skipa
fræðslunefnd til að fara ofan í saum-
ana á málinu en niðurstaðan varð sú
að fjárveiting sem skólinn fór fram á
var skorin niður.
Ragnheiður bendir á að þótt
ákveðið hafi verið að draga úr
kostnaði við skólastarf sé viðmiðun-
artafla ráðuneytisins meira en upp-
fyllt.
Ragnheiður segir ennfremur að
hvergi í fundargerðum fræðslu-
nefndar, sem Birgir vísar til í bréf-
inu, komi fram bókanir frá Birgi þar
sem hann láti í ljós þá hluti sem
hann vísar til í uppsagnarbréfinu.
Að auki hafi hann enga tilraun gert
til að ræða það sem betur mætti fara
við bæjarstjóra sem oddvita meiri-
hlutans.
Fengu vitneskju um fyrirætlan
Birgis í tölvupósti
Ekki verður ráðið í stöðu Birgis
en þess í stað hafa hinir skólastjórn-
endurnir lagt til að ráðnir verði tveir
deildarstjórar í hans stað í 50% starf
hvor.
Í bréfi sem Jóhanna Magnúsdótt-
ir og Sigríður Johnsen, sem gegnt
hafa starfi skólastjórnenda við
Lágafellsskóla samhliða Birgi, rita
bæjarstjóra og forstöðumanni
fræðslu- og menningarsviðs, kemur
fram að uppsögn Birgis hafi komið
þeim í opna skjöldu og hafi aldrei
verið rædd innan hópsins.
„Við fengum fyrst vitneskju um
fyrirætlan Birgis í tölvupósti sem
barst okkur 11. júlí sl. Í bréfi sínu
tekur hann fram að ekkert í okkar
samstarfi hafi haft áhrif á ákvörðun
hans en tiltekur fjórar ástæður fyrir
uppsögn sinni. Ástæður þær sem
hann tilgreinir komu okkur einnig
mjög á óvart sem tilefni uppsagn-
ar,“ segir í bréfinu.
Einn þriggja skólastjórnenda Lágafellsskóla segir upp störfum
Segir starfsáætlun skólans
skorna niður án samráðs
Morgunblaðið/Golli
Um 300 börn eru í Lágafellsskóla, sem lauk sínum fyrsta starfsvetri í
vor. Samkvæmt heimild frá menntamálaráðuneyti voru þrír skóla-
stjórnendur ráðnir við skólann í stað eins, eins og venjan er að gert sé.
Mosfellsbær
STARFSMENN Landsvirkjunar
sem unnu um tíma í sumar við gróð-
ursetningu í Mosfellsbæ eru mættir
aftur til starfa og vinna nú að áburð-
argjöf og uppgræðslu í Bringum,
skammt frá Helgufossi.
Mosfellsbær leggur til plöntur en
Landsvirkjun leggur til vinnuaflið og
er verkefnið liður í uppgræðsluverk-
efni Landsvirkjunar.
Fram kemur á heimasíðu Mosfells-
bæjar að ætlunin sé að endurheimta
gamla birkiskóginn sem þar var og
safna saman íslensku flórunni og
gróðursetja m.a. gulvíði og eyrarrós.
Þá mun hópurinn stika gönguleiðina
frá Gljúfraseini að Helgufossi og
vinna við gróðursetningu á Mosfelli.
Starfsmenn Landsvirkj-
unar gróðursetja plöntur
Mosfellsbær TÖLUVERT er um það á hverju áriað skjóta þurfi máva í grennd við
vötn, læki, golfvelli og aðra staði
þangað sem fuglarnir sækja í hópum
í ætisleit eða í skjól.
Að sögn Konráðs Magnússonar
meindýraeyðis er aðallega um að
ræða sílamáv sem er tiltölulega nýr
landnemi og víða orðinn til mikilla
vandræða. Vitað er að mávurinn get-
ur borið kamfýlóbakter, salmonellu
og listeríu á milli staða en síðast-
nefnda bakterían getur valdið miklu
tjóni í fiskeldi ef smit berst þangað,
að sögn Konráðs.
Konráð hefur undanfarin ár eytt
mávum og öðrum vágestum víða um
land, meðal annars á höfuðborgar-
svæðinu, en upphaflega var þetta
aukavinna hjá honum. Í dag er ekki
óalgengt að hann skjóti tugi, jafnvel
hundruð, máva fyrir einstök sveitar-
félög og þá sem óska aðstoðar hans.
Undanfarin tvö ár hefur hann
skotið máva í Garðabæ en fyrstu af-
skipti hans af meindýravörnum voru
fyrir fjórum árum þegar aðilar á
vegum Hafnarfjarðarbæjar óskuðu
aðstoðar hans við að fækka mávi sem
sótti í seiði sem sleppt hafði verið í
Hvaleyrarvatn. Konráð skaut á
bilinu 260–80 máva á nokkrum dög-
um en síðan þá hefur hann komið á
hverju ári og haldið mávi í skefjum
þar og við Lækinn í miðbæ Hafn-
arfjarðar.
Hefur skotið milli 30 og 40
máva við völl GKG
Þá hefur Konráð einnig skotið
máv í grennd við Golfklúbb Kópa-
vogs og Garðabæjar. Töluvert var
um máv þar í fyrra sem truflaði golf-
iðkendur og veittist að mófuglaung-
um. Í fyrra skaut Konráð 86 máva
við völlinn og labradorhundurinn
Breti fann 56 unga. Í sumar hefur
hann skotið milli 30 og 40 máva og
hirt upp nokkra unga en nefnir að
mávurinn sé styggari og þekki bílinn
auk þess sem mun minna sé af hon-
um þar en áður. Að hans sögn er ekki
óalgengt að hann þurfi að bíða færis
töluverðan tíma áður en hann skýtur
fugl.
„Þetta er erfið aðstaða, maður vill
ekki skjóta nema vera nokkuð viss
um að ná fuglinum niður, sérstak-
lega þar sem fólk er á svæðinu og
fylgist með. Þannig að ég fer mjög
rólega í þetta. Það er engin skotrhríð
í gangi,“ segir hann og bendir á að
golfiðkendur við golfklúbb GKG og
íbúar við Lækinn í Hafnarfirði séu
farnir að þekkja bílinn og kippi sér
ekki lengur upp við að heyra stöku
skot þegar bíllinn er á staðnum.
Töluvert um að skjóta þurfi máva við golfvelli og víðar
Sílamávur víða til
mikilla vandræða
Garðabær/Hafnarfjörður
Morgunblaðið/Sverrir
Konráð segir að golfiðkendur á velli GKG og íbúar við Lækinn í Hafnarfirði séu farnir að þekkja bílinn og kippi
sér ekki lengur upp við að heyra stöku skot þegar bíllinn er á staðnum.
SAMBÝLI fyrir fatlaða ein-
staklinga var tekið í notkun í gær
á Barðastöðum 35 í Grafarvogi.
Um er að ræða íbúðasambýli þar
sem sex einstaklingar koma til
með að búa í 32 fermetra íbúðum.
Heildarflatarmál hússins er
441m² og reist af hússjóði Ör-
yrkjabandalags Íslands en fé-
lagmálaráðuneyti tekur húsið á
leigu.
Að sögn Björns Sigurbjörns-
sonar, framkvæmdastjóra svæð-
isskrifstofu Reykjavíkur, er fram-
takið liður í veigamiklu
samstarfsverkefni ráðuneytisins
og hússjóðs ÖBÍ til að stytta bið-
lista vegna búsetu fatlaðra.
Morgunblaðið/Arnaldur
Nýtt sambýli tekið í notkun
Grafarvogur
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52 s 562 4244