Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 16
SUÐURNES
16 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Auglýsing
um álagningu opinberra gjalda
á árinu 2002
Í samræmi við 1. mgr. 98. gr. laga nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, er hér
með auglýst að álagningu opinberra gjalda, þ.m.t. tryggingagjalds, á árinu 2002 er
lokið á alla einstaklinga sem skattskyldir eru samkvæmt framangreindum lögum,
sbr. I. kafla laga nr. 75/1981.
Álagning gjalda á lögaðila mun liggja fyrir síðar og verður auglýst sérstaklega.
Álagningarskrár með gjöldum einstaklinga verða lagðar fram í öllum skattumdæm-
um miðvikudaginn 31. júlí 2002. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers
skattumdæmis og hjá umboðsmanni skattstjóra eða þjónustuaðila hans í hverju
sveitarfélagi dagana 31. júlí til 14. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Skattseðlar er sýna álögð opinber gjöld 2002, vaxtabætur og barnabætur hafa ver-
ið póstlagðir.
Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda, vaxtabóta og barnabóta, sem gjald-
endum hefur verið tilkynnt um með skattseðli 2002, þurfa að hafa borist skattstjóra
eigi síðar en föstudaginn 30. ágúst 2002.
31. júlí 2002
Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson.
Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson.
Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Ólafur Páll Gunnarsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Bogi Sigurbjörnsson.
Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl Lauritzson.
Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Hreinn Sveinsson.
Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson.
Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson.
VINSÆLDIR golfíþróttarinnar
fara sífellt vaxandi og þeir sem
geta ekki beðið eftir að komast út
á völl þurfa ekki að örvænta því
víða er að finna púttvelli þar sem
æfa má sveifluna.
Við Mánagötu í Reykjanesbæ
mæta kylfingar á öllum aldri á
púttvöll, ræða málin og slá
nokkrar kúlur.
Ekki fer neinum sögum af því
hver félaganna þriggja, þeirra
Sigurðar Sturlusonar, Hilmars
Péturssonar og Oddgeirs Péturs-
sonar, bar sigur úr býtum, enda
kannski á vellinum fyrst og
fremst félagsskaparins og útiver-
unnar vegna.
Morgunblaðið/Sverrir
Hola í höggi?
Keflavík
BÚIÐ er að reka niður fimmtíu
metra langt stálþil við enda
Norðurgarðs í Sandgerðishöfn.
Um þessar mundir er verið að setja upp polla
og steypa bryggjukant, búið er að aka um 6.500
m3 að fyllingarefni í þilið. Þekja þess verður
steypt á næsta ári.
Guðlaugur Einarsson verktaki segir að verkið
hafi gengið vel og sé á áætlun. Á meðan
framkvæmdir við Norðurgarð standa yfir var
löndunarbúnaður fyrir loðnu fluttur á
Suðurgarð, en hann verður settur upp við þilið
síðar.
Unnið hefur verið að breytingum við
Norðurgarð Sandgerðishafnar um hríð.
Nýlokið er dýpkunarframkvæmdum þar en
þegar framkvæmdum lýkur eiga skip með
rúmlega 8 metra djúpristu að geta legið þar við
bryggju á fjöru. Dýpkunin er aðallega hugsuð
fyrir loðnuskip.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Framkvæmd-
ir við stálþil
ganga vel
Sandgerði
UNDIRBÚNINGSNEFND Ljósa-
nætur, menningarhátíðar Reykjanes-
bæjar, stendur fyrir sönglagakeppn-
inni Ljósalagið 2002 í Stapa 16. ágúst
nk. Í frétt á heimasíðu hátíðarinnar,
ljosanott.is, segir að mikill áhugi sé
fyrir keppninni sem verður sýnd í
beinni útsendingu á Skjá einum.
Áhugasamir verða að senda inn lag í
keppnina undir dulnefni á skrifstofu
menningarfulltrúa, Hafnargötu 57 í
Reykjanesbæ, en Jón Ólafsson tón-
listarmaður sér um útsetningar og
hljómsveitarstjórn. Hljómsveitina
skipa Haraldur Þorsteinsson á bassa,
Ólafur Hólm á trommur, Sigurður
Magnússon á gítar og Matthías Stef-
ánsson á gítar og fiðlu. Um söng sjá
Andrea Gylfadóttir, Margrét Eir,
Einar Ágúst og Páll Rósinkranz.
Kynnar kvöldsins eru Anna Björk
Birgidóttir og Björn Jörundur Frið-
björnsson.
Fyrir þrjú bestu lögin verða veitt
peningaverðlaun frá Ljósanefnd
Reykjanesbæjar. Sigurvegari kvölds-
ins hlýtur að auki helgarferð fyrir tvo
með Flugleiðum ásamt gistingu hjá
Hótel Keflavík fyrir brottför. Hann
hlýtur einnig farandverðlaunagrip
sem Íris Jónsdóttir listakona úr
Reykjanesbæ hannaði. Lögin sem
valin verða til þátttöku í keppninni
verða gefin út á geisladiski.
Sönglagakeppnin
sýnd á Skjá einum
Reykjanesbær
SKILYRÐI til að undanþága verði
veitt frá því ákvæði barnaverndar-
laga um að 1.500 íbúar skuli vera að
baki barnaverndarnefnd er annars
vegar að samanlagður íbúafjöldi í
viðkomandi sveitarfélögum sé ná-
lægt 1.500 og hins vegar að land-
fræðilegar aðstæður torveldi að lág-
markið náist. Félagsmálaráðuneytið
komst að þeirri niðurstöðu að Sand-
gerðisbær, sem sótti um undanþágu
frá lágmarkinu, uppfyllti ekki síðara
skilyrðið.
Í frétt frá ráðuneytinu segir að hin
nýju barnaverndarlög geri miklar
kröfur til faglegra vinnubragða og
formlegrar málsmeðferðar.
Ráðuneytið telur að sjónarmiðið
um nálægð við íbúana, sem oft er
vitnað til á sviði sveitarstjórnarmál-
efna, eigi síður við um barnavernd-
arstarf. „Þannig er viss fjarlægð við
íbúana nauðsynleg vegna eðlis
þeirra viðkvæmu mála sem barna-
verndarstarfið snýst um. Því er talið
heppilegt að formlegt ákvörðunar-
vald sé eins fjarlægt íbúunum og
kostur er.“
Sýsla æskilegur grundvöllur
Í því sambandi bendir ráðuneytið
á kjördæmi eða sýslu sem æskilegan
grundvöll, enda hamli samgöngur
eða landfræðilegar aðstæður því
ekki. „Vegna landfræðilegra stað-
hátta í landinu þótti þó ekki rétt að
setja lágmarkið hærra en 1.500 íbúa
að þessu sinni. Þar voru hinar
dreifðu byggðir í sveitum landsins
einkum hafðar í huga. Jafnframt var
undanþáguheimildin frá lágmarkinu
um 1.500 íbúa fyrst og fremst hugsuð
út frá slíkum byggðarlögum,“ segir í
fréttinni.
Niðurstaða ráðuneytisins er sú að
þar sem samgöngur eru góðar á Suð-
urnesjum og fjarlægðir litlar eigi
undanþáguákvæðið um landfræði-
legar aðstæður ekki við í máli Sand-
gerðisbæjar.
Bærinn uppfyllir ekki
skilyrði um undanþágu
Viss fjarlægð við
íbúana nauðsynleg
Sandgerði