Morgunblaðið - 31.07.2002, Síða 17
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 17
NÝIR, hraðskreiðir og rennilegir
bátar hafa að undanförnu komið
til heimahafnar í Grímsey og er
það mikið vaxtarmerki í byggð-
inni.
Jóhannes Gísli Henningsson út-
gerðarmaður fékk á dögunum
nýjan hraðfiskibát, Gyðu Jóns-
dóttur EA 20. Þetta er sóknar-
dagabátur af gerðinni Sómi 860
og gengur 30 sjómílur. Jóhannes
Gísli er með annan dagabát og
segist sannarlega vera bjartsýnn
á sumarveiðina hjá sér.
Þá kom Henning Jóhannesson,
útgerðarmaður í Fiskmarkaði
Grímseyjar, nýverið á nýjum og
stórglæsilegum Birni EA 220 til
Grímseyjar. Björn er af gerðinni
Seigur frá Seiglu, tekur 5,9 tonn í
lest og gengur 32 mílur. Björn er
í krókaaflamarkskerfinu og er
bæði línu- og færabátur. Henning
gerir alls út þrjá báta og er
Björninn flaggskipið í flota hans,
búinn bestu tækjum sem völ er á
og hefur sex færeyskar færa-
vindur. Að öllu jöfnu verða tveir
menn á Birni, sem nú er stærsti
íslenski plastbáturinn skráður í
Grímsey.
Loks má geta þess að feðgarnir
Óli Bjarnason og Óli Bjarni Óla-
son komu í glampandi júnísólinni
siglandi á nýjum Robba EA 779
og kemur hann í stað bátsins
Bjarna. Robbi er lítill Sómi 545,
gengur 25 mílur og er 35 daga
bátur. Skipstjóri er Magnús
Bjarnason og með honum um borð
í sumar verður sonur hans, Örn
Ingi. Robbi er sjötti bátur Ólanna.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Feðgarnir Óli Bjarni Ólason og Óli Hjálmar Ólason í nýjum Robba
ásamt Magnúsi Bjarnasyni skipstjóra og syni hans Erni Inga.
Nýir bátar fylla Grímseyjarhöfn
Grímsey
Morgunblaðið/Helga Mattína
Jóhannes Gísli Henningsson útgerðarmaður og Ída kona hans í nýjum
báti, Gyðu Jónsdóttur EA, sem gerður verður út í sóknardagakerfinu.
FYRIR skömmu voru krakkar frá
Íslandsleikhúsi á Höfn, en þeir komu
fram á nokkrum stöðum í bænum.
Þetta eru átta manns á aldrinum 14
til 16 ára og koma frá Höfn, Kópa-
vogi, Ísafirði, Egilsstöðum og Akur-
eyri. Margrét Eir Hjartardóttir er
leikstjóri hópsins og Saga Sigurðar-
dóttir fararstjóri. Hópurinn semur
leikrit fyrir börn og fullorðna, gerir
ýmsar leiklistaræfingar og götuleik-
hús. Á myndinni leika þau fyrir
heimilisfólk dvalarheimilisins.
Hópurinn hefur verið á Ísafirði, í
Kópavogi og Kópavogi og heldur frá
Höfn til Egilsstaða, Akureyrar og
Stykkishólms. Verkefnið Íslands-
leikhús er sprottið frá félagsmiðstöð-
inni Gamla Apótekinu á Ísafirði og er
samstarfsverkefni nokkurra sveitar-
félaga, sem hvert greiðir laun
tveggja unglinga sumarlangt.
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Íslandsleikhús á Höfn
Hornafjörður
HALDIÐ verður um verslunar-
mannahelgina unglingalandsmót
UMFÍ í Stykkishólmi. Hér er um að
ræða íþróttahátíð fyrir unglinga á
aldrinum 11–16 ára. Keppt verður í
10 íþróttagreinum eins og sundi,
frjálsum íþróttum, golfi og hesta-
mennsku. Í boði verður einnig fjöl-
breytt önnur dagskrá. Markmiðið er
öll fjölskyldan geti verið saman í
Stykkishólmi þessa helgi og hver og
einn geti fundið afþreyingu við sitt
hæfi burtséð frá aldri.
Að sögn Jóhanns Hauks Björns-
sonar er reiknað með góðri þátttöku
í íþróttunum. Nú hafa skráð sig um
1.300 keppendur alls staðar að af
landinu. Reikna mótshaldarar með
5.000–8.000 gestum þessa helgi.
Flestir þátttakendur hafa skráð sig í
frjálsar íþróttir, knattspyrnu og
körfubolta. Undirbúningur hefur
staðið lengi og segir Jóhann Haukur
að allur undirbúningur hafi gengið
vel og allt bendir til þess að honum
verði lokið nokkru áður en gestir
fara að koma. Öll aðstaða fyrir kepp-
endur og aðra gesti er mjög góð orð-
in í Stykkishólmi. Það er Héraðs-
samband Snæfellinga og Hnappdæla
sem sér um mótið og starfsmenn við
undirbúning og á mótinu sjálfu koma
af öllu Snæfellsnesi. Jóhann segir að
allir landsmenn séu velkomnir til
Stykkishólms að taka þátt í hátíðinni
og hér er um ókeypis skemmtun að
ræða, en án vímuefna sem ekki til-
heyra þessari hátíð.
Þessa dagana er verið að leggja
tartan-efni á atrennubrautir á
íþróttavellinum. Það eru kostnaðar-
samasta framkvæmd Stykkishólms-
bæjar fyrir landsmótið. Tartan-efnið
er frá þýska fyrirtækinu Polytan og
hefur verið notað eins efni á íþrótta-
velli m.a. í Laugardal og Borgarnesi.
Tartan-efni lagt á atrennubrautir
Undirbúningur
fyrir unglingalands-
mót á lokastigi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Högni Bæringsson bæjarverkstjóri og Peter Jessen eftirlitsmaður fylgj-
ast með starfsmanni framleiðandans leggja nýja tartan-efnið og ekki
má gleyma unga drengnum sem sýnir ekki minni áhuga.
Stykkishólmur