Morgunblaðið - 31.07.2002, Page 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 31. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÓSTAÐFESTAR fréttir hafa á undanförnum vik-
um borist frá Norður-Kóreu þess efnis að stjórn-
völd þar hyggi á margvíslegar „umbætur“ á efna-
hagssviðinu. Enn er margt óljóst um áform
stjórnvalda en fyrir liggur að efnahagur landsins
er rústir einar.
Í liðinni viku efndu norður-kóreskir embættis-
menn til fundar með erlendum sendimönnum í
höfuðborginni, Pyongyang. Boðaðar breytingar
eru taldar sérlega mikilvægar þar sem svo virðist
sem þoka eigi hagkerfinu í átt til markaðsbúskap-
ar en leitun er að ríki þar sem kommúnísk mið-
stýring er jafn öflug og í Norður-Kóreu. Hafa
ýmsir orðið til að bera stöðuna í landinu nú saman
við þá sem ríkti í Kína síðla á áttunda áratugnum
þegar kommúnistaflokkurinn þar innleiddi „opn-
unarstefnu“ á vettvangi efnahagsmála.
Á fundinum með erlendu fulltrúunum kom fram
að Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, og und-
irsátar hans hafa ekki uppi áform um allsherjar
uppstokkun á hagkerfi landsins. Lýstu embættis-
mennirnir breytingunum á þann veg að ætlunin
væri að tryggja að miðstýringin yrði skilvirkari.
Staðnað hagkerfi
Ekki er deilt um að breytinga er þörf í Norður-
Kóreu. Stöðnun hefur einkennt hagkerfið og mat-
vælaskortur er tíður. Hundruð þúsunda manna
urðu hungurmorða í landinu á tíunda áratugnum.
Breytingarnar gengu í gildi 1. júlí. Tilgangurinn
með þeim er að draga úr niðurgreiðslum ríkisins
þannig að laun og verðlag nálgist raungildi og
verði þannig til þess að auka framleiðni í landinu.
Maís og hrísgrjón eru nú á sama verði í ríkisversl-
unum og á markaði þannig að bændur geta hagn-
ast á framleiðslunni. Verð á margvíslegri þjónustu
hefur hækkað og það hafa launin einnig gert.
Þetta er talið auka mjög þrýstinginn á gjald-
miðil landsins, won, og skapa hættu á hamslausri
seðlaprentun. Er því talið ljóst að breyta þurfi
gengi wonsins og færa það nær því sem gerist nú á
svörtum markaði þar sem 200 slík fást fyrir einn
Bandaríkjadollar.
Viðræður við Suður-Kóreu
Stefnubreytingar hefur einnig orðið vart hvað
varðar samskipti Norður-Kóreu við umheiminn á
síðustu vikum. Ígor Ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, skýrði frá því á mánudag að stjórn
Kim Jong Ils hefði lýst yfir vilja til að hefja við-
ræður við Bandaríkjamenn og Japani um málefni
Kóreuskaga. Áður höfðu Norður-Kóreumenn lýst
sig reiðubúna til viðræðna við nágranna sína í
suðri og var frá því skýrt í gær að stjórnvöld í
Suður-Kóreu hefðu þegið það boð.
Markmiðið er skil-
virkari miðstýring
Embættismenn í
Norður-Kóreu greina
frá breytingum á
efnahagssviðinu
Seoul. AP.
SAUTJÁN ára gestur baðstaðar í
grennd við alþjóðaflugvöllinn í
Düsseldorf í Þýskalandi virðist hér
stökkva jafnhátt og farþegavél sem
flýgur inn til lendingar. 35 stiga hiti
var í borginni í gær.AP
Svifið um
loftin blá
AÐ MINNSTA kosti 23 af um
200 Kúbumönnum, sem tóku
þátt í kaþólskri hátíð í Kanada,
hafa ákveðið að snúa ekki aftur
til heimalandsins, að sögn Kaþ-
ólsku biskuparáðstefnunnar á
Kúbu.
„23 ungir menn hafa nú sagt
skilið við sendinefndina og ætla
ekki að fara aftur til Kúbu,“
sagði Orlando Marquez, fram-
kvæmdastjóri kaþólsku sam-
takanna. „Mér hefur verið
skýrt frá því að þetta hafi vald-
ið gremju meðal annarra í
sendinefndinni.“
Hreyfing kúbanskra útlaga í
Toronto sagði að a.m.k. tíu af
Kúbumönnunum 23 hefðu þeg-
ar óskað eftir hæli sem pólitísk-
ir flóttamenn í Kanada eftir al-
þjóðlega hátíð ungra kaþólikka
sem lauk á sunnudag með
messu sem Jóhannes Páll páfi
sótti.
Ismael Sambra, formaður
samtaka kúbanskra útlaga í
Kanada, sagði eftir að hafa rætt
við nokkra Kúbumennina að
þeir hefðu ákveðið að flýja land
vegna kúgunar kommúnista-
stjórnarinnar. „Það er ekki
hægt að tjá trúarlegar skoðanir
sínar á Kúbu,“ sagði hann.
Kúbumennirnir eru allir á
þrítugsaldri.
Flúði á fleka
Skýrt var frá því fyrr í vik-
unni að Alcibiades Hidalgo, 56
ára fyrrverandi aðstoðarutan-
ríkisráðherra Kúbu, hefði flúið
á fleka til Miami í Bandaríkj-
unum. Hann var um tíma skrif-
stofustjóri í varnarmálaráðu-
neyti Rauls Castros,
næstvaldamesta embættis-
manns landsins og bróður Fi-
dels Castros.
Kúbu-
menn
leita hælis
í Kanada
Havana. AFP.
HÁTT í þriðjungur íbúa Le-
sotho í sunnanverðri Afríku er
sýktur af HIV, veirunni sem
veldur alnæmi, og í nágranna-
ríkinu Botswana eru 40 af
hundraði allra barnshafandi
kvenna með veiruna, að því er
fram kemur í tveim skýrslum
sem birtar voru í gær. Á ráð-
stefnu á vegum Þróunarhjálpar
Sameinuðu þjóðanna er haldin
var í Maseru, höfuðborg Le-
sotho, kom m.a. fram að 31%
íbúa landsins bæri HIV.
Samkvæmt þessum tölum er
Lesotho, þar sem íbúar eru um
2,2 milljónir, sjöunda verst setta
ríkið í Afríku sunnanverðri hvað
fjölda HIV-smita varðar.
Ástandið er verst í Botsvana,
þar sem tæplega 39% íbúanna,
sem eru 1,6 milljónir, eru smituð
af HIV. Tölurnar um hlutfall
smitaðra barnshafandi kvenna
komu fram í skýrslu opinberrar
botsvanískrar stofnunar.
Þriðjungur
íbúa Lesotho
með HIV
Maseru. AFP.
TALSMENN alþjóðlegra hjálpar-
stofnana og fulltrúar stjórnarand-
stöðunnar í Zimbabve hafa sakað
ríkisstjórn Roberts Mugabe um að
hindra dreifingu matvæla á svæðum
þar sem stuðningur við stjórnar-
andstöðuna er mikill og að koma í
veg fyrir að aðrir en flokksbundnir
meðlimir stjórnarflokksins, ZANU-
PF, fái að kaupa mat þegar hann
berst í verslanir.
Talsmaður Kaþólsku réttlætis- og
friðarnefndarinnar sagði á mánudag
að 28 börn hefðu látist úr hungri í
bænum Binga, í vesturhluta lands-
ins, þar sem vopnaðir stuðnings-
menn stjórnarinnar hefðu hindrað
hjálparstarfsmenn í að dreifa mat
meðal íbúanna. Stjórnarandstöðu-
flokkurinn, Hreyfingin fyrir lýðræð-
islegum breytingum (MDC), fullyrti
að stjórnin vildi „efnahagslegar
hamfarir“ í landinu. Í yfirlýsingu
MDC sagði að stefna ríkisstjórn-
arinnar og innflutningshöft gerðu
að verkum að ómögulegt væri að
koma nægum mat til íbúa landsins.
„Það er óhjákvæmilegt að fólk muni
láta lífið,“ segir í yfirlýsingunni.
Sólveig Ólafsdóttir, sem vinnur á
skrifstofu Alþjóða rauða krossins í
höfuðborg Zimbabve, Harare, seg-
ist kannast við þessar ásakanir en
að starfi Rauða krossins í landinu
sé þannig háttað að ekki hafi borið
á slíkum hindrunum hjá honum.
„Við leggjum áherslu á að aðstoða
alnæmissjúka í Zimbabve og höfum
gert það í nokkur ár,“ segir Sólveig.
„Við erum ekki í almennri matvæla-
dreifingu og því höfum við ekki orð-
ið fyrir því áreiti sem aðrar hjálp-
arstofnanir segjast hafa orðið
fyrir.“
Svartir listar
Fjórum zimbabveskum konum,
sem boðið hafði verið af Alþjóða-
stofnun Olof Palme til Svíþjóðar að
kynna sér jafnrétti í landinu, var á
mánudag neitað um landvistarleyfi í
Svíþjóð. Konurnar, sem allar eru
háttsettir embættismenn í stjórn
Mugabes, eru á nýjum lista Evr-
ópusambandsins (ESB) yfir þá sam-
starfsmenn forsetans sem ekki er
heimilt að heimsækja aðildarríkin.
Á listanum voru upphaflega tuttugu
nöfn, en í síðustu viku var 72 nöfn-
um bætt við hann.
Upplýsingaráðherra Zimbabve,
Jonathan Moyo, sem einnig er á
lista ESB, hótaði því um liðna helgi
að setja saman sinn eigin lista yfir
breska ríkisborgara sem óheimilt
væri að koma til landsins. Var yf-
irlýsing ráðherrans svar við því að
bresk yfirvöld neituðu Joshua Mal-
inga, háttsettum manni innan
ZANU-PF, inngöngu í landið, en
Malinga var á leið á ráðstefnu í
New York.
Mugabe sakaður um að
hindra dreifingu matvæla
Harare. AP.